Morgunblaðið - 03.05.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Buxnadragtir úr hör
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Full búð af nýjum
vörum frá
og
Str. 38-56
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sólvallagata - Parhús
Mjög vel staðsett 248,8 fm parhús
með aukaíbúð í kjallara á eftirsótt-
um stað. Á 1. hæð eru þrjú her-
bergi, eldhús og baðherbergi. Á 2.
hæð eru tvær samliggjandi stofur,
baðherbergi, eldhús og tvö her-
bergi. Í risi eru tvö herbergi og bað-
herbergi auk geymslna undir súð-
inni. Í kjallara er þvottahús, geymsla
auk 2ja herbergja íbúðar sem skipt-
ist í eldhús, stofu, svefnherbergi og
baðherbergi. Góður garður er til
suðurs. Á suðurhliðinni eru tvennar svalir, annars vegar á 1. hæð og hins
vegar á 2. hæð. Óskað er eftir tilboðum í eignina. 5695
STANGAVEIÐI
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns er hafin.
Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs-
björgu, unglingar (innan 16 ára ald-
urs) og ellilífeyrisþegar úr Reykja-
vík og Kópavogi fengið afhent
veiðileyfi án greiðslu.
Vopnafjörður | Þann 30. apríl sl. lauk
43 ára sögu mjólkuriðnaðar á
Vopnafirði. Það var í október 1963
sem hún hófst með því að Gunnar
Sigmarsson ræsti vélar mjólk-
urstöðvarinnar og því lauk nú eins
og það byrjaði þegar Gunnar
slökkti á vélunum í síðasta skiptið.
Mjólkursamlag var stofnað á
Vopnafirði í október 1963 undir
merki Kaupfélags Vopnafjarðar og
rekið þannig til 30. september 1989,
eða í 26 ár. Í október sama ár var
stofnað hlutafélag um samlagið og
hét það Mjólkursamlag Vopna-
fjarðar H/F til 30. ágúst 2005. 1.
september 2005 keypti Mjólkurbú
Flóamanna samlagið sem nú leggst
af 30. apríl 2006. Við þetta missa
fjórir vinnuna sem er bagalegt fyrir
ekki stærra samfélag. Mjólk frá
Vopnafirði fer til vinnslu hjá MS á
Egilsstöðum þar sem öll neyslu-
mjólk fjórðungsins er unnin.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Jón Þ. Guðmundsson og Gunnar Sigmarsson slökkva á Mjólkurstöðinni.
Síðasti mjólkurdropinn
ÁNÆGJA með störf flestra ráð-
herra ríkisstjórnarinnar hefur
minnkað, að því er fram kemur í nýj-
um þjóðarpúlsi Gallup. Einar K.
Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra,
er eini ráðherrann sem landsmenn
eru ánægðari með nú en í síðustu
könnun Gallup, sem gerð var í októ-
ber í fyrra. Geir H. Haarde utanrík-
isráðherra og Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra sitja jafnir í
efsta sætinu af öllum ráðherrum rík-
isstjórnarinnar, þar sem flestir eru
ánægðir með störf þeirra. Ríflega
46% landsmanna eru ánægð með
störf Geirs, en ánægja með störf
hans hefur minnkað um tæp 15 pró-
sentustig frá því í október á síðasta
ári. Sama hlutfall fólks er ánægt
með störf Guðna, en ánægja með
störf landbúnaðarráðherra hefur
minnkað um 3 prósentustig síðan í
október.
Af ráðherrum Sjálfstæðisflokks
eru næst flestir ánægðir með störf
menntamálaráðherra, Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur, alls rúm-
lega 37% landsmanna. Ánægja með
störf hennar hefur þó minnkað um
rúm 15 prósentustig síðan í síðustu
mælingu. Minnst er ánægjan með
störf Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra og Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra en innan
við fjórðungur landsmanna, eða um
22%, er ánægður með störf þeirra.
Minnst ánægja með Halldór
Ánægja með störf allra þeirra
ráðherra Framsóknarflokks sem
mældir voru í október í fyrra hefur
minnkað, samkvæmt niðurstöðum
þjóðarpúlsins.
Enn sem fyrr er minnst ánægja
með störf forsætisráðherra, Hall-
dórs Ásgrímssonar, en um 28%
þjóðarinnar eru ánægð með störf
hans. Siv Friðleifsdóttir kemur
sterk inn í stól ráðherra heilbrigðis-
og tryggingamála þar sem næst
flestir, eða tæplega 36%, eru ánægð-
ir með störf hennar. Tæplega 29%
þjóðarinnar eru ánægð með störf
Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Ánægja með
störf Jóns Kristjánssonar í stóli fé-
lagsmálaráðherra er 18 prósentu-
stigum minni en í síðustu mælingu
er hann gegndi starfi heilbrigðis- og
tryggingaráðherra. Tæplega 29%
landsmanna eru ánægð með störf
Jóns nú í starfi félagsmálaráðherra.
Minni ánægja
með störf
ráðherranna
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
oddviti borgarstjórnarflokks sjálf-
stæðismanna, sagði við síðari umræð-
ur um ársreikning Reykjavíkurborg-
ar fyrir árið 2005 í borgarstjórn í gær,
að reikningurinn endurspeglaði slaka
rekstrarniðurstöðu. Hann sýndi að
rekstrargjöld aðalsjóðs umfram
rekstrartekjur, fyrir fjármagnsliði,
næmu 2,9 milljörðum króna eða 25
þús. kr. á hvern íbúa. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir
framsetningu Sjálfstæðisflokksins á
ársreikningi Reykjavíkurborgar
skrumskæla trausta fjárhagsstöðu
borgarsjóðs.
Vilhjálmur sagði í umræðunum í
gær að niðurstaða ársreikningsins
væri afleit, ekki síst í ljósi þess góð-
æris sem hefði ríkt í þjóðfélaginu og
gríðarlegrar aukningar á skatttekjum
borgarinnar á milli áranna 2004 og
2005. Hún hafi numið um 4 milljörð-
um króna. „Þessi niðurstaða staðfest-
ir þá slöku fjármálastjórn sem við-
gengist hefur hjá R-listanum um
árabil,“ sagði Vilhjálmur. „Ljóst er að
slakur rekstur borgarinnar hefur á
undanförnum árum leitt til aukinnar
skuldasöfnunar, ekki síst í erlendri
mynt, sem nú veldur mörg hundruð
milljóna króna gengistapi,“ sagði
hann einnig. Þá sagði Vilhjálmur að
rekstrarniðurstaða nágrannasveitar-
félaganna á höfuðborgarsvæðinu
sýndi, að þar sem íbúum hefði fjölgað
mest, væri staðan best. „Stefna R-
listans í skipulags- og lóðamálum hef-
ur leitt til þess að fjölgun íbúa í borg-
inni hefur verið mjög lítil,“ sagði Vil-
hjálmur.
Í ósamræmi við kosningaloforð
Í tilkynningu sem borgarstjóri
sendi frá sér í gær er bent á að rekst-
ur borgarsjóðs hafi verið í jafnvægi í
fyrra og hreinar skuldir hans hafi
lækkað um 1,5 milljarða króna. „Sér-
valdar niðurstöður Sjálfstæðisflokks-
ins úr ársreikningum Reykjavíkur-
borgar, þar sem m.a. er tekið tillit til
afskrifta af eignum en ekki tekna af
eigum borgarbúa, breyta því ekki.
Þessi framsetning Sjálfstæðisflokks-
ins á ársreikningi Reykjavíkurborgar
skrumskælir trausta fjárhagsstöðu
borgarsjóðs og er í hróplegu ósam-
ræmi við þau fjárfreku kosningalof-
orð sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gefið nú í aðdraganda kosninga,“ seg-
ir í tilkynningunni. Það kunni hins-
vegar að vera eðlilegt að sveitarfélög,
sem eru talsvert skuldugri en
Reykjavík og eiga minni eignir, þurfi
að skila betri niðurstöðu en borgar-
sjóður fyrir fjármagnsliði. Vaxtabyrði
þeirra sé hlutfallslega þyngri og
tekjur þeirra af eignum sínum minni.
Síðari umræða í borgarstjórn um ársreikning Reykjavíkurborgar
Takast á um fjárhags-
stöðu borgarsjóðs
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson