Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 39
MINNINGAR
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
FANNEYJAR SIGURLAUGSDÓTTUR,
Helgubraut 27,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sigurlaug E. Rögnvaldsdóttir, Reynir I. Helgason,
Sigþrúður M. Rögnvaldsdóttir, Reynir Njálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Herdís KristínKarlsdóttir,
fyrrv. leikskóla-
stjóri, fæddist á
Siglufirði 30. októ-
ber 1927. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 11. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Karl
Sturlaugsson húsa-
smíðameistari, f. í
Ytri-Fagradal í
Skarðsstrandar-
hreppi í Dalasýslu
27. apríl 1886, d. 8.
febrúar 1948 og Herdís Hjartar-
dóttir húsfreyja, f. í Langhúsum í
Haganessókn í Skagafirði 15.
ágúst 1894, d. 26. desember 1987.
f. 15. ágúst 1968, gift Guðmundi
Erni Guðjónsson aðalvarðstjóra, f.
11. mars 1965. Synir þeirra eru
Matthías, f. 6. maí 1996, Davíð, f. 9.
september 2000 og Markús, f. 8.
janúar 2006.
Herdís bjó á Siglufirði fram til
tvítugs, en fluttist þá til Reykjavík-
ur. Hún lauk prófi frá Uppeldis-
skóla Sumargjafar 1. febrúar 1949
og var fóstra í Suðurborg 1949-
1951, forstöðukona í Brákarborg
1952-1954 og 1956-1989, fóstra í
Tjarnarborg sumarið 1954 og
fóstra í Foldaborg 1989-1994.
Herdís var virkur félagi í KFUK
í Reykjavík í rúm 50 ár, var leið-
togi í æskulýðsstafi og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið, m.a. fyrir leikskóla félgsins.
Starfaði einnig í sumarbúðum
KFUM og KFUK í Kaldárseli.
Útför Herdísar verður gerð frá
Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst
athöfnin klukkan 15. Jarðsett
verður í Gufuneskirkjugarði.
Bræður Herdísar eru
Hjörtur Gunnar,
fyrrv. loftskeytamað-
ur, f. 13. apríl 1926,
d. 26. apríl 2000 og
Guðlaugur Helgi,
fyrrv. símafulltrúi, f.
25. desember 1928.
Herdís giftist 1.
janúar 1953 Gunnari
Pétri Sigurðssyni
vélfræðingi, f. á Ak-
ureyri 30. júní 1930.
Börn þeirra eru: 1)
Karl flugstjóri, f. 10.
október 1953. Sam-
býliskona Laura Leoni lyfjafræð-
ingur, f. 13. mars 1975. Dóttir
þeirra er Eleanor, f. 21. júlí 2002.
2) Herdís hjúkrunardeildarstjóri,
Mín elskulega móðir er horfin frá
okkur. Söknuðurinn er mikill, en
mitt í söknuði hugans kemur gleðin
yfir því að hafa átt yndislega
mömmu. Huggun er að annast
Markús litla, sem gefur öllum sól-
skinsbros og hjalar af kátínu og
gleði. Þá minnist ég þess sem
mamma kenndi mér, að lífið er
kraftaverk, Guðs gjöf, sem ber að
þakka sérhvern dag. Með mömmu
og pabba lærði ég að byrja sérhvern
morgun á því leggja komandi dag í
Drottins hendur, og að kveldi þakka
Guði varðveislu og náð. Morgun- og
kvöldbænir urðu strax í æsku eðli-
legur hluti daglegs lífs, sem dreng-
irnir okkar Guðmundar, hafa nú
gert að sínum bænum. Borðbænin
hennar mömmu sem hún innleiddi á
heimili sitt, er nú fastur liður á heim-
ili mínu, ómissandi þáttur þar sem
beðið er um blessun Guðs. Sú borð-
bæn hefur í einfaldleika sínum snert
við mörgum sem kynntust mömmu.
Minningar mínar um mömmu eru
fylltar gleði yfir kærleiksríkri og
umburðarlyndri móður. Ein fyrsta
minning mín um mömmu er eflaust
úr eldhúsinu í Njörvasundi. Ég man
eftir mér sitjandi í stórum eldhús-
vask, þar sem ég var böðuð og
seinna sat ég á eldhúsbekknum og
fékk fótabað í vaskinum. Á sama eld-
húsbekk fékk ég að hella upp á kaffi
að fyrirmynd mömmu og ömmu. Í
eldhúsinu fékk ég að vera með nefið
ofan í öllu sem mamma gerði. Þegar
gestir komu bað ég stundum um að
fá að hella upp á kaffi, þó ég væri
ekki há í loftinu. Síðan hnippti ég í
mömmu og bað hana að spyrja gest-
ina hvernig þeim líkaði kaffið. Þó ég
væri ekki gömul vissum við báðar að
ég var að fiska eftir hrósi fyrir
myndarskapinn og góða kaffið. En
það sem ég vissi ekki þá var að með
þessu móti var mamma að byggja
upp sjálfstraust hjá mér sem hún
gaf mér í veganesti fyrir lífið.
Mamma gaf mér þá dýrmætustu
gjöf sem dóttir getur fengið, hún
leiðbeindi mér og kenndi og var mér
svo ákaflega sterk fyrirmynd. Ég
fékk að fylgja henni eftir þar sem
hún fór og sá handbragð hennar og
verk. Hún átti aðdáun mín alla, þeg-
ar ég fylgdist með störfum hennar í
Brákarborg. Hún var í uppáhaldi hjá
fjölmörgum foreldrum vegna um-
hyggju sinnar í garð barna og for-
eldra á leikskólanum. Hún var leið-
togi sem lagði metnað í að skapa
gott andrúmsloft á vinnustað sínum.
Hún var ákveðin og röggsöm, þegar
á þurfti að halda. Mamma var glæsi-
leg og hafði sinn sérstaka stíl sem
eftir var tekið. En síðast en ekki síst
hlaut hún þá gjöf að snerta við lífi
margra, var mikill mannþekkjari og
átti trúnað vina sinna. Henni var
tamt að hugsa fyrst og fremst um
hag annarra.
Mamma gaf mér ótrúlegt frelsi til
að vera ég sjálf og var mér svo eft-
irlát. Þegar ég fullorðnaðist undr-
aðist ég stundum hversu mikið hún
lét eftir mér og innti hana eftir því
hvernig á því stæði. Hennar svar var
að hún vildi að börnin sín yrðu sjálf-
stæð.
Síðustu 10 árin tengdust mamma
og pabbi nýjum böndum, þegar hann
hætti á sjónum, eftir miklar fjarver-
ur, til þess að annast mömmu í veik-
indum hennar. Sá tími sem fór í
hönd var mömmu afar dýrmætur.
Samfellt í 7 ár naut mamma hjúkr-
unar og stuðnings pabba, þannig að
þau gátu búið saman á heimili sínu
og notið lífsins saman. Mamma naut
einstakrar hlýju frá pabba sem ann-
aðist hana af eljusemi og kærleika.
Hann sá um allt heimilishald, ásamt
því að hjúkra henni dag og nótt.
Þegar mamma flutti á Eir vitjaði
pabbi hennar daglega og annaðist
hana áfram af einstakri nákvæmni.
Kvöldstundirnar sem ég átti með
mömmu á Eir eru mér afar dýrmæt-
ar. Þar gátum við deilt með hvor
annarri hugsunum okkar, fram á
hennar síðasta dag.
Góður Guð blessi minningu minn-
ar ástríku mömmu.
Að morgni og kvöldi minnst þess vel,
málsupptekt láttu þína:
Af hjarta eg þér á hendur fel,
herra guð, sálu mína.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Höndin þín, drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi.
En nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína eg glaður kyssi.
Þegar mér ganga þrautir nær,
þér snú þú til mín, Jesú kær.
Hjartað hressi og huga minn.
himneskur náðarvökvi þinn.
(Hallgrímur Pétursson.)
Herdís Gunnarsdóttir (Systa).
Elskuleg tengdamóðir mín er lát-
in. Minningar koma upp þegar horft
er til þess tíma sem ég kom fyrst inn
á heimili Dísu og Gunnars í Frosta-
fold. Dísa opnaði strax heimili sitt
fyrir mér og fann ég að í hjarta
hennar átti ég sérstakan sess allt frá
fyrstu kynnum. Dísa var næm, skiln-
ingsrík og fordómalaus í garð ann-
arra og aldrei heyrði ég hana tala
illa um nokkurn mann. Af Dísu mátti
því margt læra um hvernig koma á
fram við aðra og þann kærleika sem
hún sýndi öllum, jafnt háum sem
lágum. Sterkasta minningin sem ég
á um Dísu er sennilega frá trúlof-
unardegi okkar Systu, sem Dísa átti
stóran þátt í að gera ógleymanlegan.
Við Systa höfðum farið til Þingvalla
til að setja upp hringa, af því vissi
enginn og átti trúlofunin að koma
öllum á óvart. Þegar við komum til
baka og fórum í Frostafold, beið
Dísa eftir okkur með uppdúkað
kaffiborð. Hún hafði bakað tertu,
sem síðar var alltaf kölluð „Trúlof-
unarterta“. Hún vissi að tilvonandi
tengdasyninum þætti tertan góð.
Þannig kom Dísa okkur á óvart,
gladdi okkur á þessum degi okkar
Systu og átti þannig hlutdeild í hon-
um. Hvernig Dísa vissi hvað í vænd-
um var er ekki gott að vita en hún
var mikill mannþekkjari og átti gott
með að lesa fólk, sérstaklega þá sem
henni voru kærir. Svona var Dísa,
alltaf að gleðja fólkið sitt og hugsa
um hvað hún gæti gert fyrir aðra.
Mikið þótti Dísu vænt um drengina
okkar Systu. Það leyndi sér ekki í
öllum samskiptum hennar við þá. Þó
að Dísa væri orðin mikið veik, hlust-
aði hún alltaf af áhuga þegar henni
var sagt frá afrekum og ævintýrum
drengjanna.
Elsku Dísa, nú þegar komið er að
kveðjustund er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa fengið að
kynnast þér. Þú auðgaðir líf mitt
með lífsspeki þinni. Við fjölskyldan
eigum eftir að sakna þín, elsku
tengdamamma, en gott er að vita að
þú ert komin heim, heim í ríki Guðs.
Mikil er náðin þín, dýrlegi Drottinn.
Dásemd þín breytist ei, frelsari minn.
Þú ert hinn sami um aldir og eilífð.
Ekkert fær jafnast við kærleika þinn.
Mikil er náðin þín. Mikil er náðin þín.
Miskunn þú heitir mér, frelsari kær.
Alls góðs sem nýt ég úr hendi þér hlýt ég:
Heilaga miskunn í dag sem í gær.
Haustið og vorið eins vetur og sumar,
vermandi sólin og stjarnanna her,
tilveran gjörvöll þann máttarsöng magn-
ar:
„Mikill er skaparinn. Faðir hann er.“
Þú gefur sakir upp. Friður og frelsi
fyllir mitt hjarta með lofsöngva hreim.
Dýrðarvon eilífðar, dásamleg náðin,
Drottinn minn, Jesús, mér lýsir þú heim.
(Magnús Guðmundsson.)
Guðmundur Örn Guðjónsson.
Góðar minningar eru dýrmætar
og þær á ég svo sannarlega um Dísu
frænku mína. Hún hefur verið mér
sem fjórða systirin. Við vorum
systkinadætur og aldar upp í síld-
arbænum Siglufirði. Frá fyrstu tíð
var mikill samgangur á milli heimila
okkar. Faðir minn og móðir Dísu
voru mjög náin systkini og ég held
að pabba hafi fundist hann að ein-
hverju leyti bera ábyrgð á velferð
systur sinnar og barna hennar. Dísa
gekk undir nafninu Dísa litla, á okk-
ar heimili til aðgreiningar frá
mömmu sinni sem var einnig kölluð
Dísa. Þær voru margar Dísurnar í
fjölskyldu minni á báða bóga (alls 4)
og oft erfitt að greina hvaða Dísu var
verið að tala um. Ég man eftir því
þegar amma mín, sem bjó hjá okkur,
kom úr bæjarferð einu sinni sem oft-
ar og sagði við mömmu, Dísa bað að
heilsa, þá spurði mamma og hvaða
Dísa var það? þá brást amma hin
versta við og hélt nú að hún ætti að
vita það.
Töluverður aldursmunur var á
okkur Dísu og man ég ekki þann
tíma þegar hún bjó á Siglufirði, en
ég man hve gaman mér þótti þegar
hún kom í bæinn og fór þá gjarnan
með mig, litlu frænku sína í göngu-
túra, smáferðalag, eða í berjamó
fram í fjörð eða inn fyrir fjall. Ég
hlakkaði alltaf til þegar von var á
Dísu og Helgu frænku í heimsókn
því að það fylgdi þeim svo mikil gleði
og hlátur. Mér fannst þær ótrúlega
skemmtilegar. Einnig man ég hvað
mér fannst spennandi að fá jólagjaf-
ir frá þessum stóru frænkum mínum
sem bjuggu í Reykjavík en Dísa
stundaði nám við Fóstruskólann á
þessum tíma, en síðar var hún leik-
skólastjóri í mörg ár á Brákaborg.
Þegar ég var við nám í Reykjavík
var ég fastagestur hjá Dísu og var
oft og iðulega boðin í mat, en Dísa
var fyrirmyndar kokkur. Þau ár sem
ég bjó erlendis skrifuðumst við á og
héldum sambandinu. Þegar ég kom
heim í frí bjó ég hjá Dísu og Gunnari
áður en ég hélt norður enda var allt-
af tekið á móti mér opnum örmum.
Frá því að við hjónin fluttum heim
höfum við verið í nánu sambandi við
Dísu og fjölskyldu og hefur aldrei
brugðið skugga á samskipti okkar.
Þau voru ófá skiptin sem Dísa hjálp-
aði mér með eitt og annað og leit eft-
ir drengjunum okkar. Hún var þeim
sem besta amma. Það var alltaf
hægt að leita til Dísu hún var alltaf
boðin og búin að hjálpa þegar á
þurfti að halda. Þegar faðir minn var
orðinn veikur og þurfti að vera undir
læknishendi í Reykjavík fengu for-
eldrar mínir inni hjá Gunnari og
Dísu á efri hæðinni í Njörvasundi.
Ég gleymi því heldur ekki hve oft
Dísa sat hjá mömmu minni þegar
hún var orðin gömul og lasburða.
Eitt af aðalsmerkjum Dísu var
hversu rausnarleg og gjafmild hún
var. Hún gat aldrei komið í heim-
sókn án þess að koma með eitthvað
með sér. Hún var yfirleitt með hálf-
fulla tösku af einhverju góðgæti eða
gjöfum sem hún hafði keypt og
spurði hvort ég gæti ekki notað
þetta rusl því að hún ætlaði hvort eð
er að henda því.
Dísa var fyrirmyndar kokkur eins
og áður er getið en hún var líka mjög
handlagin og saumaði mikið bæði út-
saum og fatnað. Það var ekki ónýtt
fyrir mig óreynda húsmóður að
sækja í viskubrunn Dísu frænku,
enda voru dyrnar ætíð opnar.
Dísa var mjög myndarleg kona,
lífleg og skemmtileg og hafði góða
kímnigáfu, ég naut þess alltaf að
vera í návist hennar.
Það var hægt að reiða sig á Dísu í
stóru og smáu, hún var hreinskiptin
kona og kom til dyranna eins og hún
var klædd og var ekkert að fara í
kringum hlutina. Þessa eiginleika í
fari Dísu mat ég mikils. Ég gat alltaf
treyst því að hún segði mér það sem
henni fannst.
Ég minnist með gleði marga ferða
sem við frænkurnar fórum á síðari
árum saman, t.d. útilegu í Þjórsár-
dal, skíðaferðar í Hveradali þar sem
við tvær nutum útivistar og samvista
í sólskini og blíðu eins og svo oft var
á Siglufirði í minningunni og ekki
má gleyma heita súkkulaðinu og
meðlæti sem Dísa var fræg fyrir og
var ómissandi á svona ferðalögum.
Einnig er mér minnisstæð ferð
okkar norður í land á slóðir forfeðr-
anna í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu
með Tótu systur sem komin var frá
Kaliforníu þar sem hún býr og
Helgu frænku, en hún og Dísa voru
bestu vinkonur. Sú ferð var okkur
öllum ógleymanleg. Mikið var sung-
ið, hlegið og sagðar sögur, enda líf-
legar konur á ferð.
Dísa var fróð um staði og fjöll og
fræddi okkur hinar óspart.
Í veikindum síðari ára var Dísa
ótrúlega þrautseig og æðrulaus,
aldrei heyrði ég hana kvarta þrátt
fyrir líkamlegar hömlur og oft á tíð-
um þjáningar sem hljóta að fylgja
þeim sjúkdómi sem hrjáði hana.
Dísa dvaldi á heimili sínu eins lengi
og auðið var undir dyggri umsjón
eiginmanns síns Gunnars, dóttur
sinnar Systu og Guðmundar eigin-
manns hennar. Síðari árin dvaldi
hún á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Dísa var ótrúlega dugleg að fara
út fyrir veggi heimilisins og hafði
mikla ánægju af. Það má þakka
Gunnari sem var óþreytandi að fara
með hana í heimsóknir á hina ýmsu
staði. Hann leit eftir henni af ein-
stakri umhyggju síðustu árin og
fékk titilinn „besti eiginmaður í
heimi“ frá sumum dvalargestum Eir
enda eyddi hann oft miklum parti úr
deginum við hlið Dísu.
Um leið og ég kveð Dísu frænku
mína vil ég þakka forsjóninni fyrir
að gefa mér þessa góðu tryggu
frænku sem mér þótti svo vænt um.
Fyrir hönd okkar hjónanna bið ég
góðan guð að blessa og styrkja
Gunnar, Systu, Guðmund, Kalla,
Lauru, Gulla bróður hennar og litlu
barnabörnin sem Dísa mín fékk ekki
að njóta eins og hún hefði kosið. Hvíl
í friði.
Sveinbjörg.
Elsku Dísa.
Við bræðurnir erum mjög heppnir
að hafa átt þig sem frænku og langar
að skrifa nokkrar línur í þakklæt-
isskyni fyrir allt sem þú varst okkur.
Það virðist ekki svo langt síðan að
við vorum að leika okkur í Njörva-
sundinu hjá þér. Það var alltaf svo
gaman að koma til þín og leika sér í
þessu stóra húsi með ævintýralegum
garði sem hafði heilan skóg af trjám,
að okkur fannst, og fullt af spenn-
andi leikföngum. Þú tókst alltaf svo
vel á móti okkur og varst okkur í
raun sem amma. Við munum sér-
staklega eftir því að fá að gista hjá
þér er foreldrar okkar fóru til út-
landa. Þetta var alltaf hálfgert æv-
intýri. Aldrei fyrr höfðum við bræð-
ur kynnst því að fá kvöldkaffi, kökur
og mjólk áður en við fórum að sofa,
ótrúleg upplifun fyrir litla peyja.
Það virtist sem alltaf gætir þú
galdrað fram algert góðgæti á kvöld-
in svo sem heimsins bestu jólaköku
og ástarpunga sem við fengum aldr-
ei nóg af. Þú varst alltaf til í að
hjálpa öllum og vildir alltaf gera öll-
um til geðs. Þú varst sennilega ein
besta, jákvæðasta og óeigingjar-
nasta manneskja sem við bræðurnir
höfum nokkurn tíma kynnst. Þú
varst einfaldlega alveg ótrúlega góð
manneskja. Ef allir væru eins og þú
myndi heimurinn örugglega vera
betri staður.
Elsku Dísa, við þökkum þér kær-
lega fyrir allar þær yndislegu stund-
ir sem við fengum að njóta með þér.
Við viljum trúa því að með nærveru
þinni hafi þér tekist að gera okkur
(og örugglega fleiri) að betri mönn-
um. Takk fyrir allt.
Ástarkveðjur
Sveinn Vilhjálmur og
Einar Ólafur.
Frænka mín er látin.
Hún bar höfuðið hátt í lifanda lífi,
stolt og virðuleg, og veitti mér á sín-
um tíma innsýn í heim sem hafði ver-
ið mér framandi og hálfógnvekjandi
fram að því. Ég bar mikla virðingu
fyrir henni og leit upp til hennar sem
manneskju.
Dísa mín, þakka þér fyrir það sem
ég fékk lært af þér forðum og þakka
þér fyrir að ala upp yndislega dóttur
sem hefur reynst mér sannur vinur í
gegnum tíðina. Hvíl í friði og megi
sál þín lifa í ljósi Guðs.
Hulda B.
HERDÍS KRISTÍN
KARLSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um
Herdísi Kristínu Karlsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Guðný
Sigríður, Guðrún Herdís, Karl og
Guðbjörg Jóna; Matthías Guð-
mundsson; Sigursteinn; Inga,
Gunnar, Róbert og Clara Rún.