Morgunblaðið - 16.06.2006, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
HALLDÓR HÆTTUR
Halldór Ásgrímsson lét af emb-
ætti forsætisráðherra í gær eftir 19
ára ráðherraferil. Hann sagði að nú
væri rétti tíminn til að stíga til hliðar
en hann hyggst afsala sér þing-
mennsku á flokksþingi.
Handtökur í Karbala
Íraskir og bandarískir hermenn
handtóku í gær yfirmann héraðs-
ráðsins á Karbala-svæðinu og er
hann sagður hafa stýrt hryðjuverka-
hópum. Talsmenn stjórnvalda í Bag-
dad og Bandaríkjahers segja að mik-
ið af gagnlegum upplýsingum hafi
fundist í bækistöð Abu Musab al-
Zarqawis, leiðtoga al-Qaeda í land-
inu. Er fullyrt að samtök hans séu
nú í andarslitrunum.
Fimm nýir ráðherrar
Ríkisstjórn Geirs H. Haarde sat
sinn fyrsta ríkisráðsfund í gær eftir
að Halldór Ásgrímsson lét af emb-
ætti forsætisráðherra. Auk Geirs
tóku fjórir aðrir við nýju ráðuneyti,
Valgerður Sverrisdóttir tók við ut-
anríkisráðuneytinu, Jón Sigurðsson
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu,
Jónína Bjartmarz umhverfisráðu-
neytinu og Magnús Stefánsson fé-
lagsmálaráðuneytinu.
Blóðbað á Sri Lanka
Ljóst er að minnst 64 féllu og nær
80 særðust á Sri Lanka í gær þegar
jarðsprengja grandaði farþegarútu
um 20 km frá höfuðborginni Col-
ombo. Stjórnvöld kenndu Tamíla-
tígrunum um ódæðið en þeir höfn-
uðu þeim ásökunum og gáfu í skyn
að hópur, tengdur stjórnvöldum,
hefði verið að verki.
Íranar jákvæðir?
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
hitti forseta Írans, Mahmoud Ah-
madinejad, í Kína í gær og sagði Ír-
ana taka vel tillögum sem stórveldin
hafa sett fram um lausn deilunnar
um kjarnorkutilraunir.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 26
Viðskipti 16 Bréf 30
Úr verinu 16 Minningar 32/38
Erlent 18/19 Dagbók 42
Höfuðborgin 22 Víkverji 42
Akureyri 22 Velvakandi 43
Suðurnes 23 Staður og stund 44
Austurland 23 Menning 46/53
Landið 24 Bíó 50/53
Daglegt líf 24/25 Ljósvakamiðlar 54
Listir 26 Veður 55
Umræðan 30 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FYRSTI fundur nýs borgarráðs fór
fram í gær, og þar voru m.a. sam-
þykktar tillögur um átak í hreinsun-
armálum borgarinnar, úttekt á fjár-
málum borgarinnar og stofnun
samráðshóps við aldraða, segir Björn
Ingi Hrafnsson, sem stýrði sínum
fyrsta fundi sem formaður borgar-
ráðs í gær.
„Við samþykktum að skipa sam-
starfshóp við aldraða, sem í verða þrír
fulltrúar úr borgarstjórn, einn fulltrúi
frá Félagi eldri borgara í Reykjavík
og einn fulltrúi frá Samtökum aldr-
aðra. Hópurinn á að fara yfir búsetu-
mál, heimaþjónustu og annað sem til-
heyrir þjónustu við aldraða,“ segir
Björn Ingi.
Minnihlutinn í borgarstjórn lét
bóka að sjálfsagt væri að efna til
formlegs samráðs, en engin ástæða
væri til þess að takmarka samráðið,
enda hefðu fulltrúar eldri borgara
lagt áherslu á að hægt væri að taka öll
þeirra hagsmunamál upp á samráðs-
fundum.
Á fundinum var einnig samþykkt
að fenginn yrði óháður aðili til að gera
úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar í
upphafi nýs kjörtímabils. Minnihlut-
inn í borgarráði bókaði einnig um
þessa úttekt, og minnti á að endur-
skoðendur borgarinnar gerðu árlega
úttekt á fjármálunum. Í kjölfar um-
bóta hefði verið gengið sérstaklega úr
skugga um að þeir væru óháðir með
því að bjóða ytri endurskoðun út.
Tekin var fyrir tillaga fulltrúa Sam-
fylkingarinnar um stofnun samráðs-
hóps um mögulegar framkvæmdir á
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar, en tillögunni
var frestað að tillögu Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar borgarstjóra.
Fyrsti fundur
nýs borgarráðs
Tillögu minnihluta um samráð frestað
„HÉR hefur verið stöðugur straumur við-
skiptavina í allan morgun og í raun verið tvöfalt
meira að gera en venjulega,“ segir Jón R. Sveins-
son, apótekari í Garðs Apóteki á Sogavegi. Segist
Jón sannfærður um að hin aukna aðsókn tengist
nýlegri verðkönnun ASÍ á lyfseðilsskyldum lyfj-
um, en eins og fram kom í blaðinu í gær kom
Garðs Apótek afar vel út úr könnuninni og reynd-
ist oftast vera með lægsta verðið í henni.
Aðspurður segir Jón augljóst að neytendur séu
sér afar meðvitandi um lyfjaverð. Sagði hann
fjölda fólks úr hverfinu versla við apótekið enda
væri mikil ánægja með lágt lyfjaverð, en einnig
hefðu í gær ratað inn mörg ný andlit. Benti hann á
að margir þeirra sem væru á leið heim til sín í út-
hverfin með strætó kæmu gjarnan við, enda auð-
velt að koma því við með tilliti til samgangna.
Þegar blaðamaður leit inn í gær reyndist vera
stund milli stríða og gátu feðginin Jón og Gunn-
hildur ásamt Hildi Jónsdóttur lyfjatækni, sem
stóðu vaktina, aðeins andað rólegar. Einn fasta-
kúnni, Baldur Guðmundsson, leit þó inn. Tók hann
fram að lágt vöruverð væri meginforsenda þess
að hann veldi að leggja leið sína í Garðs Apótek.
„Tvöfalt meira að gera en vanalega“
Morgunblaðið/Kristinn
Jón R. Sveinsson, apótekari í Garðs Apóteki við Sogaveg, afgreiðir Baldur Guðmundsson.
Garðs Apótek kom mjög
vel út úr verðkönnun ASÍ
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt íslenska ríkið til að greiða
Stjörnugrís hf. 27 milljónir kr. í
skaðabætur vegna tjóns sem fyrir-
tækið varð fyrir vegna stjórnsýslu-
ákvarðana þáverandi umhverfisráð-
herra á árunum 1999 og 2000.
Snerist krafa Stjörnugríss um að
fyrirtækið hefði orðið fyrir fjárhags-
tjóni vegna seinkunar á byggingar-
og starfsleyfi vegna ákvörðunar þá-
verandi umhverfisráðherra um að
fyrirhugaðar framkvæmdir Stjörnu-
gríss, þ.e. bygging og rekstur svína-
bús fyrir allt að 8.000 grísi á Melum í
Leirár- og Melahreppi, væru háðar
umhverfismati. Þær framkvæmdir
væru þó ekki á meðal matsskyldra
framkvæmda sem taldar voru upp í
lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Var ákvörðun umhverfisráðherra
kærð og vannst málið í Hæstarétti í
apríl árið 2000. Í kjölfarið var aftur
farið fram á byggingarleyfi og breyt-
ingu á starfsleyfi vegna stækkunar
búsins, í þá stærð sem ráðgerð var í
upphafi. Á svipuðum tíma samþykkti
Alþingi ný lög um mat á umhverfis-
áhrifum, þar sem kveðið er á um að
stöðvar, þar sem fram fer þauleldi
svína með 3.000 stæði fyrir alisvín eða
fleiri, skuli ávallt háðar mati á um-
hverfisáhrifum. Lögin voru þó ekki
gengin í gildi þegar umsóknirnar voru
sendar.
Heilbrigðisnefnd tilkynnti Stjörnu-
grís, eftir álitsgjöf umhverfisráðu-
neytis, að fyrirtækið þyrfti að til-
kynna framkvæmdina til Skipulags-
stofnunar til mats á umhverfisáhrif-
um skv. ákvæðum nýju laganna.
Staðfesti umhverfisráðherra úr-
skurðinn, sem var kærður, m.a. á
þeim forsendum að eldri lög ættu að
gilda um umsóknir Stjörnugríss og
aftur vann fyrirtækið fyrir Hæsta-
rétti.
Krafðist 88 milljóna króna
Stjörnugrís fór í kjölfarið í mál við
ríkið og krafðist tæplega 88 milljóna
króna skaðabóta. Af hálfu fyrirtæk-
isins var á því byggt að ríkið hefði
með ákvörðun umhverfisráðherra, og
síðar úrskurði sama ráðherra, valdið
stefnanda fjárhagstjóni með ólög-
mætum hætti og bæri bótaábyrgð.
Byggt var á því að vegna hinna ólög-
mætu ákvarðana hefði fyrirtækið
hvorki getað reist svínabú sitt á Mel-
um í einu lagi né hafið þar fullan
rekstur á þeim tíma sem til stóð.
Byggingarkostnaður varð því meiri
og tveggja ára töf á að Stjörnugrís
kæmi búinu í fullan rekstur.
Af hálfu ríkisins var því vísað á bug
að um hlutlæga ábyrgð væri að ræða
og ekki var fallist á að skilyrði væru
uppfyllt um saknæma háttsemi til
stofnunar skaðabótaábyrgðar.
Í dómi héraðsdóms segir að niður-
staðan grundvallist á því, með vísun í
dóma Hæstaréttar, að um hafi verið
að ræða ólögmætar stjórnvalds-
ákvarðanir af hálfu umhverfisráð-
herra og með þeim hafi stofnast
skaðabótaábyrgð. Hins vegar segir að
hið bótaskylda tjón verði ekki ákvarð-
að með neinni nákvæmni og farið að
álitum um skaðabætur.
Héraðsdómur var fjölskipaður og
dæmdu málið Sigurður H. Stefánsson
héraðsdómari sem dómsformaður,
Ásgeir Magnússon héraðsdómari og
Stefán D. Franklín, löggiltur endur-
skoðandi. Guðjón Ólafur Jónsson hrl.
sótti málið af hálfu Stjörnugríss og
Guðrún M. Árnadóttir hrl. varði ríkið.
Íslenska ríkið dæmt til að greiða Stjörnugrís hf. 27 milljónir króna
Bótaskylt vegna stjórnvalds-
ákvarðana umhverfisráðherra