Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF www.reykjanesbaer.is . . .og aukin lífsgæði. Verið velkomin! GLITNIR hefur selt 33,4% hlut sinn í tryggingafélaginu Sjóvá fyrir 9,5 milljarða króna. Kaupandi er Mile- stone ehf., sem er í eigu Karls Wern- erssonar og fjölskyldu. Milestone hefur eftir þessi viðskipti eignast Sjóvá að fullu því félagið átti fyrir 66,6% hlut í Sjóvá. Í tilkynningu frá Glitni segir að bankinn hafi selt hlut sinn í Sjóvá eftir að hafa borist tilboð í hann. Markaðsvirði Sjóvár í heild, miðað við þessi viðskipti, er 28,5 milljarðar króna. Með sölunni innleysir Glitnir rúmlega 2,4 milljarða króna sölu- hagnað á yfirstandandi ársfjórðungi. Kaupverðið er greitt með peningum og fer frágangur viðskiptanna fram hinn 19. maí næstkomandi, að því er segir í tilkynningu Glitnis. Samhliða þessum viðskiptum kaupir Glitnir hlut Milestone í fjár- festingarfélaginu Mætti hf. Það félag er í jafnri eigu Glitnis og Sjóvár eftir þessi viðskipti. Í tilkynningunni segir að stefnt sé að því að fá aðra fjárfesta til liðs við félagið, sem var stofnað í janúarmánuði á þessu ári. Eigið fé þess við stofnun var um 11,3 millj- arðar króna og átti Milestone þá 15,9% hlut, Sjóvá 49,7% og Íslands- banki, forveri Glitnis, 34,4%. Glitnir og Sjóvá munu áfram starfa náið saman á sviði banka- og trygg- ingaþjónustu og efla á samstarfið, m.a. í útibúum víða um land. Einbeitir sér að bankastarfsemi Haft er eftir Bjarna Ármannsyni, forstjóra Glitnis, í tilkynningu félags- ins, að salan á hlutnum í Sjóvá sé í samræmi við stefnu bankans að ein- beita sér að bankastarfsemi. „Sam- starfið við Sjóvá hefur verið afar far- sælt og fjárfesting bankans í félaginu reynst mjög hagstæð. Við munum áfram tryggja viðskiptavinum beggja félaga bestu mögulegu þjónustu með víðtækum þjónustusamningi með sambærilegum hætti og verið hefur og sameiginlegt vöruframboð félag- anna tveggja verður aukið enn frek- ar. Þá munu félögin áfram eiga sam- starf um fjárfestingar í gegnum fjárfestingarfélagið Mátt og munu fleiri fjárfestar koma að því félagi,“ segir Bjarni. Eðlilegt framhald Karl Wernersson, stjórnarformað- ur Milestone og Sjóvár, segir að kaupin nú séu eðlilegt framhald af kaupum Milestone á tveimur þriðju hluta í Sjóvá fyrir um einu ári. „Við teljum mikil tækifæri felast í Sjóvá,“ segir Karl. „Sjóvá mun einbeitar sér að því að bæta þjónustu við stóran hóp viðskiptavina félagsins hérlendis og vera í fararbroddi í hagkvæmni og nýjungum. Opnun Forvarnahúss í júnímánuði og áhugi félagsins á því að taka forystu í uppbyggingu um- ferðarmannvirkja eru dæmi um verk- efni sem Sjóvá hefur kynnt á síðustu mánuðum og eru vitnisburður um nýjar áherslur félagsins.“ Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, segist telja að bæði félögin eflist við þessar breytingar. „Við höfum mikla trú á að í nánara samstarfi félaganna felist mörg tækifæri sem eru hagfelld okkar viðskiptavinum. Þess vegna mun starfsfólk beggja félaga leggja sig fram um að auka samstarfið og efla,“ segir Þór. Hagnaður og arður yfir 11 milljarðar Íslandsbanki, forveri Glitnis, keypti 33% hlut í Sjóvá í september 2003 fyrir um 6,5 milljarða króna, en helstu seljendur voru bræðurnir Ein- ar og Benedikt Sveinssynir og fjöl- skyldur þeirra. Þá var greint frá því að bankinn hefði hug á að eignast fé- lagið að fullu. Innan við mánuði síðar sendi Íslandsbanki frá sér yfirtöku- tilboð til hluthafa í Sjóvá. Í nóvem- bermánuði hafði bankinn svo eignast liðlega 99% af hlutafé trygginga- félagsins og hafði þá greitt samtals um 19,4 milljarða króna fyrir félagið. Það var svo í apríl á síðasta ári að Ís- landsbanki seldi Milestone 66,6% hlut í Sjóvá fyrir 17,5 milljarða króna. Þá hafði Sjóvá greitt Íslandsbanka um 3,5 milljarða króna í arð frá því bankinn eignaðist tryggingafélagið. Samanlagður söluhagnaður og arð- greiðslur Glitnis af Sjóvá, frá því bankinn eignaðist félagið haustið 2003 til þessa dags, nemur liðlega 11 milljörðum króna. Sjóvá að fullu í eigu Milestone Glitnir selur þriðj- ungshlut sinn fyrir 9,5 milljarða króna Morgunblaðið/ÞÖK Allt hlutaféð Milestone keypti 66,6% hlut í Sjóvá af Íslandsbanka, forvera Glitnis, í apríl á síðasta ári og hefur nú keypt afganginn. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson HREIN eign heimilanna í landinu er rúmir 2.900 milljarðar króna. Þetta eru um 290% af vergri landsframleiðslu Íslands og hefur hrein eign landsmanna aldrei verið hærra hlutfall af lands- framleiðslu en nú. Þetta þýðir að hrein eign hvers Íslendings er að meðaltali um 10 milljónir króna. Þetta er mat greiningardeildar Kaupþings banka. Hrein eign eru heildareignir að frádregnum heildarskuldum. „Það er deginum ljósara að skuldir íslenskra heimila hafa vaxið mjög hratt á undanförnum árum sem hefur verið tíðrætt í fjöl- miðlum á síðustu misserum. Skuldir heimila við lánakerfið í lok árs 2005 námu um 1.082 millj- örðum króna og hafa vaxið um 76% frá því árið 2000. Hins vegar gleymist oft í umræðunni að skoða þróun skulda í samhengi við þróun eigna,“ segir í Hálf fimm fréttum. Ekki eru til nákvæmar tölur um heildareignir íslenskra heimila en grein- ingardeild hefur tekið saman gróft mat. Helstu eignaflokkar heimila eru fasteignir, lífeyr- iseignir, ökutæki, hlutabréf og skuldabréf. Sam- kvæmt Fasteignamati ríkisins var fasteignamat íbúðarhúsnæðis við lok síðasta árs í heild um 2.033 milljarðar. Á sama tíma var lífeyriseign landsmanna samkvæmt tölum frá Seðlabanka Ís- lands um 1.180 milljarðar. Ríkisskattstjóri birtir tölur um aðrar eignir einstaklinga samkvæmt skattframtölum. Árið 2004 námu aðrar eignir heimila um 564 milljörðum króna en þar er tekið saman virði ökutækja, inneignir í bönkum, hluta- bréfaeignir og fleira. Ljóst er að í fyrra óx bílaeign landsmanna gíf- urlega og voru nýskráðir um 25.000 nýir bílar. Einnig var talsvert um hlutabréfakaup og má því gera ráð fyrir að virði annarra eigna hafi verið talsvert hærra í fyrra en árið 2004. Gróflega áætl- að gæti heildareign íslenskra heimila við lok árs 2005 hafa numið tæpum 4.000 milljörðum króna. Hér er þó líklega um vanmat að ræða þar sem fasteignamat gefur ekki raunverulega mynd af markaðsvirði eignar og virði hluta- og skulda- bréfa er skráð að nafnvirði í skattframtölum ein- staklinga. Samkvæmt útreikningum greiningardeild- arinnar er hrein eign íslenskra heimila um 500% af ráðstöfunartekjum þeirra. Segir deildin að hlutfallið sé svipað og í Bandaríkjunum og Evr- ópu þar sem hlutföllin eru á bilinu 500-700% af ráðstöfunartekjum. Heimilin eiga 2.900 milljarða króna ● JÓHANNA á Bergi hefur verið ráðin forstjóri flutningafyrirtækisins Faroe Ship frá og með 22. maí nk. Jóhanna tekur við af Árna Joensen sem fer á eftirlaun eftir tæplega 30 ára starf sem forstjóri fyrirtækisins, en verður stjórn- arformaður þess. Faroe Ship er dótturfélag Eim- skips og hefur undanfarið aukið verulega umsvif sín í Færeyjum með kaupum á landflutn- ingafyrirtækjunum Heri Thomsen og Farmaleiðum. Jóhanna á Bergi mun leiða sameiningu og samþættingu á starfsemi Eimskips í Færeyjum, með það að markmiði að auka og bæta núverandi þjónustu í flutningum og vörustjórnun, segir í tilkynningu frá Eimskip. Jóhanna á Bergi útskrifaðist frá Danish school of Export and Mark- eting árið 1994 og lauk mast- ersnámi í stjórnun frá Robert Gordon University í Skotlandi 2004. Jó- hanna er í dag sölu- og markaðs- stjóri hjá P/F JFK í Færeyjum og hef- ur áður starfað sem sölustjóri hjá P/F kósin Seafood og sölustjóri hjá Faroe Seafood í Frakklandi. Hún er stjórnarformaður verslunarskóla Færeyja auk þess að eiga sæti í stjórnun nokkurra færeyskra fyrir- tækja. Jóhanna á Bergi yfir Faroe Ship Jóhanna á Bergi ● SAMKVÆMT frétt Børsen frá í gær hefur Danske Bank gefið út skýrslu þar sem varað er við „timburmönn- um“ í dönsku efnahagslífi. Telur hann vissa hættu á að hagkerfið ofhitni ef hagvaxtarskeið síðustu ára haldi áfram. Hagvöxtur í Danmörku hefur að jafnaði verið um 3%. Að mati sérfræðinga Danske Bank var efnahagsvöxtur á síðasta hluta ársins 2005 ekki eins mikill og var spáð. Nýjustu tölur um atvinnuleysi hafi beint sjónum manna frá því hvað hagvöxturinn sé mikill og að því hve lengi hann geti varað. Danske Bank segir að þótt það hljómi þversagnarkennt kunni hækk- andi olíuverð og vextir að geta bjargað danska hagkerfinu frá efnahags- legum timburmönnum eftir margra ára gleðskap. Og lækki hagvöxtur á alþjóðavettvangi og í Danmörku lít- illega mun hættan á ofhitnun hverfa af sjálfu sér, segir í Børsen um skýrslu bankans. Danske Bank varar við „timburmönnum“ í Danmörku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.