Tíminn - 26.08.1989, Blaðsíða 12
24 Tíminn
Laugardagur 26. ágúst 1989
VATRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Peugeot 309 árgerð 1988
Suzuki Swift árgerð 1988
Nissan Sunny árgerð 1987
Mazda 626 árgerð 1987
Mazda 626 árgerð 1987
Galant 1600 árgerð 1986
Nissan Micra árgerð 1985
Toyota Corolla árgerð 1985
Ford Sierra árgerð 1985
Daihatsu Charmant árgerð 1985
Renault 9 árgerð 1985
Toyota Corolla árgerð 1984
Volvo 240 árgerð 1983
Toyota Lifte ace árgerð 1983
Toyota Carina árgerð 1982
Mercedes Benz 300 D árgerð 1982
VW Golf árgerð 1982
VW Golf GL árgerð 1982
Nissan Cherry árgerð 1982
Mazda 323 árgerð 1981
Opel Kadett árgerð 1981
Mercury Monarc árgerð 1978
Vélhjól: Honda VF500 árgerð 1986
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka
Reykjavík, mánudaginn 28. ágúst 1989, kl. 12-16.
Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands
h.f., Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir
kl. 16, mánudaginn 28. ágúst 1989.
VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF
- ökutækjadeild -
ÁpTRIMA
Moksturstæki
á allar dráttarvélar
I2TRIMA
* BergsjóTrima AB
Sérstakt tilboðs-
verð á tækjum sem
pöntuð eru fyrir 15. sept.
KAUPFÉLÖGIN OG
BÚNABARDEILD
ÁRMLJLA3 REYKJAVlK SlMI 38900
MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Þorbjörn
Jóhannesson
Fæddur 10. mars 1912
Látinn 6. júlí 1989
Til foldar var færður og kvaddur
hinstu kveðju þann 13. júlí síðastlið-
inn heiðursmaðurinn Þorbjörn Jó-
hannesson kenndur við Borg. Þor-
björn markaði sér með lífshlaupi
sínu óbrotgjarnan minnisvarða í
uppbyggingu að Bæ í Borg enda
frábær dugnaðarmaður að hverju
sem hann gekk.
Ég sem þessar línur rita á því láni
að fagna að hafa kynnst Þorbirni
Jóhannessyni. Á barnsaldri þá var
hann starfsmaður hjá kjötbúð Borg-
firðinga að Laugavegi 20, ég sem
barn í fylgd með föður mínum, sem
var að versla í búðinni, vakti þessi
maður athygli mína fyrir útlit og
orðakipti hans og föður míns! Ég
spurði föður minn á leiðinni heim úr
búðinni hver þessi maður væri. Svar-
inu hef ég aldrei gleymt; þessi dreng-
ur á eftir að sýna hvað í honum býr.
Þar reyndist faðir minn sannspár,
því átti ég svo sannarlega eftir að
kynnast í öllum viðskiptum mínum
við Þorbjörn í Borg, sem matsveinn
á bátum, togurum og millilandaskip-
um að allt sem kom frá kjötbúðinni
Borg var afbragðs vara og allt sem
lofað var stóð sem stafur á bók.
Þorbjörn vissi af kynnum sínum að
í skipum sem lögðu frá landi stór
sem smá, var undirstaðan brauð
þeirra er verkin unnu vegna þess að
brugðist gat til beggja vona þótt lagt
væri frá landi í blíðu veðri. Og
áætlaður timi þeirra sem í landi
ákvæðu upp á dag hvað veiðiferðin
tæki langan tíma. Þorbjörn gaf mér
eins og í svo mörgu öðru góð ráð, að
það væri betra að hafa einu kjöt-
kílóinu fleira en færra. Ég er þakk-
látur Þorbirni fyrir hans ráðleggingar
enda aldrei orðið fyrir þeim skakka-
föllum að hafa ekki nógan kost.
Þorbjörn var hreinskiptinn
maður, harður í horn að taka en
ætlaðist ekki til af öðrum, sem hann
sjálfur stóð ekki undir. Sannasta
dæmið um það er að áratugum
saman hefir hann haft í þjónustu
sinni sama starfsfólkið og segir það
fleira en mörg orð.
Hann var borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, í stjórn
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, stjórnarformaður bygging-
arfélagsins Brú hf. og fyrsti formað-
ur Háteigskirkju. Hann var formað-
ur Sambands dýraverndunarfélags
íslands og einn af stofnendum sam-
bandsins.
Foreldrar Þorbjörns voru Jóhann-
es Jónsson trésmiður og Helga Vig-
fúsdóttir. Þorbjörn kvæntist eftirlif-
andi konu sinni Sigríði Huldu Ein-
arsdóttur árið 1933. Börn þeirra eru
Elín gift Othari Hanssyni fiskverk
fræðingi í Boston, Svanhildur, látin,
var gift Guðmundi Friðrikssyni bif-
reiðarstjóra hjá Reykjavíkurborg og
Einar verkfræðingur hjá Reykjavík-
urborg, en kona hans er Astrid
Kofoed Hansen.
Ég hefi stiklað hér eins og á
steinum yfir vað í lífshlaupi Þor-
björns í Borg, eins af merkustu
styrktarstoðum fæðingarbæjar síns,
en dýrmætasta perlan hans og sú
sem studdi við bakið á honum í blíðu
og stríðu í 56 ár, líka Reykvíkingur,
eiginkona hans Sigríður Hulda Ein-
arsdóttir, því enginn eignast betra
en góðan lífsförunaut, konu og
mannvænleg börn. Ég sendi Sigríði,
börnum og niðjum, vinum og vensla-
fólki mína innilegustu samúð við
fráfall Þorbjarnar Jóhannessonar.
Það er skarð fyrir skildi, en minning
um heilsteyptan persónuleika og
góðan dreng yljar okkur um hjarta-
rætur.
Blessuð sé minning Þorbjörns í
Borg.
Steingrímur Nikulásson.
FRÍMERKI
11
lllllllllí
I
Nýjar frímerkjaútgáfur
Þann tuttugasta september næst-
komandi koma út tvær nýjar frí-
merkjaútgáfur á vegum Póstmála-
stjórnar. Eru það annarsvegarlands-
lagsfrímerki með myndum af
Skeggja við Arnarfjörð að verðgildi
35,00 krónur, og hinsvegar með
mynd af Hverarönd við Námaskarð
að verðgildi 45,00 krónur. Hin útgáf-
an er svo til að minnast aldarafmælis
Bændaskólans á Hvanneyri.
Þröstur Magnússon hefir hannað
landslagsfrímerkin, en Pétur Friðrik
Sigurðsson hefir hannað merkið með
mynd af Hvanneyri. Öll eru merkin
marglit. Landslagsmerkin eru prent-
uð í Sviss hjá Gourvoisier, en
Hvanneyrarfrímerkið hjá Austur-
rísku ríkisprentsmiðjunni í Vín.
Arkarstærð þeirra er 50 merki í örk.
Fjallið Skeggi við Amarfjörð er
eitt af tignarlegri fjöllum landsins.
Austan Námaskarðs er aragrúi lit-
ríkra leirhvera og eitt mesta hvera-
svæði landsins. Er allt svæðið um-
myndað af jarðhitanum og litríkt
sökum úrfellinga og brennisteins,
sem eitt sinn var unninn þar.
Bændaskólinn á Hvanneyri var
stofnaður árið 1889. Suðuramtið
keypti jörðina Hvanneyri og hóf
skólarekstur þar um krossmessu þá
um vorið.
í fornum sögum segir að fyrsti
bóndinn á Hvanneyri hafi verið
Grím hinn háleyska frá Noregi, sem
nam þar land um árið 890. Hann
hefur sennilega valið Hvanneyri til
búsetu vegna hinna góðu flæðiengja
þar. Það em sömu kostir og urðu til
þess að bændaskólinn var stofnaður
þar þúsund ámm síðar.
Þegar á 13. öld var Hvanneyri
orðin kirkustaður. Bændaskólinn
á kirkjuna.
Á fyrstu átján ámm skólans tók
námið að jafnaði tvö ár. Meiri hluti
skólatímans var notaður í verklega
kennslu. Bændadeild skólans er nú
tveir vetur. Ein námsönn, 13 vikur,
er verklegt nám hjá bændum sem
skólinn hefur gert samning við.
Nemendur sem útskrifast úr bænda-
Frúnerkin sem út koma 20. september.
deild skólans fá titilinn búfræðingur.
Árið 1947 var hafin háskóla-
kennsla í búfræði á Hvanneyri, deild
sem nú nefnist Búvísindadeild.
Námið tók í upphafi tvo vetur en
árið 1965 var það lengt í þrjá vetur.
Nemendur fá Iærdómstitilinn bú-
fræðikandidat eða B.Sc. Árið 1979
var farið að bjóða þeim sem út-
skrifuðust eins vetrar framhalds-
nám. Að því loknu hljóta menn
gráðuna B.Sc. 120, þar sem talan
vísar til þess að námið hafi staðið í
120 vikur.
Skólinn hefur allt frá aldamótum
boðið upp á námskeið og aðra
endurmenntun fyrir starfandi fólk í
landbúnaði. Árið 1988 var ráðinn
endurmenntunarstjóri við skólann,
sem er ætlað að skipuleggja og auka
þessa starfsemi í landinu.
Allt frá upphafi skólans hefur
skólabúið verið notað til kennslu og
rannsókna. Stærð jarðarinnar er um
650 ha, þar af 100 ha tún og 100 ha
fiæðiengi. Töluverð laxveiði er í ám
í eigu skólans. Lengst af hefur verið
búið með sauðfé, hross og nautgripi.
Árin 1937-1949 og frá 1984 hefur
auk þess verið loðdýrabú á Hvann-
eyri. Gripahúsin eru fjós, byggt árið
1929, hesthús og fjárhús byggt 1943
og loðdýrahús frá 1984.
Fljótlega eftir að skólinn var stofn-
aður fóru kennarar að stunda rann-
sóknir. Eftir að Búvísindadeildin
var stofnuð jókst þessi þáttur. Kom-
: 35°° /
mm
> * J> M. Æ M Æ A m»M M.JL,M..M.Æ Jk J» JL.M.J
ið var upp aðstöðu til efnarannsókna
1947 og byggt yftr þá starfsemi
rannsóknahús sem tekið var í notkun
árið 1987. Árin 1954 og 1955 komust
bútækni- og jarðræktartilraunir á
fastan grundvöll. Síðan 1965 hafa
bútæknitilraunir á Hvanneyri verið
gerðar af Bútæknideild Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins.
Þau hundrað ár sem skólinn hefur
starfað hafa útskrifast 2472 bú-
fræðingar, en allmiklu fleiri hafa
stundað nám við skólann í lengri eða
skemmri tíma. Meirihluti búfræð-
inga hefur starfað við landbúnað
einhvern tíma á ævinni. Síðan Búvís-
indadeildin var stofnuð hafa útskrif-
ast 165 búfræðikandidatar sem lang
flestir starfa við landbúnað.
Þá má geta þess að sérstakur
stimpill verður í notkun á frímerkja-
sýningunni Riccione á Ítalíu dagana
26.-28. september 1989.
Smáörkin sem gefin var út á degi
frímerkisins í fyrra verður ekki til
sölu hjá póstinum nema til 1. sept-
ember næstkomandi.
Sigurður H. Þorsteinsson