Morgunblaðið - 16.06.2006, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Var þetta góð
Listahátíð?
á morgun
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, lét af embætti forsætisráð-
herra á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær.
Þar með lauk samtals rúmlega nítján ára ráð-
herraferli hans. Hann sagði aðspurður við
fréttamenn eftir fundinn að tilfinningin væri
góð og að hann væri fyrst og fremst þakk-
látur á þessari stundu; þakklátur m.a. fyrir
þau tækifæri sem hann hefði fengið.
Halldór hyggst afsala sér þingmennsku eft-
ir flokksþing framsóknarmanna þriðju
helgina í ágúst, en þá lætur hann einnig af
formennsku í flokknum. Hann gaf ekkert upp
um það við fréttamenn í gær hvað hann hygð-
ist taka sér fyrir hendur eftir það. Hann
kvaðst aðspurður þó ekki vera á leið í Seðla-
bankann. „Nei, ég fer ekki í Seðlabankann,
ég get fullvissað ykkur um það að ég er ekk-
ert á leiðinni þangað.“
Inntur eftir því hver væri raunveruleg
ástæða þess að hann hygðist hverfa af vett-
vangi stjórnmálanna sagði hann að ástæð-
urnar væru margar: „Það er mín ákvörðun
að það sé rétti tíminn fyrir mig núna að stíga
til hliðar. Það gæti verið efni í nokkurra daga
viðtal að fjalla um það af hverju nákvæmlega.
Ég ætla ekki að fara út í það núna.“
Mikið af efnilegu fólki
Þegar Halldór var spurður hvað honum
fyndist standa upp úr á ferli sínum sagði
hann: „Það er svo margt, fyrst og fremst sá
árangur sem íslenskt þjóðfélag hefur náð.
Þegar ég var ungur maður og var að klára
gagnfræðaskóla var ekki sjálfsagt að fá frek-
ari menntun. Núna þykir það hins vegar sjálf-
sagt að nánast allt ungt fólk fari í háskóla.
Við eigum mikið af efnilegu ungu fólki, og ég
tel að Íslendingar hafi aldrei haft jafnmikla
möguleika inn í framtíðina og einmitt nú. Ég
hef fengið tækifæri til þess að vera með í
þessu og taka þátt í þessu og er þakklátur
fyrir það.“
Spurður áfram hvort kvótakerfið hefði
ekki sett sitt mark á feril hans svaraði hann
því til að margt hefði orðið til þess að bæta
hag Íslendinga. Kvótakerfið væri þar á með-
al. „Þegar ég kom í sjávarútvegsráðuneytið
1983 var sjávarútvegurinn nánast gjaldþrota
og það þurfti að endurskipuleggja hann.“ Sú
endurskipulagning, þ.e. kvótakerfið, hefði
lagt grundvöllinn að efnahagslegum stöð-
ugleika.
Halldór var einnig spurður hvort hann
væri enn sáttur við stuðning ríkisstjórn-
arinnar við innrásina í Írak. „Ég tel að það
hafi verið rétt á sínum tíma, við erum miklir
bandamenn bæði Breta og Bandaríkjamanna
á sviði öryggis- og varnarmála. Hins vegar
fengum við rangar upplýsingar – það liggur
fyrir – þannig að það má vel vera að við hefð-
um tekið aðra ákvörðun ef við hefðum haft
þær upplýsingar.“ Hann bætti því við að hann
vonaðist einlæglega til þess að friður kæmist
á í Írak.
Framtíð flokksins björt
Halldór sagði aðspurður að framtíð Fram-
sóknarflokksins væri björt. Flokkurinn ætti
mikið erindi við þjóðina. Í honum væri sömu-
leiðis mikið af ungu og efnilegu fólki. „Þegar
ég fer af vettvangi skapast svigrúm fyrir
þetta unga fólk,“ sagði hann og bætti því við
að það væri ánægjulegt að sjá þetta unga fólk
taka við. Halldór kvaðst ennfremur að-
spurður vonast til þess að sem mestur friður
yrði um kosningu nýs formanns flokksins.
Spurður um komu Jóns Sigurðssonar inn í
ríkisstjórnina, og hvort hann væri með því að
styðja hann til formennsku í flokknum, sagði
hann: „Koma Jóns Sigurðssonar inn í rík-
isstjórnina er að mínu mati mjög af hinu
góða. Ég tel að það styrki ríkisstjórnina. Jón
Sigurðsson hefur yfirburðaþekkingu að mínu
mati. Hann hefur gífurlega reynslu á nánast
öllum sviðum þjóðfélagsmála. Við Jón Sig-
urðsson höfum þekkst frá því við vorum sam-
an í gagnfræðaskóla og höfum haldið sam-
bandi síðan, þannig að ég tel að það sé mikill
styrkur fyrir Framsóknarflokkinn að fá hann
til starfa. Hver framtíð hans verður innan
flokksins ætla ég ekki að fullyrða, en hann er
maður sem bæði ég og ég held nánast allir
aðrir í Framsóknarflokknum hafa mikla trú
á.“
Morgunblaðið/RAX
„Ég fer ekki í Seðlabankann, ég get fullvissað ykkur um það að ég er ekkert á leiðinni þangað,“ sagði Halldór í gær.
Segir að nú sé rétti tíminn til að stíga til hliðar
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Halldór Ásgrímsson lætur af ráðherradómi og hyggst afsala sér þingmennsku eftir flokksþingið
Tillögur um hækkun
skattleysismarka
RÍKISSTJÓRNIN telur að hækka
megi skattleysismörkin verulega í
núverandi skattkerfi, en telur
óskynsamlegt að skipta um kerfi,
að því er fram kom í máli Halldórs
Ásgrímssonar, fráfarandi forsætis-
ráðherra, í gær. Ríkisstjórnin væri
sömuleiðis tilbúin til þess að fallast
á tillögur verkalýðshreyfingarinnar
varðandi barnabætur og vaxtabæt-
ur.
Halldór kvaðst telja að þetta
gæti liðkað fyrir samkomulagi um
framlengingu kjarasamninga. „Ég
hef talað við mjög marga í verka-
lýðshreyfingunni á undanförnum
dögum og vona það og trúi því að
það muni gerast, enda er það öllum
fyrir bestu.“
Hann kvaðst sömuleiðis vona að
samhliða viðræðunum um fram-
lengingu kjarasamninga yrði hægt
að ná samkomulagi við fulltrúa
eldri borgara um kjör þeirra. „Ég
átti langan fund með Ásmundi
Stefánssyni í gær og við gerum
okkur miklar vonir um það að í
tengslum við kjarasamningana geti
tekist að ná niðurstöðu með fulltrú-
um eldri borgara um kjör þeirra.“
Ásmundur stýrir nefnd um mál-
efni eldri borgara, en í nefndinni
eru fulltrúar stjórnvalda og eldri
borgara. Ásmundur sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að nefndin
hefði fundað vikulega að undan-
förnu. Hann gæti þó ekki sagt til
um það hvenær líklegt væri að hún
myndi komast að niðurstöðu.
Fundur var haldinn í gær og er
ráðgert að halda annan fund í
næstu viku.
Varnarviðræður í
Reykjavík 7. júlí
NÆSTI fundur Íslendinga og Banda-
ríkjamanna um framtíðarvarnir Ís-
lands verður haldinn 7. júlí nk. í
Reykjavík. „Ég geri mér vonir um að
við getum lokið því máli áður en langt
um líður,“ sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra í gær, en hann mun
hafa forystu í viðræðunum fyrir Ís-
lands hönd. Bandaríkjamenn hafa til-
nefnt sérstakan aðalsamningamann.
Halldór Ásgrímsson sagði við
fréttamenn í gær, eftir að hann lét af
ráðherradómi, að hann væri ekkert
sérstaklega bjartsýnn um framvindu
varnarviðræðnanna.
Halldór kvaðst nýverið hafa rætt
varnarmálin við Anders Fogh Rasm-
ussen, forsætisráðherra Danmerkur,
sem hefði rætt þau við Bush Banda-
ríkjaforseta. Síðan sagði Halldór:
„Hins vegar er ég ekkert sérstaklega
bjartsýnn á framvindu þess máls.
Varnarliðið er að fara og það eru
breyttir tímar. Við verðum einfald-
lega að sætta okkur við það og reyna
að byggja upp okkar öryggiskeðju
meira á eigin forsendum.“
Geir H. Haarde og Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra
munu funda með Jaap de Hoop Schef-
fer, framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, í ráðherrabú-
staðnum í dag. Halldór kvaðst binda
miklar vonir við þann fund.