Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Síða 1
Laugardagur 25.2. | 2006 | 81. árgangur | 8. tölublað
[ ]Silvía Nótt | Ósmekkleg, ósvífin, klúr, veraldleg fram í fingurgóma, plebbi, sjálfsupptekin | 2Göran Sonnevi | Vel kominn að Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs | 11Stefán Máni | Skáldsagan kemur í ljós þegar menn hætta að eltast við þennan tittlingaskít | 16
Lesbók Morgunblaðsins
E
rindi Rem Koolhaas á
Íslandi er að miðla af
víðtækri þekkingu
sinni og ekki síður sér-
stakri aðferðafræði og
sýn á uppbyggingu
hins manngerða um-
hverfis, en aðkoma
hans hérlendis er að vera til ráðgjafar dóm-
nefnd í hugmyndasamkeppni um skipulag
hins umdeilda svæðis Vatnsmýrarinnar í
Reykjavík, sem verður hleypt af stokkunum
með vorinu. Í ljósi sérstöðu hans á sviði
byggingarlistar er mikill fengur og mjög
áhugavert að fá hann hingað, því nokkuð er
víst að hann muni velta við steinum, draga
fram og skerpa sýn á viðfangsefninu sem
fyrir höndum liggur.
Meðan á dvöl hans í síðustu viku stóð hélt
Koolhaas opinn fyrirlestur í Hafnarhúsi
Listasafns Reykjavíkur fyrir þéttfullum sal
áhugasamra borgara, og svaraði þar að-
spurður að sér fyndist það vera helsti vandi
Vatnsmýrarinnar hversu miklar og margar
skoðanir allir virtust hafa á svæðinu! Frá
hans bæjardyrum séð væri engan veginn
hægt að taka ákvarðanir nema í ljósi um-
talsverðrar þekkingar á því sem fyrir hönd-
um lægi. Persónulegar skoðanir einar og
sér tryggðu ekki gæði ákvarðana sem tekn-
ar væru – til langs tíma og um mikil fjár-
útlát, og hér væri nokkurt verk óunnið að
kanna og greina þær mörgu hliðar sem á
Vatnsmýrinni væru, s.s. staðhætti, landslag,
annmarka og möguleika, í stærra samhengi
og frá öllum hliðum.
Hans eigin vinnuaðferð einkennist einmitt
af mjög ítarlegum rannsóknum, sem mynda
grunninn að greiningu þar sem honum er
lagið að setja upp flóknustu upplýsingar,
ytri skilyrði og væntingar á afar skýran og
sjónrænan hátt í grafísk líkön. Áhersla hans
Eftir Guju Dögg Hauksdóttur | gujadogg@strik.is
AP
Mikill fiðringur fór um Reykjavík í byrjun
febrúarmánaðar þegar fréttist að hinn
stjörnum prýddi og margverðlaunaði arki-
tekt Rem Koolhaas frá Hollandi væri vænt-
anlegur til landsins. Rem Koolhaas þykir með
frumlegustu og framsæknustu arkitektum
þessi árin, og er eftirsóttur í verkefni um all-
an heim, en teiknistofa hans OMA – Office for
Metropolitan Architecture, sem er í Rotter-
dam, vinnur jöfnum höndum í Bandaríkj-
unum og Kína, Frakklandi, Hollandi og víðar,
að verkefnum af öllum stærðargráðum, frá
einbýlishúsum til borgarskipulags. Hér er
fjallað um hugmyndir Koolhaas um bygging-
arlist sem hann fjallaði um á málþingi með
skipulagsyfirvöldum í Reykjavík.
Rem Koolhaas
í Reykjavík