Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 49
Roger Hodgson
E. G. MEDIA kynnir eðalsöngvarann
Fyrrum söngvari og leiðtogi hljómsveitarinnar
Supertramp heldur tónleika á Broadway.
Föstudaginn 11. ágúst kl: 21:00.
Give A Little Bit
It’s Raining Again
The Logical Song
Dreamer
Take The Long Way Home
Breakfast In America
Even In The Quitest Moment
Miðaverð kr. 5.400.- + kr. 324.- miðagjald.
Miðasala er á midi.is og
Skífunni Laugavegi, Kringlunni og Smáralind.
BT Akureyri og BT Selfossi.
VISA kreditkorthafar fá 20% afslátt i forsölu.
SPEKIN á sér marga vini þó sú vin-
átta fari ekki alltaf hátt. Sumir eru
þó kunnir af sínum verkum og einn
þeirra er Gunnar Dal sem skrifað
hefur ýmislegt um heimspeki, auk
þess að vera mikilvirkur þýðandi og
ljóðskáld. Meginviðfangsefni heim-
spekinnar er að spyrja spurninga
um allt mögulegt og ýmissa mjög
stórra spurninga. Það er því vel við
hæfi að nefna bók, sem felur í sér
stutta svarpistla höfundarins við
slíkum spurningum, einfaldlega
Stórar spurningar.
Í stuttum ritdómi gefst ekki kost-
ur að ræða að nokkru marki um þá
hugsun sem býr að baki slíkum
svörum. Í bókinni er gripið á svo
mörgum og ólíkum viðfangsefnum
að engan veginn er mögulegt að ná
utan um það efni nema í löngu máli.
Almennt má þó segja um verk
Gunnars að hann leitast við að finna
skýr og einföld svör við flóknum
spurningum. Þetta hefur bæði kosti
og galla í för með sér. Texti hans er
fyrir bragðið skýr og aðgengilegur.
Vandamálin eru dregin upp í stuttu
máli og svörin eru hnitmiðuð. Á
ýmsan hátt auðveldar slík bók
mönnum því að nálgast heim-
spekina. Gunnar er víðsýnn höf-
undur sem talar gegn fordómum og
fyrir jafnrétti og frelsi kynja, kyn-
þátta og allra undirokaðra. Heims-
mynd hans er skýr og vafningalaus
og texti hans skáldlegur. En slíkum
einföldunum fylgir einnig það að
ýmislegt er afgreitt fremur yf-
irborðslega.
Það er til dæmis ekki jafneinfalt
og Gunnar lætur í veðri vaka að af-
greiða tvíhyggju Kants sem ein-
hvern misskilning. Um hugmyndir
Kants varðandi hina tvenns konar
veruleikasýn, að líta á hlutina eða
fyrirbærin sem das Ding an mich
(hlutinn í mér, í minni vitund) og das
Ding an sich (hlutinn í sjálfum sér)
segir hann:,,Hluturinn eins og hann
er í sjálfum sér hefur enga merk-
ingu. Hlutur sem er ekki skynjaður
af neinni vitund hefur enga merk-
ingu. Vit, líf og tilgangur fara æv-
inlega saman. Þar sem er líf, þar er
vitund á einhverju stigi. Tilgang-
urinn er innbyggður í eðli allrar vit-
undar.“
Margs ber að gæta í slíkum al-
hæfingarklasa. Hluturinn í sjálfum
mér hefur t.a.m. heldur enga þýð-
ingu nema hann sé til í sjálfum sér
sem hlutur sem ég upplifi. Kannski
er það þó rétt hjá Gunnari að slík
andstæðuhugsun sé óþörf. En er þá
heimurinn eingungis til í skynjun
okkar og allt annað en það sem við
skynjum merkingarlaust? Er heim-
spekin þá eftir allt saman bara mál-
fræði? Merkingarfræði?
Mér finnst Gunnar skíða of glatt
yfir þetta skíðasvæði og sama má
raunar segja um þann kafla þar sem
hann tekur sér stöðu við hlið Leib-
niz sem segir að við lifum í besta
mögulega heimi vegna þess að heim-
urinn hafi ekki getað þróast öðru
vísi og betur til að líf kviknaði. Er
ekki samt möguleiki að heimurinn
geti orðið betri og hefði jafnvel get-
að orðið betri? Að þessu spurðu
rasjónalistar upplýsingarinnar.
Heimspeki Gunnars er hins vegar
tilgangshyggja. Hann gengur út frá
því sem gefnu að tilgangurinn sé
innbyggður í eðli allrar vitundar. En
er það svo víst?
Hér er ekki ætlunin að svara slík-
um spurningum út frá þessum þekk-
ingarfræðilegu hugleiðingum, ein-
ungis benda á að þekkingarfræðileg
afstaða Gunnars leiðir til þeirrar
meginhugsunar sem er í verki hans.
Hún er fremur huglæg og skáldleg
en rökræn og efnisleg og hún er um-
fram allt annað trúarheimspeki.
Hugsunin um guð er meginkjarninn
í verki hans. Á því sviði er styrkur
hugsunar hans mestur hvort sem
við tökum niðurstöður hans gildar
eður ei. Guð er
honum lifandi
veruleiki. Það er
hann, fyrirætlun
hans og samfélag
hans á jörðinni
sem gefur mann-
inum von. ,,Við
trúum því að
maðurinn verði
það sem honum
var ætlað vera. Sigur mannsins er
mikilvægur vegna þess að það sem
er mikilvægt fyrir hann er mik-
ilvægt fyrir alla sköpun guðs. Ham-
ingja okkar er hamingja þeirrar
heildar sem við erum brot af.“
En trú Gunnars er ekki bundin
einni kenningu þó að hann sé sann-
kristinn maður heldur visku sem
einna helst minnir á það sem aust-
rænir menn kalla Tao. Spurning-
unni Hvernig hugsar guð? svarar
hann svo: ,, Albert Eisntein er af
mörgum talinn vitrasti maður tutt-
ugustu aldarinnar. Hann sagði eitt
sinn: ,,Ég vil vita hvernig guð hugs-
ar.“ Þetta er undarlega mælt. Ef
guð hugsaði væri hann einfaldlega
ekki guð.“
Stórar spurningar er heim-
spekilegt rit stuttra greina þar sem
leitað er einfaldra svara við flóknum
spurningum. Hún hefur ótvíræða
kosti, skýra framsetningu og mark-
vissa rökræðu í huglægum anda.
Þótt hún veki jafnmargar spurn-
ingar og hún svarar og einfaldi við-
fangsefnin stundum fullmikið er hún
handhægt rit og aðgengilegt.
Huglæg svör við
stórum spurningum
BÆKUR
Heimspeki
eftir Gunnar Dal. - 419 bls.
Lafleur. 2005
Stórar spurningar
Gunnar Dal
Skafti Þ. Halldórsson
Út er komin bókin Health Policy
and Hospital Mergers: How the
impossible became possible sem
er doktorsritgerð Sigurbjargar Sig-
urgeirsdóttur.
„Þessi doktorsrannsókn tekur
til skoðunar aðdragandann að
ákvörðun um sameiningu sjúkra-
húsa í Reykjavík (Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Landspítala árið
2000) og Lundúnum (St. Thom-
as’s and Guy’s hospitals árið
1995). Hún fjallar um pólitík heil-
brigðis- og spítalamála í Reykjavík
og Lundúnum, og leitar svara við
spurningunni hvers vegna það
tókst að sameina þessi sjúkrahús
á síðasta áratug, þrátt fyrir ára-
langa andstöðu m.a. lækna við
þau áform. Athyglinni er sér-
staklega beint að áhrifum hug-
mynda í stjórnun og þætti ein-
staklinga, sem að málinu komu
með einum eða öðrum hætti í að-
dragandanum. Einstaklingar eru
nafngreindir í því skyni að draga
fram í dagsljósið hlutverk þeirra í
ákvörðunartökuferlinu og fram-
vindu þess.
Þetta er fyrsta rannsóknin á Ís-
landi þar sem athyglinni er sér-
staklega beint að stjórnsýslu heil-
brigðismála, en umræða um
heilbrigðismál á Íslandi hefur ann-
ars einkennst mjög af lækn-
isfræðilegri orðræðu. Þannig er
rannsókn Sigurbjargar gagnleg fyr-
ir fræðimenn, kennara og nem-
endur í félagsvísindum við
kennslu og frekari rannsóknir á
sviði stjórnmála- og stjórnsýslu-
fræða.
Bókin er 300 bls.
Viðmiðunarverð: 5.500 kr.
Nýjar bækur