Tíminn - 31.03.1989, Síða 16
16 Tíminn
llllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Hljómsveit Karls Jónatanssonar sem skemmtir á Selfossi á laugardaginn.
Nýlega var stofnuð stórhljómsveit (15
manna) undirstjórn Karls Jónatanssonar.
Söngkona með hljómsveitinni er Mjöll
Hólm.
Stórhljómsveit á Selfossi
Hljómsveitin heldur stórdansleik laug-
ardaginn 1. apríl að Hótel Selfossi, ásamt
3 öðrum hljómsveitum. „Þeir sem hafa
gaman af að dansa ættu ekki að láta sig
vanta, því að þetta er stórdansleikur, -en
ekkert aprilgabb!" segir í fréttatilkynn-
ingu frá hljómsveitinni.
London City Ballet sýnir
í Þjóðleikhúsinu um helgina
Þrjár hátíðarsýningar á sígildum ballett
verða í Þjóðleikhúsinu, þegar listamenn
London City Ballet sýna vinsæla kafla úr
sígildum hallcttum á föstudagskvöld,
laugardagssíðdegi og á sunnudagskvöld.
Á dagskrá verða:
1. Dansar úr Hnotubrjótnum. Höfund-
ur tónlistar er Tsjaikovskí, dansskáld:
PeterClegg. Búningarogleikmynd: Peter
Farmer.
2. Ummynduð nótt / Transfigured
Night. Höfundur tónlistar: Arnold
Schönberg. Dansskáld: Fran Staff. Sviðs-
setning: Veronica Paeper. Búningar og
leikmynd: Petcr Farmer.
3. Hátíðahöld - danssvíta / Celebra-
tions - a dancc suite. Höfundur tónlistar:
Giuseppe Verdi. Dansskáld: Michael
Beare.
Kvöldsýningar hefjast kl. 20:(K) og á
laugardag kl. 14:30. Aðeins verða þessar
þrjár sýningar. Enn eru möguleikar á að
kaupa ósóttar pantanir á sýningarnar.
Aukasýningar á leikitinu
BRESTIR eftir Valgeir Skagfjörð
Þjóðleikhúsið hefur aukasýningar á
leikriti Valgeirs Skagfjörð „BRESTIR“ á
Litla sviði Lindargötu 7 kl. 20:30 á
föstudags- og laugardagskvöld. Miðasala
er í Þjóðleikhúsinu.
Frístundahópurinn Hana nú
i gönguferð um Kópavog
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi vcrður á
morgun 1. apríl. Lagt af stað frá Digra-
nesvegi 12 kl. 10:00.
„Það er ekki 1. aprílgabb að vorið er
nú sannanlega komið í Kópavogi. Við
hlaupum ekki 1. apríl heldur röltum um
bæinn í skemmtilegum félagsskap og allir
eru velkomnir. Nýlagað molakaffi," segir
í fréttatilkynningu.
Tónleikar á gítar og klavikord
Símon H. fvarsson og dr. Orthulf
Prunner munu halda nokkra tónleika á
næstunni, bæði á Suður- og Norðurlandi.
Þeir leika á gítar og klavíkord.
Laugard. 1. apríl spila þeir á Hellu á
vegum Tónlistarskólans í Rangárvalla-
sýslu. Tónleikarnir þar hefjast kl. 15:00.
Sunnud. 2. apríl spila þeir í grunn-
skólanum á Húsavík kl. 21:00. Daginn
eftir spila þeir fyrir nemendur grunnskól-
ans og halda einnig námskeið fyrir gft-
arnemendurTónlistarskólans á Húsavík.
Þriðjudaginn 4. apríl spila þeir félagar
á Akureyri og verða tónleikarnir í Gamla
Lundi kl. 20:30. Ráðgert að þeirspili fyrir
nemendur í Menntaskólanum 5. apríl.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir J.S.
Bacn, Beethoven, Boccerini og M. de
Falla.
Norræna húsið:
Víkingafyrirlestur á síðasta
degi Víkingasýningarinnar
Sunnudaginn 2. apríl kl. 17:00 verður
síðasti fyrirlesturinn í röð fyrirlestra sem
haldnir hafa verið í tengslum við Víkinga-
sýninguna í Norræna húsinu og Þjóð-
minjasafninu.
Að þcssu sinni er fyrirlesarinn Anthony
Faulkes, prófessor við háskólann í Bir-
mingham, og nefnir hann fyrirlesturinn
„The Viking Mind“. Prófessor Anthony
Faulkes er fyrrv. forseti Víkingafélagsins
í Bretlandi og gaf nýlega út þýðingu sína
á Snorra Eddu, fyrstu heildarþýðingu
sem út kemur á ensku.
Víkingasýningunni lýkur sunnud. 2.
apríl, en hún hefur staðið yfir frá 21.
janúar. Aðsókn hcfur verið mjög mikil og
hafa margir skólabekkir skoðað sýning-
una og unnið að verkefni, sem Bryndís
Sverrisdóttir safnkennari við Þjóðminja-
safnið útbjó.
Sýningin er opin kl. 11:00-18:00 í
Norræna húsinu og Þjóðminjasafninu.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
félagsvist laugardaginn 1. apríl í Húna-
búð, Skeifunni 17, og hefst hún kl. 14:00.
Allir velkomnir.
Félagsvist Breiðfirðinga
Síðasti spiladagur framhalds-spila-
keppni á þessum vetri verður sunnudag-
inn 2. apríl og hefst kl. 14:30 í Sóknarsaln-
um, Skipholti 50A. Allir velkomnir. Góð
verðlaun. Nefndin
Aðalfundur Fugla-
vemdarfélagsins
Aðalfundur Fuglaverndarfélags íslands
verður haldinn í Hliðarsal Norræna húss-
insföstudaginn 31. mars kl. 17:00. Venju-
leg aðalfundarstörf.
Sýning Gretars í Nýhöfn
Gretar Reynisson opnar myndlistasýn-
ingu í Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugar-
daginn 18. mars kl. 14:00-16:00. Á sýn-
ingunni verða stór olíumálverk og teikn-
ingar. Verkin eru unnin á þessu og
síðastliðnu ári.
Gretar er fæddur árið 1957. Hann
stundaði nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands á árunum 1974-’78 og
veturinn þar á eftir dvaldi hann í Amster-
dam.
Þetta er sjötta einkasýning Gretars, en
hann hefur einnig tekið þátt í mörgum
samsýningum hér hcima og erlendis.
Gretar er einnig þekktur fyrir gerð
leikmynda, síðast „Stór og smár“ og
„Bílaverkstæði Badda” í Þjóðleikhúsinu
og á síðasta ári „Hamlet" hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og um helgar
kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 5. apríl.
BILALEIGA
meö utibu allt I knngurri
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bil á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
PÖJitum bíla erlendi?
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Fjölbreytt uppboð á
málverkum á Hótel Borg
19. málverkauppboð Gállerí Borgar.
sem haldið er í samstarfi við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktssonar, verður
haldið á Hótel Borg sunnud. 2. apríl og
hefst kl. 16:30.
Boðnar verða upp um 70 myndir, - þar
af um 20 úr þrotabúi Ávöxtunar s/f, t.d.
eftir listamennina Kristján Davíðsson,
Valtý Pétursson. Karl Kvaran. Benedikt
Gunnarsson, Karólínu Lárusdóttur og
Gunnar Örn.
Einnig verða boðnar upp nokkrar
gamlar, mjög góðar og verðmætar
myndir, svo sesm olíumálverk frá
Hvammi í Hvammssveit, eftir Þórarin B.
Þorláksson, Vestmannaeyjamynd eftir
Mugg, tvær stórar myndir eftir Kjarval,
nýkomnar frá útlöndum, og tvær vatns-
litamyndir eftir Ásgrím Jónsson. tvö verk
eftir Þorvald Skúlason, mynd eftir Svavar
Guðnason frá 1945 og Trúðurinn eftir
Erró frá 1975.
Uppboðsmyndirnar eru sýndar í Póst-
hússtræti 9fimmtud. 30. mars, föstud. 31.
mars kl. 10:00-18:00 og laugard. 1. apríl
kl. 14:00-18:00.
EINN •
yuj^
eftir/^:
EINN (
ei aki /
Sundlaugarnar í Laugardal eru opnar mán-
udaga - föstudaga kl. 7.00-20.00. Laugardaga
kl. 7.30-17.30 og sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Sundlaug Vesturbæjar er opin mánud.-föstud.
kl. 07.00-20.00, laugardaga 07:30-17.30 og
sunnudaga 08.00-15.30
Sundhöll Reykjavíkur eropi mánud.-föstud. kl.
07.00-19.30, laugardaga 07.30-17.30 og sunnu-
daga 08.00-13.30.
Sundlaugar Fb. Breiðholti: Opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.20-09.30 og 16.30-20.30, laugar-
daga kl. 7.30-17.30. Sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Lokunartími er miðaður við þegar sölu er hætt.
Pá hafa gestir 30 mín. til umráða.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga-
föstudaga kl. 7.00-8.00 og kl. 17.00-19.30.
Laugardaga kl. 10.00-17.30. Sunnudaga kl.
10.00-15.30.
Sundhöll Keflavíkur er opin mánudaga -
fimmtudaga: 7.00-9.00, 12.00-21.00. Föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og 12.00-19.00. Laugardaga
8.00-10.00 og 13.00-18.00. Sunnudaga 9.00-
12.00. Kvennatimar þriðjudaga og fimmtudaga
19.30-21.00.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og kl. 14.30-19.30. Laugar-
daga kl. 8.00-17.00. Sunnudaga kl. 8.00-12.00.
Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20.00-21.00. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-21.00. Laugardaga frá kl.
8.00-16.00 og sunnudaga frá kl. 9.00-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-8.00, 12.00-13.00 og 17.00-
21.00. A laugardögum kl. 8.00- 16.00. Sunnu-
dögum 8.00-11.00.
Sími 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.10-20.30. Laugardaga kl. 7.10-
17.30. Sunnudaga kl. 8-17.30.
Föstudagur 31. mars 1989
ÚTVARP/SJÓN VARP
Föstudagur
31. mars
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Yrsa Þórðardóttir
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn - „Agnarögnu eftir Pál H.
Jónsson. Heimir Pálsson, Hildur Heimisdóttir
og höfundur lesa (5). (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Kviksjá - Hvað hafði Platón eiginlega á
móti skáldskap? Umsjón: Emil Kjalar Emils-
son, heimspekingur. (Endurtekinn þáttur frá
þriðjudagskvöldi).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við borgarfulltrúann.
Umsjón: Jóhann Hauksson.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Heimsókn í Konserthúsið í
Gautaborg. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Börn og tungumálanám.
Umsjón: Ásgeir Friðgeirsson. (Einnig útvarpað
nk. miðvikudagskvöld kl. 21.30).
13.35 Miðdegissagan: „í sálarháska“, ævisaga
Árna prófasts Þórarinssonar. Skráð af Þór-
bergi Þórðarsyni. Pétur Pétursson les (22).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir
kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags
að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um ástand og horfur í íslensk-
um skipasmíðaiðnaði. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson. (Endurtekinn þáttur frá miðvikudags-
kvöldi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Simatimi. Umsjón: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart. -
Sónata í a-moll KV 310, fyrir píanó. Mitsyko
Uchida leikur á píanó. - Konsert fyrir fiðlu og
hljómsveit nr. 5 i A-dúr, KV 219. Anne-Sophie
Mutter leikur á fiðlu með Fílharmoniusveit
Berlínar; Herbert von Karajan stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Þingmál. Umsjón: Amar Páll Hauksson.
(Einnig útvarpað næsta morgun kl. 9.45).
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Hall-
dóra Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatíminn - „Agnarögn“ eftir Pál H.
Jónsson. Heimir Pálsson, Hildur Heimisdóttir
og höfundur lesa (5). (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Blásaratónlist. - Fantasia fyrir sópransaxó-
fón.þrjú horn og strengjasveit eftir Heitor Villa-
Lobos. Eugene Rousseau leikur á saxófón með
Kammersveit Paul Kuentz; Paul Kuentz
stjórnar. - Divertimento fyrir blásara í fjórum
jjáttum eftir Leonard Salzedo. Philip Jones
blásarasveitin leikur. - Konsert í Es-dúr fyrir
altsaxófón og strengjasveit Op. 109 eftir Alex-
ander Glasunow. Eugene Rousseau leikur á
saxófón með Kammersveit Paul Kuentz; Paul
Kuentz stjórnar. - Konsert í f-moll fyrir túbu og
hljómsveit í þremur þáttum eftir Vaughan Wil-
liams. John Fletcher leikur með sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna; André Previn stjórnar.
£1.00 Kvöldvaka. a. Um nafngiftir ísfirðinga 1703-
1845 Gísli Jónsson flytur fyrra erindi sitt. c.
Sunnukórinn á ísafirði og Karlakór ísafjarðar
syngja Söngstjóri er Ragnar H. Ragnar og
undirleikari Hjálmar H. Ragnarsson. d. Úr
sagnasjóði Árnastofnunnar Hallfreður Örn Ei-
ríksson flytur þáttinn. Umsjón: Gunnar Stefáns-
son. (Áður útvarpað 3. mars sl.).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Danslög.
23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónas-
sonar.
24.00 Fréttir.
D0.10 Samhljomur - Tónlistarmaður vikunnar,
Rut Ingólfsdóttir. Umsjón: Leifur Þórarinsson.
(Endurtekinn frá fimmtudagsmorgni).
)1.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.10 Vökulögin.
7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson og Jón
Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustend-
um. Jón Öm Marinósson segir Ódáinsvallasög-
ur kl. 7.45. Fréttir kl. 8.00, veðurfregnir kl. 8.15
og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30.
9.03 Stúlkan sem bræðir ishjörtun, Eva Ásrún
kl. 9. Morgunsyrpa Evu Ásrúnar AJbertsdóttur.
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir
það sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatiu.’Gestur Einar
Jónasson leikur þrautreynda gullaldartónlist.
14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkíkki. og leikur
ný og fin lög. - Útkíkkið upp úr kl. 14 og Arthúr
Björgvin Bollason talar frá Bæheimi.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp fyrir þá sem
vilja vita og vera með. Stefán Jón Hafstein,
Ævar Kjartansson og Sigríður Einarsdóttir. -
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00, hlustenda-
þjónustan kl. 16.45. - lllugi Jökulsson spjallar
við bændur á sjötta tímanum. - Stórmál dagsins
milli kl. 17 og 18.
18.03 Þjóðarsálin. Þjóðfundur í beinni útsendingu.
Málin eins og þau horfa við landslýð. - Hug-
myndir um helgarmatinn og Ódáinsvallasögur
eftir kl. 18.30.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Áslaug Dóra Eyjólfs-
dóttir kynnirtíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarp-
að á sunnudag kl. 15.00).
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum þýsku. Þýsku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Bréfaskólans. (Endurtekinn þáttur
frá 20. mars sl.).
22.07 Snúningur. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir ber
kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög.
02.05 Rokk og nýbylgja . Skúli Helgason kynnir.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
31. mars
18.00 Gosi (14). (Pinocchio). Teiknimyndaflokkur
um ævintýri Gosa. Leikraddir Örn Árnason.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.25 Kátir krakkar (6). (The Vid Kids). Kanadísk-
ur myndaflokkur í þrettán þáttum. Þýðandi
Reynir Harðarson.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (Eastenders). Breskur
myndaflokkur í léttum dúr. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
19.25 Leðurblökumaðurinn. (Batman). Banda-
rískur framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi Trausti
Júlíusson.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Barnamál. i þessum þætti verður fjallað um
nýliðna barna- og unglingaviku. Umsjón Sjón.
21.05 Þingsjá. Umsjón Ingimar Ingimarsson.
21.30 Derrick. Þýskur sakamálaflokkur með Derr-
ick lögregluforingja sem Horst Tappert leikur.
22.30 Týnda flugvélin (The Riddle of the Stinson).
Áströlsk kvikmynd frá 1987. Leikstjóri Chris
Noonan. Aðalhlutverk Jack Thompson, Helen
O’Connor, Norman Kaye og Richard Roxburgh.
Þann 19. febrúar árið 1937 lagði þriggja hreyfla
flugvél af Stinson gerð í sína hinstu flugferð.
Hún hvarf á leið sinni til Sidney í Ástralíu og
hófst strax víðtæk leit sem stóð yfir í sex daga.
Ekki fannst tangur né tetur af flugvélinni og voru
þeir sem í henni voru, tveir flugmenn og fimm
farþegar, taldir af. Einn maður, Bernard O’Reilly,
neitaði að gefast upp og var sannfærður að
hann gæti fundið flugvélarflakið, svo hann lagði
einn síns liðs út í auðnir Ástralíu til leitar.
Myndin er byggö á sannsögulegum atburöum.
Þýðandi Gunnar Þorsteinsson.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
15.45 Santa Barbara. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur.
16.30 í blíðu og stríðu. Made for Each Other.
Myndin fjallar um tvo einstaklinga, karl og konu,
sem hittast á námskeiði fyrir fólk sem þjáist af
minnimáttarkennd. Þau verða ástfangin og lýsir
myndin tilhugalífi þeirra sem var uppfullt af
skemmtilegum uppákomum. Aðalhlutverk: Ren-
ee Taylor, Joseph Bologna, Paul Sorvino og
Olympia Dukakis. Leikstjóri: Roberl B. Bean.
Framleiðandi: Roy Townshend. 20th Century
Fox. Sýningartimi 105 min.
18.25 Pepsí popp. íslenskur tónlistarþáttur þar
sem sýnd verða nýjustu myndböndin, fluttar
ferskar fréttir úr tónlistarheiminum; viðtöl, get-
raunir, leikir og alls kyns uppákomur. Þátturinn
er unninn í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar
gerð hans. Umsjón: Helgi Rúnar Oskarsson.
Kynnar: Hafsteinn Hafsteinsson og Nadia K.
Banine. Dagskrárgerð: Hilmar Oddsson. Stöð2.
19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.30 Klassapiur. Golden Girls. Gamanmynda-
flokkur um hressar miðaldra konur sem búa
saman á Flórída. Walt Disney Productions.
21.05 Ohara. Spennumyndaflokkur um litla,
snarpa lögregluþjóninn og sérkennilegar starfs-
aðferðir hans. Aðalhlutverk: Pat Morita, Kevin
Conroy, Jack Wallace, Catherine Keener og
Richard Yniguez. Wamer.
21.50 Útlagablús. Outlaw Blues. Tugthúslimurinn
Bobby ver tíma sinum innan fangelsismúranna
við að læra að spila á gítar og semja sveitatón-
list. Dag nokkurn sækir einn helsti snillingur
sveitatónlistarinnar, Dupree, fangelsið heim og
verður við langþráðri bón Bobbys um að hlusta
á nokkur laga hans. Nokkru siðar eða skömmu
áður en Bobby yfirgeíur fangelsið kemst hann
að því að Dupree hefur slegið í gegn með einu
lagi hans en kynnir það hins vegar sem sitt
eigið. Aðalhlutverk: Peter Fonda, Susan Saint
James, John Crawford og James Callahan.
Leikstjóri: Richard T. Heffron. Warner 1977.
Sýningartími 100 mín. Aukasýning 14. maí.
23.30 Blóðug sviðsetning. Theatre of Blood.
Hrollvekja með gamansömum undirtón. Aðal-
hlutverk: Vincent Price, Diana Rigg, lan Hendry
og Harry Andrews. Leikstjóri: Douglas Hickox.
MGM 1973. Sýningartimi 105 mín. Alls ekki við
hæfi barna. Aukasýning 16. maí.
01.15 Anastasia. Rakin er saga Anastasíu sem
talin var vera eftirlifandi dóttir Rússlandskeisara.
Aðalhlutverk: Ingrid Bergman. Yul Brynner,
Helen Hayes og Akim Tamiroff. Leikstjóri.
Anatole Litvak. 20th Century Fox 1956. Sýning-
artími 115 mín.
03.10 Dagskrárlok.