Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
En þú mátt ekki bjóða þig fram sem formann flokksins og þú mátt ekki skipta þér af varn-
arsamningnum, þú átt bara að vera þæg og góð.
Nýr meirihluti hefurnú formlega tekiðvið völdum í borg-
inni og kynnt málefnaá-
herslur sínar. Þar kennir
ýmissa grasa, meðal ann-
ars að ráðist verði í hreins-
unarátak í borginni,
gatnamót Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar
gerð mislæg og bygging
300 nýrra leigu- og þjón-
ustuíbúða undirbúin á
kjörtímabilinu. Í heildina
má segja að málefnaá-
herslurnar rími ágætlega
við tóninn í kosningabar-
áttunni þar sem velferðar- og fjöl-
skyldumál voru áberandi. Í bar-
áttunni kynntu flokkarnir
málefnaskrár sínar og það er for-
vitnilegt að bera þær saman við
áherslur sem meirihlutinn kynnti.
Hvernig skila loforðin sér inn í
málefnaáherslurnar?
Framsóknarflokkurinn lagði
mikla áherslu á flugvöll á Löngu-
skerjum og boðaði þjóðarsátt um
málið. Þá gagnrýndi Björn Ingi
Hrafsson, oddviti framsóknar-
manna, að stóru flokkarnir töluðu
óskýrt um málið.
Í grein í Morgunblaðinu hinn
13. apríl sl. sagði hann m.a.:
„Mikilvægt er að fyrir kosning-
ar liggi fyrir skýr afstaða flokk-
anna til þessa mikilvæga máls. B-
listinn hefur lagt fram sínar tillög-
ur og þær eru skýrar. Hver er
afstaða Samfylkingarinnar til
flugvallarmálsins? Hvað segja
sjálfstæðismenn? Það er ekki nóg
að benda á að nefnd muni skila
áliti sínu um málið eftir kosning-
ar.“
Þrátt fyrir þessi orð eru mál-
efnaáherslur meirihlutans um
staðsetningu flugvallarins enn
sem komið er ekki mjög afgerandi
en þar segir að ákvörðun um
framtíðarstaðsetningu innan-
landsflugvallar verði tekin á kjör-
tímabilinu. Á blaðamannafundi
oddvitanna á þriðjudaginn kom
svo fram að beðið yrði niðurstöðu
nefndar sem hefur það hlutverk
að skoða hugsanleg flugvallar-
stæði í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins en áætlað er að hún skili
af sér í haust. Þegar blaðið innti
Björn Inga eftir því hvort málef-
naáherslan væri nægilega skýr að
þessu leyti sagði hann það hafa
komið fram á blaðamannafundi
oddvitanna að beðið yrði eftir nið-
urstöðu nefndarinnar og að allir
kostir væru til skoðunar. Það að
ákvörðun verði tekin markar að
mati Björns ákveðin tímamót
enda hafi flugvallarmálið verið
pólitískt bitbein í 30–40 ár og
stefnt hafi í að svo yrði áfram.
Hins vegar lægi fyrir að fram-
sóknarmenn teldu Löngusker
heppilegasta kostinn.
Í málefnaskrá Framsóknar-
flokksins var einnig talað um að
Sundabraut skyldi lögð í botn-
göngum á ytri leið en í málefnaá-
herslunum er ekki tekið af skarið
með hvaða leið verði fyrir valinu.
Björn Ingi segir afstöðu Fram-
sóknarflokks liggja fyrir og að
ljóst sé að þrjár leiðir hafi farið í
umhverfismat þótt flestir séu
sammála um að innri leið sé í
mestri andstöðu við íbúana.
Ákvörðun verði tekin fyrir ára-
mót.
Þá töluðu framsóknarmenn um
byggingu vatnsrennibrautar sem
þeir kölluðu Vatnaveröld og að-
spurður sagði Björn Ingi að hann
hygðist beita sér fyrir því á kjör-
tímabilinu, til þess væru næg
tækifæri. Þá vildi Framsókn bjóða
upp á gjaldfrjálsan leikskóla, en í
málefnaáherslunum er talað um
25% lækkun á leikskólagjöldum 1.
september nk. og eitt fjölskyldu-
gjald.
Gjaldfrjáls leikskóli?
Hins vegar kemur fram að
gengið verði til viðræðna við rík-
isvaldið um mögulega þátttöku í
fjármögnun á frekari lækkun leik-
skólagjalda. Björn Ingi segir að
hvorugur flokkurinn útiloki að
leikskólar verði gerðir gjaldfrjáls-
ir og bendir á að fyrsta skrefið
sem tekið verði 1. september sé
stærra en R-listinn hafi ætlað sér.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
forseti borgarstjórnar, segir að
sjálfstæðismenn hafi aldrei útilok-
að gjaldfrjálsan leikskóla þótt
málið sé nokkuð umdeilt meðal al-
mennra flokksmanna. Gjaldfrelsi
verði að minnsta kosti ekki for-
gangsverkefni á þessu kjörtíma-
bili, heldur að tryggja þjónustu og
aðgengi að leikskólum.
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokks-
ins kom fram að flugvellinum yrði
fundinn annar staður á höfuðborg-
arsvæðinu án þess að tiltekið væri
nánar hvert hann færi. Hanna
Birna segir að í þessu orðalagi hafi
meðal annars falist að breytt lega í
Vatnsmýrinni væri einn þeirra
kosta sem horft yrði til. Aðspurð
hvort hún telji að flokkana muni
greina á um nýja staðsetningu
vallarins, í ljósi hugmynda Fram-
sóknarflokksins um Löngusker,
segist hún telja að svo verði ekki,
enda séu báðir flokkar sáttir við
að bíða niðurstöðu nefndarinnar
og taka svo ákvörðun.
Í málefnaskrá Sjálfstæðis-
flokksins var ennfremur talað um
að leggja Miklubraut að hluta í
stokk. Hanna Birna segir að þetta
mál verði skoðað samhliða mis-
lægum gatnamótum Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar.
Fréttaskýring | Hvaða stefnumál skiluðu
sér í málefnasamning meirihlutans?
Loforð og
veruleiki
Sáttmálinn segir að ákvörðun um flugvöll
verði tekin en ekki hvert hann fari
Oddvitar flokkanna kynna málefnaáherslur.
Skólabúningar teknir
upp í grunnskólum?
Eitt af því sem nýr meirihluti í
borginni kynnti í málefnaá-
herslum sínum er að kynna
grunnskólum í borginni kosti
þess að taka upp skólafatnað.
Framsóknarflokkurinn kynnti
þessa hugmynd í kosningabar-
áttunni og er málið lagt upp með
þeim hætti að skólastjórnendur
og samtök foreldra taki ákvörð-
un fyrir hvern skóla en Reykja-
víkurborg komi að kostnaði við
búningana. Þeir eru hugsaðir til
að draga úr einelti.
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Heildarnafnverð flokksins er 7.000.000.000 kr.
Skuldabréf 4. flokks 2006 eru gefin út til 5 ára og endurgreiðist verðbættur
höfuðstóll skuldarinnar í einu lagi þann 1. júní 2011. Vextir greiðast 1. júní
árlega, fyrst 1. júní 2007 og síðast 1. júní 2011. Útgáfudagur bréfanna er 1.
júní 2006. Skuldabréfin bera 5,10% fasta ársvexti. Auðkenni flokksins í
Kauphöll Íslands verður LAIS 06 4
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 20. júní 2006.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Verð-
bréfamiðlun Landsbankans, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu
og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að nálgast hjá Lands-
bankanum.
NAFNVERÐ ÚTGÁFU:
SKILMÁLAR SKULDABRÉFA:
SKRÁNINGARDAGUR:
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
31
72
06
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
31
72
06
/2
00
6
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Landsbanki Íslands hf.
7.000.000.000 kr.
4. flokkur 2006
BORIÐ hefur á erlendum fiðrildum
hér á landi í kjölfar suðvestanáttar
undanfarið. Að sögn Brynjúlfs
Brynjólfssonar á Höfn hefur óvenju-
mikið verið af fiðrildum í bænum.
Einnig hafa erlend fiðrildi glatt aug-
að á Selfossi og undir Eyjafjöllum.
Aðallega er um aðmíráls- og þistilf-
iðrildi að ræða.
Erlingur Ólafsson, skordýrafræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun, segir
að uppeldisstöðvar fiðrildanna séu í
S-Evrópu. Stundum verði fjöldinn
þar mjög mikill og fiðrildin rási þá
og tvístrist í allar áttir og stærstur
hlutinn lendi á stöðum þar sem fiðr-
ildin eigi enga lífsvon, en önnur lifi
af. Með þessu séu fiðrildin að reyna
að ná á þá staði þar sem þau eiga
lífsmöguleika og eru ekki jafn mörg.
Til að fiðrildin komist hingað
verða þau að halda sig á flugi alla
leiði, en vindurinn ræður stefnunni.
Það er því ótrúlegt afrek út af fyrir
sig að fiðrildin komist hingað. Eftir
komuna er ólíklegt að fiðrildin nái
að skjóta hér rótum, enda skortir
gróður og fleira til þess að svo megi
verða.
Fiðrildi eru meðal litfegurstu
skordýra heims. Lífshlaupið er þó
stutt; bróðurparti ævinnar eyða fiðr-
ildi sem gráðugar lirfur, garðeig-
endum til mikillar armæðu. Hópar
stórvaxinna og fagurlitaðra fiðrilda
virðast koma í bylgjum til landsins,
oftast í júní og ágúst.
Litrík fiðrildi gleðja augað
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson