Morgunblaðið - 08.06.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 B 11
javík: 2102 km = 1 TVG
TVG-Zimsen gerir öll svona reikningsdæmi óþörf. Varan er komin á áfangastað áður en
þú færð nokkurn botn í þessi heilabrot. Við bjóðum upp á alhliða flutningaþjónustu
á hagstæðu verði. Hvar sem er, hvert sem er, hvenær sem er.
Það er aðeins eitt TVG-Zimsen.
Hafðu samband og fáðu lausn á þínum flutningsmálum.
TVG-Zimsen er traust flutningamiðlun sem byggir hæfni sína á sterkum,
alþjóðlegum samböndum og úrvalsstarfsfólki um allan heim.
TVG-Zimsen er elsta flutningamiðlun landsins.
Þ
að er langur vegur frá því að íslenskt lamba-
kjöt var sett á markað í Bandaríkjunum og
sérstaða þess og annarra íslenskra afurða á
þeim markaði hefur aukist til muna á þeim
árum sem bandaríska verslunarkeðjan
Whole Foods Markets hefur haft hana til
sölu. Julia Obici, framkvæmdastjóri hjá
Whole Foods segir að mikilvægt hafi verið í
upphafi að skilgreina vöruna sem sjálfbæra
vöru, en viðskiptavinum keðjunnar er mjög umhugað um um-
hverfið sem afurðirnar koma úr.
„Við hófum að selja íslenskt lambakjöt fyrir sex árum. Kjötið
seldist mjög illa þangað til við fórum að koma því áleiðis til við-
skiptavina okkar hvað fælist í íslensku vörunum í raun og veru.
Þá meina ég ekki aðeins gott bragð og vandaðar vörur heldur
einnig út frá því sjónarmiði að vörurnar eru sjálfbærar. Þar
sem viðskiptamannahópur okkar einkennist af umhverf-
isverndunarsinnum og neyslu á náttúrulegum afurðum þá heill-
aðist hópurinn af kjötinu. Við byggðum upp ágætis grunn fyrir
kjötsöluna og við í Whole Foods vorum mjög sátt með árang-
urinn. Því var ákveðið að auka vöruúrval íslenskra afurða, að
undanförnu höfum við verið að selja íslenskan lax, við urðum
fyrst til að setja skyrið á bandarískan markað, og það gengur
mjög vel, einnig höfum við verið að selja íslenskt súkkulaði og
ætlum síðan að flytja inn lýsi,“ sagði Obici.
Vilja fisk beint úr trillunni
Hún sagði að meginástæða ferðar hennar hingað til Íslands nú
væri að skoða fisk á Íslandi en til stendur að setja upp veglega
fisksölu í Whole Foods.
„Við ætlum að opna okkar eigin fiskvinnslu og við viljum
flytja inn fisk beint frá Íslandi og horfum sérstaklega til smá-
bátaútgerðarinnar í þeim efnum,“ sagði Obici en stefnt er að því
að viðskiptavinurinn geti rakið uppruna fisksins, hvar og hve-
nær hann er veiddur, hvaða skip veiddi hann og hver var skip-
stjóri skipsins.
„Auk þess verða frammi í verslunum okkar nánari upplýs-
ingar um skipstjóra bátanna þannig að nálægð viðskiptavin-
arins í Bandaríkjunum við skipstjórann verður töluvert meiri
en gengur og gerist.“
Hún sagði að skipstjórar smábátanna væru meira en reiðu-
búnir til að taka þátt í verkefninu: „Þeir skipstjórar sem við
höfum rætt við hafa verið mjög spenntir fyrir þessu verkefni,
og svo virðist sem þeir vilji meiri tengsl við neytandann,“ sagði
Obici en hún og samstarfsfélagar hennar sem voru með henni í
för höfðu deginum áður farið á veiðar með smábát til að kanna
aðstæður og líkað vel.
Sala á kjöti þrítugfaldast
Vafalaust þykir mörgum Bandaríkjamanninum sumar íslensk-
ar matvörur vera skrýtnar. Hvernig hafa þeir tekið þeim?
„Í fyrstu eru þeir mjög hissa, eins og t.d. með skyrið sem er
hornsteinn í mataræði ykkar Íslendinga. En um leið og við hóf-
um að kynna það fyrir viðskiptavinum okkar og leyfðum þeim
að prófa þá féllu þeir umsvifalaust fyrir því og salan hefur verið
mjög góð. Einnig hefur lambakjötið fest sig í sessi hjá okkar
viðskiptavinum, það liggur við að fólk bíði eftir að sláturtíð á Ís-
landi hefjist, svo mikil er eftirspurnin eftir kjötinu,“ sagði Obici
en sala á íslenska lambakjötinu hefur aukist úr 3 tonnum í 100
tonn á ári, síðustu sex ár.
En þarf að kenna Bandaríkjamönnum að meta íslenskar
vörur eða rekast þeir á þær í leit sinni að náttúrulegum afurð-
um? „Ég held að það sé hægt að útskýra þetta á tvennan hátt: Í
fyrsta lagi eru ákveðnir viðskiptavinir að leita að afurðum af
dýrum sem hafa fengið góða meðferð frá bændum og í öðru lagi
er það bragðið af afurðunum. Viðskiptavinahópur okkar er
mjög blandaður hvað varðar uppruna, kjarni okkar starfssemi
er í Washington, Philadelphia og Baltimore, og þeir leggja
mikla áherslu á bragðið, og íslenska lambakjötið og skyrið upp-
fylla þessar ströngu kröfur sem og laxinn,“ sagði Obici en ís-
lenska lambakjötið býr við mikla samkeppni frá lambakjöti alls-
staðar að úr heiminum.
Hátt verð aukaatriði
Aðspurð hvort íslenskar vörur væru samkeppnishæfar miðað
við vörur frá öðrum löndum sagði Obici svo vera tvímælalaust
ef litið væri á árangur þeirra. Þannig væri meira selt af lamba-
kjöti hjá Whole Foods frá Íslandi en Nýja-Sjálandi, sem væri
eitt stærsta lambakjötsframleiðsluland í heiminum. Einnig
tækju viðskiptavinirnir íslenskan lax fram yfir þann banda-
ríska.
Er hún var spurð hvort íslenskar vörur væru samkeppn-
ishæfar í verði benti hún á að íslenski laxinn kostaði mun meira
í innkaupum en annar lax. „Við höfum þó selt hann á sama verði
og annan lax þar sem við höfum óbilandi trú á þessari vöru. Að
undanförnu hefur íslenski laxinn lækkað í verði, og útsöluverð
hefur lækkað. Yfirleitt eru íslensku vörurnar yfirhöfuð dýrari
en ég ítreka það, að ef litið er á viðskiptavinahóp okkar, þá eru
þeir að leita að bragði og gæðum og þá skiptir verð minna
máli.“
Er annt um framleiðsluna
Obici segir Íslendinga mjög stolta af framleiðslu sinni „Við
fundum það í dag þegar við ræddum við aðila frá Hafrann-
sóknastofnun og sjávarútvegsráðuneytinu hvað þeim er mikið í
mun að vera í góðu samstarfi við sjómenn til að halda stofninum
góðum og framleiða góða vöru. Og þetta skilar sér án nokkurs
efa til neytandans,“ sagði Obici og bætti því við að starfsmenn
keðjunnar hefðu einnig farið í fjárréttir og þeirri upplifum hafi
verið skilað til kúnnans með góðum árangri. Hún tók einnig
fram að samskipti hennar og keðjunnar við íslensk stjórnvöld
hefðu verið mjög góð.
„Það er ótrúlegt hvað íslensk stjórnvöld eru opin fyrir nýj-
ungum og útflutningi á íslenskum afurðum. Það er gríðarlega
nauðsynlegt fyrir okkur að geta átt fundi með stjórnvöldum.
Eins og í dag, þá áttum við stuttan fund með sjávarútvegs-
ráðherra. Slíkt væri ógerlegt í Bandaríkjunum.“
En hvaða afurð skyldi vera eftirlæti hennar? „Það er dálítið
erfitt fyrir mig að svara þessu núna,“ segir Obici hlæjandi, „ég
er nefnilega nýhætt að borða kjöt og mér fannst lambakjötið
vera svo gott. En skyrið er í uppáhaldi núna, auk þess sem mér
finnst íslenska smjörið alveg einstakt,“ segir hún að lokum.
Bandaríkjamenn bíða
eftir íslenskri sláturtíð
Vel hefur gengið að selja íslenskar af-
urðir í verslunum Whole Foods Market í
Bandaríkjunum að undanförnu og var
Julia Obici, aðstoðarframkvæmdastjóri
Mið-Atlantshafsdeildar keðjunnar,
stödd hér á landi til að kynna sér
íslenska trillukarla og afurðir þeirra.
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson ræddi
við hana um sérstöðu íslenskra
afurða, skyr og lýsi.
Morgunblaðið/Eyþór
Bandaríkjamarkaður Julia Obici hjá Whole Foods Market segir
venjulega íslenska skyrið vera best, helst með engu.
Yfirleitt eru íslensku vörurnar yfirhöfuð
dýrari, en ég ítreka það, að ef litið er á
viðskiptavinahóp okkar, þá eru þeir að
leita að bragði og gæðum og þá skiptir
verð minna máli.
siggip@mbl.is