Tíminn - 26.08.1989, Qupperneq 17
Laugardagur 26. ágúst 1989
GLETTUR
- Þarna finn ég þig, Þorvaldur minn. Ég
vissi að þú vildir ekki missa af þessari
söfnun...
- Ég veit að þetta lítur kannski ekki vel út,
- en útbúnaðurinn er fyrirtak...
- [ dálkinum, þar sem spurt er um foreldra,
þurfum við að fá nánari upplýsingar en
„Mamma og pabbi“
- Ég þekki hann strax ... það er þessi með
hattinn!
Tíminn 29
rcuikk
Hér sjáum við hvernig Fred Travelina breytist stig af stigi
í Bush Bandaríkjaforseta
Að búatil
forseta
Þeir segja í Bandaríkjun-
um að allir hafi möguleika á
að geta orðið forseti ríkisins.
Hér sjáum við hvernig sjón-
varps-listamaður sannar það.
Fred Travelina, sem er víst
leikari og eftirherma við
sjónvarpsstöð, sýnir á þess-
um myndum hvernig hann
tekur á sig gervi Georges
Bush Bandaríkjaforseta!
Fyrst er sett andlitsgríma á
Fred, og unnið í hana með lit
og mótaðir drættir og hrukk-
ur og eftir 4 langar og erfiðar
klukkustundir er viðeigandi
hárkolla sett á leikarann og
síðan gleraugu, - „og hér er
þá George Bush lifandi
korninn," eins og förðunar-
meistarinn sagði.
Eins
klæddar
Það þykir heldur vand-
ræðalegt þegar konur koma í
sínu fínasta pússi og mæta
annarri - sem er alveg eins
klædd.
En þessar frægu, sem sí-
fellt eru myndir af í blöðun-
um, eru í enn meiri hættu
hvað það snertir að eiga tví-
fara í klæðaburði.
Þó það séu dagar eða jafn-
vel vikur á milli birtinga
mynda, þá tekur fólk eftir
því, - að þessi og þessi voru
alveg eins klæddar, og það
þykir frétt til næsta bæjar.
f>á fer nú að skýrast hvers
vegna þessar þekktu persón-
ur eyða stórfé í sérsaumuð
„módel-föt“.
Hér sjáum við nokkur
dæmi úr amerísku vikuriti,
þar sem ljósmyndarar leika
sér að því að jafna saman
myndum af frægum konum
eins klæddum líkt og sam-
stæðum í spilinu „Svarta-
Pétri“.
„Dallas-stjarnan" Linda Gray (t.v.) og Michele Lee sem
þekkt er úr sjónvarpsþáttunum „Knots Landing" mættu
báðar í samkvæmum í Hollywood - með nokkurra daga
millibili - í alveg eins kjólum. Þær eru hér settar inn á
eina og sömu myndina, en það var ekki svo slæmt í
raunveruleikanum
Christie Brinkley (t.v.) er
fræg Ijósmyndafyrirsæta í
New York. Hún er þarna á
frumsýningu í útsaumuð-
um svörtum leðurjakka við
stuttan svartan kjól,
- en Debbie Gibson (hér Jacqueline Kennedy Onassis skiptir aðallega við tísku-
fyrir ofan) kemur á aðra hönnuðinn Carolinu Herrera, sem t.d. sá um brúðarkjól
frumsýningu i Los Ange- Caroline Kennedy og „móður-brúðarinnar-kjól“ Jackie
les nákvæmlega eins O. við sama tækifæri. En hér hefur hönnuðurinn Herrera
klædd farið illa að ráði sínu við einn sinn besta kúnna, - því að
nokkrum dögum áður en Jackie (t.v.) notaði þennan
silkijakka og pils frá Herrera, mætti tískuhönnuðurinn
sjálfur í eins dressi á leikhússýningu