Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.2006, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.2006, Side 6
6 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók L ítil og grönn, feimin og fálát. Með langan háls og hárið oftar en ekki tekið aftur í lágan hnút í hnakkanum. Ávallt dökkklædd með kaffibolla í annarri og sígarettu í hinni. Einn fremsti og áhrifaríkasti danshöfundur allra tíma, staðsett í áður lítt þekktum þýsk- um bæ þar sem verk hennar vöktu mikla reiði og fjandskap. Svo hvað var það sem gerði það að verkum að frægir listamenn eins og Robert Wilson, Peter Brook, Samuel Beckett og Ro- bert Lepage fóru í pílagrímsferð til Wupper- tal til að bera sýningar þessa höfundar aug- um. Hvað gerir það að verkum að hinn almenni áhorfandi dregst að sýningum hennar út um allan heim í dag? Hver er þessi kona? Hver er Pina Bausch? Pina eða Philippine Bausch er fædd þann 27. júlí árið 1940 í Solingen, litlum bæ ekki langt frá Wuppertal í Þýskalandi. Dóttir Aug- usts Bausch og Anitu Bausch, eigenda lítils gistihúss og veitingastaðar þar í bæ. Þar sem Bausch var lang yngst þriggja systkina sá hún oftar en ekki sjálf um að hafa ofan af fyr- ir sér meðan fjölskyldan sinnti rekstrinum. Eyddi hún ófáum stundum hoppandi skopp- andi og standandi á höndum eða sitjandi und- ir borðum á veitingahúsinu, skoðandi mann- lífið. Slöngustelpan Það voru dansarar úr leikhúsinu í Solingen sem tóku fyrst eftir Bausch þegar þeir snæddu eitt sinn á veitingastað foreldra henn- ar. Kraftur og lífsgleði þessarar litlu stúlku vakti áhuga þeirra og hvöttu þeir foreldrana til þess að senda hana í ballettnám. Þegar í skólann var komið var hún látin leggjast á magann með fæturna á bak við höfuðið. Raun- in var sú að hún var lang liðugust af öllum nemendunum og gaf kennarinn henni því við- urnefnið slöngustelpan. Í huga Bausch var viðurnefnið heiður og þar með var áhugi hennar á listdansi vaknaður. Leið Bausch lá til Essen við 14 ára aldur, í Folkwang ballettskólann. Á þeim tíma var skólinn undir stjórn Kurt Jooss, einum af upphafsmönnum expressjóníska dansins eða Ausdruckstanz sem notast við hversdagslegar hreyfingar til þess að tjá persónulega upp- lifun. Skólinn í Essen opnaði leiðir fyrir Bausch að öðrum listgreinum en við skólann var ekki aðeins kenndur listdans heldur var nemendum einnig boðið upp á kennslu í leik- list, látbragðsleik, tónlist, myndlist, hönnun, höggmyndalist og ljósmyndun. Þessi sam- blanda listgreinanna átti eftir að hafa víðtæk Slöngustelpan Einangrun „Þau þemu, hvatir og kveikjur sem birtast einna helst í verkum Pinu Bausch eru: rótleysi, einangrun, ótti, árekstrar milli kynjanna og samskiptaörðuleikar milli einstaklinga.“ Í heimi nútímadansins er hægt að telja á fingrum annarrar handar þá danshöfunda sem virki- lega hafa breytt stefnu listdansins. Martha Graham er einn, Merce Cunningham er annar og Pina Bausch sá þriðji. Dansverk Bausch Aqua verður sýnt í Borgarleikhúsinu á morgun og næstu daga en þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir hana er sýnt hér á landi. Í þessari grein er farið yfir stórmerkilegan feril Bausch sem var uppgötvuð á veitingastað foreldra sinna og gef- ið nafnið slöngustelpan vegna óvenjulegs liðleika. Líkamsmál Það vísar í veruleikann. Í HNOTSKURN »Verk Bausch Aqua sækja innblástursinn í allar áttir og listmiðla og er Aqua engin undantekning þar á. »Meðal þess er bregður fyrir í verk-inu er rumba, samba, pálmatré, Pina colada, vatn og sitthvað sem minn- ir á leyndardóma Amazonfrumskóg- arins. »Verkið sem frumsýnt var þann 12.maí 2001 í Edition L’Arche í París er að hætti Bausch í senn litrík og íburðamikil, seiðandi og ögrandi. Eftir Karen Maríu Jónsdóttur karenmaria@lhi.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.