Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Andri Snær Magnason af-hjúpar ýmsar rangfærslur íbók sinni Draumalandið: Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð sem kom út í mars og hefur vakið mikla athygli en sáralítil við- brögð. Virkjanasinnar hafa til dæm- is haldið því fram að með því að virkja fallvötn Íslands sé verið að bjarga orku- og umhverfisvanda heimsins. Íslendingum hefur því verið talin trú um að þeir séu að gera heiminum gott með því að fórna dýrmætum svæðum í náttúru landsins. Í bók Andra Snæs kemur fram að ef Íslendingar myndu virkja öll fallvötn sín, þar með taldar lax- veiðiár eins og Stóru-Laxá, Selá í Vopnafirði, Grímsá, Vatnsdalsá, Eystri-Rangá og Tungufljót, væri hægt að framleiða 28 svokallaðar terawattstundir af raforku á ári. Í heiminum öllum eru hins vegar til um það bil 8700 terawattstundir sem renna óbeislaðar í fallvötnum, þar á meðal 1000 í Norður-Ameríku þar sem álfyrirtækin hafa höf- uðstöðvar sínar, 700 í Evrópu, 900 í Afríku, 2500 í Suður-Ameríku og annað eins í Asíu. Í þessu alþjóðlega samhengi kemst Ísland ekki einu sinni á blað. Framlag Íslands er hverfandi lítið. En hvers vegna er til svo mikil óvirkjuð vatnsorka í heiminum? Jú, vegna þess að margar þjóðir heims hafa hafnað slíkum virkjunum af umhverfisástæðum!    Það er augljóst hvers vegnastjórnmálamenn og aðrir, sem hagsmuna eiga að gæta, halda þeirri dellu fram að við getum bjargað heiminum. En spurningin er þessi: Hvers vegna er svona auð- velt að ljúga þessu í okkur? Hvernig stendur á því að þessi rangfærsla og aðrar slíkar, sem haldið hefur verið fram í þessu mikilvæga máli, hafa ekki verið hraktar þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun? Vandamálið er þetta: Við búum yfir gríðarlegu magni upplýsinga en mjög lítilli vitneskju. Það er allt morandi í skoðunum en vissan um hvað er rétt og rangt er lítil. Fjölmiðlar hafa fjallað um virkj- anamálin í mörg ár, þeir hafa miðlað miklu magni upplýsinga um þau en þeir hafa ekki verið nægilega dug- legir og naskir við að draga fram aðalatriðin, greina þau og setja í samhengi. Fjölmiðlar hafa líka miðl- að fjölmörgum skoðunum um virkj- anamálin, eins og mörg önnur mál, en vegna þess hvað vitneskjan um þau hefur verið lítil í raun höfum við ekki getað vegið þær og metið. Fjölmiðlar miðla þannig mörgum skoðunum sem eru ekki vitneskja og þeir miðla miklum upplýsingum sem eru heldur ekki vitneskja. Við vitum ekki hlutinn fyrr en við höfum unnið eitthvert vit úr upplýsingunum. 28 terawattstundir á ári eru upplýs- ingar en ekki vitneskja, að minnsta kosti ekki í mínu tilfelli vegna þess að ég veit ekki hvað þessi tala þýðir ein og sér. Þegar ég vissi að það eru til 8700 terawattstundir óvirkjaðar í vatnsföllum heimsins þá áttaði ég mig á samhenginu og gat myndað mér skoðun: Nei, við eigum ekki að fórna náttúru Íslands. Íslenskir fjölmiðlar verða að fara að veita okkur vitneskju um hlutina en ekki bara upplýsingar og skoð- anir.    Það vekur athygli að Andri Snærskrifaði bók til þess að koma þessari og annarri vitneskju um virkjanamálin til skila. Hann skrif- aði ekki greinar í dagblað eða á Net- ið. Þetta gerði Andri Snær ef til vill ekki aðeins vegna þess að hann þurfti að selja þessi skrif sín, en þannig aflar hann sér lífsviðurværis, heldur einnig vegna þess að bókin er ennþá mjög góð leið til þess að setja fram upplýsingar og gagnrýni með skipulegum og markvissum hætti, raunar miklu betri leið en til dæmis dagblaðið eða útvarp og sjónvarp. Í bók er bæði meira rými og næði til þess að yfirvega hlutina, rökstyðja þá, leggjast yfir þá. Í bók er hægt að skapa heila heimsmynd, lýsa heilu hugmyndakerfi án þess að lesandinn ókyrrist eða útsendingarstjórinn hóti að skjóta inn auglýsingum. Vandinn er hins vegar sá að bókin á undir högg að sækja í fjölmiðla- flórunni þar sem auðveldari og frek- ari miðlar hljóta meiri athygli hjá al- menningi og ráðamönnum. Ein bók getur ekki lengur breytt heiminum en það er hægt að breyta heiminum með hjálp sjónvarpsins. Ógn- arverkin 11. september 2001 eru gott dæmi um það. Bókin getur hins vegar breytt einstaklingnum sem les hana. Sú breyting hefur hins vegar ekki endilega mikla þýðingu í kerfi sem framleiðir og miðlar skoðunum og upplýsingum á hverjum degi sem myndu nægja heilli þjóð í ellefu hundruð ár. Það er ekki víst að sú breyting skipti miklu máli í kerfi sem réttlætir ákvarðanir sínar með þessum upplýsingum og skoðunum. Það er ekki víst að sú breyting skipti miklu máli í kerfi sem tekur allar ákvarðanirnar sjálft. Rangfærslur afhjúpaðar ’Ein bók getur ekkilengur breytt heiminum en það er hægt að breyta heiminum með hjálp sjónvarpsins. Ógnar- verkin 11. september 2001 eru gott dæmi um það.‘ Morgunblaðið/Ómar throstur@mbl.is AF LISTUM Þröstur Helgason „Þegar ég vissi að það eru til 8.700 terawattstundir óvirkjaðar í vatns- föllum heimsins þá áttaði ég mig á samhenginu og gat myndað mér skoðun: Nei, við eigum ekki að fórna náttúru Íslands.“ Andri Snær kynnir bók sína, Draumalandið, í mars sl. í Borgarleikhúsinu. Á GÖNGUSTÍGNUM við Nauthóls- vík koma á móti mér tvö ungmenni á hjólaskautum; svo heil fjölskylda á hjólum, móðirin dregur á eftir sér nýstárlegan barnavagn og brosir til mín því það er gaman að vera til þetta hlýja bjarta vorkvöld í Reykja- vík við sjóinn og glaðvær lágstilltur hlátur vina og kunningja sem safnast hafa saman um leikhópinn frú Emilíu niður á ylströndinni fyrir utan tjaldið eftir frumsýninguna slær taktinn í því gamni. Kársnesið myndar svart- an ljósum skrýddan bakgrunn við einfalda tilvist sjávar, sands og fólks hérna megin og minnir á flókinn kaldan heim. Það var svalara þegar ég kom og smeygði mér inní leyndardómsfullt grænt tjaldið. En leikstjórinn Hafliði Arngrímsson býður upp á heitt þykkt súkkulaði sem yljar. Tjaldið er þröngt, langsum í öðrum helm- ingnum standa í sandinum þrír sól- bekkir, með náttborðum í millum, og borð eftirlitsmanns til hliðar, and- spænis í hinum helmingnum sitjum við áhorfendur í tveimur röðum. Lýsingin eðlileg og einföld, þrír nátt- borðslampar, hreyfanlegir og niður úr mænisásnum hanga í röð níu hvít venjuleg loftljós. Sýningin byrjar vel. Það næst strax að kalla fram þrúg- andi þrengsli elliheimila með þessari miklu nálægð; með nefið erum við áhorfendur ofaní lífi þriggja ókunnugra manneskja sem dæmdar eru til að þrauka saman fram í rauð- an dauðann: þar er gömul kona Hörpu Arnardóttur, svo kunnugleg, samþykkjandi allt með hlæjandi jái og sein í hreyfingum, næstum einsog sé hún þegar horfin; öllu ungæð- islegri er nokkuð meinfýsinn sjómað- ur leikinn af Ólafi Agli Egilssyni og vill burt, bara burt; og svo þvergirð- ingslegur öldungur Jóns Páls Eyj- ólfssonar sem reynir að halda reisn sinni með því að loka sig af og minnir á mývetnskan bónda. Með óvæntri heimsókn spastísks ungmennis (Björn Thors) er okkur síðan svipt inní einsemd dvalarheimila. Þannig næst í byrjun að skapa stemningu og eftirvæntingu hjá áhorfandanum, fá hann til að vilja kynnast þessu fólki nánar, heyra sögur þess, sjá hvernig tilraunir með samskipti þess þróast. En svo er einsog höfundur fari ann- aðhvort að missa áhugann á per- sónum gamla fólksins, ekki hafi gef- ist tími til að fullvinna þær eða að sú leið sem hann hafi valið sér: að skapa úr smælki, smáum sögum, persónur án fortíðar, með minningar úr nútím- anum og sem hoppa frá elli til æsku – gangi ekki upp í leikmátanum. Það kviknar ekki á persónunum nema af og til, þær kveikja ekki hver á ann- arri, „sitúasjónir“ hverfa inní alúð leikarans við sjálfan sig og stundum er einsog farið sé með texta sem orð- ið hafi til úr flatneskju spunans. Þetta er ekki alveg auðvelt að lesa og vissulega er erfitt fyrir ungmenni að túlka gamalmenni, en þegar Björn Thors og Laufey Elísdóttir birtast lifnar textinn. Björn Thors fer með þrjú hlutverk. Hann dregur fyrst upp mynd af spastískum manni, síð- ar af uppburðarlitlum fram- kvæmdastjóra sem mannar sig uppí að leika þriðja hlutverkið, miðil í út- varpsþætti til að bjarga ákveðnum málum. Allt verða það skýrar, ein- faldar áhugaverðar svipmyndir sem gefa til kynna að heilt líf, heilt æv- intýri leynist að baki og samleikur hans og Laufeyjar (og ísmeygilegur leikur við áhorfendur) er hlaðinn spennu og loforði um að koma stöð- ugt á óvart. Laufey kemur líka svo sannarlega á óvart, undir svip- brigðalausu barnslegu andliti henn- ar, sem er jafnslétt og fellt og hjúkr- unarkonubúningurinn, dylst ólíkindatól og í meðförum hennar njóta smásögur Jóns Atla, þessi abs- úrd augnablik úr lífi, sín fullkomlega. Það er alltaf gaman að láta svipta sér úr föstum formum hefða og venju, að fara til dæmis inní tjald og vera viðstödd tilraunir með texta, leik og tónlist bæði þær sem mis- heppnast og heppnast. En að gamn- inu slepptu þá er ráðist hér að stóru viðfangsefni jafnt í samhengi leik- hússögunnar sem flókinna vanda- mála samtímans og frá því þykir mér menn hafa viljað sleppa full auðveld- lega. Tilraunir í tjaldi Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jón Atli reisir sýningu sinni og Frú Emilíu skjól í Nauthólsvíkinni. Í gagnrýni segir m.a.; „með nefið erum við áhorfendur ofaní lífi þriggja ókunnugra manneskja sem dæmdar eru til að þrauka saman fram í rauðan dauðann“. María Kristjánsdóttir LEIKLIST Frú Emilía Eftir Jón Atla Jónasson. Tónlist: Ghost- igital: Curver Thoroddsen og Einar Örn Benediktsson. Leikstjóri : Hafliði Arn- grímsson. Búningar: Íris Eggertsdóttir. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Leik- arar: Björn Thors, Harpa Arnardóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Laufey Elísdóttir og Ólaf- ur Egill Egilsson. Reykjavík, í tjaldi, á yl- ströndinni í Nauthólsvík, 30. apríl 2006 kl. 20.30 Hundrað ára hús FLAGGSKIP íslenzkrar fagurtón- listar verður tæplega vænt um að sniðganga breiðan smekk almenn- ings í landinu, allra sízt ef skoðað er dagskrárefni hljómsveitarinnar á síð- ari árum. Fyrir utan háklassískt meginviðfang hennar, er ævinlega heldur stöðu sinni sem nauðsynleg viðmiðun í krafti óbliknandi fegurðar og gæða, að ógleymdri innlendri sem erlendri nútímatónsköpun, hefur m.a. verið höfðað til yngri kynslóðar með röð tónleika þar sem hrynbund- in dægurtónlist síðari ára hefur birzt í sinfónískum umbúðum. Það má kannski segja að sú röð hafi sl. fimmtudagskvöld verið færð fimmtíu ár aftur í tíma þegar komið var að sígrænum íslenzkum dæg- urlögum frá um miðja 20. öld undir yfirskriftinni Manstu gamla daga. Ekki minnir mig að svo hafi verið gert áður, þótt eiginlega hefði hug- myndin átt að liggja í augum uppi allt frá því er hlustendur kvörtuðu sem háværast undan „sinfóníugauli“ út- varpsins. Því líkt og Lúther þótti forðum ástæðulaust að „láta skratt- ann sitja einan að beztu lögunum“ hefði eflaust mátt sefa fyrri óánægju- raddir með svipuðu framtaki, hefðu verndarsjónarmið menningar- forkólfa gagnvart klassíkinni ekki staðið í vegi. Nú er öldin hins vegar önnur og frjálslyndari. Fremstu dægurperlur 5. og 6. áratugar hafa að auki staðizt tímans tönn og gengið í arf til söng- elskari hluta seinni kynslóða, eins og sjá mátti á blönduðum aldri fjöl- mennisins er troðfyllti Háskólabíó. Og lagavalið féll að þessu sinni ólíkt betur að umgjörðinni en laglínus- nauðari afurðir síðari ára, þar sem flest snýst orðið um hrynþung „grúv“. Í þeim efnum eru beztu dæg- urlög fyrri ára sambærileg við fjár- sjóð evrópskra þjóðlaga, er þegar á klassíska tímanum var tónskáldum óþrjótandi uppsprettulind. Enda er það ævinlega einn gleggsti mæli- kvarði á burðarþol laga hvað þau bjóða upp á ólíka útfærslu. Það kom víða fram í oftast liprum útsetningum hins hagvana innanbúð- armanns Hrafnkels Orra Egilssonar. Þó að undirritaður hefði í sumum til- vikum kosið pólýfónískari fyllingu en heyra mátti í t.a.m. Dagnýju Sigfúsar Halldórssonar var flest dável úr garði gert, jafnvel þótt í einstaka til- viki mætti greina breytta hljóma- notkun frá frumgerð er ekki var ein- hlítt til bóta. Á hinn bóginn örlaði talsvert á frumlegri endursköpun í Litla tónlistarmanninum, tangó Freymóðs, og seiðandi vetrarkyrrðin í tvísungna lokalaginu Gling gló (Al- freð Clausen) manaði nærri því fram töfrasenur úr Hnotubrjót Tsjæk- ovskíjs. En hvað sem því öllu líður var frammistaða hinna vinsælu ungu söngkvenna sjálfsagt áheyrendum efst í huga. Ást þeirra Ragnheiðar og alúð gagnvart gömlu lögunum var næsta smitandi, og ekki annað hægt að segja en að sú gæðavitund sé lag- firrtum ungmennum augnabliksins meinholl fyrirmynd. Meðal hápunkta Eivarar má nefna Frostrósir og Sveitina milli sanda (þótt bryti þar í tvígang lagrím höfundar með sjöund- arstökki í stað sexundar). Ragnheið- ur hefði stundum mátt syngja meira út, einkum við þykkari útsetningar eins og þjóskvetturúmbuna Kata rokkar, en tókst víða mjög vel upp; kannski bezt í svífandi túlkun sinni á Litla tónlistarmanninum. Kankvís tvísöngur þeirra Eivarar í Gling gló skildi salinn eftir á suðupunkti. Stjórnandinn Benjamin Pope var augljóslega réttur maður á réttum stað, og elskulegar kynningar Ragn- heiðar Ástu Pétursdóttur náðu hár- réttu samvægi fróðleiks, þáþráar og kímni. Það væri því synd að segja annað en að tónleikarnir hafi hitt beint í mark. Og kæmi örugglega fáum á óvart ef SÍ tekur þennan vænlega þráð upp aftur. Enn er af nógu að taka. Manstu gamla daga Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Háskólabíó Íslenzkar dægurperlur eftir Alfreð Clau- sen, Sigfús Halldórsson, Freymóð Jó- hannsson, Jón M. Kjerulf, Magnús Blön- dal Jóhannsson, Friðrik Jónsson, Theodór Einarsson og Jón Múla Árnason í útsetn- ingum Hrafnkels Orra Egilssonar. Ein- söngvarar: Eivør Pálsdóttir og Ragnheið- ur Gröndal. Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Benjamins Pope. Kynnir: Ragnheiður Ásta Pétursdóttir. Fimmtudaginn 27. apríl kl. 19:30. Sinfóníutónleikar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.