Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 ! Silvía Nótt er Ísland, segir fólk. Hvernig fær það staðist? Hún er ósmekkleg, ósvífin, klúr, ver- aldleg fram í fingurgóma og alls- endis laus við allt sem andlegt er; hún er plebbi, sjálfsupptekin, at- hyglis- og framasjúk og síðast en ekki síst er hún sjálfsánægð fram úr öllu hófi. Einhvern tíma hefðu það talist tíðindi til næsta bæjar að montin, skálduð persóna gæti verið tákn fyrir íslenskt þjóðareðli. Það þarf ekki að lesa lengi í gömlum og ný- legri íslenskum litteratúr til að átta sig á því að ekkert var jafn mikið eitur í beinum þjóðarinnar og sjálf- hælni. Mont var höf- uðsynd í augum bændasamfélagsins, hógværð og lítillæti mestu dyggðir í hugmyndakerfi sem nú er á fallanda fæti (við bólstrum grafir okkar með hugmyndum, sagði skáldið). Á of- anverðri 20. öld hélt fyrirtækja-sjálfs- ímyndin innreið sína; stjórnunaraðferðir og siðferði fyrirtækja komu stökkvandi í hlaðið og haldin voru ótal námskeið sem kenna þegar upp er staðið aðeins eitt: Mont. Ef fyrirtækið á að blómstra verður sjálfsmynd starfsmanna þess að vera: „Við erum æði“ en ekki „afsakið þetta lítilræði“ – tertuhlaðborð á að kynna með stolti. Sá sem blaðar í hálfsjálfsævisögulegum skrif- um frá fyrri hluta síðustu aldar, sagnaþátt- um og slíku, rekur sig á að lítillætið er svo rótgróið að höfundar hefja mál sitt gjarnan á að biðja góðfúsan lesanda að afsaka það lítilræði sem textinn sé. Kvenhöfundar líkja bókum sínum við hannyrðir og einsk- isvert dútl. Sé gluggað í ritdóma (til dæmis um bækur eftir Þórunni Elfu) sést að þar bergmála ummæli kvennanna sjálfra gagnrýnislaust, þær eru teknar á orðinu og bókin sögð óttalegt dútl. Lítillæti, segja námskeiðin, jafngildir nefnilega ósigri, orð hins hógværa um sjálfan sig rætast í áliti náungans. En þótt nokkrir áratugir af námskeiðum í monti hafa sitt að segja er ekki hlaupið að því að uppræta í einni svipan aldalanga menn- ingu af auðmýkt. Tvíhliða sjálfsmynd (allar þjóðir á öllum tímum hafa annan fótinn í fortíð sinni og hinn í nútímanum) birtist ef að er gáð hvarvetna. Forstjórar fyrirtækja koma fram í sjónvarpi og fara með rullu sína um ágæti fyrirtækisins – en furðu oft er einhver tvístígandi í máli þeirra. Ari Ed- wald forstjóri 365 miðla steig í hefðina í Kastljósi í vikunni og nánast bað afsökunar á þessu lítilræði sem fyrirtæki hans væri. Jóhannes í Bónus á það til að tala um sig í niðrandi tóntegund sem kallinn í kjötborð- inu. Orðræðan um útrásina tekur stundum óvænt hliðarspor í næstum auðmjúkt tal um uppruna í torfkofa. Þannig virðist verða til jafnvægisganga þar sem sjálfs- veran þeytist á milli aldalangrar hefðar af lítillæti og nýrrar kröfu um jákvæða sjálfs- ímynd (mont). Tökum nærtækara dæmi: mýmargar nýlegar Lesbókargreinar (eða eru þær bara þrjár?) eftir Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræðing þar sem Sigurður útlistar afrekaskrá sína eins og hann sé fyrirtæki, segir svo í beinu framhaldi að fræðin fari halloka í samtímanum fyrir sakir hæversku en pundar svo miskunn- arlaust á sjálfshygli og sjálfhverfu fræði- manna. Vafalaust er það rétt að fræði fari halloka, vafalaust er líka eitthvað hæft í 150 ára gömlum áhyggjum Páls Valssonar af stöðu íslenskrar tungu en Páll boðar vit- undarvakningu í þeim efnum jafnt þótt við blasi að staðan er ótrúlega góð í heimi þar sem tungumál deyja hraðar út en nokkru sinni. Það er eitthvað ögn tvíátta viðhvort tveggja: kraftmikill málflutningur og mátt- laus lausn: Vitundarvakning um stöðu hinna og þessara mála minnir mig alltaf á vélindabakflæði, ólæknandi sjúkdóm og að því er mér skilst með öllu skaðlausan en ákaflega umhugsunarverðan, óvirk með- vitund um hann var boðuð með miklum þjósti fyrir nokkrum árum. Það sem virkar svo vel við Silvíu Nótt er að hún er alveg örugglega montnari en við öll til samans. Hún er fullkomlega laus við þjóðlega hógværð, þessa sem nagar í okk- ur samviskubitið. Hún hefur hefur farið með fyrirtækja-sjálfsímyndina út í sína rökréttu öfga, hún er fyrirtæki fram í fing- urgóma, sigurvegari. Silvía Nótt boðar ekkert helvítis vélindabakflæði, bara að hún sé frábær. Það er ekkert lítilræði. Frábært lítilræði Eftir Hermann Stefánsson hermannstefansson- @yahoo.com Ærið verkefni bíður nú þeirra semkoma munu að gerð nýs frum-varps um fjölmiðla hér á landi.Að mörgu þarf að huga eins og fram kom í inngangsorðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra á mál- þingi um fjölmiðla sem haldið var í Þjóðminja- safninu í vikunni. Með laga- setningunni þarf nefnilega allt í senn – að stuðla að samkeppni á fjölmiðla- markaði og tryggja fjöl- breytni fyrir neytendur en gæta þess þó að vega ekki að rekstrargrundvelli fjölmiðla á smáum markaði. Á umræddu mál- þingi sköpuðust margþættar umræður sem eru til marks um aukinn skilning á hinu þungvæga hlutverki fjölmiðla í samfélaginu og um leið aukna meðvitund um þá þróun í átt til samruna fjarskipta- og fjölmiðlamarkaða sem er að eiga sér stað á alþjóðavísu. Þótt ljóst sé að frumvarpsgerðin kalli á ígrundun er að sama skapi ljóst að fjölmiðlalög þola enga bið. Frá því að tillögur fjölmiðla- nefndar menntamálaráðherra voru kynntar fyr- ir tæpu ári (svo ekki sé minnst á frá því að tekist var á um frumvarpið um eignarhald á fjöl- miðlum fyrir um tveimur árum) hefur íslenska fjölmiðlalandslagið tekið örum breytingum, bæði í tækniþróun og í átt til aukinnar sam- þjöppunar. Á þessu tímabili hefur hægt og bítandi orðið til fjölmiðlasamsteypa, sem án efa á sér fáa líka í heiminum hvað varðar sameiningu á marg- þættri starfsemi á sviði fjarskipta og fjölmiðl- unar undir einum hatti. Fjölmiðlasamsteypa þessi kennir sig við rótgróið verkamannafélag en á að öðru leyti lítið skylt við nöfnu sína Dags- brún annað en að kallast félag. Umrætt félag rekur sem flestum er kunnugt 365 prent- og ljósvakamiðla, sem halda úti þónokkrum dag- blöðum, tímaritum, sjónvarpsstöðvum, útvarps- stöðvum og netmiðli. Hér mætti færa rök fyrir því að stærðar- og rekstrarhagkvæmni geri fjölmiðlunum kleift að bjóða neytendum upp á fjölbreytt og vandað efni. Dæmi hver fyrir sig, en sögunni lýkur ekki hér. Með því að eignast framleiðslufyrirtækin Sagafilm (og Storm) sem áður deildu milli sín innlenda markaðnum í sjónvarpsþátta- og auglýsingaframleiðslu hefur móðurfélagið Dagbrún náð undirtökunum í þeim geira. Þá keypti félagið Senu í byrjun mánaðarins og bættust þá nýjar víddir við um- svif fyrirtækisins, þar á meðal tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, tónlist og kvikmyndir, bíórekstur, hljóðver og tónlistarveitan tónlist.is. Sena er með um það bil helminginn á íslenskum markaði fyrir kvikmyndadreifingu og sýningu, sem verður að teljast nokkuð öflug viðbót við af- þreyingarumsvif félagsins. D3 fylgdi einnig með í kaupunum, en það er efnisveita afþrey- ingarefnis fyrir stafræna miðla, m.a. farsíma, netið og gagnvirkt sjónvarp. Þá kemur við nán- ari skoðun í ljós að meðal hlutdeildarfélaga Dagsbrúnar er Internet á Íslandi hf. (ISNIC), fyrirtæki sem Samtök um upplýsinganet rann- sóknaraðila á Íslandi ráku áður og annast út- hlutun léna. Kaup Dagsbrúnar á öryggisþjón- ustufyrirtækinu Securitas vísa síðan til framsýni fjölmiðlasamsteypunnar sem hyggst væntanlega bæta öryggisþjónustu í gegnum margmiðlunarkosti farsímans í hinn ómót- stæðilega heildarlausnapakka á sviði fjarskipta, fjölmiðla og afþreyingar til viðskiptavina sinna. Hér gegnir rekstur félagsins á fjarskiptafyr- irtækinu Og Vodafone jafnframt lykilhlutverki. Þeir sem vilja tryggja sér aðgang að hinni nýju stafrænu sjónvarpsstöð 365 ljósvakamiðla, Digital Ísland, þurfa því að fá sér nettengingu í gegnum umrætt fyrirtæki og láta Símann eiga sig. Síminn reynir hins vegar að lokka til sín áskrifendur með því að reka sjónvarpsstöðina Skjáinn, og þurfa neytendur vitanlega að fá sér nettengingu hjá Símanum vilji þeir hafa aðgang að stafrænu sjónvarpi Skjásins. Stór hluti beggja stóru fjölmiðlafyrirtækjanna, þ.e. Dags- brúnar og Símans-Skjásins, tilheyrir síðan eignarhaldsfélögum (Baugur annars vegar og Exista hins vegar) sem eru með mikil umsvif á mörgum sviðum í íslensku atvinnu- og fjármála- lífi. Guðbjörg Hildur Kolbeins fjölmiðlafræð- ingur kortlagði umsvif þeirra fjölmiðlafyr- irtækja sem keppa nú á markaðnum í erindi sem hún hélt á málþinginu um fjölmiðla í vik- unni og staldraði þar nokkuð við umfangsmikil umsvif Dagsbrúnar. Eins og Guðbjörg benti á eru möguleikar nýrra aðila til að komast inn á t.d. ljósvakamarkað litlir sem engir. Eins og staðan er nú er einfaldlega ekki hægt að keppa við þá aðila sem fyrir eru, og blasa hindranir við bæði þegar kemur að því að tryggja dreifileiðir og aðgang að afþreyingarefni. Þannig hefur Sjónvarpið t.d. forgangsrétt að evrópsku gæða- efni, á meðan ljósvakamiðlar Dagsbrúnar geta nú í krafti stærðar sinnar gert einkarétt- arsamninga um sjónvarpsefni, líkt og þeir hafa þegar gert við fjölmiðlarisana Warner og Fox um einkarétt á dreifingu sjónvarpsefnis sem þeir framleiða. Meðal þeirra tillagna um aðgerðir sem fjöl- miðlanefnd menntamálaráðherra setur fram eru ekki aðeins reglur um takmörkun á eign- arhaldi á fjölmiðlum, heldur einnig bann við einkaréttarsamningum og reglur um flutnings- skyldu sjónvarpsefnis og laga sem miða að því að rjúfa tengslin milli fjarskipta- og fjölmiðla- fyrirtækja, efnisveitna og dreifiveitna. En hvað verður þá um þær myndarlegu samsteypur sem eru að myndast á íslenskum fjölmiðlamarkaði? Ef til vill er það nokkurs konar varnarbragð hjá stærsta fiskinum í tjörninni, þ.e. Dagsbrún, að belgjast út sem mest það má, svo að æ flóknara verði að höggva á hnútinn þegar að lagasetn- ingu kemur. Ofurfjölmiðlafyrirtæki Fjölmiðlar Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is ’Hér mætti færa rök fyrir því að stærðar- og rekstrarhagkvæmni geri fjölmiðlunum kleift að bjóða neytendum upp á fjölbreytt og vandað efni.‘ I „Þið vitið ekki hvað þið hafið kosið yfir ykk-ur,“ kallaði Romario, kærasti Silvíu Nóttar, þegar úrslit höfðu verið tilkynnt í söngva- keppni Sjónvarpsins á laugardaginn, og auð- vitað hljóta áhorfendur að hafa velt því fyrir sér hverju þeir eiga von á næstu vikur og mán- uði svo ekki sé talað um þegar út í alvör- una í Aþenu, háborg fornrar menningar, verður komið. Ef fram heldur sem horfir verður fáránleikinn orðinn alger þegar þar að kemur. Silvía Nótt hefur smátt og smátt orðið öfgafyllri, hún hefur gengið lengra og lengra í meinhæðinni skop- stælingu sinni á kvenímynd samtímans, útlits- dýrkuninni, innihaldsleysinu, klámvæðingunni – hápunktinum verður náð í Aþenu þar sem hún springur úr harmi framan í hlæjandi og fagnandi áhorfendurna. II Silvía Nótt er ótrúlega vel heppnuð háðs-ádeila á samtímann en það er satt að segja hrollvekjandi þversögn að um leið og hún sendir fullorðnum gagnrýnin skilaboð þá fyllir hún börnin aðdáun. Silvía Nótt er eiginlega allt það sem við viljum ekki að börnin okkar séu – yfirdrifin, vitlaus, málhölt, sjálfselsk, montin, glennuleg, glysgjörn og undirgefin – en börnin dýrka hana og vilja vera eins og hún. Hvað segir það okkur? Hefur uppeldið brugðist? Hvers vegna falla börnin okkar fyrir lægsta samnefnaranum? Voru ædolin ekki einhvern tímann hinir sterku, kláru og hug- rökku? III Í Kastljósviðtali var Silvía Nótt að pissa ísig, hún var með marblett á brjóstinu eftir Romario sem er „að flippa“, hún tafsaði og svar- aði út í hött þar til kærastinn hringdi og skipaði henni að drullast út í bíl til sín sem hún auðvitað gerði eins og þæg og auðmjúk stelpa sem þorir ekki að egna kærastann til reiði. Vondir kær- astar eru auðvitað þekkt minni í poppheiminum – Ike hennar Tinu Turner kemur fyrst upp í hugann – en þetta leikrit hafði víðari skírskotun þó að það hafi farið fram hjá börnunum sem voru að horfa. Það er þess virði að útskýra fyrir þeim hvað Silvía Nótt stendur í raun fyrir. Og það er örugglega ráðlegt að undirbúa þau fyrir það sem gæti átt eftir að gerast í Aþenu þegar Silvía Nótt mun afhjúpa gjaldþrot samtíma- menningar sem upphefur fólk eins og hana. Neðanmáls Eins og Ármann bendir á þurfa íslenskufræðingar ekki að takatil sín margvíslega ádeilu fyrir einangrunarhyggju, þjóð-rembu eða málverndarfasisma sem gýs upp í hvert sinn sem einhver hefur orð á að hlúa þurfi að íslenskri menningu og tungu og minna á að þær standa djúpum rótum í sögunni. Ef slíkt jurtarík- ismyndmál skyldi fara í taugarnar á einhverjum, má vísa til þess sviðs mannlífsins sem efst er nú á baugi. Sá sem fær arf þarf að huga að því að ávaxta hann. (Nú fyrst er íslenskur auður farinn að vaxa svo mjög að margir fá peningaarf sem eitthvað munar um, andstætt því sem tíðast var um mína kynslóð, við urðum að láta okkur nægja menningararf). Satt að segja er „malið um menningararfinn“ ákaf- lega fyrirferðarlítið í umræðu fólks hér á landi miðað við síbyljuna um fé og fasteignir og ávöxtun slíkra verðmæta. Hvernig má það vera að ungu, vel menntuðu fólki sé svo illa við eigin menningararf (því að orðið hefur merkingu, en auðvitað eru bæði Biblían og Hómer menningararfur okkar eins og ótalmargt annað, og sífellt bætist við) að það telji hag þjóðarinnar best borgið með því að senda arfinn norður og niður og óska þjóðinni þess að hún fari að tala pidgin-íslensku eða íslenskt-enskt hrognamál? Víst er íslenska að breytast, mun halda áfram að breytast og hlýtur að breytast á óðfluga breytingaskeiði þjóðfélagsins og umheimsins. Sama á við um það hvernig við túlkum menningararfinn og reynum að ávaxta hann. Því mótmælir held ég enginn. Spurningin er hvernig við er brugðist. Á að reyna að stýra í straumiðunni? Að mínum dómi snýst þessi umræða ekki síst um metnað og sjálfsvirðingu, m.ö.o. um menningu. Þjóð sem vill láta taka mark á sér leggur rækt við eigin menningu, kannar hana og kynnir, slík þjóð leggur líka rækt við móðurmál sitt og telur það aðalsmerki að vanda mál sitt, og reyndar að vanda sig við hvað sem hún gerir, hvort sem hún reisir hús, smíðar grip, semur ritgerð eða skipuleggur starf- semi. Vésteinn Ólason Kistan www.kistan.is Um mal Reuters Skíðaskotmarkafimi! Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.