Morgunblaðið - 16.06.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 9
FRÉTTIR
Nýtt kortatímabil
Kringlunni – sími 581 2300
KRINGLUKAST
25-30% afsláttur af valinni sumarvöru
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Léttar regnkápur
og úlpur
Buxur fyrir 17. júní
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Gleðilega þjóðhátíð
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Útsala 20-50%
afsláttur
HÆ Ð A R S M Á R A 4
S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
NÝTT
KORTA-
TÍMABIL ATH!
ný vefsíða
www.nc.is
Þjóðhátíðartilboð
Blússur - Toppar
20% afsláttur
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Acidophilus
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Magi og melting
„NOKKUR umfjöllun hefur verið
um verðhækkun á mjólk og mjólkur-
afurðum og áhrifum þeirra til hækk-
unar á vísitölu neysluverðs í júní. MS
hvetur til yfirvegaðrar umræðu um
verðlagsmál og bendir m.a. á að
verðhækkanir á mjólk undanfarið
eru fyrst og fremst til komnar vegna
minni meðgjafar smásöluverslunar-
innar með mjólkurvörum en áður.
Eftir sem áður ríkir mjög hörð sam-
keppni á íslenskum matvörumark-
aði,“ segir í fréttatilkynningu frá
MS.
„Í ljósi umræðunnar er rétt að eft-
irfarandi atriði komi fram:
Verðhækkanir á heildsöluverði
mjólkurafurða eru ákveðnar af Verð-
lagsnefnd búvöru. Frá 1. janúar 2003
til loka síðasta árs ríkti verðstöðvun
sem fólst í því að heildsöluverð
mjólkurafurða var óbreytt allan
þennan tíma. Þann 1. janúar síðast-
liðinn heimilaði Verðlagsnefndin
verðhækkun sem nam um 2% að
meðaltali fyrir mjólk og mjólkuraf-
urðir.
Mjólkuriðnað-
urinn í landinu
hefur búið við þá
stöðu, að hluti
smásöluverslunar
hefur selt mjólk-
urvörur undir
kostnaðarverði í
kjölfar verðstríðs
sem hófst í mars
2005.
Núverandi verðlagning á mjólkur-
vörum í lágvöruverðsverslunum er í
mörgum tilfellum enn undir kostn-
aðarverði. Sem dæmi má taka að
verð á einum lítra af léttmjólk var
um síðustu helgi á bilinu 69-70 kr á
sama tíma og skráð heildsöluverð
hjá MS er 79 krónur
Verðhækkanir á mjólk undanfarið
eru því fyrst og fremst til komnar
vegna minni meðgjafar smásölu-
verslunarinnar með mjólkurvörum
en áður. Sala á mjólkurvörum undir
kostnaðarverði verður að teljast sér-
stakt ástand sem mun líklega leita
aftur jafnvægis.“
Selja mjólk undir
kostnaðarverði
LÖGREGLUNNI í Borgarnesi barst
í fyrrakvöld tilkynning frá þremur
mönnum sem fest höfðu jeppa í
mýrlendi við Langavatn í Borgar-
firði. Björgunarsveitin Brák var
kölluð á staðinn en komst ekki að
mönnunum þar sem slóðinn sem
þeir höfðu farið var orðinn ófær
vegna vatnavaxta. Þurftu björg-
unarmenn að sigla á slöngubát upp
vatnið að Langavatnsdalsá til að
komast að mönnunum.
Mennirnir, ungir útivistarmenn
úr Reykjavík, höfðu hugsað sér að
fara í veiði við vatnið og voru fluttir
heim til sín að björgun lokinni. Allir
voru heilir á húfi en að sögn
björgunarmanna var einn þeirra
nokkuð kaldur. Höfðu þeir fest bíl
sinn um sjöleytið, en þrjá tíma tók
fyrir þá að ná farsímasambandi og
hringja í lögreglu. Þeir biðu svo eft-
ir aðstoð í jeppanum. Jeppinn mar-
ar enn í hálfu kafi í mýrinni og telja
björgunarmenn líklegt að gröfu
þurfi til að ná honum þaðan upp.
Festu bíl sinn
við Langavatn
NOKKUÐ hefur borið á því að und-
anförnu að íslenskum ferðamönnum
á Spáni sem velja að borga með
kreditkorti sé gert að kvitta fyrir
gjaldmiðlaskipti á sölustað að þeim
forspurðum. Gjaldmiðlaskipti fela í
sér að íslenskum kortahafa er boðið
að skrifa undir kreditkortanótuna í
íslenskum krónum í stað gjaldmiðils
viðkomandi lands.
Að sögn Ragnars Önundarsonar,
framkvæmdastjóra Kreditkorta hf.,
umboðsaðila Mastercard á Íslandi,
eru Spánverjar með þessu að brjóta
reglur kortafyrirtækja á alþjóðavísu,
því í þeim sé kveðið á um að söluaðila
sé skylt að vekja athygli viðskipta-
vina sinna á möguleikanum á gjald-
miðlaskiptum og bjóða slíkt, en hann
megi ekki þvinga viðskiptavininn til
þess. „Á Spáni hafa söluaðilar hins
vegar tekið upp á því að snúa úttekt-
um fólks óumbeðnir yfir í íslenskar
krónur og jafnvel bandaríkjadali,“
segir Ragnar, en þess ber að geta að
fyrir hver gjaldmiðlaskipti greiðir
viðskiptavinurinn að jafnaði 2–3% af
þeirri fjárhæð sem verslað er fyrir.
Umbreyti söluaðili á Spáni úttekt-
inni úr evrum í bandaríkjadali þarf
viðskiptavinurinn því fyrst að greiða
fyrir það og síðan aftur þegar upp-
hæðin í bandaríkjadölum er um-
reiknuð í íslenskar krónur í höfuð-
stöðvum Mastercard í Waterloo.
Ragnar hvetur korthafa sem
leggja leið sína til Spánar til að vera
á varðbergi gagnvart þessu og krefj-
ast þess að fá að borga í evrum en
láta ekki þröngva svona þjónustu
upp á sig óumbeðið. Bendir hann á
að gjaldmiðlaskiptin geti vissulega
verið þægileg til að átta sig á því
hvað hlutirnir raunverulega kosti
þegar um sé að ræða framandi mynt.
Korthafar verði á varðbergi
gagnvart óumbeðinni þjónustu