Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Side 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 Kvikmyndin De battre mon coeur s’est arrete var valin besta kvikmyndin á frönsku Lumi- ere-kvikmyndaverðlaununum, sem eru ekki ósvipuð bandarísku Gol- den Globe- verðlaununum að stærð og mik- ilvægi þar í landi. Kvikmynd- in er endurgerð myndar frá sjö- unda áratugnum, en hún hlaut einnig bresku BAFTA-verðlaunin sem besta er- lenda kvik- myndin sl. sunnudag. Á laugardaginn verða svo stærstu kvikmyndaverðlaun Frakk- lands afhent, Sesar-verðlaunin, og er myndin tilnefnd til tíu verð- launa. Leikarinn Romain Duris hlaut Lumiere-verðlaun fyrir leik í aðal- hlutverki myndarinnar, en Isabelle Huppert var valin besta leikkona í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Gabr- ielle. Besti leikstjórinn var talinn Patrice Chereaus.    Óskarsverðlaunaleikararnir Rus-sell Crowe og Nicole Kidman hafa skrifað undir samning þess efnis að leika í epískri stór- mynd ástralska leikstjórans Baz Luhrmann. Talsmaður Luhrmann stað- festi þetta í vik- unni en myndin verður tekin upp í óbyggðum Ástralíu og hefst vinna við hana í ágúst. Luhrmann, sem leikstýrði hinum vinsæla söngleik Moulin Rouge, sagði áströlskum blöðum að hann ætlaði að leikstýra myndinni og einnig skrifa handrit ásamt öðrum Ástrala, Stuart Beattie. Luhrmann lýsir myndinni sem dramatískri ástarsögu í anda Á hverfanda hveli og á sama skala og Arabíu- Lawrence hans Davids Lean. „Við erum með eitthvað magnað- asta landslag sem til er og við ætl- um að setja tvo af frábærustu leik- urum þessa heims í þetta landslag,“ sagði leikstjórinn. Myndin á að gerast í Ástralíu frá miðjum fjórða áratug síðustu aldar allt þar til Japanir réðust á borgina Darwin í norðurhluta landsins á meðan á síðari heimsstyrjöldinni stóð. Crowe og Kidman ætluðu að leika saman í annarri ástralskri mynd byggðri á bókinni Eucalypt- us en verkefnið datt upp fyrir vegna vandræða með handritið.    Mark Wahlberg ætlar að leikaaðalhlutverkið í nýrri póli- tískri spennumynd leikstjórans An- toine Fuqua, sem ber nafnið Shooter. Myndin er byggð á bók Stephens Hunt- er, Point of Imp- act, sem kom út árið 1993. Sagan fjallar um topp- skyttu sem býr í sjálfskipaðri út- legð í óbyggðum Arkansas eftir að hafa óviljandi orðið annarri manneskju að bana. Fyrrum fé- lagar skyttunnar sannfæra hana um að snúa aftur til byggða þar sem þeir þurfi hjálp hennar til að koma í veg fyrir morð. Málin eiga þó heldur betur eftir að flækjast því skyttan er svikin og henni kennt um skotárásina á forsetann, sömu árás og hann var að reyna að koma í veg fyrir. Skyttan neyðist til að flýja og keppist við að finna raunverulega morðingjann og kom- ast að því hver stóð fyrir svik- unum. Jonathan Lemkin skrifaði hand- ritið og er áætlað að tökur hefjist í júní. Wahlberg vinnur á ný í mynd- inni með framleiðandanum Lorenzo di Bonaventura en þeir unnu sam- an við smellinn Four Brothers. Erlendar kvikmyndir Isabelle Huppert Nicole Kidman Mark Wahlberg Ný íslensk kvikmynd, Blóðbönd, varfrumsýnd í gær. Ekki hefur veriðmikið látið með þessa frumsýninguog leikstjórinn og höfundurinn, Árni Ólafur Ásgeirsson, verið minna áberandi í fjölmiðlum en stundum vill verða þegar frum- sýning íslenskrar kvikmyndar stendur fyrir dyrum. Hér er þó áhuga- verður ungur leikstjóri á ferðinni, hámenntaður úr pólskum kvikmyndaskóla, og þessi mynd hans ber ótvírætt með sér að hann lítur á kvikmyndagerð sem listform þar sem segja má alvöru sögur; annar tveggja leik- stjóra af sömu kynslóð sem beitir einlægni og hógværð á listrænan máta í frásagnaraðferð sinni. Hinn er Dagur Kári Pétursson. Það verður þó alltaf að teljast hálfgert kraftaverk þegar íslensk kvikmynd er frum- sýnd; allir þeir þröskuldar sem verða og geta orðið á vegi einnar kvikmyndar frá því hún er hugmynd og þar til hún verður fullgerð kvik- mynd eru slíkir að sannarlega er það krafta- verki líkast þegar verkinu er að fullu lokið og myndin komin í bíó. Blóðbönd á enn frekar hrós skilið fyrir þá staðreynd að hér er um alíslenska kvikmynd að ræða, efnið er íslenskt og leikarar og list- rænir stjórnendur sömuleiðis. Kvikmyndatöku- maðurinn reyndar finnskur. Þetta hljómar eins og argasta þjóðremba en málið snýst þó um allt annað; að gera mynd sem byggist á ís- lenskri reynslu og höfðar til þess veruleika sem við búum við á þessu landi er langt í frá sjálfsagt þegar nánast er útilokað að fjár- magna kvikmynd í dag án þess að sækja veru- legan hluta af peningunum til útlanda. Og það kostar yfirleitt sitt því erlendu framleiðend- urnir sjá Ísland eitt og sér ekki sem ýkja spennandi markað. Lái þeim hver sem vill. Líklega verður þó að taka fram að tveir meðframleiðendur að Blóðböndum eru erlendir en þar sem þetta er hvorki auglýsing né op- inber kynningartexti er óþarft að tíunda hverj- ir það eru. Það verður ennfremur að teljast nokkur dirfska af höfundum myndarinnar að efni hennar skuli ekki beint að stærsta markhópi íslenskra kvikmyndahúsagesta, aldurshópnum 15–20 ára, heldur eldra fólki, og söguþráðurinn ber það með sér að myndin er stíluð á áhorf- endur sem komnir eru af unglingsaldri. Þar segir frá augnlækninum Pétri sem kvæntur er Ástu og saman eiga þau drenginn Örn tíu ára. Ásta er ófrísk og allir hlakka til að litla barnið bætist í fjölskylduna. Fyrir tilviljun kemst Pét- ur að því að hann er ekki faðir Arnar og til- vera hans og allra í kringum hann snýst á hvolf. Þetta er dramatískur efniviður sem þó lætur ekki mikið yfir sér og uppbygging mynd- arinnar og frásagnarmáti byggist á persónu- sköpun og túlkun leikaranna ekki síður en myndlegri frásögn. Það verður fróðlegt að fylgjast með leikstjóranum Árna Ólafi Ásgeirs- syni í framtíðinni. Alvörufólk ’Blóðbönd á enn frekar hrós skilið fyrir þá staðreynd að hérer um alíslenska kvikmynd að ræða, efnið er íslenskt og leik- arar og listrænir stjórnendur sömuleiðis.‘ Sjónarhorn Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is Þ ótt Truman Capote hafi byrjað ungur að skrifa er höfundarverk hans ekki mjög umfangsmikið. Góðvinur Capote, skáldið og gagnrýnandinn John Malcolm Brinnin, sagði hann hafa kastað á glæ möguleika sínum á að skipa sér í röð merkustu 20. aldar rithöfunda Bandaríkjanna, með því að sóa um of tíma sínum og kröftum í að gangast upp í stjörnuímynd sinni og sam- kvæmislífi New York-borgar. Áfengis- og eit- urlyfjaneysla Capote tók jafnframt sinn toll og hrakaði heilsu hans jafnt og þétt þar til hann lést aðeins 59 ára að aldri. Capote fæddist inn í rótgróna Suðurríkja- fjölskyldu í New Orleans árið 1924. Hann los- aði sig hins vegar við eftirnafnið Persons og millinafnið Streckfus og tók upp eftirnafn stjúpföður síns, Joe Ca- pote, sem var af kúb- verskum ættum. Truman ólst upp á nokkru flakki, en hann var um tíma sendur í umsjá frændfólks í Alabama þegar foreldrar hans skildu. Sjálfur segir Capote æsku sína hafa einkennst af andlegu mun- aðarleysi, þar sem hann fann ekki farveg fyrir skapandi hugsun sína. Í Monroeville í Alabama kynntist Capote þó stelpu í næsta húsi, Nelle Harper Lee, en hún átti eftir að skrifa Pulit- zer-verðlaunaskáldsöguna To Kill A Mock- ingbird. Truman Capote vakti athygli sem rithöf- undur þegar hann var 22 ára, en þá kom út skáldsagan Other Voices, Other Rooms. Ca- pote hafði þá birt nokkrar smásögur í tímarit- inu New Yorker, eftir að hafa fengið vinnu þar að loknum menntaskóla. Síðar sagði Capote að Other Voices, Other Rooms, sem segir þroska- sögu pilts á einkar næman máta, fæli í sér sterka sjálfsævisögulega þætti, sem hann hafi sjálfur ekki gert sér grein fyrir fyrr en síðar. Skáldsögunni var vel tekið meðal gagnrýnenda og seldist vel, og naut höfundurinn sams konar velgengni fyrir þær nóvellur og smásögur sem hann gaf út í kjölfarið. Margir tengja nafn Trumans Capote vafa- laust við nóvelluna Breakfast at Tiffany’s (Morgunverður á Tiffany’s) sem út kom árið 1958 ásamt fleiri smásögum. Þar teflir höfund- urinn fram hinni óræðu kvenpersónu Holly Go- lightly, ungri konu sem flúið hefur fátækan samfélagsbakgrunn sinn og endurskapað sig sem glæsikvendið Holly. Lesandi kynnist Holly í gegnum frásögn ungs rithöfundar sem býr í sama fjölbýlishúsi og Holly á Manhattan og reynir að leysa þá þekkingarfræðilegu ráðgátu sem hlýst af þessari konu sem skapar sér og lifir eftir eigin forsendum. Holly Goodlightly tók síðar á sig ódauðlega mynd í túlkun leik- konunnar Audrey Hepburn í samnefndri kvik- mynd Blake Edwards eftir sögunni, en kvik- myndin sneri sambandi sögumanns og Holly þó upp í rómantíska ástarsögu í blálokin. Á vit suðursins á ný Verkið sem innsiglaði frægð Capote er hins vegar sannsögulega skáldsagan In Cold Blood (Með köldu blóði). Þar hóf Capote að gera til- raunir með sannsöguleg skrif og má segja að afraksturinn hafi umbylt hugmyndum um skapandi skrif um sannsögulegt efni. Kvik- myndin Capote beinir einkum sjónum að hinu örlagaríka tímabili í lífi Capote sem hann varði í rannsóknina á morðmálinu sem In Cold Blo- od fjallar um. Morðmálið átti sér stað árið 1959, en þar voru fjórir meðlimir ráðsettrar bændafjölskyldu í smábænum Holcomb í Kan- sas myrtir. Capote fékk áhuga á að skrifa blaðagrein um morðmálið er hann las um það í blöðunum og fékk ritstjóra New Yorker til að senda sig í vettvangsrannsókn. Samkvæm- isspjátrungurinn Capote yfirgaf nú kjörlendi sitt á Manhattan, og hélt á vit suðursins í leit að skáldskap í bláköldum raunveruleikanum. Með í för var æskuvinkonan Harper Lee sem aðstoðaði hann við rannsóknina (og hann hana við skrif To Kill A Mockingbird eins og sögu- sagnir segja). Capote dvaldi lengur í Kansas en upphaflega til stóð en hann lagði sig í líma við að kynnast bæjarbúum og fá innsýn í þau áhrif sem hinn hryllilegi glæpur hafði á lítið samfélag. Á þessu tímabili náðust morðingj- arnir, þeir fangelsaðir og dæmdir til dauða. Capote hóf þá að taka viðtöl við morðingjana á dauðadeildinni og smám saman öðlaðist hann dýpri innsýn í þann heim grimmdar og siðleys- is sem morðingjarnir spruttu úr. Í bókinni In Cold Blood sem út árið 1966 lýsir hann árekstrum tveggja heima, rótlauss heims morðingjanna og heims hinnar ráðsettu fjöl- skyldu fórnarlambanna, með áhrifaríkum hætti. In Cold Blood varð metsölubók, og mun vel- gengnin og gróðinn hafa stigið Capote (enn frekar) til höfuðs. Hann hóf að vinna að skáld- verkinu „Answered Prayers“ sem átti að vera hans lykilverk, en glímdi við ritstíflu og lauk aldrei við bókina. Þá tók rannsókn og skrif bókarinnar mjög á höfundinn. Deilt var á Ca- pote fyrir siðlaus vinnubrögð, og það að hafa látið samskipti sín við aðstandendur málsins stjórnast af metnaði sínum um að viða að sér bitastæðu efni í sögu. Síðar sagði Capote ævi- söguritara sínum, Gerald Clarke, að hefði hann vitað fyrirfram hvaða toll það myndi taka að sökkva svo djúpt inn í heim morðingjanna, hefði hann forðað sér á harðahlaupum frá því að stíga nokkurn tíma fæti inn í Holcomb, Kansas. Skáldskapurinn í veruleikanum Capote, ný kvikmynd um bandaríska rithöfund- inn Truman Capote, hefur vakið athygli vestan hafs og sópað til sín tugum verðlauna og -tilnefn- inga. Leikarinn Philip Seymour Hoffman hefur hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á Capote sem talinn er til merkari höfunda eftirstríðsáranna, en var þó ekki síður þekktur fyrir áberandi per- sónuleika sinn. Hér er stiklað á stóru í ævi og rit- ferli Capote. Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is Capote „Kvikmyndin Capote beinir einkum sjónum að hinu örlagaríka tímabili í lífi Capote sem hann varði í rannsóknina á morðmálinu sem In Cold Blood fjallar um.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.