Tíminn - 28.04.1993, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 28. apríl 1993
Tíminn 3
Engin kröfuganga verður í Bolungarvík 1. maí n.k.
en ræðu dagsins flytur Jóhann Pétur Sveinsson, for-
maður Sjálfsbjargar. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri:
Ofviða
að halda
báðum
skipunum
Nokkurrar gremju og jafnvel reiði gætir meðal Bolvíkinga út í
Gríndavík og Hafnarfjörð fyrír að bjóða á móti þeim í kvóta og tog-
ara þrotabús Einars Guðfinnssonar hf. Ólafur Krístjánsson bæjar-
stjórí segir að þótt heimamenn vilji halda báðum skipunum í hér-
aði kunni það að verða þeim ofviöa. Hins vegar verði allt kapp lagt
á að nýta forkaupsrétt bæjarfélagsins aö öðru skipinu. Daði Guð-
mundsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins, segir að
ef togaramir og kvótar þeirra verði keyptir í burtu úr plássinu og
ekkert annað komi í staðinn, blasi ekkert annað en hmn við bæjar-
félaginu. Verulega hefur fækkað á atvinnuleysisskrá hjá félaginu
og um þessar mundir em þar 63 á skrá. Við síðustu bótaútgreiðslu
fengu 103 greiddar atvinnuleysisbætur.
AÐALSTEINN GUÐMUNDSSON , bóndi á Laugabóli við Amarfjörð, missti nýlega allt sitt (
bmna sem kviknaði út frá Ijósavél. „Ég var að lesa Tímann, ekki Moggann, sagöi Aðalsteinn um það þegar
hann varð eldsins var. Nautgripum, tveimur kúm, kálfum og nauti var bjargað úr fjósi áföstu hlöðunni. Að-
alstein sakaði ekki og dvelst á dvalarheimili aldraðra á Bíldudal um þessar mundir.
Næstu vikur munu heimamenn
róa lífróður og reyna hvað þeir
geta til að safna nægilega miklu fé
til að geta nýtt sér forkaupsrétt
sveitarfélagsins að lífsbjörginni.
En eins og kunnugt er þá heimil-
aði veðhafafundur í fyrradag
skiptastjóra að ganga til samninga
við Háagranda í Hafnarfirði og
Grindavík sem áttu hæstu tilboðin
í skip og kvóta.
Engin kröfuganga verður í Vfk-
inni á baráttudegi verkalýðsins
þann 1. maí n.k. og hefur svo ekki
verið í gegnum tíðina nema ef vera
skyldi í árdaga verkalýðshreyfingar
við Djúp. Hins vegar verður boðið
upp á ræðu dagsins sem er nýmæli
því þar hefur ekki verið haldin 1.
maí ræða sl. 15-20 ár. Ræðumaður
dagsins verður Jóhann Pétur
Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar.
Það helgast m.a. af því að þann dag
verða teknar í notkun þrjár íbúðir
fyrir fatlaða í bænum. En sem fyrr
verður boðið upp á ýmis skemmti-
atriði og kaffiveitingar í tilefni
gsins.
Mafur Kristjánsson bæjarstjóri
segir að þótt heimamenn vilji
halda báðum togurunum og kvóta
þeirra í héraði sé nokkuð ljóst eftir
veðhafafundinn í fyrradag að það
kunni að verða þeim ofviða. Hann
segir að nú sé komið að þeim tíma-
punkti að allir bæjarbúar verði að
leggjast á eitt í þeim lífróðri sem
framundan er til að geta keypt
a.m.k. annað skipið og kvóta þess.
Daði Guðmundsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Bol-
ungarvíkur, gagnrýnir harðlega
verkamannafélagið Hlíf í Hafnar-
firði fyrir þátttöku þess í því að
reyna að taka lífsbjörgina frá
heimamönnum með því að bjóða í
Heiðrúnu og kvóta hennar í komp-
aníi með Hafnarfjarðarbæ í Háa-
granda hf.
„Er það í anda þess bræðralags og
samvinnu sem verkalýðshreyfing-
in er alltaf að tala um, að pikka svo
upp eitt og eitt byggðarlag við sjáv-
arsíðuna og leggja það í rúst?
Verkalýðshreyfmgin verður að fara
að móta sér einhverja heildar-
stefriu í þessum málum eða er það
kannski markmiðið að leggja hin
smærri pláss niður í krafti peninga
og valds? Vill formaður Hlífar
kannski fækka einhverju af sínu
fólki í álverinu fyrir einhverja af
sjómönnunum. Ég held ekki.“
-grh
Ólafur Ragnar segir tímabært að kynnisferð Össurar
y í Alþýðuflokkinn^úki:
„Ég býð Ossur
velkominn heim“
„Ég skil ummæli össurar bara á einn
veg. Hann er að segja sínum stuðn-
ingsmönnum að að hans dómi sé ekki
orðinn mikiU munur á Alþýðubanda-
laginu og Alþýðuflokknum og þess
vegna geti hann hæglega komið aftur
til okkar,“ sagði Olafur Ragnar
Grímsson,
Össur Skarphéðinsson, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, hefur sagt
í fjölmiðlum nýlega að hann telji að
það sé að skapast grundvöllur fyrir
samstarfi milli A- flokkanna, samstarfi
sem í náinni framtíð geti leitt til breyt-
inga á flokkaskipan í landinu.
„Eg bauð Össur velkominn til okkar í
vetur í þingræðu. Ég benti honum á
að Winston Churchill hefði átt þann
feril að vera fyrst í íhaldsflokknum en
fara svo í smákynnisferð yfir í Frjáls-
lynda flokkinn og fara svo aftur í sinn
gamla flokk. Qg mér finnst alveg tíma-
bært að þessari kynnisferð Össurar í
Alþýðuflokkinn fari nú að ljúka. Hann
er velkominn heim aftur," sagði Ólafur
Ragnar.
Ólafúr Ragnar sagðist hafa tekið eftir
að ummæli Össurar hafi ekki fallið í
góðan jarðveg hjá formanni Alþýðu-
flokksins, Jóni Baldvin Hannibalssyni.
Það hljóti að skipta höfuðmáli í sam-
bandi við umræður um samstarf A-
flokkana. „Ég hef alltaf viljað búa til
stóran flokk íslenskra jafnaðarmanna.
Ég tel að Jón Baldvin og Jón Sigurðs-
son hafi brugðist því algerlega eftir
sfðustu kosningar. Þeir hafa ekki sýnd
nein merki þess að þeir ætli að bæta
fyrir þau svik. En ef Össur vill bæta
fýrir þau og búa til stóran jafnaðar-
mannaflokk með því að koma aftur
heim þá er hann velkominn," sagði Ól-
afur Ragnar. -EÓ
Fjölskyldugarður
opnar á Jónsmessu
Áætlað er að opna svonefndan
Fjölskyldugarð í Laugardal á
Jónsmessu 23. júní í sumar. Að-
gangur verður ókeypis í Húsdýn-
og Fjölskyldugarð í einn mánuð
eftir opnunina.
Þetta kom fram í svari borgar-
stjóra við fyrirspum á borgarráðs-
fundi í gær. Þar var lagt til að
rekstur Húsdýra- og Fjölskyldu-
garðs heyrði undir íþrótta-og tóm-
stundaráð og framkvæmdastjóri
þess hafi yfirumsjón með dagleg-
um rekstri garðanna.
Á fundinum vom lögð ffam drög
að gjaldskrá. Þar er gert ráð fyrir
að fullorðnir greiði 450 kr. í að-
gangseyri í Húsdýragarð og Fjöl-
skyldugarð en böm á aldrinum 6
til 12 ára greiði 250 kr. Þá verður
jafnframt boðið upp á árskort fyrir
böm, fullorðna og hópa.
Einn frægasti sjónvarpsmaður heims þulur í bandarískri sjónvarps-
þáttaröð um Norðurlöndin:
WALTER CRONKITE
í ÍSLANDSÞÁTTUM
Frægasti fréttaþulur í heimi, Bandaríkjamaðurinn Walter Cronkite,
kemur til islands í ágúst til að gera sjónvarpsþætti, sem sýndir
verða um gervalla Norður Ameríku á næsta árí. Þættirnir eiga aö
flalla um Noröuríöndin fimm og verða 13 alls. Framleiðandi þeirra
er væntanlegur til landsins í næstu viku til að ráða yfirmann fram-
kvæmdanna á islandi.
Heiti þáttaraðarinnar verður
Scandinavia, því að í Bandaríkjun-
um eru Norðurlöndin þekkt undir
því nafni. Þættirnir verða sendir út á
sama tíma og vetrarólympíuleikam-
ir fara fram í Lillehammer. Mynda-
tökur em þegar hafnar í Svíþjóð og
Noregi og ætlast er til að tökur hefj-
ist á Islandi eftir mánuð.
„Ég vona að þættimir hafi mikil
áhrif á bandaríska sjónvarpsáhorf-
endur," segir Beverley Hubric, for-
stöðumaður The Viking Project Inc.
í Virginíu, sem framleiðir þættina.
„Öll löndin fá einhverja umflöllun í
hverjum þætti. Fjallað verður um
umhverfismál, iðnað, félagsmál og
svo framvegis, en umfram allt um
stöðu Norðurlanda í dag og hver
áhrif þau hafa á Norður Ameríku.
Við beinum einnig athygli okkar að
þeim Bandaríkjamönnum, sem eiga
uppmna sinn að rekja til þessara
landa. Að loknum sýningum á þátt-
unum ættu áhorfendur að minnsta
kosti ekki að velkjast í vafa um hvar
þessi lönd séu á landakortinu."
Framleiðendur þáttanna álíta að
Norðurlönd standi framar Banda-
ríkjunum á ýmsum sviðum. Þeir
vilja opna augu Bandaríkjamanna
fyrir því að sitthvað megi læra af
norrænum mönnum. „Þá á ég öðm
fremur við umhverfis- og heilbrigð-
ismál, en einnig ýmislegt varðandi
iðnað og verkfræði."
The Viking Project ver 4,3 milljón-
um dollara (um 271 milljón króna)
til framleiðslunnar og hefur nú þeg-
ar aflað 65 hundraðshluta þess.
Þættimir verða sýndir á sjónvarps-
stöðinni PBS, sem ekki hefur tekjur
af auglýsingum, en styðst við kost-
ara. Talið er að 30 milljónir áhorf-
enda muni fylgjast með þáttunum,
ekki síst úr því að fréttahaukurinn
gamli, Walter Cronkite, hefur fallist
á að vera leiðsögumaður um Norð-
urlöndin. Cronkite er íyrrverandi
fréttastjóri CBS sjónvarpsstöðvar-
innar. Um skeið sýndu skoðana-
kannanir að hann væri virtasti mað-
urinn í Ameríku.
Hugmyndin að þáttaröðinni kemur
upphaflega frá Claes Jacobsen, dönsk-
um sjónvarpsmanni, sem var upplýs-
ingafulltrúi Norðuríandaráðs frá ár-
inu 1985 til 1989. Hann er fram-
kvæmdastjóri þáttagerðarinnar í Dan-
mörku, Aake Ortmark í Svíþjóð, Matti
Kohva í Finnlandi og Rita Anja Huste í
Noregi. Enn hefur enginn verið ráð-
inn framkvæmdastjóri á íslandi.
—Þór Jónsson Svíþjóð
Konur og reykingar
Opin ráðstefna
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
Ráðstefhan er haldin á Hótel Borg fimmtudaginn 29. apríl —
reyklausa daginn — kl. 14:00-17:00.
Dagskrá:
Kl. 14:00 Afhending gagna.
Kl. 14:15 Ráðstefnan sett
Hvemig konum er haldið reykjandi.
ngibjörg Sólrún Gísladóttir alþingiskona.
Hafa reykingar áhríf á starfsemi húðar og slímhúðar?
Rannveig Pálsdóttir, húð- og kynsjúkdómalæknir.
Áhrif reykinga á húðina.
Guðrún Þorbjarnardóttir snyrtisérfræðingur.
Reykingar á leiksviði.
Valgerður Dan leikkona.
Leikarar og reykingar.
Súsanna Svavarsdóttir leiklistargagnrýnandi.
Kl. 15:20-15:50 Kaffihlé.
Reykingar og fatastíll.
Anna Gunnarsdóttir, lista- og fatastílfræðingur.
Reykingar og tannheilsa.
Einar Ragnarsson tannlæknir.
Hvað getum við gert?
Ingileif Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Kl. 17:00 RáðstefhusliL
a Skráning fer fram hjá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur í 621414.
Aðgangur ókeypis.
f
<
Krabbameinsfélagið