Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 1
2006 MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR BLAÐ B
ÍS SLÓ VOPNIN ÚR HÖNDUM GRINDVÍKINGA / B5
TRYGGVI Guðmundsson, markakóngur Lands-
bankadeildarinnar á síðasta keppnistímabili,
skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara FH í 6:0
sigri liðsins á Þrótti í deildabikarkeppninni í
knattspyrnu í gær. Sigurvin Ólafsson skoraði
tvö mörk, hans fyrstu fyrir félagið, og Matthías
Vilhjálmsson skoraði eitt.
Marel Baldvinsson lék saman leik og Tryggvi
og skoraði þrennu í 3:1 sigri Breiðabliks á ÍBV.
Keflavík hafði betur gegn bikarmeisturum
Vals, 1:0, og skoraði Guðmundur Steinarsson
sigurmarkið. Lárus Orri Sigurðsson spilandi
þjálfari Þórs tryggði sínum mönnum jafntefli
gegn Skagamönnum en liðin skildu jöfn, 3:3.
Lárus Orri jafnaði einni mínútu fyrir leikslok.
Víkingur Ólafsvík vann óvæntan sigur á
Fylkismönnum, 2:1. Daninn Christian Christ-
iansen skoraði mark Fylkis en Vilhjálmur Vil-
hjálmsson gerði bæði mörk Víkings.
Tryggvi með þrennu
í stórsigri FH-inga
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
DAGUR Sigurðsson og læri-
sveinar hans í Bregenz urðu í
gær bikarmeistarar í Aust-
urríki þegar þeir lögðu Fivers í
úrslitaleik, 33:27. Átta félög
kepptu til úrslita um bikarinn
og fór keppnin fram frá föstu-
degi til sunnudags. Í 8 liða úr-
slitunum hafði Bregenz betur
gegn Wolfhouse, 42:28, og í
undanúrslitunum sigraði Breg-
enz lið UHK Krems, 33: 23.
Þetta er í fjórða sinn á síð-
ustu sex árum sem Bregenz
vinnur bikarinn en Dagur hef-
ur náð mjög góðum árangri
með liðið og líklegt er að það
verji meistaratitilinn en liðið
hefur átta stiga forskot í deild-
arkeppninni.
Dagur bik-
armeistari
í Austurríki
Það var gríðarleg stemmning hjástuðningsmönnum okkar enda
lögðum um 2000 manns í langt ferða-
lag frá Napólí á úrslitaleikina sem
fram fóru rétt utan við Bologna. Ég
hef aldrei séð annað eins - við vorum í
tvo tíma að komast út úr keppnishöll-
inni eftir leikinn þar sem að stuðn-
ingslið okkar beið og fagnaði,“ sagði
Jón Arnór í gær við Morgunblaðið.
Jón Arnór lék í 35 mínútur í úr-
slitaleiknum og skoraði alls 9 stig og
tók hann 7 fráköst. „Úrslitaleikurinn
var gríðarlega spennandi og ég held
að þessi titill jafnist alveg á við Evr-
ópumeistaratitilinn með Dynamo St.
Pétursborg í fyrra. Þessi keppni er
gríðarlega stór hér á Ítalíu og það
verður án efa allt vitlaust í Napólí
þegar við komum þangað á morgun (í
dag).“
Á leið sinni í úrslitaleikinn lagði
Carpisa hið þekkta lið Benetton
Treviso, 84:74, en Treviso hafði sigr-
að í þessari keppni undanfarin þrjú
ár. „Við fórum erfiðustu leiðina að
þessum titli - það er ekki spurning.
Og það er erfitt að lýsa því hvernig
mér líður núna - en mér líður gríð-
arlega vel og þessi titill er liðinu og
borginni gríðarlega mikilvægur. Og
það er gaman að fá að taka þátt í
þessu ævintýri og ekki skemmir það
fyrir að hafa náð að sýna góðan leik
þegar mest á reyndi. Það var allt í
járnum í úrslitaleiknum en vörnin
okkar tryggði okkur titilinn,“ sagði
íslenski landsliðsmaðurinn í körfu-
knattleik, Jón Arnór Stefánsson.
JÓN Arnór Stefánsson og félagar hans í ítalska körfuknattleikslið-
inu Carpisa Napólí léku til úrslita í ítölsku bikarkeppninni í gær
gegn Lottomatica frá Róm og hafði Carpisa Napólí betur, 85:83 eftir
framlengdan leik. Staðan var jöfn, 72:72, í lok venjulegs leiktíma.
Jón Arnór ítalskur bikarmeistari í körfuknattleik með Carpisa Napólí
„Fórum erfiðustu
leiðina að titlinum“
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Friðrik gerði Grindavík að deildarmeist-urum árið 2003 og árið 2000 gerði hann
það sama með lið Njarðvíkur. Friðrik tók
sér frí frá þjálfun á síðustu leiktíð en kom til
Grindavíkur að nýju sl. sumar eftir magurt
tímabil hjá félaginu.
Hann taldi að varnarleikurinn hafi skipt
sköpum í sigurleiknum gegn Keflavík. „Það
hefur verið mikil áskorun fyrir okkur að
laga varnarleikinn enda vitum við að í sókn-
inni getum við alltaf fundið leiðir til þess að
skora en vörnin hefur ekki verið okkar
sterkasta vopn. En í þessum leik sýndum við
hvað við getum ef að vörnin er í lagi,“ sagði
Friðrik Ingi og sagðist stoltur af sínu liði.
„Þeir fóru nánast ekki út af því spori sem
við settum upp fyrir leikinn. Það er alltaf
hætta á að menn verði of varkárir í svona
leik en ég lagði áherslu á að við mættum
ekki halda aftur af því sem við gerum vel.
Menn verða að taka af skarið og besta dæm-
ið er líklega Ármann Örn Vilbergsson, sem
kom ískaldur inn af bekknum, en tekur sitt
skot langt utan við þriggja stiga línuna og
það fór beint ofan í. Hann vissi að hann átti
ekki að hugsa of mikið – aðeins að fram-
kvæma. Við ætluðum ekki að halda aftur af
okkur en samt sem áður máttum við ekki
fara út í neina vitleysu,“ sagði þjálfarinn en
það er ekki laust við að Friðrik hafi svarað
gagnrýni sem hann hefur fengið eftir að hafa
látið Bandaríkjamanninn Damon Bailey fara
frá liðinu í upphafi leiktíðar en þá hafði
Grindavík ekki tapað leik á Íslandsmótinu.
„Við gerðum ákveðnar breytingar og ég
taldi þær vera til batnaðar. Frá þeim tíma
höfum við fengið meira framlag frá Helga
Jónasi Guðfinnssyni, en það var óvíst hvort
hann gæti leikið. Jafnvægið er gott í liðinu
eins og það er í dag og ég tel að við getum
gert góða hluti í framhaldinu,“ sagði þjálf-
arinn, Friðrik Ingi Rúnarsson.
„Ánægjuleg
tilfinning“
„ÞAÐ er langt síðan að maður hefur haldið á „alvöru“ bikar og fagnað titli en þetta er
ánægjuleg tilfinning,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, en hann hef-
ur ekki fagnað titli sem þjálfari frá árinu 1999 er hann stýrði Njarðvíkingum til sigurs
á Íslandsmótinu. Friðrik hafði loks ástæðu til þess að fagna á laugardaginn þegar
hann stýrði Grindavík til öruggs sigur í úrslitaleik bikarkeppninni í körfuknattleik
með öruggum sigri á Keflavík, 93:78.
Morgunblaðið/ÞÖK
Jeremiah Johnson og Páll Axel Vilbergsson, Grindvíkingar, á gleðistund í Laug-
ardalshöll á laugardaginn þegar þeir urðu bikarmeistarar í körfuknattleik.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
■ Grindavík skaut / B4