Morgunblaðið - 16.06.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 23
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Mjólkurþistill
Styrkir og hreinsar lifrina
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
SUÐURNES
AUSTURLAND
Reykjanesbær | „Auðvitað koma
hindranir þegar maður er í krefjandi
íþrótt eins og sundi, en þá stígur
maður bara yfir þær,“ sagði Birkir
Már Jónsson í samtali við blaða-
mann. Birkir Már hefur æft sund af
kappi í nokkur ár, nú með Íþrótta-
bandalagi Reykjanesbæjar. Hann
setti fyrr á þessu ári sitt fyrsta Ís-
landsmet í fullorðinsflokki og þykir
einn af efnilegustu sundmönnum
landsins.
Blaðamaður mælti sér mót við
Birki Má í Sundmiðstöð Keflavíkur
en þar dvelur hann löngum stundum.
Nú hafa sundiðkendur fengið 50
metra innilaug til viðbótar við 25
metra útilaug og Birkir Már sagði
það hafa verið nokkur viðbrigði að
fara að æfa í innilaug. „Þetta er allt
annað en ferska loftið úti,“ segir
Birkir Már um leið og hann tyllir sér
á sundlaugarbakkann fyrir mynda-
töku.
Birkir Már var sæmdur titlinum
Íþróttamaður Reykjanesbæjar um
síðustu áramót og er vel að þeim titli
kominn. Ekki aðeins hefur hann
sinnt íþrótt sinni vel, heldur gefur
hann sér tíma til að hvetja aðra
íþróttamenn í bæjarfélaginu til dáða,
enda ætti hann hvað best að vita
hversu mikilvægur stuðningurinn er
í íþróttum. „Ég er í trommusveit
ásamt níu öðrum strákum. Við förum
á alla körfuboltaleiki hjá Keflavík á
veturna og fótboltaleiki hjá Keflavík
á sumrin og hvetjum þá. Við fengum
þessa hugmynd fyrir tveimur árum
og erum að gera þetta okkur til
ánægju. Liðin hafa útvegað okkur
búninga og við fáum frítt inn á leiki.“
Birkir Már lauk þriðja ári í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja nú í vor og
hefur stundað námið af kappi með
fjögurra klukkustunda daglegum
sundæfingum og þrekæfingum
nokkrum sinnum í viku. Hann við-
urkennir að af og til komi hann að
hindrunum en yfir þær stígi hann.
„Ég gef mér líka tíma fyrir vinina,
verð að hafa rúm fyrir þá.“
– Finnst þér þú vera að missa af
einhverju?
„Nei, alls ekki. Vinir mínir eru allir
í íþróttum þannig að við erum ekkert
að djamma eða neitt svoleiðis,“ sagði
Birkir Már og kveðst sér meðvitandi
um að lifa heilbrigðu lífi og vera góð
fyrirmynd, þótt hann eigi sjálfur ekki
neina eina fyrirmynd.
Í lok maí hélt Birkir Már í æfinga-
og keppnisferð til Frakklands, en
þar fer fram fyrsta mótið í mótaröð
til undirbúnings fyrir Evrópumeist-
aramótið í 50 metra laug í Ungverja-
landi í sumar. Þar stefndi hann að því
að bæta Íslandsmetið í 200 metra
flugsundi sem hann setti á innan-
hússmeistaramóti Íslands í Laug-
ardalslauginni í mars síðastliðnum.
Hann segir að 200 metrarnir í bæði
flug- og skriðsundi séu hann sterk-
ustu greinar og að þeim einbeitir
hann sér á stórmótum.
Þegar talið berst að framtíðinni og
þeirri staðreynd að sundmenn eru
sjaldnast lengur að en til 25 ára ald-
urs ljóstrar hann því upp að hann sé
að hugsa um að lengja þann tíma.
„Þetta er aldurinn á Íslandi en sund-
menn eru yfirleitt lengur að úti. Ég
er að hugsa um að reyna að komast
til Bandaríkjanna í háskólanám og
þá á styrk. Ég þarf að taka svokallað
SAT-próf og sýna góðan árangur
bæði í sundi og í skólanum, þannig að
ég þarf að undirbúa við mig vel,“
sagði Birkir Már að lokum, ferskur
eftir góðan sprett í lauginni.
Stefnir að því
að lengja
keppnistíð sína
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ný aðstaða Sundmaðurinn Birkir Már Jónsson hefur hug á því að vera lengur að en almennt gerist á Íslandi og
stefnir á háskólanám í Bandaríkjunum. Hér situr hann á bakka nýju 50 metra innilaugarinnar í Reykjanesbæ.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Neskaupstaður | Nýbakaðar mæður notuðu tækifærið í
blíðunni austanlands í gær og færðu sig út í góða veðrið
með börnin. Þar sátu þær í makindum og fengu sér kaffi-
sopa og gulrætur þegar fréttaritara bar að. Þær hittast í
safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju einu sinni í viku á
svokölluðum mömmumorgnum, þar sem rætt er um
umönnun og velferð litlu krílanna og landsins gagn og
nauðsynjar.
Mömmumorgunn í blíðunni
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Boltinn byrjar | Malarvinnslubik-
arinn í knattspyrnu hefst sunnudag-
inn 18. júní, en dregið var um röðun
liðanna á fjölmennum fundi fulltrúa
þeirra. Ellefu lið hafa skráð sig til
leiks og verður leikið í tveimur riðl-
um fram í ágúst, en þá tekur við úr-
slitakeppni. Þrjú ný lið mæta til
leiks í ár sem ekki hafa tekið þátt í
Bikarkeppni UÍA áður en það eru
HRVFC, 06. apríl og Súlan. Liðin
koma af svæðinu frá Þórshöfn til
Hafnar í Hornafirði.
Keppninni verður gert hátt undir
höfði á vef UÍA, www.uia.is, þar sem
sett hefur verið upp sérstakt kerfi
sem sýnir komandi leiki, úrslit og
stöðu í riðlunum, auk gómsætrar og
grafískrar tölfræði um bæði lið og
leikmenn. Til að auka enn frekar á
spennuna býður kerfið upp á tipp-
keppni þar sem getspakir geta reynt
með sér.
Slökkviliðið í vettvangsferð |
Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum á
Héraði kynntu sér í vikunni að-
stæður í fallgöngum Kára-
hnjúkavirkjunar, í stöðvarhúsinu og
víðar á virkjunarsvæðinu. Tilefni
heimsóknarinnar er eldur sem
kviknaði í fallgöngum 2 síðastliðinn
mánudag. Fallgöng 2 voru opnuð á
nýjaleik á þriðjudag að lokinni vett-
vangsrannsókn og nú er beðið eftir
skýrslu lögreglu um orsakir íkvikn-
unar. Starfsmenn verktakans á
staðnum eru að hreinsa til og búa sig
undir að halda áfram að stálfóðra
fallgöngin. Verkið tefst í fáeina
daga, aðallega vegna þess að útvega
þarf tæki og búnað í stað þess sem
eyðilagðist.
Egilsstaðir | Stofnfundur Þekkingarnets Austurlands
(ÞNA) var haldinn í vikunni. Að stofnun netsins, sem nú
tekur við allri starfsemi Fræðslunets Austurlands,
standa 20 aðilar.
Tilgangur ÞNA er að stuðla að fjölbreyttri uppbygg-
ingu háskólanáms, símenntunar og rannsókna á Austur-
landi, vera samstarfsvettvangur fyrir aðila er vinna að
verkefnum á sviði rannsókna, háskóla- og símenntunar,
fjölþjóðlegra samstarfsverkefna, nýsköpunar og þróun-
ar.
Aðilar að ÞNA geta orðið stofnanir, félög og fyrirtæki
sem í rekstri sínum fást við rannsóknir, fræðslu, þróun
eða annað þekkingarstarf og tveir þriðju hlutar stofn-
enda samþykkja.
Stofnfé ÞNA er kr. 1.500.000 sem stofnendur greiða
með reiðufé, en tekjur eru samningsbundin framlög aðila
að netinu, opinber framlög, gjafir, styrkir og sjálfsaflafé.
Þekkingarnet Austurlands orðið að veruleika
Háskólanám,
símenntun og
rannsóknir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Á stofnfundi Guðrún Reykdal, framkvæmdastjóri
Þekkingarnets og Fræðslunets Austurlands, fyrir
miðju, Þuríður Backman alþingismaður t.h.
Ókeypis á Fransmenn | Í tilefni
þjóðhátíðardagsins 17. júní verður
ókeypis aðgangur á safnið Frans-
menn á Íslandi á Fáskrúðsfirði þann
dag. Í safninu eru miklar minjar um
veiðar franskra sjómanna á Fá-
skrúðsfirði. Öll húsin sem Frakkar
reistu standa enn og bera þess merki
að þau voru reist af stórhug.
Á franska kaffihúsinu, sem er í
sama húsi og safnið, er boðið upp á
dýrindis tertur, flestar með frönskum
blæ. Um helgina verður tilboð í tilefni
þjóðhátíðardagsins.
Gefið hefur verið út vandað göngu-
kort um Fáskrúðsfjörð, og er það
með ítarlegum upplýsingum um það
sem markvert er að sjá í þorpinu.