Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Scary Movie 4 kl. 6 - 7 - 8 - 9 og 10 B.i. 10 ára
Firewall kl. 5.45 - 8 og 10:10 B.i. 16 ára
V for Vendetta kl. 5:50 - 8:15 og 10 B.i. 16 ára
The Matador kl. 6 og 8 B.i. 16 ára
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
SCARY MOVIE 4 kl. 8 - 10
FAILURE TO... kl. 8
FIREWALL kl. 10 B.i. 16 ára
SCARY MOVIE 4 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10
FAILURE TO... kl. 8 - 10
SYRIANA kl. 5:50
Sumum karlmönnum
þarf að ýta út úr hreiðrinu
Það fyndnasta sem
þú hefur nokkurn
tímann sagað!
MYND SEM
FÆR ÞIG TIL
AÐ TRYLLAST
AF HLÁTRI
Fjórði og síðasti kaflinn af þríleiknum
Ekkert er hættulegra
en maður sem er um
það bil að missa allt
STÆRSTA PÁSKAOPNUN ALLRA TÍMA Í USA
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
Söngvarinn Chris Martin, leiðtogihljómsveitarinnar Coldplay,
segist vera að íhuga að gerast nem-
andi í klassískri
tónlist þegar
hann verður orð-
inn of gamall til
þess að vera í
hljómsveit.
„Þegar ég verð
fertugur, of gam-
all til þess að
vera rokkstjarna,
þá hyggst ég fara aftur í skóla til
þess að nema klassíska tónlist,“
sagði Martin, sem er 29 ára gamall, í
viðtali við New York Post.
Martin hélt erindi eftir tónleika
Fílharmóníuhljómsveitar New York
borgar sem lék lög úr kvikmyndum
leikstjórans Stevens Spielbergs.
Leikstjórinn er guðfaðir leikkon-
unnar Gwyneth Paltrow, sem Mart-
in er kvæntur.
Hjónin voru viðstödd tónleikana
þremur vikum eftir að þeim fæddist
sonurinn Móses, en fyrir áttu þau
dótturina Apple sem er tæplega
tveggja ára gömul.
Martin fór ekkert nánar út í það
hvað hann hygðist gera á sviði klass-
ískrar tónlistar.
Í síðustu viku fékk Coldplay þrjár
tilnefningar á Ivor Novello tónlist-
arverðlaununum, en þar eru breskir
lagahöfundar, tónlistarútgefendur
og tónskáld verðlaunuð.
Lag þeirra „Speed of Sound“ var
á lista yfir alþjóðlegan smell ársins
og það lag sem er mest leikið. Þá var
lagið „Fix You“, sem er einnig að
finna á síðustu plötu sveitarinnar, á
lista yfir bestu lögin.
Fólk folk@mbl.is
Kvikmyndaleikarinn Tom Cruiseer sagður hafa skráð unnustu
sína Katie Holmes í stranga lík-
amsþjálfun til að
hún komist í
toppform fyrir
fyrirhugað brúð-
kaup þeirra síðar
í sumar.
Holmes, sem
fæddi fyrsta
barn þeirra fyrir
tveimur vikum,
er sögð stolt af því hversu ákafur
Cruise er í að fá hana í form og
heilsugúrúinn Brad Kaufman, sem
á að sjá um þjálfunina, segir ákafa
hans hafa afar hvetjandi áhrif á
hana.
Martin, faðir Holmes, er hins
vegar ekki jafn hrifinn af uppá-
tækinu. „Dóttir mín þarf á hvíld,
afslöppun og endurnæringu að
halda,“ segir hann í viðtali við
breska Reveal-tímaritið. „Katie
leggur þegar stund á æfingar sem
eiga að styrkja bak og axlir og ég
get bara alls ekki fallist á það sem
er að gerast,“ segir hann.
UPPISTAND verður haldið á Gauki
á Stöng í kvöld, en uppákoman er til
styrktar dagdeild hjúkrunarheim-
ilisins Eirar. Allur ágóði mun renna
óskiptur til deildarinnar. Þau sem
koma fram í kvöld eru Þórhallur
Þórhallsson, Oddur Eysteinn Frið-
riksson og Björk Jakobsdóttir. Í
fréttatilkynningu segir, að Þórhallur
sé hvað þekktastur fyrir að vera son-
ur Þórhalls Sigurðssonar eða Ladda,
en honum hefur gjarnan verið líkt
við Jim Carrey. Björk Jakobsdóttir
er einn af fáum kvenkyns uppistönd-
urum hér á landi, en hún þykir mjög
fyndin og má jafnvel heyra vott af
kvenrembu í uppistandi hennar.
Oddur Eysteinn Friðriksson er
þekktur fyrir svartan húmor, en
hann gerir töluvert grín að sjálfum
sér.
Það eru þeir félagar Oddur Ey-
steinn Friðriksson og Rökkvi Vé-
steinsson sem standa fyrir uppi-
standinu, en þeir hafa staðið fyrir
mánaðarlegu uppistandi um nokkurt
skeið, auk þess sem þeir halda úti
síðunni uppistand.is. Meðal þeirra,
sem hafa notið góðs af fyrri kvöld-
um, eru Samtök flogaveikra, Geð-
hjálp, Barnaspítali Hringsins og
krabbameinssjúk börn. Á meðal
þeirra, sem hafa komið fram, eru
Steinn Ármann Magnússon, Þor-
steinn Guðmundsson og Bjarni
töframaður.
Fólk | Uppistand á Gauki á Stöng í kvöld
Kvenremba og svartur húmor
Þeir Rökkvi Vésteinsson og Oddur Eysteinn Friðriksson hafa staðið fyrir
mánaðarlegu uppistandi um nokkurt skeið.
Uppistand á Gauki á Stöng í kvöld.
Fram koma Þórhallur Þórhallsson,
Oddur Eysteinn Friðriksson og
Björk Jakobsdóttir. Uppistandið
hefst kl. 21.30. Miðaverð er 500
kr. www.uppistand.is
ÍSLANDSMÓT barþjóna var hald-
ið á Nordica Hóteli á sunnudags-
kvöldið. Keppt var í gerð svokall-
aðra Long-drinks sem eru
drykkjarblöndur, fylltar upp með
gosdrykkjum eða ávaxtasöfum.
Íslandsmeistari varð Guðmundur
Sigtryggsson, barþjónn á Nordica
Hóteli, en sigurdrykkur Guð-
mundar nefnist Harpa.
Guðmundur verður fulltrúi Ís-
lands á heimsmeistaramóti bar-
þjóna sem fer fram í Grikklandi
dagana 4. til 9. október.
Í öðru sæti varð Valtýr Berg-
mann með drykkinn Sex Bomb og
í þriðja sæti hafnaði Þorkell
Freyr Sigurðsson með drykkinn
Vox.is.
Íslandsmót barþjóna
á Nordica Hóteli
Morgunblaðið/ÞÖK
Fagmannlega var að verki staðið við blöndun drykkjanna.
Árni Gunnarsson, barþjónn á Vínbarnum,
og blóðrauður drykkur hans.
Barþjónarnir Þorlákur Sveinsson og Danilo Oribe frá Úrú-
gvæ, sem er tvöfaldur heimsmeistari í „flair-barmennsku.“
Íslandsmeistarinn Guðmundur Sigtryggsson
blandar sigurdrykkinn Hörpu.