Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.2006, Qupperneq 15
Leiklist Að þessu sinni mælum við með spánnýju verki, Hungur, eftir eitt af okkar yngstu leikskáldum, Þórdísi Elvu Bachmann. Það er leikhópurinn Fimbulvetur sem sýnir þetta athyglisverða verk í Borgarleikhúsinu í sam- vinnu við Leikfélag Reykjavíkur. Verkið fjallar um átröskun, útlitsdýrkun og offitu- vanda sem herjar á okkur í miskunnarlausu auglýsingasamfélagi nútímans. „Hungur er skrifað af miklum metnaði og eldmóði. Af þörf fyrir að segja eitthvað mik- ilvægt,“ sagði gagnrýnandi blaðsins. Enn- fremur sagði: „Í heild er sýningin þó áhuga- verð og sterk og helgast það af fínni vinnu allra aðstandenda hennar og þeim hlutum handritsins þar sem Þórdís nær að sýna hvers hún er megnug og hvers vegna við megum vænta mikils af henni í framtíðinni.“ Tónleikar KLUKKAN 17 í dag verða lög Megasar við Passíusálma Hallgríms Péturssonar flutt á tónleikum í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir verða haldnir í samstarfi við Vetrarhátíð í Reykjavík, sem þá stendur hvað hæst, og það er lagasmiðurinn sjálfur og stórskáld sem flytur lögin með aðstoð barnakórs og hljóðfæraleikara. Sjö passíusálmar Hall- gríms verða á efnisskrá tónleikanna, en einnig lög við nokkra veraldlega texta eftir hann, sem og tveir sálmar eftir Matthías Jochumsson. Hilmar Örn Agnarsson kór- stjóri og organisti í Skálholtskirkju er stjórnandi verkefnisins. Miðaverð er 2.000 krónur, 1.500 krónur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja en ókeypis er inn fyrir fermingabörn ársins og yngri. Forsala miða er í 12 tónum á Skólavörðustíg og Smekk- leysubúðinni í Kjörgarði. Myndlist Það er nú kannski að bera í bakkafullan lækinn að gera ráð fyrir að listneytendur geri nokkuð annað en að skemmta sér yfir fjölmörgum atriðum Vetrarhátíðar þessa helgi. En eitt atriði hennar er einmitt opnun sýningar á verkum Gunnlaugs Blöndal og Snorra Arinbjarnar í Listasafni Íslands. Það vekur óneitanlega upp eftirvæntingu í garð safnsins að nú er ókeypis inn á það – og það ekki bara í tilefni af Vetrarhátíð heldur til frambúðar. Það er því full ástæða fyrir unn- endur málaralista að drífa sig sem oftast á Listasafnið á meðan á þessari sýningu stendur og njóta þessara meistara sem best. Kvikmyndir Lesbókin mælir að þessu sinni með kvik- myndinni Good Night and Good Luck í leik- stjórn George Clooney en myndin er til- nefnd til sex verðlauna á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer 5. mars. Heiða Jóhannsdóttir, kvikmynda- gagnrýnandi Morgunblaðsins, hafði þetta að segja um myndina: „George Clooney tekst einkar vel að fram- setja hið sögulega efni sem tekist er á við í kvikmyndinni. Myndin er lágstemmd og knúin áfram af samtölum fremur en til- raunum til að búa til hástemmda spennuum- gjörð um atburðina. Áhersla er lögð á að byggja upp sögupersónur og dramatískur þungi myndarinnar er sóttur til skoð- anaskipta þeirra og hins rafmagnaða and- rúmslofts er skapast meðal aðstandenda þáttarins sem vita að þeir eru að stíga inn á jarðsprengjusvæði með umfjöllun sinni. Þáttur frábærra leikara myndarinnar við að magna upp andrúmsloftið á fréttastofunni og miðla sálarstríði persónanna er mikill. David Straithairn er þar frábær í hlutverk Ed Murrows, og má segja að hann nái hér um bil að lífga við hina goðsagnakenndu persónu sína.“ Lesbók mælir með… Good Night and Good Luck „George Clooney tekst einkar vel að setja fram hið sögulega efni sem tekist er á við í kvikmyndinni.“ Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. febrúar 2006 | 15 Dagbókarbrot Úr dagbók Anais Nin, febrúar 1954. Það er erfitt að lifa með hinum hreinlyndu. Þeir fordæma þig ekki, þeir fyrirgefa þér. Fyrirgefningin er verri en fordæmingin. Óhreinlyndið verður að glæp gegn barninu í manni eða sakleysinu. Gegn eigin sál. Og svo er maður haldinn ótta við að dauðinn eða ald- urinn leggi mann að velli vegna þess að með því að viðhalda tærri sýn sálarinnar heldur maður í æskuna. Aldur er sjónskekkja, nær- sýni, ský á auga, fætt af óhreinlyndi. Lesarinn Shopping. A Century of Art and Consumer Culture. Ritstj. Christoph Grunenberg og Max Hollein. Hatje Cantz Publishers, 2002. Anthony Swofford: Jarhead. A Marine’s Chron- icle of the Gulf War and Other Battles. Pocket Books, 2003. Shopping er bók gefin út í tengslum við samnefnda myndlistarsýningu erlendis. Þar veltir Boris Groys m.a. fyrir sér stöðu listamanns- ins í neyslusamfélaginu, segir félagslegt hlutverk hans hafa breyst úr því að vera fyrirmyndarframleið- andi yfir í að verða fyr- irmyndarneytandi, jafnvel útvalinn og gagnrýninn neytandi hluta úr heimi fjöldaframleiðslunnar sem hann setur síðan á fordæmisgefandi hátt fram í sérstökum sýningarrýmum. Heimsókn á stórar listsýningar sé sambærileg við heimsókn í hallir aðalsins áður fyrr þegar hann bjó til neyslufyrirmyndir og gerviþarfir til viðmiðunar fyrir framleiðslugeirann og lægri stéttir. Mynd- listarmaður nútímans hafi á vissan hátt tekið við hlutverki aristókrasíunnar. Áritun lista- mannsins tákni ekki lengur að hann hafi fram- leitt ákveðinn hlut, heldur notað hann – á at- hyglisverðan hátt. Jarhead er endurminningabók bandarísks her- manns frá Persaflóastríðinu 1991. Lestur bók- arinnar gefur aðra mynd af stríðsátökunum en birtist víða í vestrænum fjölmiðlum. Opinská frásögnin veitir einnig innsýn í skuggahliðar herþjálfunar og hugarástand hermanna og leið- ir hugann að misþyrmingum á íröskum ungling- um og föngum undanfarið og þeim flóknu öflum sem búa að baki slíku athæfi. Samnefnd kvik- mynd mun vera nokkuð frábrugðin bókinni í áherslum sínum. Anna Jóa Anna Jóa Á LISTASAFNINU á Akureyri stendur nú yfir sýning á verkum fjögurra nafnkunnra listamanna sem settu svip sinn á íslenskt og danskt listalíf síðustu aldar.Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og inniheldur verk eftir Danina Else Alfelt og Carl-Henning Petersen og félaga þeirra Svav- ar Guðnason og Sigurjón Ólafsson. Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson stunduðu báð- ir nám í Danmörku og tóku þátt í því frjóa listalífi sem þar þróaðist á fjórða og fimmta áratugnum. Svavar kom því til leiðar að danska Höst- udstillingen frá haustinu 1947 var sett upp hér á landi ári seinna, en sú sýning var tímamóta- sýning hér á landi og vakti mikla athygli. Else Alfeld og Carl-Henning Pedersen komu til að setja sýninguna upp og dvöldu í kjölfarið á landinu sumarlangt. Á sýningunni Hraunblóm í Listasafninu á Akureyri er hluti af þeim myndum sem Carl-Henning og Else Alfelt máluðu hér á landi þetta sumar, ásamt verkum Svavars og Sigurjóns frá þessum tíma. Sýn- ingin Hraunblóm sem var fyrst sett upp í lok síðasta árs á Listasafni Sigurjóns hefur tekið breytingum í Listasafni Akureyrar þar sem skipt hefur verið um verk eftir Sigurjón og lagt áherslu á gott yfirlit yfir helstu verk Svav- ars. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á af- markaðan þátt dansk-íslenskrar listasögu í tengslum við framúrstefnuna sem kennd er við Linien, Haustsýningarhópinn, tímaritið Hel- hesten og seinna alþjóðlega listhópinn Cobra. Þeirri sögu eru gerð góð skil í veglegri sýning- arskrá sem er kærkomin viðbót við listasögu okkar þar sem textarnir ná ekki aðeins að þétta vitneskju okkar um þetta tiltekna tíma- bil, heldur einnig að skoða suma þætti þess í nýrri fjarlægð við viðfangsefnið. Þetta á ekki síst við um skrif Hanne Lundgren Nielsen um Else Alfeld, einu konuna í hópnum, sem varpa ákveðnu ljósi á kynjaða umræðu innan list- heimsins sem oft hefur verið þagað yfir. Þegar sýningin Hraunblóm er skoðuð skynjar maður greinilega tíðaranda hennar um leið og það er ekki hið listsögulega sam- hengi hennar sem er áhugaverðasti þáttur hennar. Núna er okkur nokkuð sama hvort kom á undan ljóðrænt afstrakt eða formfast- ara, hvort það fígúratífa eða prímitífa hafi ver- ið merkilegra í hinu eða þessu ljósinu, ára- tugnum á undan eða ekki. Það sem er áhugaverðast við sýninguna eru verkin sjálf, hér og nú, sem enn bera í sér tilfinningu fyrir listrænu frelsi og lifandi frumkvæði þótt stíl- brögðin séu löngu orðin þekkt og hefðbundin í augum samtímans. Vatnslitamyndir Else Al- feld af náttúru Íslands í nánast kosmískum búningi virðast vera þeirrar gerðar að standa utan við alla tískustrauma og samræma lífs- rytma manns og náttúru. Þær kallast á við orkuhlaðnar náttúrumyndir Svavars, sér- staklega þær lausbeisluðu og að því virðist sjálfsprottnu eins og Gullfjöll. Þá er ákaflega gaman að sjá svo mörg af lykilverkum Svavars á einni sýningu svo ekki sé minnst á vatnslita- og krítarverk hans sem sjaldnar sjást. Áferðin í olíumálverkunum er hreint með ólíkindum og virðist verða safaríkari og ómótstæðilegri eftir því sem tíminn líður, en slíkt er ekki sjálfgefið í myndlistinni frekar en öðru. Val á tréskúlp- túrum Sigurjóns á sýninguna kom líka skemmtilega á óvart en þau ná að spila ein- staklega vel í heildarmyndinni og ljá sýning- unni þá rómantísku alvöru og þunga sem sem gerir launhæðna leikgleðina trúverðuga. Myndir Carl-Hennings af helhestinum virðast ekki eins ógurlegar og ætla mætti eftir því sem lesa má um tilurð hans. Á stríðstíma má vera að táknmálið lýsi dauðans alvöru en í björtum sölum listasafnsins og í fjörlegu sam- hengi sýningarinnar verður hann ævintýra- legur og fyndinn á köflum. Myndir hans virð- ast fyrst og fremst einlægar og næmar á mannlega tilvist. Sýningin er ákaflega fersk og metnaðarfull og virðist laus við alla stofn- anaþreytu sem stundum loðir við á söfnum þegar sýnd eru eldri verk. Þá er herbergi á safninu ætlað börnum þar sem þau geta teikn- að og málað, og einnig þar kemur listasafnið á óvart þar sem öll aðstaða, pappír litir og pensl- ar eru í hærri gæðaflokki en það sem oftast tíðkast. Það er í alvöru gert ráð fyrir að börnin hafi eitthvað fram að færa sem er líka raunin hér. Helhestur Carl-Hennings hefur orðið ungum listamanni, Önnu úr Giljaskóla, inn- blástur í mynd þar sem kona eða álfamær hef- ur tamið hestinn svo hann étur úr lófa hennar. Listrænt frelsi og lifandi frumkvæði MYNDLIST Listasafnið á Akureyri Sýningin stendur til 26. febrúar Opið alla daga nema mánudaga, kl . 12–17. Hraunblóm Else Alfelt Carl-Henning Pedersen Svavar Guðnason Sigurjón Ólafsson Þóra Þórisdóttir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Helhestur Mynd úr Helhestaseríunni eftir Carl-Henning Pedersen í Listasafninu á Akureyri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.