Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 1
Barnvænt
samfélag
Adam Baker er Breti sem býr hér með
fjölskyldu og kann vel við sig | Daglegt líf
Úr verinu og Íþróttir
Úr verinu | Fáum hæsta meðalverðið í Bretlandi
Íslenski humarinn löngum talinn sá besti
Íþróttir | Jákvætt gagnvart Eiði Heimir Örn til Danmerkur
Fasteignasalan Miðborg
auglýsir í blaðinu í dag
FERÐASKRIFSTOFAN Perseus
Tours í Moskvu selur ekki aðeins
ferðir vítt og breitt um heim, heldur
líka ferðir, sem aldrei eru farnar.
Þær síðarnefndu kaupa þeir, sem
vilja vinna sig í álit og sýnast stönd-
ugri en þeir eru.
Fyrir góða ferðasögu greiða
menn aðeins tíunda hlutann af því,
sem raunveruleg ferð kostar, en
eigandi ferðaskrifstofunnar, Dímítri
Popov, sér um að útvega falska far-
miða og brottfararspjöld og minja-
gripi frá viðkomandi landi. Þá er
líka hægt að fá af sér mynd á Kína-
múrnum eða á karnivali í Ríó og
raunar næstum hvar sem er, að því
er sagði í breska dagblaðinu The
Times. Vegna þess hve Popov hefur
góð sambönd sums staðar í útland-
inu er stundum hægt að fá réttan
stimpil í vegabréfið.
Popov segist selja um 20 „ferða-
sögur“ á mánuði og þá til fólks, sem
vill láta vini og kunningja halda, að
það eigi nú eitthvað í handraðanum.
„Við seljum sýndarferðir,
drauma, og þar með virðingu. Það
vekur athygli þegar fólk segist ný-
komið frá Brasilíu eða Kína og allt í
einu er það orðið áhugaverðara en
áður,“ segir Popov en hann útvegar
fólki líka bæklinga með lýsingum á
„áfangastaðnum“, hótelum, veit-
ingastöðum og því merkilegasta á
hverjum stað. Síðan er það „ferða-
langanna“ að lesa sér til en þeim er
ráðlagt að láta lítið fyrir sér fara
meðan á „ferðinni“ stendur.
Sýndarferðir seljast vel
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP. | Um 5,6
milljónir barna deyja ár hvert vegna van-
næringar og því fer fjarri, að það þúsald-
armarkmið Sameinuðu þjóðanna að hafa
minnkað hungrið í heiminum um helming
árið 2015, muni nást. Kemur þetta fram í
nýrri skýrslu frá Barnahjálparsjóði SÞ.
Í skýrslunni segir, að líkamsþyngd eins
af hverjum fjórum börnum undir fimm
ára aldri sé of lítil en skilgreining á van-
næringu er sú, að þar fari saman hungur
og endurteknar sýkingar. Vegna þess
þrífast börnin illa, eru of létt og ná ekki
eðlilegri hæð.
Verst er ástandið að þessu leyti í Suð-
ur-Asíu þar sem 46% barna eru vannærð.
Á Indlandi, Bangladesh og í Pakistan býr
helmingur allra vannærðra barna.
„Börn á þessu svæði búa næstum við
stöðugt neyðarástand,“ sagði Ann Venem-
an, framkvæmdastjóri hjálparsjóðsins.
Ekki höfð á brjósti
Í þróunarríkjunum er aðeins eitt af
hverjum þremur börnum haft á brjósti
fyrstu sex mánuðina en það sviptir þau
nauðsynlegum næringarefnum, sem eru
mikilvæg fyrir ónæmiskerfið og vernda
þau fyrir sjúkdómum í öndunarfærum.
Kína er kraftaverkið, að því er segir í
skýrslunni. Þar hefur vannærðum börn-
um fækkað um helming en í Mið-Aust-
urlöndum og í Norður-Afríku hefur nær-
ingarskortur beinlínis aukist frá 1990.
Börnin
deyja úr
hungri
London. AFP. | Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í gær, að
lífið væri „einstaklega erfitt“ en ýmis
hneykslismál
skekja Verka-
mannaflokkinn
og búist er við
slæmri útkomu
hans í sveitar-
stjórnarkosning-
unum á morgun.
Blair lét þessi
orð falla er hann
fagnaði því, að
Verkamannaflokkurinn hefur verið
við stjórnvölinn í Bretlandi í níu ár
en innan flokksins er lagt hart að
honum að ákveða hvenær hann ætli
að standa upp fyrir Gordon Brown
fjármálaráðherra. Kröfur um að
Charles Clarke innanríkisráðherra
segi af sér harðna enn en í ljós hefur
komið, að meira en 1.000 erlendum
afbrotamönnum var sleppt úr fang-
elsi án þess að vera sendir til síns
heima. Aftur á móti er búist við, að
John Prescott aðstoðarforsætisráð-
herra sleppi fyrir horn þótt hann hafi
játað á sig framhjáhald.
Á morgun verður kosið í 4.360
sveitarstjórnum af 19.500 og er því
spáð, að Verkamannaflokkurinn tapi
allt að 200 mönnum.
„Erfitt líf“
segir Blair
Tony Blair
GLEÐI og eftirvænting ríkti þegar ný heimasíða
Spes-samtakanna, www.spes.is, var opnuð formlega
í gær, en samtökin vinna að því að byggja upp
barnaþorp í Afríkuríkinu Tógó fyrir foreldralaus
börn. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, fékk
það hlutverk að opna vefinn á leikskólanum Granda-
borg þar sem einnig voru mættir Össur Skarphéð-
insson, formaður Spes-samtakanna, og Njörður P.
Njarðvík, brautryðjandinn. Össur segir starfið
ganga ákaflega vel og búið að byggja þrjú hús af
átta. „Það eru komin 50 börn og við stefnum að því
að ljúka fjórða húsinu á þessu ári.“ | 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glatt á hjalla í Grandaborg
KONUR sem þyngjast milli fyrstu
og annarrar meðgöngu eru í meira
en tvöfaldri hættu á háþrýstingi á
síðari meðgöngunni, hafi þær haft
háþrýsting á fyrri meðgöngunni.
Konur sem hafa þyngdarstuðulinn
(BMI) 25 eða meira og höfðu há-
þrýsting á fyrstu meðgöngu, eru
82% líklegri til að fá einnig háþrýst-
ing á þeirri seinni, miðað við konur
sem hafa þyngdarstuðul undir 25.
Þetta er m.a. niðurstaða rannsókn-
ar Sigrúnar Hjartardóttur, kven-
sjúkdóma- og fæðingarlæknis o.fl.,
en grein um rannsóknina er birt í
aprílhefti tímaritsins American
Journal of Obstetrics and Gynecol-
ogy. Rannsóknin náði til 896
þrýsting, miðað við konu sem ekki
hefur þyngst milli meðgangna. Sig-
rún segir niðurstöðu rannsóknar-
innar geta nýst við ráðgjöf til
barnshafandi kvenna. Ljóst sé að
slæmt sé fyrir konur sem hafi feng-
ið meðgönguháþrýsting að þyngj-
ast milli meðgangna. „Við höfum
vitað það að það er aukin áhætta hjá
konum sem hafa háþrýsting á
fyrstu meðgöngu að fá hann aftur,“
segir Sigrún. „En við gátum samt
ekki alveg sagt til um hversu mikil
áhættan væri og hvað það væri sem
hefði áhrif á áhættuna. Þetta hjálp-
ar okkur að skilja þetta flókna fyr-
irbæri sem háþrýstingur er og
einnig styður þetta okkur læknana í
því að gefa þau ráð að konur eigi að
hugsa um þyngdina því yfirþyngd
er áhættuþáttur fyrir svo margt.“
sjá sem myndu auka hættu á há-
þrýstingi.“
Og sú varð raunin. Ef konur sem
voru með háþrýsting á fyrstu með-
göngu voru of þungar í upphafi
meðgöngunnar þá eru þær í aukinni
hættu á að fá meðgönguháþrýsting
aftur í annarri meðgöngu, miðað við
konur í eðlilegri þyngd. Sem sagt,
fái tvær konur háþrýsting á með-
göngu, önnur í yfirþyngd en hin í
eðlilegri þyngd, er sú sem er of
þung í um tvöfalt meiri hættu en hin
á að fá háþrýsting á annarri með-
göngu.
Þá sýnir rannsóknin einnig fram
á að ef kona þyngist á milli með-
gangna sem nemur a.m.k. 2 eining-
um á BMI kvarðanum (ca. sex kíló
eða meira) er hún í meira en tvö-
faldri hættu á að fá endurtekinn há-
kvenna sem
eignuðust börn á
Landspítalanum
1984-1999.
„Það eru
þekktir ákveðnir
áhættuþættir
varðandi há-
þrýsting hjá
konum við fyrstu
meðgöngu, með-
al annars of-
þyngd, fjölskyldusaga og einhverj-
ar erfðir,“ segir Sigrún við
Morgunblaðið. „En það sem við
vorum að gera í þessari rannsókn
var að skoða konur sem höfðu feng-
ið háþrýsting á sinni fyrstu með-
göngu og hvað gerðist hjá þeim á
annarri meðgöngunni. Hvort ein-
hverja áhættuþætti væri hægt að
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Sigrún
Hjartardóttir
Að þyngjast eykur hættu
á háþrýstingi á meðgöngu
París. AP, AFP. | Engin eiginleg niðurstaða
fékkst á fundi fastafulltrúa í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna um Íransdeiluna í
París í gær. Verður málið rætt áfram á
fundi utanríkisráðherra landanna í New
York á mánudag.
Fundinn sátu fulltrúar ríkjanna, sem
eiga fast sæti í öryggisráðinu, Bandaríkj-
anna, Bretlands, Frakklands, Kína og
Rússlands auk Þýskalands, og virtist
Nicholas Burns, fulltrúi Bandaríkjanna,
vera bjartsýnn á það fyrir fundinn, að sam-
þykkt yrði ályktun, sem greitt gæti götuna
fyrir refsiaðgerðum gegn Íransstjórn. Af
því varð ekki en samstaða var um, að kjarn-
orkuáætlun Írana „færi í bága við kröfur
alþjóðasamfélagsins“. Var samþykkt að
halda viðræðum áfram í New York .
Íransdeilan
rædd áfram
♦♦♦
STOFNAÐ 1913 119. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is