Morgunblaðið - 20.02.2006, Síða 5
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 B 5
Morgunblaðið/ÞÖK
unum í sigurliði Grindavíkur.
Tvíeykið Jerica Watson fráBandaríkjunum og Hildur Sig-
urðardóttir drógu vagninn að venju
fyrir Grindavík og í upphafi leiksins
sýndu þær hversu megnugar þær
eru, Hildur stjórnaði leik liðsins af
festu, lék vörnina af krafti og Wat-
son lét mikið að sér kveða í vörn sem
sókn. Signý Hermannsdóttir, fyrir-
liði ÍS, vakti sitt lið af værum blundi í
stöðunni 10:2 og skoraði ÍS næstu 12
stig.
Bandaríski leikstjórnandinn
Maria Conlon úr liði ÍS lét lítið fyrir
sér fara í fyrri hálfleik og á meðan
hún hélt sig í skugganum náðu leik-
menn Grindavíkur að halda í við ÍS.
En Conlon, sem þekkir fátt annað en
að sigra, mætti til leiks í síðari hálf-
leik með það eitt að markmiði – að
sigra. Conlon kemur frá Connecticut
háskólanum en þar var hún í sigur-
liði bandarísku háskóladeildarinnar
þrjú sl. keppnistímabil og þegar
mest á reyndi í Laugardalshöllinni á
laugardaginn var Conlon með svörin
á hreinu.
Það er langt síðan jafngóður leik-
maður hefur leikið með íslensku
kvennaliði. Allir leikmenn ÍS nutu
góðs af því hvernig Conlon stjórnaði
leik liðsins og miðað við hve stuttan
tíma hún hefur verið í herbúðum
Reykjavíkurliðsins hafa samherjar
hennar náð góðum tökum á því
hvernig hún vill að þær hreyfi sig í
sóknarleiknum. Conlon skoraði alls
26 stig í leiknum, nánast öll í síðari
hálfleik og að auki gaf hún 14 stoð-
sendingar. Frábær leikmaður þar á
ferð.
Signý Hermannsdóttir fyrirliði ÍS
hélt varnarmönnum Grindavíkur við
efnið í fyrri hálfleik á meðan Conlon
var að finna réttu fjölina. Signý skor-
aði 23 stig og þar af 10 í fyrri hálfleik
og að auki tók Signý alls 20 fráköst.
Helgurnar tvær, Jónasdóttir og Þor-
valdsdóttir, tóku við keflinu af Sig-
nýju þegar þurfti og ekki má gleyma
framlagi Stellu Kristjánsdóttur og
Þórunnar Bjarnadóttur. Stella skor-
aði grimmt úr þriggja stiga skotum í
fyrsta leikhluta og Þórunn nýtti fær-
in sín vel. Hanna Kjartansdóttir í liði
ÍS var drjúg að venju en hún hefur
unnið titla með fjölmörgum félögum
á sínum ferli. Hanna tók 8 fráköst og
nýtti færin sín vel undir körfunni.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS, var
klókur er hann breytti úr maður á
mann vörn í 2:3 svæðisvörn í öðrum
leikhluta og eftir þá breytingu náðu
leikmenn Grindavíkur ekki að njóta
sín eins og í upphafi leiksins.
Allt kapp var lagt á að stöðva Hildi
og Watson og þegar sú bandaríska
fékk boltann í vítateignum voru
ávallt 2–3 leikmenn mættir til þess
að stöðva hana. Watson gerði sitt
besta til þess að brjótast í gegnum
vörnina en fékk of litla aðstoð frá fé-
lögum sínum.
Lélegt skotval og of hægur leikur
varð Grindavík að falli.
ÍS sló vopnin
úr höndum
Grindavíkur
STÚDÍNUR fögnuðu bikarmeistaratitlinum í körfuknattleik kvenna í
sjöunda sinn á laugardaginn í Laugardalshöllinni eftir 88:73 sigur
liðsins gegn Grindavík. Annað árið í röð tapaði Grindavík í úrslitum
bikarkeppninnar og má segja að reynsluleysi Grindvíkinga hafi orð-
ið liðinu að falli en ÍS hafði á að skipa leikmönnum sem höfðu upp-
lifað marga slíka úrslitaleiki og gátu höndlað spennuna með réttum
hætti en þar bar mest á Signý Hermannsdóttur og Maria Conlon.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
Stella Rún Kristjánsdóttir og Signý Hermannsdóttir fögnuðu bikarmeistaratitli ÍS með
hefðbundnum hætti er Stúdínur fóru með bikarinn einn sigurhring í Laugardalshöllinni.
HELGI Jónas Guðfinnsson er sá
eini úr bikarmeistaraliði Grindavík-
ur sem var í liðinu árið 1995 er
Grindavík varð bikarmeistari í
fyrsta sinn. Grindavík lagði þá
Njarðvík í úrslitum, 105:93. Helgi
skoraði 11 stig í leiknum en Guðjón
Skúlason og Frank Booker voru
stigahæstu leikmenn Grindavíkur í
þeim leik.
HELGI Jónas skoraði 19 stig í úr-
slitaleiknum árið 1998 er Grindavík
lagði KFÍ frá Ísafirði með 95 stigum
gegn 71. Pétur Guðmundsson og
Guðlaugur Eyjólfsson voru þá einn-
ig í liði Grindavíkur eins og á laug-
ardaginn er þeir lögðu Keflavík að
velli. Guðlaugur skoraði 6 stig í þeim
leik og Pétur 2 stig. Sá leikur fór í
metabækurnar því sjaldan hafa verið
eins margir áhorfendur á úrslitaleik
í bikarkeppninni enda var Laugar-
dalshöllin þéttsetin og uppselt var á
leikinn.
GRINDAVÍK og KR skoruðu að-
eins 114 samtals í úrslitaleiknum
hinn 5. febrúar árið 2000 en þar skor-
uðu Grindvíkingar 59 stig gegn 55
stigum KR-inga. Helgi Jónas var þá
ekki með Grindavík en hann lék þá
sem atvinnumaður í Hollandi en Pét-
ur og Guðlaugur voru einnig með í
þeim sigurleik. Pétur skoraði 13 stig
og Guðlaugur 10 stig en Brenton
Birmingham leikmaður Njarðvíkur
lék þá með Grindavík og var stiga-
hæstur með 23 stig.
STELLA Kristjánsdóttir úr ÍS er
sú eina sem var í liðinu árið 2003 sem
sigraði Keflavík í bikarúrslitaleikn-
um en Stella skorað þá 9 stig í 53:51
sigri liðsins. Staðan í upphafi fjórða
leikhluta var 43:27 fyrir Keflavík en
ÍS fékk aðeins á sig 5 stig í síðasta
leikhlutanum og skoraði 21 stig og
tryggði sér framlengingu þar sem að
staðan var jöfn, 48:48.
ARNAR Freyr Jónsson, leikmað-
ur Keflavíkur, gaf sig allan í leikinn
gegn Grindavík en hann endaði uppi
á ritaraborðinu í fyrri hálfleik eftir
að hafa stokkið út af vellinum til þess
að ná knettinum. Arnar „mokaði“
knettinum aftur fyrir sig og á sam-
herja en hann endaði með miklum
látum á borðinu en slasaði sig ekki –
en litlu mátti muna að svo færi.
JEREMIAH Johnson, leikmaður
Grindavíkur, hélt upp á 29 ára af-
mæli sitt á laugardaginn með sigri í
bikarkeppninni en bakvörðurinn var
atkvæðamikill í leiknum – að venju.
GUÐJÓN Skúlason var ekki í leik-
mannahóp Keflavíkur en tók þátt
sem aðstoðarþjálfari liðsins.
FÓLK
HILDUR Sigurðardóttir, leikmaður
Grindavíkur, var allt annað en
ánægð eftir ósigurinn gegn ÍS enda
annað árið í röð sem Grindavík tap-
ar í bikarúrslitum. „Ég var ekki
með Grindavík í fyrra en samt sem
áður þá er þetta súrt. Ég hélt að við
myndum hafa þetta. En það virtist
sem að það sem við ætluðum að
gera hafi verið helsti styrkur ÍS
þegar upp var staðið. Við ætluðum
að halda hraðanum uppi en það var
ÍS sem hélt hraðanum uppi og þær
keyrðu á okkur og skoruðu úr
hraðaupphlaupum. Þær náðu einn-
ig að gæta Watson vel og á meðan
gerðum við ekkert af okkur í sókn-
inni. Stundum voru 2–3 leikmenn að
gæta Watson en samt sem áður var
engin ógn frá okkur hinum.
Kannski að um reynsluleysi hafi
verið að ræða, í liði ÍS eru margir
leikmenn sem hafa farið í gegnum
svona leiki, á meðan það eru fleiri
ungar stelpur í okkar liði. En það
þýðir ekki að vera að spá í slíka
hluti núna – við töpuðum,“ sagði
Hildur.
„Þetta var
mjög súrt“
betra líkamlegu ásigkomulagi værum við
enn sterkari. Hann fór á kostum í þess-
um leik og er gríðarlega mikilvægur fyr-
ir hópinn. Það er aldrei leiðinlegt að
vinna bikarúrslitaleik og það skiptir þá
engu máli hverjir mótherjarnir eru.“
Sé ekki eftir neinu
Það vakti mikla athygli á sínum tíma
er Helgi Jónas fór að leika með knatt-
spyrnuliði Grindavíkur í efstu deild og
afþakkaði hann að leika með íslenska
landsliðinu í körfuknattleik – og einbeitti
sér að knattspyrnunni í staðinn. Í kjöl-
farið átti Helgi Jónas við bakmeiðsli að
stríða sem hafa fylgt honum allar götur
síðan og sett mark sitt á feril hans. En
leikmaðurinn sér alls ekki eftir því að
hafa valið knattspyrnuna fram yfir
körfuknattleikinn á þessum tíma. „Þetta
var eitthvað sem mig langaði að prófa og
ég fann að ég varð að láta á það reyna.
Það er betra að sjá eftir því sem maður
hefur gert en því sem maður gerði ekki.
Ég sé hinsvegar ekki eftir neinu og er
sáttur við það sem ég er að gera. Í dag
líður mér vel á vellinum og það er breyt-
ing frá því sem var fyrir nokkrum árum
en þá fann ég að ég var að leika fyrir aðra
en ekki sjálfan mig. Ég var hættur að
hafa gaman af því að spila körfubolta. En
þessi sigur fyllir mig góðri tilfinningu og
ég get alveg hugsað mér að enda tímabil-
ið með sama hætti – með sigri á Íslands-
mótinu,“ sagði Helgi Jónas Guðfinnsson.
s í
að
að
að
m
ar
ð-
n
n
í
uðfinnsson, leikmaður
að leika í vor
sti
ikur“
MARIA Conlon, bandarískur
leikmaður í liði ÍS, hefur ekki
verið nema í nokkrar vikur hér
á Íslandi en hún lék sinn fyrsta
leik með liðinu gegn Grindavík
hinn 18. janúar sl. og skoraði
aðeins 1 stig í þeirri viðureign.
Conlon sýndi hins vegar hversu
megnug hún er á laugardaginn
í úrslitaleiknum gegn Grinda-
vík þar sem hún gaf 14 stoð-
sendingar og skoraði 25 stig.
„Þetta er ekki slæm byrjun að
fagna titli eftir aðeins nokkrar
vikur hér á landi. Ég gerði
þetta ekki ein og það lögðu all-
ir sitt af mörkum.“ Conlon
þekkir fátt annað en að sigra
en hún var í hinu sigursæla
Connecticut háskólaliði sem
sigraði í þriðja sinn í röð í
NCAA-háskólakeppninni sl.
vor. „Jú, ég þekki þessa tilfinn-
ingu vel enda snúast íþróttir
um að fagna titlum og ef allir
leggja sig fram og gera það
sem þeim er ætlað þá ganga
hlutirnir upp. Þjálfarinn sagði
mér að horfa á körfuna en ekki
alltaf á aðra leikmenn í kring-
um mig. Smátt og smátt fékk
ég meira sjálfstraust og við
náðum yfirhöndinni sem við
létum ekki frá okkur.“
„Vön því
að sigra“
„STELPURNAR eru einfald-
lega komnar í gott form og
geta nú hlaupið eins og hin
liðin,“ sagði Ívar Ásgríms-
son, þjálfari ÍS, í leikslok en
hann var einnig þjálfari liðs-
ins árið 2003 er liðið sigraði
síðast í bikarnum. Hann seg-
ir að allt annað yfirbragð sé
á leik liðsins eftir að Maria
Conlon kom um miðjan jan-
úar. „Við skoruðum um 90
stig í síðustu tveimur leikj-
um en áður skoruðum við
um 70 stig á góðum degi.
Conlon er með ótrúlegan
leikskilning og býr til færi
sem við fengum ekki í upp-
hafi leiktíðar.“ Þjálfarinn
bætti því við að skynsemi
hafi einkennt leik liðsins.
„Signý Hermannsdóttir var
ótrúlega í þessum leik og
naut þess að leika í úrslita-
leik sem þessum. Við ætl-
uðum líka að byrja á því að
leika maður á mann í vörn-
inni og breyta síðan í svæð-
isvörn. Það gekk allt saman
upp. Grindavík var alltaf að
leita að Watson og þær tóku
síðan léleg skot í kjölfarið
þegar þær komu boltanum
ekki á hana undir körfunni.
Við ætlum okkur að blanda
okkur í meistarabaráttuna.
Bikarkeppnin er vissulega
okkar mót en við höfum hug
á því að leggja allt undir til
þess að ná Íslandsmeist-
aratitlinum í vor – við erum
með lið sem getur gert það,“
sagði Ívar.
„Signý var
ótrúleg“
OKKUR tókst að gera það sem við
lögðum upp með og slæmi kaflinn
sem hefur einkennt okkar leiki í
vetur kom ekki að þessu sinni,“
sagði fyrirliði ÍS, Signý Her-
mannsdóttir, en hún skoraði 23 stig
í leiknum gegn Grindavík og tók
þar að auki 20 fráköst. Það var ekki
laust við að Signý ljómaði enn
meira en aðrir leikmenn ÍS í sig-
urvímunni eftir úrslitaleikinn enda
ekki vön því að upplifa slíkar stund-
ir. „Ég hafði aldrei unnið neitt og
þetta er fyrsti titillinn sem ég tek
þátt í að landa. Þetta er því stór
stund fyrir mig og allt liðið að sjálf-
sögðu.“
Signý lék með ÍS áður en hún fór
til Bandaríkjanna í nám þar sem
hún dvaldi í fjögur ár en hún lék
einnig sem atvinnumaður á Spáni
um tíma áður en hún sneri til Ís-
lands á ný fyrir tveimur árum síð-
an. „Það var kominn tími á þetta
hjá okkur. Ég get ekki annað en
verið ánægð með Mariu Conlon en
hún smellur í okkar hóp eins og hún
hafi alltaf verið með okkur. Hún
stjórnar leiknum eins og herforingi
og við njótum góðs af hennar hæfi-
leikum. Hún er líka mjög spennandi
einstaklingur sem gefur mikið af
sér og það er mikill fengur fyrir ÍS
að hafa þessa stelpu í okkar röð-
um.“
Signý sagði „pass“ þegar hún var
innt eftir því hvort hún fyndi fyrir
því að ÍS væri lið sem mörgum
fyndist lítið til koma þar sem félag-
ið er með enga yngri flokka og fær
góðan fjárhagslegan stuðning frá
háskólasamfélaginu. „Ég held ég
láti það eiga sig að tjá mig um þá
hluti,“ sagði Signý og rauk inn í
búningsklefa ÍS þar sem fögnuður-
inn var gríðarlegur.
„Hafði aldrei unnið neitt“