Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Síða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006
N
ýjasta skáldsaga breska rit-
höfundarins Zadie Smith,
On Beauty (Um fegurð,
2005), fjallar um tvær fjöl-
skyldur sem eru afar ólíkar.
Það mætti jafnvel segja að
Belsey og Kipps fjölskyldurnar séu óvinir.
Ástæðurnar eru fjölbreyttar en þær mikilvæg-
ustu eru hugmyndafræðilegar og í þessu sam-
hengi fjallar bókin líka um akademíuna eins og
hún birtist í nútímalegri mynd bandarísk-
breskra hugvísinda-
deilda. Þar er sjónum
beint að hinum svoköll-
uðu „menningar-
stríðum“ (í fleirtölu) sem hafa geisað innan og
utan akademíunnar undanfarna tvo áratugi
eða svo. Menningarstríðin snúast m.a. um það
hvers konar samfélagssýn mótar farveg þjóð-
félagsumræðunnar og undirbyggir ríkjandi
viðhorf í samfélaginu. En bókin fjallar fyrst og
fremst um fjölskyldueininguna, þessa furðu-
legu skepnu sem þrátt fyrir augljósa galla
heldur áfram að vera gangverk samfélagsins.
Það er einmitt í lýsingum og umfjöllun sinni
um margflókin vensl og víxlverkanir innan
þessarar samfélagsstofnunar sem Zadie Smith
nær hvað mestum hæðum. Þessi þriðja bók
Smith sýnir svo ekki verður um villst að
merkilegur höfundur hefur stigið fram á sjón-
arsviðið.
Það voru reyndar margir á þeirri skoðun
strax eftir útkomu fyrstu bókar Zadie Smith,
skáldsögunnar White Teeth (Hvítar tennur,
2000) sem einnig gerði flókin fjölskyldutengsl
að viðfangsefni á gamansaman og aðgengileg-
an hátt – fjölskyldutengsl sem að sumu leyti
spegluðu enn flóknari fjölmenningarveruleika
nútímans.
White Teeth fjallaði um ákveðinn aðkallandi
hluta af nútímanum, en nútíminn í meðförum
Smith er alltaf afskaplega tímanlegur; hún
leggur sig fram við að fanga andblæ og tónfall
líðandi stundar, m.a. með því hleypa gríð-
arlega fjölbreyttri flóru ólíkra radda inn í verk
sitt og gera samtímanum skil í gegnum fram-
setningu á sérkennum einstaklinga jafnt sem
skemmtilega dregnum útlínum ýmissa hug-
mynda- og tískustrauma. Að þessu leytinu til
er Zadie Smith stundvís og fundvís höfundur
og söguheimarnir sem hún skapar í verkum
sínum kallast á við hitamál samtímans. En í
fyrstu bók sinni hikaði hinn ungi höfundur
ekki heldur við að vera dálítið gamaldags hvað
formgerð varðar enda þótt viðfangsefni bók-
arinnar væru, eins og áður segir, afskaplega
nútímaleg, jafnvel póstmódernísk: sjálfsvera
og vitund, menningarheimar og jaðarkimar
menningarinnar, samskipti milli og blöndun
kynþátta, svo fátt eitt sé nefnt. En það sem
gerði bókina kannski dálítið gamaldags var
það hversu einlæg Smith var í umfjöllun sinni
um þessi málefni, auk þess sem skáldverkið
býr yfir breidd og frásagnarlegum metnaði
sem vinsælt er að kenna við nítjándu öldina.
Sögusvið White Teeth var að sama skapi
víðfeðmt þótt það væri staðbundið. Tíminn líð-
ur í framrás bókarinnar, áratugir líða, bókin
segir kynslóðasögur og þegar dregur til tíð-
inda er auðkennanleg sálfræði drifkrafturinn.
Smith fjallar um innra líf persóna sinna af
mikilli alvöru og útskýrir þær á máta sem
skapar samúð og ákveðna tegund dýptar sem
stundum er kölluð húmanismi en kallast líka á
við klassískt raunsæi í bókmenntum.
Verkið sló í gegn, frægð höfundar náði jafn-
vel til Bandaríkjanna þar sem White Teeth
varð metsölubók. Rétt er að taka fram að Zad-
ie Smith var aðeins tuttugu og fjögurra ára
þegar bókin kom út. Einhvers konar draumur
hlýtur að hafa ræst en með sinni næstu skáld-
sögu, The Autograph Man (Áritunarmaðurinn,
2002; ísl. þýðing 2005), var þó eins og Smith
lenti aftur á jörðinni. Bókin gekk ekki nærri
jafnvel og forverinn.
Ég las fyrstu bók Smith á sínum tíma með
miklum áhuga og jafnmikilli ánægju en þessa
bók verð ég að viðurkenna að ég las aldrei.
Maður veitti því athygli að hún kom út, en
komst aldrei að henni, einhvern veginn. Þá
fékk bókin ekki jafn lofsamlegar viðtökur og
frumraun höfundar, en þegar litið er yfir við-
tökusögu skáldsagna Smith sýnist mér að bók-
in hafi alls ekki verið það sem stundum er kall-
að „flopp“. Henni var mætt með virðingu en
kannski ekki hrifningu. Ég verð hins vegar að
segja það að eftir að hafa lokið þriðju skáld-
sögu höfundar, On Beauty, hefur áhuginn á
því að kynna mér áðurnefnda bók breyst í
ásetning.
Um fegurðina
Titillinn On Beauty hljómar dálítið eins og um
átjándu eða nítjándu aldar heimspekirit sé að
ræða. Hann vísar til og lofar vangaveltum um
fegurðina og hið upphafna. Hann lofar eða
jafnvel hótar höfnun á hinu dagfarslega og
hefðbundna. Þegar fegurðin er annars vegar
hlýtur hvunndagurinn að vera víðs fjarri, ekki
satt? Er ekki fegurðin alltaf að einhverju leyti
hugsjón? Skyldi hér yfirleitt vera um skáld-
sögu að ræða? Sú reynist þó raunin en þá
verður erfitt að verjast þeirri hugsun að bókin
hljóti að fjalla um það óútskýranlega í nátt-
úrunni og verkum mannsins. Nema titillinn sé
eintóm blekking …
Þótt ekki sé um heimspekirit að ræða fjallar
bókin um það sem að mörgu leyti getur talist
óútskýranlegt: tilfinningabönd og fegurðina
sem býr í sköpunarverkum af ýmsum toga. Og
hér er hinu dagfarslega og hefðbundna svo
sannarlega ekki hafnað – dálítið eins og Jóa-
kim frændi átti það til að synda í pen-
ingasjóðnum sínum í Andabæ til forna nýtur
Zadie Smith þess að baða sig í hversdags-
legum smáatriðum og setja hluti sem stundum
er litið fram hjá í forgrunn. En þá er hún held-
ur ekkert sérstaklega feimin við að nota gam-
alkunnar dramatískar fléttur – hún nýtir vel
þekktar formgerðir og keyrir þær miskunn-
arlaust að melódramatískum endimörkum sín-
um – og í nýjustu bókinni má segja að tilhneig-
ingin sé einkar meðvituð og verði nær
áþreifanleg þar sem dramatískar útlínur flétt-
unnar eru fengnar að láni úr skáldsögunni
Howard’s End eftir E.M. Forster, bók sem ég
hef ekki lesið þótt vafalaust væri athyglisvert
að bera þessar tvær bækur saman í smáat-
riðum.
Það er þó ekki umgjörðin sem mér sýnist
skipta mestu máli. Smith nær hvað mestu flugi
þegar hún lýsir því hvernig atburðir eiga sér
stað, fremur en hvaða atburðir eiga sér stað.
Það sem svo gerist í framrás bókarinnar teng-
ist áðurnefndum fjölskyldum en milli þeirra
andar köldu, svo vægt sé til orða tekið.
Reyndar er alls ekkert hlaupið að því að
rekja söguþráð skáldsögunnar, a.m.k. í stuttu
máli. Kemur það til vegna þess að spurningar
vakna um hvað nákvæmlega heyri til sögu-
þráðar bókarinnar (í flokkunarkerfi sem inni-
heldur ekki einvörðungu hugtakið „söguþráð-
ur“ heldur líka hugtök á borð við
framhjáhlaup, innskot og útúrdúra) og eins af
því að hálfgerð ofgnótt persóna prýðir frá-
sögnina. Margir koma við sögu og sumir detta
hálfkláraðir út úr bókinni en aðrar persónur
ná eftirminnilegum hæðum, en þar ber fyrst
að nefna Belsey fjölskylduna en meðlimir
hennar eru aðalpersónur verksins. Eitt af því
sem einkennir bókina og nauðsynlegt er að
minnast á er hin einskæra frásagnargleði sem
einnig gerði vart við sig í fyrstu bók höfundar,
gleði sem skilar sér vissulega í lestraránægju
en vísar, að mér finnst, líka til þess hvernig
Smith nálgast skáldsagnaformið sjálft. Hún er
nákvæmur stílisti en í meðförum hennar verð-
ur frásögnin sjálf að vettvangi óstýrilátar
sköpunar sem fylgir ánægjulögmálinu frekar
en veruleikalögmálinu. Sumir kaflarnir líkjast
einna helst löngu gítarriffi sem síðhærður og
leðurbuxnaklæddur rokkguð slengir yfir
áhorfendur, þetta er sóló sem fangar áhorf-
endur í krafti innlifunar og smitandi gleði
listamannsins yfir eigin frammistöðu.
Akademískar andhetjur
Skáldsagan á sér að mestu leyti stað í hinum
ímyndaða háskólabæ Wellington sem okkur er
sagt að sé staðsettur í Massachusetts-fylki í
Bandaríkjunum. Þegar virðulegar grundir og
íburðarmiklir turnar Wellington-háskólasvæð-
isins eru gaumgæfðir hafa sumir viljað sjá eins
konar birtingarmynd, e.t.v. dálítið smækkaða,
af Harvard-háskóla en þar dvaldist Zadie
Smith sem gestakennari á árunum 2003–2004.
Hvað sem því líður er skáldsagan að sumu
leyti háskólabók – Wellington er umhverfi frá-
sagnarinnar og þau málefni sem höfundur
fjallar um af hvað mestri alvöru birtast sem
deiluefni innan akademíunnar. Andstæðir pól-
ar frásagnarinnar birtast síðan í tveimur Rem-
brandt-fræðingum, þeim Monty Kipps og
Howard Belsey.
Sá fyrrnefndi, Monty, er blökkumaður sem
er fæddur í Trinidad en það sem skiptir máli
er að hann er hægri sinnaður fræðimaður í
akademísku umhverfi sem er að mestu leyti
vinstri sinnað. Hann er kannski ekki mjög
frumlegur sem hugmyndasmiður en hann er
duglegur, og kemur vel fyrir sig orði. Í krafti
þessara kosta er hann orðinn þjóðþekktur per-
sónuleiki og pólitískur ummælandi í fjöl-
miðlum. Howard Belsey er svo sem ekkert
frumlegri Monty en nýtur ákveðinnar for-
gjafar í því að vera hvítur og að pólitísk viðhorf
hans passa inn í hugvísindaumhverfið sem þeir
báðir starfa í. Howard er ættaður frá Englandi
en þegar skáldsagan hefst hefur hann búið
lengi í Bandaríkjunum. Og hann er því miður
ekki jafnafkastamikill og Monty þegar að
fræðistörfum kemur. Sá síðarnefndi er nýbú-
inn að gefa út vandaða bók um Rembrandt
sem var vel tekið. Howard hefur verið að vinna
að sinni bók í áratug en hún er engu að síður
langt frá því að vera fullkláruð. Howard er
kraftmikill afbyggjandi og sanntrúaður póst-
módernisti en hefur því miður mistekist að
hljóta fastráðningu og það er hans veiki blett-
ur.
Styrkleika Howards er hins vegar að finna í
fjölskyldu hans. Eiginkonan, Kiki Simmonds
Belsey, er blökkukona frá Flórída og þrjú
börn þeirra eru því blönduð en eitt af því sem
gerir nálgunarleið Smith bæði raunsæja og að-
laðandi er að þessi staðreynd, ein og sér, er
ekki gerð að lykilmáli í framgangi verksins.
Fjölmenning samtímans er það langt á veg
komin, samkvæmt Smith, að við þurfum ekki
lengur að einblína á grundvallaratriði og byrj-
unarreiti. Howard og Monty hafa lengi vel ver-
ið akademískir fjandmenn en samskiptin
verða skyndilega persónuleg þegar elsti sonur
Howards, Jerome, hlýtur styrk til að starfa við
hlið Montys sumarlangt í Englandi. Meira en
það, Jerome býr heima hjá Monty og fjöl-
skyldu. Það er hérna sem bókin hefst, in medi-
as res eins og stundum er sagt, eða í miðju
kafi.
Bókin hefst með öðrum orðum á tölvu-
póstum Jeromes til pabba síns þar sem hann
lýsir því hversu vel hann kann við sig í þessu
nýja umhverfi þar sem heilögum kúm hans
eigin heimahaga er slátrað hvert einasta kvöld
í vinsamlegum samræðum yfir kvöldmatnum.
Howard getur ekki svarað þessum tölvu-
póstum, hann hreinlega fær sig ekki til þess,
enda þótt hann sé áhyggjufullur og finnist illa
komið fyrir syni sínum. Fjandskapurinn í garð
umhverfis samskiptanna er of djúpstætt. Það
er verið að spilla Jerome sem í ofanálag er orð-
inn trúaður, nokkuð sem ekki er til fyrir-
myndar að mati Howards.
Að horfa á eftir elsta syni sínum í aftur-
haldssama arma Montys var vont, en kring-
umstæðurnar geta þó alltaf versnað. Þetta eru
gömul sannindi sem Howard fær að sann-
reyna. Jerome sendir föður sínum tölvupóst
þar sem hann lýsir yfir ódauðlegri ást í garð
dóttur Montys, Veróniku, og minnist á vænt-
anlegt brúðkaup. Þessar fréttir nægja til að
koma hreyfingu á Howard, sem gefur til
kynna hversu alvarlegar þær eru. Það reynist
þó óþarfi að hlaupa upp til handa og fóta. Róm-
antíkin endist ekki og Jerome snýr aftur til
Wellington sem piparsveinn, en kannski ekki
óspilltur. Howard er þó ekki hólpinn. Tæpu ári
síðar kemur Monty sem gestaprófessor til
Wellington. Fjölskyldan fylgir honum og það
þýðir að Jerome og Verónika eru komin í ná-
vígi á ný. Það sem er sýnu verra er að Monty
sker samstundis upp herör gegn frjálslyndu
ofstæki háskólans og þar reynist Howard að
sjálfsögðu vera í aðalhlutverki. Kraftmikill
íhaldsmaður er kominn í týpískan bandarískan
háskólabæ og hann er staðráðinn í að leggja
sín lóð á vogaskálarnar.
Sígild deiluefni
Hér hefur lítið annað verið gert en að lýsa
sviðsetningunni, umhverfi frásagnarinnar sem
tekur við, og leggja áherslu á það að klassísk
deiluefni samtímans fá að hljóma bókina í
gegn. Deiluefnin eru framsett og holdgerð í
persónum Montys og Howards og það sem
gerir bók Smith jafnáhrifaríka og raun ber
vitni er að hún forðast einfeldningsleg svör og
svarthvítar niðurstöður. Hvorki Howard né
Monty hafa rétt fyrir sér, að mati Smith, en
það er afskaplega athyglisvert að fylgjast með
hegðun og þankagangi beggja. Eitt af mörgum
frábærum atriðum bókarinnar er langur kafli
sem lýsir fyrsta fyrirlestri Howards í kúrs-
inum sem hann kennir ár hvert um Rem-
brandt. Námskeiðið er 15 vikna árás á þá hug-
mynd að list gefi á einhvern hátt sérstæða eða
upphafna innsýn í hið mannlega, að list sé haf-
in yfir hið veraldlega. Howard útskýrir að
Rembrandt hafi hvorki verið uppreisnar-
maður né sérlega frumlegur, hann hafi bara
verið sæmilega hæfileikaríkur verkamaður
sem gerði það sem ríkt fólk bað hann um að
gera, líkt og aðrir verkamenn bæði fyrr og nú.
Í hans tilviki fólst vinnan í því að mála myndir
af ríku fólki. Þetta er dramatísk framsetning á
viðhorfum í listasögu sem einu sinni voru bylt-
ingarkennd, t.d. þegar John Berger setti
keimlíkar skoðanir fram á áttunda áratugnum,
en það sem gefur endurrsögn Smith aukna
vídd er að hún leyfir Howard að tala án þess að
gagnrýna hann. Hann heldur sína ræðu á blað-
síðum bókarinnar, og hún hljómar ágætlega.
Kontrapunkturinn kemur síðan þegar Smith
staldrar við hjá nemanda sem er að hlusta á
Howard og lýsir fyrir okkur viðbrögðunum.
Þarna fæðist ákveðin dramatík í kringum það
sem gæti bara verið hugmyndafræðilegt bit-
bein. Samræðan heldur áfram. Í öðru frábæru
atriði lýsir Smith andstæðum hugmyndum
Montys, en hann heldur á lofti klassískum
hugmyndum um snillinginn. Það gerir hann af
ekki minni krafti en Howard og lesanda birtist
hér ákveðin mynd af deiluefnum úr menning-
unni sem hvorki eru fjarstæðukennd né
skrumskæld (meira en góðu hófi gegnir).
Þetta er þó bara eitt dæmi um þá hæfileika
sem Smith hefur til að bera. Bókin í heild sinni
er uppfull af annars konar fjársjóðum og verð-
launum en yfir öllu gnæfa skynsamlegar gáfur
Smith og hæfileiki til að sníða sögur sem
snerta bæði hið félagslega og hið persónulega.
Fegurðin í ásýnd hlutanna
Reuters
Zadie Smith Titillinn hljómar dálítið eins og um átjándu eða nítjándu aldar heimspekirit sé að ræða.
Nýjasta skáldsaga breska rithöfundarins
Zadie Smith, On Beauty, kom út í fyrra og
vakti mikla athygli. Þessi þriðja bók Smith
sýnir svo ekki verður um villst að merkilegur
höfundur hefur stigið fram á sjónarsviðið.
Höfundur er bókmenntafræðingur.
Eftir Björn Þór
Vilhjálmsson
vilhjalmsson@wisc.edu