Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.2006, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.2006, Qupperneq 13
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is P lötusnúðar eru ýmiss konar, allt frá því að sitja við spilarann og skipta um plötur næsta vélrænt í það að vera tónlistarmenn sjálfir sem leika af fingrum fram með plöt- urnar sem sitt hráefni, tónlist ann- arra. Þeir sem lengst ná í þeim efnum eru mikils metnir um heim allan, enda ekki hægt að líkja því við annað en tónleika þegar þeir troða upp, blanda saman gleymdri tónlist og alþekktri, flétta saman taktinn úr þessu lagi og sönginn úr hinu, ekki bara til að láta lögin renna saman heldur til að skapa eitthvað nýtt. En af hverju ekki að ganga lengra, af hverju ekki að líta á tónlistina sem hreint hráefni og fara alla leið, hrista saman það besta úr nokkrum góðum lög- um svo úr verður mögnuð snilld? Nýtt úr gömlu Mashup kallast það þegar menn skeyta saman lögum líkt og frægt varð hér á landi þegar ein- hver gárunginn setti saman Celine Dion og Sig- ur Rós, Sealion Dion vs. Cigar Ros. Helsti spá- maður þessara tónvísinda er kanadíska tónskáldið John Oswald sem er frægast fyrir Plunderphonics sem hann kallar svo, en sú hugs- un felst í því að setja saman nýja tónlist úr gömlum upptökum. Hann byrjaði á sínum klippi- verkum á sjöunda áratugnum og frægt varð er hann skeytti saman gítarfrösum frá Jimmy Page og prédikun bandarísks bókstafstrúarmanns. Allajafna er orðið mashup notað yfir það þeg- ar lög eru felld saman í heilu lagi eða hér um bil, en ótal afbrigði eru til á því sem Oswald kallaði Plunderphonics (fyrsta Plunderphonic diskinn er hægt að sækja á vefsetur Oswalds, plunderphonics.com). Það er til að mynda aðeins útfærsluatriði að nota búta úr lögum eins og legokubba, setja saman lag úr mörgum misst- uttum bútum, kannski tugum búta eða hundr- uðum. Bókstafstrúarmenn kalla það ekki mas- hup, en merkimiðinn skiptir í sjálfu sér ekki máli, heldur framkvæmdin. Gráar plötur og svartar Frægar plötur með tónlist þessarar gerðar eru til að mynda fyrsta platan Oswalds sem getið er og CBS og lögmenn Michaels Jacksons létu eyðileggja, plata Negativland sem U2 stoppaði, Gráa albúmið eftir Danger Mouse, sem steypti saman Hvíta albúmi Bítlanna og Svarta albúmi Jay-Z, en EMI kom í veg fyrir dreifingu hennar þó hægt sé að sækja hana á netið (sjá www.illeg- al-art.org/). Oft eru viðkomandi verk unnin með samþykki höfundarréttareigenda eða þegjandi samþykki, en algengara þó að unnið sé í óleyfi. Dæmi um samþykki eru Radio Soulwax- plöturnar (2 Many DJs) sem á eru mashup sem leyfi fengust fyrir og dæmi um þegjandi sam- þykki er platan magnaða Three Sinister Sylla- bles, 75 mínútna flétta 250 lagabúta sem margir eru ekki nema taktur eða rödd. Three Sinister Syllables var tvö ár í smíðum, enda flókin vinna að púsla saman þó notaðar séu tölvur. Hálfgert hugsjónastarf Margir klippararnir líta á iðju sína sem hálfgert hugsjónastarf og kæra sig ekki um leyfi þó það standi til boða, en fleiri virðast þó gjarnan vilja hafa allt á þurru, en það getur verið snúið að afla heimilda fyrir bútum. Dæmi um það er lagið 99 Problems sem Danger Mouse bræðir saman við Helter Skelter á Gráu plötunni. Á Svörtu plötunni, plötu Jay-Z, eru fjórir útgefendur skráðir fyrir laginu. Til þess að nota lagið þurfti Danger Mouse því að fá leyfi frá þeim útgef- endum öllum að ekki sé talað um útgefanda Hel- ter Skelter. gera má því skóna að þeir hefðu krafið hann um fulla greiðslu fyrir fyrirfram- greitt og engar líkur á að hann gæti náð þeim peningum til baka. Kemur ekki á óvart að marg- ir fara þá leið að spyrja hvorki kóng né prest og gefa lögin síðan út á Netinu þar sem hver sem vill getur sótt þau. Einn af þeim sem sigla milli skers og báru í þessum efnum er tónlistarmaðurinn Girl Talk sem sendi frá sér sérdeilis skemmtilega plötu fyrr á árinu, Night Ripper. Á bak við Girl Talk nafnið er lífefnafræðingurinn Greg Gillis – dag- farsprúður verkfræðingur í hvítum slopp á virk- um dögum, en hálfber villtur plötusnúður um helgar. Hann lifir því tvöföldu lífi og vill víst helst hafa það svo, sem sést meðal annars af því að hann neitar blöðum í heimaborg sinni, Pitt- sburgh, um viðtöl til að halda því leyndu hvað hann gerir í frítíma sínum. Gillis lærði tónlist sem barn, spilaði á trompet, en fór síðan að fást við óhljóðalist sem ungling- ur, segist hafa verið í hljómsveit sem framleiddi hávaða og braut hluti. Þegar það bráði af honum fór hann að hlusta á poppmúsík en nálgaðist hana úr annarri átt en gengur og gerist. Fyrsta Girl Talk platan kom út 2002 eftir að Gillis hafði setið við klippingar í á annað ár. Hiphop og popp Fyrsta plata hans var tilraunakenndari en síðar varð en Gillis segist fljótlega hafa misst áhugann á tilraununum og sneri sér því að hiphopi og poppi. Hiphop er reyndar obbinn af hráefninu sem Gillis notar, enda falla pælingar hans vel að grunninum að góðu hiphopi – smalatækni og liprar klippingar. Á Night Ripper eru brot úr lögum 167 lista- manna eða hljómsveita, um 250 bútar alls, enda notaði hann fleiri en einn bút frá sumum, en alls segist hann hafa haft undir um 6.000 búta þegar hann var að setja plötuna saman. Þetta er mögnuð blanda, en ef marka má tónleika- umsagnir er Gillis enn magnaðri á tónleikum. Smalatækni og liprar klippingar Lengi hafa menn stundað þá iðju að klippa sam- an lög annarra og þá búið til eitt magnað lag úr mörgum miðlungslögum. Margir láta sér nægja að fella lögin saman, en sumir klippa þau niður í smábúta og smíða lög úr bútunum. Ný plata Girl Talk, Night Ripper, er gott dæmi um slíkt en hráefni í þeirri plötu voru brot úr lögum 167 listamanna eða hljómsveita, um 250 bútar alls, en Girl Talk hafði undir um 6.000 búta þegar hann var að setja plötuna saman. Mögnuð blanda og kolólögleg. Tvöfalt líf Gillis Lífefnafræðingurinn Greg Gillis sem breytir sér í Girl Talk á kvöldin og um helgar. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 13 lesbók Það eru góðirdagar núna hjá Bach- sérfræðingum. Það er ekki nema rúm vika síðan frá því var greint hér í blaðinu að fundist hefðu tvö áður óþekkt verk eftir barrokk- meistarann mikla í skjalasafni bókasafnsins í Weimar í Þýskalandi, en því var bjargað skömmu áður en safnið brann til kaldra kola. Fundurinn markaði fyrsta skiptið í 30 ár sem ný verk eft- ir tónskáldið uppgötvast. En í þessari viku barst svo önnur frétt um fund á handritum eftir Bach og tveimur fantasíum eftir ka- nónusmiðinn Pachelbel. Handrit Bachs eru ekki með verkum eftir hann sjálfan, heldur organistann mikla og tónskáldið Dietrich Buxte- hude, sem Bach dáði mjög, og koll- ega hans Johann Addam Reinken, sem talsvert kvað að á þeim tíma. Það sem er merkilegt við þennan fund, er að handritin eru þau elstu sem fundist hafa í rithönd Bachs, eða frá um 1700, er Bach var 15 ára. Þau staðfesta líka hve fús Bach var að nema og læra; hann taldi ekki eft- ir sér að skrifa upp eða afrita heilu verkin sem hann heyrði eða komst yfir, - til að geta æft sig sjálfur og forframað sig í listinni að semja og spila á orgel. Tónvísindamenn grófu þennan nýja fund upp úr gögnum hertogynju nokkurrar, Önnu Amal- íu, en þau voru geymd í hvelfingu bókasafnsins þar sem eldurinn náði ekki til þeirra. Nótur Bachs verða gestum og gangandi til sýnis í Bachsafninu í Weimar frá næsta fimmtudegi.    Norðmennhafa tals- verðar áhyggjur af stöðu tónlistar- lífsins þar í landi. Vandræðagang- urinn er þó ekki skrifaður á lista- menn og listina sjálfa, heldur pólitíkusa og ytra kerfi listarinnar - músíkbransans. Árlega heldur norski músíkbransinn þing, sem þeir kalla by:Larm, þar sem púlsinn er tekinn á músíklífinu. Það vakti um- ræður í Noregi á dögunum, þegar framkvæmdastjóri by:Larm, Erlend Mogård Larsen sagði tæpitungu- laust í viðtali við Aftenposten, að norski músíkbransinn væri íhalds- samur og að þar vantaði sárlega fag- mennsku, ættu norskir tónlist- armenn að geta lifað af. Hann fullyrti að héldi fram sem horfði, myndu hæfileikaríkir músíkantar flytjast til útlanda, þar sem þeir nytu kunnáttusemi og og fag- mennsku og þar með eigin verðleika.    Nýja tónlist-arhöllin í Nashville sem sagt var frá í síð- ustu Lesbók, fær glimrandi dóma fyrir hljómburð, en hún var vígð síðasta laugardag af Sinfón- íuhljómsveitinni í Nasville undir stjórn Leonards Slatkins. Nýtt tón- verk var frumflutt, og þótti sérstakt; konsert fyrir banjó, kontrabassa og indverska töblu, en höfundar verks- ins og einleikarar voru Béla Fleck, Edgar Meyer and Zakir Hussain.    Nýja óperan um Gaddafi sem sem vakti líka forvitni okkar, og var frumsýnd hjá Ensku þjóðaróperunni um síðustu helgi, fær hins vegar ekki jafn blíðar mótttökur. „A total failure“ - eða algjört klúður, var nið- urstaða gagnrýnanda tónlistar- tímaritsins Gramophone. Það þarf því varla að orðlengja það. Jóhann Sebastian Bach Erlend Mogård Larsen Leonard Slatkin Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is TÓNLIST Glæpsamlegas gleymd, vanmetin, týnd ...æ manni skortir orð til að lýsa þeirrisorg og þeim pirringi yfir því að enginnskuli kannast við eðalsveitina Thin White Rope, sem starfrækt var í Bandaríkjunum árin ’84 til ’92. Ef hægt er að tala um fullkomið jafnvægi á milli gæða tónlistar og þess að vera svo gott sem óþekktur, þá náðist það í téðri sveit. Það var nánast eins og að á henni hvíldi bölvun. Það er merkilegt til þess að horfa, að í dag, þegar það virðist í tísku að draga upp óþekkta listamenn úr fortíðinni og hampa þeim sem snillingum eiga Thin White Rope varla haldbæran hóp af költ- aðdáendum. Hvar eru þessar lofsgreinar frá Mojo eða Uncut, þar sem TWR er set á stall með hinum mörgu, ósungnu hetjum framsækins rokks? Svei mér þá, TWR áttu aldrei og munu aldrei eiga, nokkurn einasta séns. Það kvað fyrst að Thin White Rope upp úr miðjum níunda áratugnum, og stíllega séð má setja hana í flokk með fyrri tíma R.E.M, Giant Sand og American Music Club. TWR á reyndar margt sameiginlegt með þeirri síðastnefndu, bæði tónlistarlega og svo að AMC átti jafn erfitt upp- dráttar viðurkenningarlega séð. Tónlist TWR er myrk, kántrískotin neðanjarðartónlist, þar sem jafn mikið var lagt upp úr ýlfrandi gítarbjögun og hvíslandi gítarstrokum. Myndirnar sem koma upp í hugann við hlustun eru af eyðilegum, sand- blásnum sléttum Ameríku. Fegurðin sem kraflar sig við og við upp á yfirborðið í lögum TWR er alltaf sorgbundin og er undirstrikuð af magnaðri rödd leiðtogans, Guy Kyser, sem er jafn veðruð og sandblásin og tónlistin. Áhugafólk um alvöru „am- ericana" tónlist verður að tékka á þessu efni. Fimm hljóðversskífur komu út á starfstíma TWR, og tók sveitin framförum jafnt og þétt. Önnur platan, Moonhead, var sögð hljóma eins og að Crazy Horse væru að spila lög eftir Joy Divi- sion. Sú fjórða, Sack full of Silver, sem hér er til- tekin sem klassík sveitarinnar vakti enga athygli á sínum tíma (auðvitað) en opinberaði sig síðan sem eitt sterkasta verk ferilsins. Nóg er að hlýða á hið hrikalega fallega „The Triangle Song" til að sannfærast um snilld TWR. Svanasöngur sveit- arinnar var svo The Ruby Sea (1991), stórkostleg plata og alls ekki síðri en Sack full of Silver. TWR hætti störfum eftir The Ruby Sea, og Kyser sagði það einfaldlega hafa verið af því að hann nennti ekki lengur að vera alltaf á hausnum. Hann og kona hans stofnuðu pöbbahljómsveit í staðinn og ég man enn eftir því hversu sorgmæddur ég var þegar ég las þessa yfirlýsingu hans. Kyser starfar nú við Háskólann í Davis, Kali- forníu, þar sem TWR var stofnuð, og er víst grasafræðingur. Reyndar kom út plata árið 2002, með nýrri sveit Kysers sem kallast Mummydogs, en ekkert hefur heyrst síðan. Já, stundum er eins og tilveran sé tombóla með tómum núllum svo ég vitni í Davíð Þór Jónsson. Segja má að skáldskapur og raunveruleiki hafi legið óþægilega saman í sögu TWR; örlög sveit- arinnar jafn ömurleg og áferð og textar áhrifarík- ustu laganna. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is POPPKLASSÍK Óþekkt lönd

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.