Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 45
DAGBÓK
Ídag kl. 13 hefst á Hótel Sögu ráðstefna umkort og kortagerð á vegum LÍSU-samtakanna. Fyrirlesarar eru sérfræð-ingar á sviði kortagerðar.
„LÍSU-samtökin einbeita sér að samræmingu
landfræðilegra upplýsinga,“ segir dr. Haukur Jó-
hannesson jarðfræðingur, sem er einn fyrirlesara
á ráðstefnunni sem lýkur kl. 16.30. Á ráðstefnunni
verður fjallað um forsendur þess að meta kort og
upplýsingagildi þeirra.
En er mikil nauðsyn á að samræma kort?
„Já, það er nauðsynlegt að upplýsingar á kort-
um séu nákvæmar og notendur kortanna geti reitt
sig á að upplýsingarnar á þeim séu réttar.“
Er mikil misbrestur á því?
„Já, það er töluverður misbrestur á að upplýs-
ingar séu réttar, það á m.a. við um vegi, bæi, ör-
nefni o.fl. Þar erum við langt á eftir nágranna-
löndum okkar.“
Í hvaða samhengi er verið að fjalla um gæði
korta?
„Þarna verður fjallað bæði um grunn kortanna
sjálfra og líka þær upplýsingar sem eru á kort-
unum. Þessi grunnur sem við höfum haft í hönd-
unum hingað til er ekki eins nákvæmur og hann
hefði þurft að vera og ekki í samræmi við kröfur
nútímans.“
Hvað einkennir góðan kortagrunn?
„Að hann sýni landslagið rétt og upplýsing-
arnar á honum séu áreiðanlegar.“
Hvað er langt síðan menn tóku að gera kort?
„Það er löng saga en segja má að danska her-
foringjaráðið hafi gert fyrsta nákvæma kortið af
Íslandi og lauk því í seinna stríðinu. Síðan gerði
ameríski herinn kort af Íslandi um 1950, sem við
búum að enn í dag. Þau prentuðu kort sem allur
almenningur hefur í höndunum byggist á þessu
korti.“
Stendur til að gefa út mörg ný kort á næstunni?
„Ég veit ekki um neitt nýtt prentað kort sem
kemur út á næstunni, en það eru til betri korta-
grunnar af landinu öllu en þeir sem nú eru til al-
mennra nota fyrir almenning.“
Hvað er það helst sem er ábótavant í kortagerð
okkar að þínu mati?
„Meðal annars þarf í raun þjóðarátak til að lag-
færa örnefni á þeim kortum sem út hafa verið gef-
in almennt.“
Er enn til fólk sem getur leiðrétt þetta?
„Já, en þetta er nákvæmnisvinna og þolin-
mæðisvinna. Þetta er hins vegar svo umfangs-
mikið að hið opinbera þarf að koma að þessu
máli.“
Hverjum er þessi ráðstefna ætluð?
„Hún er ætluð þeim sem nota og búa til kort af
ýmsu tilefni, svo sem til ferðalaga og útivistar, til
eftirlits og björgunarstarfa, til verklegra fram-
kvæmda, til rannsókna og skráningar náttúru- og
menningarminja o.s.frv. Ráðstefnan er öllum op-
in.
Fræðslumál | Ráðstefna um kort og nákvæmni þeirra
Kortagerð á Íslandi
Haukur Jóhannesson
fæddist í Reykjavík
1948. Hann lauk námi
Háskóla Íslands í jarð-
fræði árið 1972 og
doktorsprófi frá háskól-
anum Durham í Bret-
landi árið 1975. Hann
starfar hjá Íslenskum
orkurannsóknum en áð-
ur starfaði hann hjá
Orkustofnun og
Náttúrufræðistofnun. Haukur er kvæntur og á
fjögur börn.
Tvímenningur.
Norður
♠Á96
♥ÁKD8
♦ÁK1072
♣5
Vestur Austur
♠53 ♠1072
♥G1064 ♥752
♦653 ♦DG84
♣DG107 ♣832
Suður
♠KDG84
♥93
♦9
♣ÁK964
Tvímenningur er skrýtið spil. Sjö spað-
ar er falleg alslemma í NS – nokkurn
veginn skotheld með því að trompa eitt
lauf í borði – og í sveitakeppni væru
menn fullsæmdir af þeirri niðurstöðu.
En sannir tvímenningshaukar láta sér
ekki detta í hug að spila neitt annað en
sjö grönd. Skiptir þá engu þótt aðeins
séu tólf slagir á toppi – sá þrettándi
verður bara að skila sér með þvingun.
Hermann Lárusson og Þröstur Ingi-
marsson urðu Íslandsmeistarar í tví-
menningi hinn 1. maí, eftir þriggja
daga sleitulausa spilamennsku. Spiluð
voru 182 spil – fyrst 90 í undankeppni,
en síðan héldu 24 pör áfram og spiluðu
önnur 92 til úrslita.
Spilið að ofan var það næstsíðasta í
keppninni. Á sjö borðum af 12 varð nið-
urstaðan sjö spaðar. Eitt par missti al-
slemmu, en fjögur pör reyndu sjö
grönd. Tvær leiðir liggja til vinnings í
sjö gröndum. Annars vegar er hægt að
djúpsvína fyrir G10xx í hjarta, en hitt
gengur líka að taka slagina fyrir utan
hjartað og þvinga vestur í hjarta og
laufi. Laufnía suðurs gegnir þar lykil-
hlutverki.
Sigur Hermanns og Þrastar var
öruggur. Þeir hlutu 59,1% skor, sem
var töluvert fyrir ofan næstu menn.
Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Har-
aldsson urðu í öðru sæti (55,7%), Ás-
mundur Pálsson og Guðm. P. Arnarson
í því þriðja (54,9%), fjórðu urðu Aðal-
steinn Jörgensen og Sverrir Ármanns-
son (54,8%) og fimmtu Vilhjálmur Þór
Pálsson og Þórður Sigurðsson (54,5%).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bc4 e6 7. Be3 Be7 8.
De2 0-0 9. 0-0-0 a6 10. Bb3 Dc7 11. g4
Rd7 12. f4 Rc5 13. f5 Rxb3+ 14. axb3
b5 15. Hhf1 Bd7 16. g5 b4 17. f6 bxc3
18. fxe7 cxb2+ 19. Kxb2 Hfe8 20. Dh5
Hxe7 21. Hf4 Rxd4 22. Bxd4 e5 23.
Hh4 h6 24. gxh6 g6 25. h7+ Kh8 26.
Dg5 He6 27. Bc3 Hc8 28. Hh3 Bc6 29.
Dh4 a5 30. De1 a4 31. Bb4 axb3 32.
cxb3 Bb7 33. Df2 Bxe4 34. Hc3 Bc6 35.
Ha1 Db7 36. Ha7 Dxb4
Staðan kom upp í SM-flokki Fyrsta
laugardagsmótsins í Búdapest sem
lauk fyrir skömmu. Tyrkneski alþjóð-
legi meistarinn Adnan Sendur (2.400)
hafði hvítt gegn austurríska kollega
sínum Walter Wittmann (2.372). 37.
Hc4! hvítur hefði staðið höllum fæti
eftir 37. Dxf7?? Dxc3+! Eftir textaleik-
inn er skást að fórna drottningunni
eins og svartur gerði með 37. … Dxc4
en eftir 38. bxc4 f5 39. Dh4! stóð svart-
ur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum.
39. … Hb8+ 40. Kc1 f4? tapleikurinn
þar eð nú nær hvítur að halda yfirráð-
um sjöundu reitaraðarinnar og koma
drottningu sinni á h6 en 40. … Bb7
hefði getað haldið taflinu gangandi. 41.
Hc7! Be4 42. Dh6 Hb1+ 43. Kd2 Hb2+
44. Kc3 Hc2+ 45. Kb3 og svartur gafst
upp enda óverjandi mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Ráðstefna – Blátt áfram
Fyrirspurn, ábending
ÉG var að fara yfir auglýsingu um
dagskrárliði ráðstefnu 4. maí sem
Blátt áfram auglýsir. Það sem ég
gæti ímyndað mér, eða viljað sjá að
sé komið inn á, er: Áhrif kynferð-
islegrar misnotkunar á nánustu að-
standendur, t.d. foreldri, systkini ef
um barn í fjölskyldu er að ræða, því
þetta er langt ferli frá uppgötvun til
„endaloka“ ef um er að ræða að ger-
andi sé sendur í fangelsi, sem sagt
dæmdur (málaferli). Þótt þetta hafi
auðvitað hræðileg áhrif á sjálfan þol-
andann hefur þetta einnig gífurleg
áhrif á nánustu aðstandendur.
Rannsóknir sýna að u.þ.b. fimmta
hver stúlka og níundi hver drengur
verður fyrir svona hræðilegri
reynslu hér á landi. Miðað við þessar
skelfilegu niðurstöður er pottþétt
einhver í þessum skrifuðum orðum
að misnota barn í okkar „fallega“
hreina landi, Íslandi.
Bið ég því fólk að hugsa þegar það
les þetta: Skyldi einhver vera að
misnota barn núna í mínu húsi eða
nánasta umhverfi? Frændi, stjúp-
pabbi, afi, mamma, pabbi, „vinur“?
Að lokum vil ég hvetja fólk til að
mæta á þessa ráðstefnu og þá sér-
staklega fólk í áhrifamiklum stöðum
þessa samfélags, svo sem ráðamenn
þjóðarinnar, fulltrúa frá skólum o.fl.
Tími er til kominn að stöðva þennan
óhugnað gagnvart börnum. Börn
eru ekki litlir „fullorðnir“.
Manneskja með reynslu.
Gullhringur týndist
SÉRSMÍÐAÐUR gullhringur (á
litlaputta) með smádemanti hang-
andi neðan úr og með áletrun innan
í, „sjáumst í norðurljósunum“, glat-
aðist á leiðinni frá Skólavörðuholti
niður í miðbæ. Finnandi hringi í
síma 892 8449. Fundarlaun.
Brandur er týndur
ÞESSI bröndótti
fress týndist frá Mos-
gerði 9 fyrir 2 vikum.
Hann er ómerktur og
ólarlaus. Hans er sárt
saknað. Þeir sem vita
um hann vinsamlega
hafi samband í síma
616 2615.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
55 ÁRA afmæli. Í dag, 3. maí,verður hálfsextugur Tryggvi
V. Líndal, þjóðfélagsfræðingur og
skáld, Laugavegi 139, Reykjavík.
Hann þakkar lesendum Morgunblaðs-
ins fyrir lesturinn á hugleiðingum og
ljóðum hans þar í gegnum tíðina. Hann
verður að heiman.
Brúðkaup | Hinn 1. apríl sl. voru gefin
saman í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af
sr. Einari Eyjólfssyni þau Kristjana
Ósk Jónsdóttir og Hrafn Konráðsson.
Ljósmynd/Jóhannes Long
SIGURÐUR Flosason hefur aldeilis
verið í eldlínu Íslandsdjassins um
þessar mundir. Hann er að-
alskipuleggjandi Jazzhátíðar Garða-
bæjar (auk djasshátíðar undir Eyja-
fjöllum) og stjórnandi
föstudagsdjassins í Stúdentakjall-
aranum (auk sumardjass Jómfrúar-
innar), þar að auki var hann að gefa
út tvöfaldan disk með 24 lögum sín-
um við kvæði Aðalsteins Ásbergs og
voru þetta seinni útgáfutónleikar af
tvennum af því tilefni – þeir fyrri
kvöldið áður í sneisafullum Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur. Það var
líka sneisafullt þetta fyrsta djasshá-
tíðarkvöld í glæsilegum sal Tónlistar-
skólans í Garðabæ og stemmningin
eldfim.
Kristjana og kvartettinn fluttu
helming laganna af diskunum og
verður hér tæpt á því helsta, en disk-
unum í heild gerð betri skil hér í
blaðinu innan skamms.
Fyrsta lagið á efnisskránni er lík-
legt til vinsælda, samið í melódískum
djassstíl sem Stefán S. Stefánsson
hefur m.a. tileinkað sér. Það nefndist
Enn og aftur á hinni stórgóðu skífu
kvartetts Sigurðar frá í fyrra, Leiðin
heim, og var einnig sungið á ensku á
japönsku útgáfun skífunnar. Nú var
kominn íslenskur texti eftir Aðalstein
Ásberg: Hvar er tunglið? Elsta lagið
sem flutt var á tónleikunum var af
fyrstu plötu Sigurðar, Gengið á lagið,
In memoriam, sem tileinkað var
minningu Sveins Ólafssonar, sem var
ásamt Vilhjálmi Guðjónssyni fyrsti
íslenski djasseinleikarinn. Þetta er
ein fallegasta ballaða sem Sigurður
hefur samið og söng Kristjana firna-
vel saknaðarljóð Aðalsteins Ásbergs
ofið náttúrulýsingum. Sama má segja
um verkið sem tileinkað var minn-
ingu Önnu Pálínu Árnadóttur: Það
var skip. Þótt ballöður, oftar kannski
sönglög, skipuðu stóran sess á tón-
leikunum voru þar sömbur og svíng-
arar á ferð og salurinn tók vel við sér
þegar Setjum kúrsinn var flutt (Lág-
freyðandi á Leiðinni heim). Fönkið í
Sýndu mér, leyfðu mér hitti einnig í
mark eins og djassblúsinn Flest er
afstætt. Það var sterkari keyrsla í
þessum lögum en er á plötunni, sér-
deilis er Kristjana mikil stemmnings-
manneskja og eflist í margmenni.
Spilamennskan var líka um margt
lausari í sér eins og oft er á tón-
leikum og sólóar stundum villtari.
Sigurður og Eyþór sáu um sólóa, en
breikin hans Péturs og öflugur hryn-
slátturinn var príma og Valdi Kolli
fylgdi honum vel eftir.
Þetta var glæsileg byrjun á spenn-
andi hátíð.
Kristjana söng
inn djasshátíð
DJASS
Tónlistarskóli Garðarbæjar
Kvartett Sigurðar Flosasonar og Krist-
jana Stefánsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir söngur, Sigurður
Flosason altósaxófón, Eyþór Gunnarsson
píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
bassa og Pétur Östlund trommur.
Fimmtudagskvöldið 20. apríl.
Djasshátíð Garðabæjar
Vernharður Linnet Heimili fyrir þig - alhliða eignaumsýsla
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Allar nánari upplýsingar veitir Bogi Pétursson,
löggiltur fasteignasali, á skrifstofu Heimilis eða
í síma 699 3444.
Óskum eftir
raðhúsi eða parhúsi
í Grafarholti
Bogi
Pétursson
lögg.
fasteignasali
90 ÁRA afmæli. Á morgun, 4. maí,er níræð Margrét J. Jónsdóttir,
Sóltúni, Garði. Að því tilefni tekur hún
á móti gestum í samkomuhúsinu Gerð-
um, Garði, laugardaginn 6. maí kl. 15.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is