Morgunblaðið - 16.06.2006, Qupperneq 20
♦♦♦
Arnarfjörður | Hátíðardagskrá verður á
Hrafnseyri við Arnarfjörð á þjóðhátíðar-
daginn, eins og venja er. Dagskrá hátíð-
arinnar á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar
forseta er þó glæsilegri en oft áður vegna
þess að þann dag hefst sumarháskólinn á
Hrafnseyri í fyrsta sinn en hann er sam-
starfsverkefni Háskólaseturs Vestfjarða
og Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri.
Dagskrá sumarháskólans hefst að
morgni 17. júní með ávarpi formanns
stjórnar Háskólaseturs Vestfjarða, og síð-
an taka við fyrirlestrar og pallborðsum-
ræður. Allir fyrirlestrar dagana 17. og 18.
júní eru opnir almenningi, en umfjöllunar-
efni sumarháskólans að þessu sinni er
safnahönnun og sýningargerð.
Sumarháskólinn
hefst á þjóðhátíð
Akranes | Framkvæmdum við Akranes-
höllina, fjölnota íþróttahúsið á Akranesi, er
ekki lokið. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir útlit fyrir að húsið verði tilbúið um
næstu mánaðamót.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað
á síðasta ári að láta byggja fjölnota íþrótta-
hús á íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum. Að
undangengnu útboði var samið við Svein-
björn Sigurðsson ehf. um byggingu húss-
ins. Átti verktaki að skila því fyrir fyrsta
þessa mánaðar. Stefnt hefur verið að
vígslu hússins á þjóðhátíðardaginn en Gísli
segir ljóst að það gangi ekki eftir. Enn sé
eftir nokkur vinna við lokafrágang. Sam-
kvæmt upplýsingum sem hann fékk í gær-
morgun má búast við að verktaki geti skil-
að af sér um næstu mánaðamót. Gísli tekur
fram að hægt sé að byrja að nota hluta
hússins fyrir þann tíma.
Samningsupphæð verktaka og bæjarins
var 375 milljónir kr. fyrir húsið sjálft en
jafnframt var samið um fleiri verk. Gísli
segir enn ekki unnt að segja til um end-
anlegan kostnað enda sé vitað um tilteknar
breytingar og aukaverk.
Í Akraneshöllinni sem er óupphitað hús
verður stór gervigrasvöllur og áhorfenda-
stæði fyrir 500 manns. Þar verður einnig
frjálsíþróttaaðstaða, meðal annars mikil
hlaupa- og göngubraut í kringum allan
völlinn. Gísli segir að því verði fylgt eftir að
þetta verði fjölnota íþróttahús sem iðkend-
ur ýmissa greina fái aðgang að ásamt al-
menningi.
Höllin tekin í
notkun um
mánaðamót
Davíð Hjálmar Har-aldsson flutti vís-ur á Hlíð, dval-
arheimili aldraðra á
Akureyri, og fékk yrk-
isefnið sinueldar. Gam-
almennunum stökk ekki
bros þegar hann flutti vís-
una:
Þótt tímabil hættu á bruna sé
búið,
bloti í haga og vætusöm tíð,
þá logar allt glatt sem er feyskið og
fúið
svo forðumst að kveikja í sinu við
Hlíð.
Vísa hans um sorp-
haugana vakti hins vegar
mikla kátínu:
Sorpinu ég sjálfur kem í lóg
svipað og hann afi forðum daga.
Gekk þá karlinn gjarna út í skóg,
gróf þar holu, skeit – og búin
saga.
Hjálmar Freysteinsson
flutti vísu sama kvöld um
kosningaskjálftann:
Margur pési mér er sendur
sem mark er ekki á takandi.
Skrítnir fuglar „frambjóðendur“
flögra um bæinn kvakandi.
Af sorpi og
sinueldum
pebl@mbl.is
Vátryggingafélag Ís-lands hefur gertsamstarfssamn-
inga við Íþróttafélagið
Völsung á Húsavík og
Hvalasafnið á Húsavík.
Samkvæmt þeim veitir
VÍS félögunum fjárstyrki
og annan stuðning. Mynd-
in var tekin eftir und-
irritun, f.v. Jóhann Krist-
inn Gunnarsson og Linda
Baldursdóttir frá Völ-
sungi, Ásbjörn Björg-
vinsson, Hvalasafninu og
Ásgeir Baldurs og Magn-
ús Þorvaldsson frá VÍS.
Samningur VÍS og
Völsungs er til þriggja
ára og nýtist öllum deild-
um félagsins, að því er
fram kemur í frétta-
tilkynningu. Keppn-
istreyjur allra flokka Völ-
sungs verða merktar VÍS.
Framlag fyrirtækisins
felst í fjárstyrk, gjöfum
og verðlaunum vegna
móta og bónusgreiðslum
ef lið félagsins kemst upp
um deild. Einnig styrkir
VÍS sérstaklega vímu-
varnarstefnu Völsungs.
Hvalasafnið hefur að
undanförnu verið að leita
samninga við stórfyr-
irtæki um styrki vegna
lokauppbyggingar safns-
ins. VÍS er fyrsta fyr-
irtækið sem gerir slíkan
samning við safnið. Veitir
það Hvalasafninu árlegt
fjárframlag. „Þessi mik-
ilsverði stuðningur VÍS
skiptir verulegu máli fyr-
ir Hvalasafnið sem nú er
að ljúka uppbyggingu á
nýjustu sýningu safnsins,
Ferðalagi um lífríki sjáv-
ar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hvalasafninu.
Morgunblaðið
VÍS styður Völsung og
Hvalasafnið á Húsavík
Fuglinn gæfur í Vigur | Eyjan Vigur á Ísa-
fjarðardjúpi var opnuð fyrir ferðamönnum
10. júní, eins og undanfarin ár. Lítill snjór
er í Vigur en mikið af fugli. Vesturferðir
skipuleggja ferðir frá Ísafirði alla daga
vikunnar á sumrin. Það vakti athygli
heimilisfólks í vor hvað fuglabyggðin er
þétt í kringum gönguleið ferðamanna og
hvað fuglinn er gæfur, segir í frétt frá
Vesturferðum. Hretið sem kom seinni-
hluta maí virtist ekki hafa teljandi áhrif á
varp fuglanna en lundi, teista og æðarfugl
eru helstu tegundirnar í Vigur.
Skrúðganga í Keflavík | Hátíðarhöldin á
þjóðhátíðardaginn í Reykjanesbæ hefjast
á hátíðarguðsþjónustu í Keflavíkurkirkju
kl. 12.30. Að henni lokinni verður skrúð-
ganga undir stjórn félaga úr skátafélaginu
Heiðabúum í skrúðgarðinn þar sem fram
fer hefðbundin þjóðhátíðardagskrá. Síðan
verður skemmtidagskrá sem íþrótta-
félögin Keflavík og Njarðvík sjá um og
loks kvöldskemmtun.
Gjafmildur bæjarstjóri | Ólafur Örn Ólafs-
son bæjarstjóri hyggst fljúga yfir Grinda-
vík á þjóðhátíðardaginn, 17. júní og varpa
karamellum til þegna sinna. Ef veður leyf-
ir svífa karamellurnar niður á Lands-
bankatúnið um klukkan 14.20. Annars er
dagskráin hefðbundin. Hún hefst með há-
tíðarguðsþjónustu í Grindavíkurkirkju kl.
13.30 og skrúðgöngu að Saltfisksetrinu
þar sem efnt verður til fjölbreyttrar dag-
skrár.
Frítt í sund | Nýkjörin bæjarstjórn
Hveragerðisbæjar samþykkti á fyrsta
fundi sínum að börn og unglingar í Hvera-
gerði fái frítt í sund í sundlauginni Lauga-
skarði frá og með næstu mánaðamótum. Í
greinargerð fulltrúa meirihluta sjálfstæð-
ismanna sem fluttu tillöguna er lögð
áhersla á mikilvægi aukinnar útivistar og
hreyfingar barna og unglinga. Tillagan
var samþykkt samhljóða með atkvæðum
allra bæjarfulltrúa.
Oddviti í Gautlöndum | Margrét Hólm
Valsdóttir á Gautlöndum var kjörin odd-
viti Skútustaðahrepps á fyrsta fundi ný-
kjörinnar sveitarstjórnar. Á Gautlöndum
hafa áður setið oddvitar sveitarinnar og
má minnast þess að Jón Gauti Pétursson
var oddviti í 48 ár eða til ársins 1966.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Mínstund frett@mbl.is
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Minnstaður
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Ólafsvík | Þegar sólin loksins skín þyrpast menn
út í garða til að fjarlægja illgresi og taka til. Þótt
Jón Steinn Halldórsson í Ólafsvík sé kominn hátt
á áttræðisaldurinn lætur hann ekki sitt eftir liggja
og tekur til hendinni í garði sínum.
Jón Steinn er gamall skipstjóri og útgerð-
armaður en er sestur í helgan stein fyrir nokkrum
árum. Hann var þó á skaki í fyrrasumar með vini
sínum. Hann hefur því betri tíma til að sinna garð-
inum en áður. Jón Steinn hefur alltaf verið ann-
álað snyrtimenni og ber garður hans þess merki.
Jón Steinn var að tína rusl og trjágreinar í poka
og hafði jafnframt til taks dagblað til að slá í burtu
flugurnar sem sóttu að honum í blíðunni.
Morgunblaðið/Alfons
Tími til að taka til í garðinum
Vorið
Stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins boðar til
aukaársfundar á Grand Hóteli í Reykjavík
föstudaginn 30. júní kl. 12 á hádegi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu
með málfrelsi og tillögurétt.
Stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins
Aukaársfundur
Samvinnulífeyrissjóðsins
Kynntar verða, og bornar undir atkvæði, tillögur
að breytingum á samþykktum sjóðsins vegna
sameiningar Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífiðnar
og einnig viðauki við samrunasamning sjóðanna.
Strax að loknum aukaársfundinum verður
stofnfundur nýs sameinaðs lífeyrissjóðs
Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífiðnar.