Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Síða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 | 13 Michael Stipe söngvari R.E.M.Bright Eyes, Chuck D úr Public Enemy og Rufus Wainw- right eru á meðal þeirra sem hyggjast koma fram ásamt frið- arsinnanum Cindy Sheehan á tón- leikum sem fengið hafa yfirskriftina Bring ’Em Home (ísl. Flytjum þá heim). Tón- leikarnir eru til styrktar hermönnum Bandaríkja- hers sem hafa barist í Írak en eru nú mótfallnir stríðsrekstrinum (Iraq War Veter- ans Against the War) og fyrrver- andi hermönnum sem berjast fyrir friði (Veterans for Peace) og verða þeir haldnir í Hammerstein Ballro- om í New York 20. mars en þá eru liðin þrjú ár frá innrás Bandaríkj- anna í Írak. Kynnar verða með- al annarra; Jane Fonda, Alec Baldwin, Margaret Cho og Ja- neane Garofalo en þau hafa öll lýst opinberlega andstöðu sinni gegn stríðinu en þá má einnig búast við því að Fischerspooner, Peaches og Devendra Banhart muni bætast við þann hóp tónlistarmanna sem fram kemur á tónleikunum. Cindy Sheehan sem missti son sinn í Íraksstríðinu árið 2004, komst fyrst í fréttirnar þegar hún tjaldaði fyrir utan búgarð Gerorge W. Bush í Texas í heilan mánuð á síðasta ári í mótmælaskyni við stríðsreksturinn. Tónleikarnir verða þeir fyrstu í tónleikaröð sem reiknað er með að komi við í fimmtán borgum Banda- ríkjanna.    New York sveitin Yeah YeahYeahs undirbýr nú tónleika- ferð um bæði Bandaríkin og Bret- land en sveitin hefur verið ein sú umtalaðasta í rokkheim- inum að und- anförnu. Fyrstu tón- leikarnir verða haldnir í Washington D.C. 4. apríl en tónleika- ferðinni lýkur 30. sama mánaðar á Coachella há- tíðinni í Kali- forníu sem margir Ís- lendingar hafa sótt. Einir tón- leikar verða að vísu í New York 2. maí en svo flýgur sveitin yfir haf og leggur upp í tónleikaferð um Bretlands- eyjar.    Og aftur að Chuck D og PublicEnemy því að væntanleg er breiðskífa í næsta mánuði frá hljómsveitinni sem fengið hefur nafnið Rebirth of a Nation en óhætt er að segja að platan verði mjög óhefðbundin í sniðum. Þannig er nefnilega mál með vexti að öll lögin og nánast allir textarnir verða ekki eftir Public Enemy, heldur Vesturstrandar-rapparann Paris. Paris þessi, sem kemur frá Flóasvæðinu svokallaða, vann að einu lagi á Revolverlution plötu Pu- blic Enemy og mun samstarfið hafa tekist svo vel að Chuck D ákvað að fá hann aftur til liðs við sveitina. Segir hann verkefnið einstakt en að hann hafi gengið með hugmynd- ina um nokkurn tíma að fá ein- hvern annan til að semja rímur fyr- ir sig. Textarnir eru að sögn mjög pólitískir eins og Public Enemy er von og vísa og fjalla um fátækt, kynþáttafordóma og stríðið í Írak svo dæmi séu tekin. Flavor Flav mun að sjálfsögðu koma fyrir á plötunni og einn gestarapparanna verður MC Ren úr N.W.A. Erlend tónlist Chuck D Yeah yeah yeahs Tónlist hippatímans var friðsæl og ang-urvær, svo sem hugsjónirnar gáfu tilefnitil. Lítið var um átök og ögranir. Þegarhippisminn leið undir lok þurftu tónþyrst ungmenni því á vítamínsprautu að halda. Þéttings- föstu sparki í afturendann. Þungarokkið svaraði því kalli. Bárujárnið skall á heimsbyggðinni eins og brimskafl á kænu. Hljómsveitir á borð við Uriah Heep, Led Zep- pelin og Deep Purple stigu skref í þessa átt, að ekki sé talað um Jimi karlinn Hendrix. Fyrsta þungarokks- hljómsveitin var eigi að síður Black Sabbath, kvartett sér- vitringa frá iðnaðarborginni Birmingham á Englandi. Hljómsveit sem nam nýjar lendur í rokktónlist – með aukinni dýpt og drunga. Myrkrið var brotið til mergjar. Black Sabbath varð til árið 1969. Stofnfélagar voru fjórir rúmlega tvítugir alþýðustrákar. Gít- arleikarinn, Tony Iommi, hafði atvinnu af því að gera við ritvélar; vörubílstjórinn Geezer Butler plokkaði bassa og bókavörðurinn Bill Ward tyllti sér við trommusettið. Söngvarinn var svo sóttur á næsta sláturhús, John Osbourne, öðru nafni Ozzy. Í fyrstu kölluðu fjórmenningarnir sig Earth, en þegar í ljós kom að það nafn var frátekið, breyttu þeir heiti hljómsveitarinnar í Black Sabbath. Pilt- arnir voru á þessum tíma undir miklum áhrifum frá hryllingsmyndahetjunni Boris Karloff. Sumir sökuðu Sabbath meira að segja um daður við djöf- ulinn. Það daður byggðist þó meira á forvitni en trú. „Við vildum skera okkur úr fjöldanum,“ útskýrði Iommi síðar. „Þetta voru erfiðir tímar og við vor- um allir býsna langt niðri. Við lékum þungarokk til að fá útrás. Þungt rokk kallar á þunga texta og þannig varð yfirskilvitleg ímynd okkar til.“ Fyrsta breiðskífa Black Sabbath, sem bar nafn hljómsveitarinnar, kom út í ársbyrjun 1970. Sveitin hafði þegar safnað nokkru fylgi með tónleikahaldi en salan lét á sér standa. Það gjörbreyttist í sept- ember sama ár þegar önnur skífan, Paranoid, kom út. Titillagið, sem flestir þekkja, komst í fjórða sæti breska vinsældalistans og platan rann út eins og heitar lummur. Björninn var unninn. Black Sab- bath voru hin nýju átrúnaðargoð breskrar æsku. Samt voru gagnrýnendur ekki hrifnir. Kölluðu tónlist sveitarinnar úrkynjaða, ómstríða og ólyst- uga og gáfu henni sömu lífslíkur og frostpinna í hel- víti. Vinsældirnar breyttu engu þar um. Iommi hélt því síðar fram að þetta hefði haft með hljóðstyrkinn að gera. „Aðdáendur okkar voru ungir að árum og vildu hafa tónlistina hátt stillta. Gagnrýnendurnir, sem voru heldur eldri, virtust ekki skilja þetta.“ Ætli Iommi hitti ekki naglann á höfuðið þarna. Í það minnsta hafa fyrstu plötur Black Sabbath elst afskaplega vel. Þar rekur líka hver klassíkin aðra. Þegar hefur verið minnst á titillagið en auk þess er þar að finna lög á borð við Electric Funeral og Iron Man, að ekki sé talað um War Pigs sem er ein mergjaðasta tónsmíð rokksögunnar. Sigurganga Sabbath hélt áfram á Master of Reality (1971), Volume 4 (1972) og Sabbath Bloody Sabbath (1973), sem margir telja að sé besta verk sveitarinnar. Sabotage (1975), Technical Ecstacy (1976) og Never Say Die (1978) voru síðri og eftir þá síðastnefndu hætti Ozzy endanlega í sveitinni. Árekstrum þeirra Iommis hafði fjölgað með ár- unum og ekki bætti óhófleg neysla áfengis og fíkni- efna úr skák. Ozzy var sífellt oftar í fréttunum vegna einkalífs síns og undarlegra uppátækja. Því fór sem fór. Ozzy drekkti sorgum sínum um skeið en hóf svo farsælan sólóferil sem stendur enn. Lík- lega er kappinn þó þekktastur sem sjónvarps- stjarna á síðari árum. Black Sabbath sneri aftur með tveimur prýði- legum hljóðversskífum Heaven and Hell (1980) og Mob Rules (1981) en þá var Ronnie James Dio tek- inn við hljóðnemanum. Það var einmitt hann sem fór fyrir Sabbath hér á landi haustið 1992 á eftir- minnilegum tónleikum á Akranesi. Iommi hefur starfrækt sveitina fram á þennan dag með miklum mannabreytingum og misjöfnum árangri. Seint á síðasta áratug slíðruðu þeir Ozzy sverðin og út komu nokkrar „Best of“- og tónleika- skífur. Frumsamið efni hefur hins vegar látið á sér standa. En hvað sem því líður er sess Black Sab- bath í rokksögunni löngu tryggður – um alla fram- tíð. Frostpinni í helvíti? Poppklassík Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Þ að er gömul saga og ný að þær plöt- ur sem eru ekki að gera neitt fyrir þig fyrstu skiptin sem þú heyrir þær verða yfirleitt að uppáhalds- plötunum þínum. Þær læðast hægt og bítandi inn í þig, oftast er það þannig að við u.þ.b. áttundu hlustun (þetta er ekki vísindaleg nákvæmt) kviknar á peru í hausnum hjá þér. Þá tekur við annað ferli, þar sem platan virðist verða betri með hverri hlustun og nýir flet- ir koma stöðugt í ljós. Endingartími þessara platna er venjulega í hærra lagi og þær virka ekki síður vel ef þú setur þær svo í salt, segjum í hálft ár. Þá er yndislegt að koma að þeim aftur, feg- urðin og styrkurinn rifjast upp fyrir þér í skothendingu, ekki ósvipað og að hitta góðan vin eftir langan aðskilnað. Nýjasta plata bresku söngkonunnar Beth Ort- on, Comfort of Strangers, er svona plata. Virtist harla ómerkileg í fyrstu (fyrir þessi eyru a.m.k.) en þegar á leið tók snilldin að brjótast í gegn. Platan leynir mikið á sér – og ég er eiginlega kom- inn á þá skoðun að þetta sé besta plata hennar til þessa. Það er eitthvað listrænt öryggi (reynsla?) sem einkennir plötuna, sterk sýn sem leiðir plöt- una áfram og gerir hana heilsteypta, pottþétta. Merkilegt þar sem hún var tekin upp á aðeins tveimur vikum, flest lögin ein til tvær tökur. Comfort in strangers er fjórða plata söngkon- unnar sem hefur um margt farið óvenjulegar leið- ir í sköpun sinni á tíu ára opinberum útgáfuferli, en fyrsta platan, Trailer Park, kom út árið 1996. Vel heppnuð blanda Orton, sem er fædd árið 1970 í Norwich, hafði komið að nokkrum eftirtektarverðum samstarfs- verkefnum áður en Trailer Park leit dagsins ljós. Upprunalega ætlaði hún að hasla sér völl í leiklist- inni en kynntist svo dansgúrúinum William Orbit. Saman hljóðrituðu þau útgáfu af lagi Johns Mar- tyn , „Don’t Wanna Know About Evil“, sem dúett- inn Spill. Þetta var árið 1992 en Orton átti einnig eftir að taka þátt í Strange Cargo verkefni Orbits. Merkilegt er þá að árið eftir tók Orbit upp heila breiðskífu með Orton. Hlaut hún nafnið Super- pinkymandy, var pressuð í 5.000 eintökum og að- eins gefin út í Japan. Þessi plata er venjulega undanskilin þegar ferill Orton er ræddur og er víst afar sjaldgæf í dag. Orton fór nú að vekja töluverða athygli í dansheimum, m.a. í gegnum samstarf sitt við þá ofurstjörnurnar Chemical Brothers og seinna Red Snapper. Er Trailer Park kom út árið 1996 var henni hampað sem meistaraverki. Nýjar brautir áttu að hafa verið ruddar og þótti blöndun hefðbundinna laglína í söngvaskáldahefðinni við framsækin raf- og tölvuhljóð einkar vel heppnuð. Upptökum var stýrt af Victor Van Vugt (Nick Cave, Tinder- sticks) og öðrum þungavigtarmanni úr dans- tónlistarbransanum, Andrew Weatherall. Orton varð einkar „heit“ í kjölfarið og túraði m.a. með John Martyn, Tindersticks, John Cale, Mark Eit- zel og Everything But The Girl og gerði þá góða lukku á Lilith Fair tónleikaferðalaginu, sem sam- anstóð af nokkrum af þekktustu kvendægur- lagaflytjendum þess tíma. Árið 1997 kom út stuttskífan Best Bit, fjögurra laga plata sem þótti ekki síðri en Trailer Park, en þar vinnur Orton með goðsögninni Terry Callier í tveimur lögum. Næsta plata, Central Reserva- tion, kom svo út 1999. Plata sú þykir alls ekki síðri en fyrirrennarinn og er deilt um hvor sé toppur ferilsins (og nú má blanda þeirri nýjustu inn í þá deilu). Á plötunni lætur Orton teknótóna lönd og leið en einbeitir sér þess í stað að innhverfri söngvaskáldatónlist með glæsilegri útkomu. Gestalistinn ekkert slor; Dr. John, Ben Harper, David Roback (Mazzy Star) og Ben Watt (Everyt- hing But The Girl). Þriðja platan, Daybreaker, kom svo út 2002 og enn skipti Orton um gír. Risastór, epísk plata, of stór og helst til tormelt að mati margra. Enn er magnað að renna í gegnum lista þeirra sem hönd lögðu á plóg, en að plötunni kom litskrúðugur hópur; m.a. Em- mylou Harris, The Chemical Brothers, William Orbit, Ben Watt, Johnny Marr, Jim Keltner, Ryan Adams og Victor Van Vugt. Hvað nú? Það á eftir að fá marga til að sperra upp eyrun er þeir frétta að Jim O’Rourke, ein mikilhæfasti jaðartónlistarmaður samtímans, vinnur Comfort of Strangers með Orton. Og þó ekki, því að eins og áður er getið tók Orton snemma ákvörðun um að sneiða hjá vel vörðuðum leiðum. Og samstarfs- menn hefur hún ávallt sótt beggja vegna Atlantsála. O’Rourke er með eindæmum fjölhæfur maður, er jafnvígur á hreina óhljóðalist, melódíska nýbylgju, djass, tor- melta nútímatónlist og svo má telja. Fæddur í suðupottinum Chicago og hefur starfað með miklum fjölda tónlistarmanna af hinu og þessu tagi og var m.a. fullgildur meðlimur í Sonic Youth um tíma (hætti síðasta haust). Kveikjan að samstarfi Orton og O’Rourke var sú að þegar Orton hóf að leggja drög að plötunni varð henni hugsað til hinnar frábæru stuttskífu O’Rourke, Halfway to a Threeway, sem út kom árið 2000. Platan sú einkennist m.a. af flúruðu og fagmannlegu gítar- plokki og innilegu, ögn hráu andrúmslofti. Orton hafði þegar ákveðið að platan yrði dálítið blátt áfram – þveröfugt við fyrirrennarann og hliðræn upptökutækni yrði höfð í hávegum („analog“). Or- ton hafði samband við O’Rourke, bað hann um að spila á gítar en hann bauðst til að taka upp í stað- inn. O’Rourke og M. Ward komu að samningu tit- illagsins en restina á Orton. O’Rourke og Orton spila á bassa, gítara, píanó og þess háttar en einn- ig koma við sögu þeir Tim Barnes (Silver Jews) og Rob Burger (Tin Hat Trio) Á yfirborðinu hljómar platan nokkuð „venju- lega“ en þegar betur er að gáð er ýmislegt snúið og skælt. Skrýtnar taktbreytingar, rafhljóð sem maður tekur vart eftir og viss handanheims- hljómur halda manni við efnið allan tímann. Enn hefur Orton því náð að endurskapa sig. Textarnir eru beinskeyttir og sorgbundnir, en alltaf er vonin handan við hornið. Angurværð er líklega orðið, og umslag plötunnar lýsir þessu ein- kenni plötunnar vel, því þrátt fyrir ömurleikann og drungann sem þar ríkir virðist sólin við það að brjótast í gegn. Innileg og falleg rödd Orton leiðir okkur svo í gegnum sortann. Fjórar plötur, allar mjög svo mismunandi – keyrðar áfram af fáheyrðum metnaði. Hvað næst? Harmur, huggun Fjórða plata Beth Orton er líklega hennar per- sónulegasta verk til þessa, öll spil eru lögð á borð í innilegum, berstrípuðum lögum og sam- starfsmaður er enginn annar en jaðarkóngurinn Jim O’Rourke. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Beth Orton Hefur unnið með mörgu merkisfólkinu í gegnum tíðina og í þetta skiptið er það sjálfur Jim O’Rourke.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.