Fréttablaðið - 16.03.2009, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 16. mars 2009
NUDD
Verð frá
1690.-
Selásbraut 98
110 Árbæ S:577 3737
Mitsubishi Outlander - Kraftmikill sportjeppi
Kostir Mitsubishi Outlander eru afgerandi. Hann hefur
mestu veghæð í sínum flokki, stærsta farangursrýmið,
öflugt fjórhjóladrif og frábæra aksturseiginleika.
Komdu í HEKLU - Notaða bíla á Kletthálsi og skoðaðu
næstum nýjan Mitsubishi Outlander, kraftmikinn,
rúmgóðan og ríkulega búinn bíl fyrir alla fjölskylduna,
tilvalinn í ferðalagið.
HEKLA NOTAÐIR BÍLAR KLETTHÁLSI
Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga
Kletthálsi sími 590 5044 www.heklanotadirbilar.is
DÆMI ÚR SÖLUSKRÁ
Mitsubishi Outlander Intense, árgerð 2008
ekinn 5.000 km. Sjálfskiptur, bensín.
Verð: 4.280.000 kr.
Fyrirsætubransinn er
harður heimur en væntan-
lega hefur enginn búist við
viðlíka átökum og þegar
áheyrnarprufur fyrir Am-
erica‘s Next Top Model fóru
fram í New York.
Sex konur, sem dreymdi um að
verða fyrirsætur, slösuðust og þrír
voru handteknir þegar Tyra Banks
blés til árlegra inntökuprófa fyrir
þáttinn sinn vinsæla, Næsta ofur-
fyrirsæta Bandaríkjanna.
Vefmiðlar þar vestra og útvarps-
stöðvar segja mikil átök hafa brot-
ist út á meðal kvennanna þar sem
þær stóðu í röð. Talið er að hátt í
þúsund konur hafi mætt og vonast
til að hljóta náð fyrir augum hinn-
ar duttlungafullu Banks þegar bíl
var ekið upp að röðinni. Farþegi í
bílnum var að reykja og einhver
í röðinni hrópaði eldur. Þetta olli
mikilli hræðslu meðal kvennanna
og allt fór í bál og brand þegar þjóf
bar að garði sem gerði tilraun til
að ræna veskjum þeirra sem stóðu
fyrir utan. Ef til vill hefur hann
búist við að þarna væru miklar
smekkmanneskjur á ferð enda um
tískuþátt að ræða. Tvær þeirra sem
slösuðust voru fluttar á sjúkrahús
en viðstaddar voru skelkaðar, enda
ekki eitthvað sem þær höfðu búist
við.
Þetta er í þrettánda sinn sem
Tyra Banks leitar að toppfyrir-
sætum fyrir þáttinn. Hann hefur
notið mikilla vinsælda bæði þar
vestra og út um allan heim, þar á
meðal hér á Íslandi. Svipuð þátta-
röð hefur einnig verið í gangi í
Bretlandi. Keppendur í þeim þætti
hafa meðal annars komið hingað til
lands en íslenski tískuljósmyndar-
inn Huggy sá þá um að mynda þær
í Bláa lóninu.
Allt varð brjálað
hjá Tyru Banks
VINSÆL Tveir voru
fluttir á sjúkrahús og þrír
handteknir þegar átök
brutust út í New York þar
sem stúlkur biðu eftir
að komast í inntökupróf
fyrir sjónvarpsþáttinn
America‘s Next Top Model.
Tyru Banks varð þó ekki
meint af.
Lily Allen missti stjórn á skapi
sínu og réðst á ljósmyndara í
London á fimmtudagskvöld-
ið. Lily, sem er 23 ára, kýldi,
sparkaði og kastaði flösku í
ljósmyndarann eftir að hann
keyrði á bíl hennar þegar hún
var að koma í upptökustúdíó.
Samkvæmt heimildum
breska dagblaðsins Daily Star
rakst bíll ljósmyndarans í
bíl söngkonunnar sem missti
gjörsamlega stjórn á skapi
sínu og þurftu öryggisverðir
hennar að draga hana í burtu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
söngkonan hellir sér yfir ljós-
myndara, en árið 2007 fékk
hún lögregluviðvörun eftir að
hún kýldi ljósmyndara fyrir
utan næturklúbb í London með
þeim afleiðingum að hann
fékk blóðnasir.
Réðst á ljós-
myndara
Indverska leikkonan Freida Pinto
mun að öllum líkindum hreppa
hlutverk Bondstúlku í næstu kvik-
mynd um spæjarann. Samkvæmt
heimildum breska dagblaðsins The
Sun vakti Freida, sem er 24 ára,
fyrst athygli framleiðenda mynd-
anna þegar verið var að kasta í
hlutverk Bondstúlku fyrir Quant-
um of Solace, en þótti þá vera of
ung.
Tilboðunum rignir nú yfir
Freidu eftir frammistöðu henn-
ar í kvikmyndinni Slumdog Milli-
onaire sem hlaut átta Óskarsverð-
laun á dögunum. Henni hafa boðist
samningar við hátískufyrirtæki og
samþykkti nýverið að leika í næstu
kvikmynd Woody Allen.
Freida næsta
Bondstúlka?
EFTIRSÓTT Tilboðunum rignir yfir
Freidu Pinto eftir góða frammistöðu
í Óskarsverðlaunamyndinni Slumdog
Millionaire.