Tíminn - 26.08.1989, Qupperneq 4

Tíminn - 26.08.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 26. ágúst 1989 Menn geta safnað milljonaskuldum án þess að hafa nokkru sinni átt neitt: Skulduðu 1,7 m. kr. að jafnaði umfram eignir Kröfur upp á rúmlega 150 milijónir kr., auk allra vaxta og kostnaöar, voru afskrifaðar með auglýsingum um skiptalok í Lögbirtingablaðinu 10. og 16. ágúst s.l. Um var að ræða gjaldþrotaskipti á 70 búum, nær undantekningarlaust alger- lega eignalausum. Oftast var um einstaklinga að ræða, eða 55 tilfellum, sem skulduðu allt frá frá 35 þús.kr. og upp í rúmar 17 milljónir króna, þótt skuldir væru algengastar einhverstaðar á bilinu frá hálfri og upp í fjórar milljónir hjá hverjum. Hlutafélög voru 15 með allt frá 111 þús. kr. og upp í nær 24 milljónir króna. í síðast nefnda tilfellinu (24 in.kr. skuld) höfðu fundist um 800 þús.kr. eignir, þ.e. fyrir 3,3% af skuldunum. Varasamt að „skrifa upp á“ Að sögn Brynjars Níelssonar skiptaráðanda eru lang algengast að bú séu orðin eignalaus áður en þau koma til kasta skiptaráðanda. „Sum- ir hafa líka alla tíð verðir eignalausir, en samt gjaldþrota. Þeir hafa fengið lán, með því að fá einhvern til að skrifa upp á, því lánastofnanir hér veita eignalausum mönnum lán, bara ef þeir fá góða menn til að ganga í ábyrgð fyrir greiðslu. Menn geta á þessu landi safnað ótrúlegum skuldum án þess að hafa nokkru sinni átt neitt, jafnvel fleiri milljón- um. Aðrir hafa kannski verið í einhverjum rekstri, en eignirnar þá horfnar, í flestum tilfellum til veð- hafanna, áður en til gjaldþrotaskipta kemur. Þaðerallurganguráþessu". Ástæða þess að skiptalok eru auglýst tugum saman í einum og sama Lögbirtingi segir Brynjar þá að þessi eignalausu bú séu oft tekin saman og lokið mörgum í einu. Bú sem eignir eru í eru hins vegar oftast auglýst sérstaklega hvert og eitt. íbúð og bíll famar á uppboði í þeim tilfellum sem áður hefur verið um eignir að ræða í búi við- komandi, t.d. íbúð eða bíl, segir Brynjar algengast að kröfuhafar (veðhafar) séu áður búnir að fá fjárnám eða lögtak í þeim eignum og láta selja þær á uppboði upp í veðkröfur áður en til gjaldþrots kemur. Eignir séu því oftast upp urnar og menn löngu gjaldþrota í raun, áður en kemur til skipta. Aðrir kröfuhafar sem ekki hafa fengið sitt biðji síðan um gjaldþrot, þó engar eingir séu þá lengur til staðar. Erfitt að finna suma... Gjaldþrotaskipti í eignalausum búum taka yfirleitt ekki langan tíma. Að sögn Brynjars ræðst hann ekki síst af þeim tíma sem tekur að ná í viðkomandi fyrir réttinn. Því ekki sé hægt að ljúka málum án þess að taka skýrslur af mönnum. Það geti stund- um tekið langan tíma - jafnvel eitt til tvö ár. Því oft séu menn út um allt Texaco oröiö hluthafi í Olís og málaferli úr sögunni: Sættir milli Olíss og Landsbanka ísl. „Samkomulag hefur tekist milli Landsbankans og Olíss. Olís hefur stórbætt stöðu sína einkum við það inn í félagið kemur voldugur aðili. Okkur hefur tekist að ná viðunan- legri niðurstöðu og við væntum þess að eðlileg viðskipti geti héðan af orðið milli bankans og félagsins," sagði Sverrir Hermannsson banka- stjóri Landsbanka íslands í gær. Sverrir sagði að fyrir lægi undir- skrifaður samningur um kaup Tex- aco á hlutabréfum í Olís. Þá væri í samkomulagi bankans og fyrirtækis- Kænim vegna skatta- álagningar fjölgar Frestur til að skila inn kærum vegna skattálagningar fyrir síðasta ár rennur út að kvöldi næstkom- andi þriðjudags 29. ágústs. Flest bendir til að kærur verði með meira móti í ár. Helsta ástæða þess er að menn eru ekki búnir að venjast nýja staðgreiðslukerfinu. j Margir virðast vera ósáttir við útreiknaðan skatt því að kærur hafa verið með meira móti. Ekki er þó útséð með hvað kærur verða margar því kærufrestur er ekki útrunninn og jafnan koma mjög mikið af kærum síðustu tvo dag- ana. Skattstofurnar búast því við að mikið verði að gera hjá þeim eftir helgina. Ekki er enn farið að afgreiða kærurnar nema í litlum mæli því mikið er um sumarfrí starfsfólks og nóg að gera við að taka á móti kærunum. Búast má við því að það dragist fram eftir vetri að afgreiða þær allar. Ástæður þess að fleiri telja sig þurfa að kæra nú en áður eru ýmsar en meginástæðan er sú að þetta er í fyrsta skipti sem stað- greiðslukerfið er reynt og það tek- ur tíma fyrir menn að læra á það. í tveim tilfellum hafa komið fram villur sem orsakast af því að tölvur hafa verið vitlaust mataðar. Ann- ars vegar var um að ræða sjó- mannafrádrátt og hins vegar at- vinnuleysingatryggingargjald sem leggst á vinnuvikna fjölda launa- greiðanda. Hvort tveggja hefur nú verið leiðrétt. Nokkuð hefur færst í vöxt að fóik skili ekki skattaframtali á réttum tíma. í fyrra varð veruleg aukning í þessa átt og sú aukning hélt áfram á þessu ári. Flestir þeir einstaklingar sem ekki hirða um að skila framtali kæra álagningu skatt- stjóra. Skattstjórar treystu sér ekki til að skýra af hverju þessi fjölgun stafar. - EÓ ins, sem gengið var frá í gærmorgun, tilgreint hvernig og að hve miklu leyti kostnaður af málarekstri bank- ans gagnvart Olís yrði greiddur. Sverrir var spurður hvort hann vænti þess að samskipti bankans og forstjóra Olíss yrðu með öðrum og vinsamlegri hætti en verið hefur: „Við treystum því að nú höfum við náð starfhæfum samkomulags- grundvelli enda höfum við nú undir- skrifað nýtt samkomulag um við- skipti fyrirtækjanna.“ - sá land og fari þar kannski stað úr stað. Skipti á búi þar sem einhverjar eignir eru til staðar eru flóknari og geta tekið mörg ár. Lokadómurinn... Þeir 55 einstaklingar sem skipta- lok voru auglýst hjá að þessu sinni skulduðu samtals um 92 millj. kr. auk vaxta og kostnaðar, sem þýðir tæplega 1,7 millj.kr. að meðaltali á mann. Ekki er að efa að aðdragandi margra þessara gjaldþrota hefur ver- ið strangur og langur í mörgum tilfellum. Niðurstaðan, skiptalok, er um fjögurra dálksentímetra auglýs- ing í Lögbirtingi: „Bú... NN... , var tekið til gjald- þrotaskipta með úrskurði skiptarétt- ar Reykjavíkur, uppkveðnum þann 16. janúar 1989. Engar eignir fund- ust í búinu og var skiptameðferð lokið þann 10. júlí 1989 með vísan til 120. gr. laga nr. 6/1978 án þess að nokkur greiðsla fengist upp í Iýstar kröfur sem samtals voru að fjárhæð kr. 5.970.281 auk vaxtaogkostnaðar eftir upphafsdag skipta". - HEI Aldarafmæli Víði- dalstungukirkiu Hinn 3. september næstkomandi verður fagnað hundrað ára afmæli Víðidalstungukirkju í Vestur- Húnavatnssýslu. Kirkjuhúsið er allstórt úr timbri og rúmar um hundrað manns í sæti. Rækileg viðgerð fór fram á kirkjunni í kringum 1960. Meðal kirkjugripa er altaristafla sem Ás- grímur Jónsson málaði árið 1916 en hún sýnir fjallræðuna. Forn kaleikur og patína eru varðveitt í Þjóðminjasafninu. í fyrri tíð var sérstakur prestur í Vfðidalstungu en Víðidalstungu- kirkja hefur nú um aldaraðir verið annexía frá Breiðabólsstað, þar sem nú er prestur Kristján Björnsson. SSH Endanlegar niöurstööur varðandi PCB í Sundahöfn sýna að eiturefnið er í jarðveginum: Magnið undir mörkum PCB greindist í öllum sýnunum utan einu sem tekin voru úr spennum og úr jarðvegi á athafnasvæði Hring- rásar hf. í Sundahöfn og send voru utan til rannsóknar. Magn efnisins er undir mörkum reglugerðar er varðar innflutning, notkun og förgun PCB. Þar sem þau mörk eru mun hærri en gerist víðast erlendis mun Hollustuvernd ríkisins fara fram á að þeim spennum sem innihalda PCB verði fargað sem hættulegum úrgangi. Engar reglur eru til hér- lendis um hámarksinnihald PCB í jarðvegi. í fréttatilkynningu frá Hollustu- vernd ríkisins segir að samkvæmt endanlegum niðurstöðum dönsku umhverfisverndarstofnunarinnar i Kaupmannahöfn greindist PCB i öllum jarðvegssýnum og öllum olíusýnum utan einu. Magn PCB í olíusýnunum er í öllum tilfellum undir þeim mörkum sem reglugerð um innflutning, notkun og förgun PCB efna nær til, en engar reglur eru um hámarksinnihald í jarðvegi hér á landi. Síðan segir í tilkynningunni: „Mengunarvarnir Hollustuverndai ríkisins telja engu að síður rétt, þai sem mörk í ofangreindri reglugerð eru mjög há (mun hærri en víðasl erlendis), að þeim spennum sem innihalda PCB verði fargað sem hættulegum úrgangi." Tíminn hafði samband við Ólaf Pétursson forstöðumann Hollustu- verndar ríkisins og innti hann eftir því hvað yrði gert vegna mengunar jarðvegsins. „Það er ekki Ijóst í dag hvað verður gert. Eins og kemur fram í tilkynningunni eru engar reglur um hámarksinnihald í jarð- vegi, það verður bara að skoðast hvað nauðsynlegt er að gera í því sambandi. Við munum væntanlega gera okkar tillögur en þar sem engar reglur eru brotnar þá sé ég ekki möguleika á að gera beina kröfu um hreinsun jarðvegsins," sagði Ólafur. Ný mengunarvarnareglugerð tek- ur gildi um næstu áramót og sagði Ólafur að ef hún hefði verið í gildi núna þá hefði hugsanlega verið hægt að vísa í hana varðandi mengun jarðvegsins. Ólafur bætti því við að hann hefði þá trú að það væri vilji allra aðila að Ijúka þessu máli eins farsællega og unnt væri. Enn væri ekki Ijóst hvað yrði gert við jarðveginn eða hver bæri kostnaðinn af hreinsun hans ef ráðist yrði í slíka framkvæmd. SSH

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.