Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 33
MINNINGAR
og Sole Andrea. Guð gefi ykkur öllum
styrk í sorg ykkar.
Þórhallur, Sigurður,
Katrín og fjölskyldur.
Þegar vaknar vorsins ylur
vermir líf um alla jörð,
almættið sem enginn skilur
óvænt heggur dauða skörð.
Nú kom okkar vor sem vetur
vindar kaldir enginn þeyr,
ekkert sumar sælleg getur
Sóley okkar blómstrað meir.
(Baldur Jónasson.)
Farðu í friði, elsku frænka. Megi
góður Guð styðja og styrkja alla þína
ástvini.
Margrét og Guðrún Ína
Einarsdætur.
Svo viðkvæmt er lífið
sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir
þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu gengin á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Einar Steingrímsson.)
Elsku Sóley. Ótal minningar líða
um hugann er reynt er að horfa á þá
staðreynd að þú ert horfin okkur
svona ung í blóma lífsins. Þú varst að-
eins sex ára er leiðir okkar lágu fyrst
saman og fljótlega varðst þú eins og
litla systir mín. Við deildum saman
sorg og gleði og ég eignaðist trúnað
þinn. Er elsta barnið mitt fæddist
tókst þú hlutverk þitt sem föðursyst-
ir afar alvarlega. Aldrei kom annað
til greina en þú héldir Guðrúnu Soffíu
undir skírn þótt þú værir aðeins 17
ára. Alltaf varstu til í að passa og
taldir það meira að segja ekki eftir
þér að eyða verslunarmannahelgi í
barnapössun, sjálf táningur þá.
Ég vil með þessum fátæklegu orð-
um segja: Elsku Sóley, takk fyrir allt
og allt. Guð blessi minningu þína.
Ég og börnin mín vottum Soffíu,
Rúnari, Lars, Hirti, Soffíu Jonnu,
Solu, Ágústi, Kristjáni og öðrum ást-
vinum okkar innilegustu samúð og
biðjum Guð að gefa ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum.
Hulda.
Elsku hjartans vinkona mín. Að þú
skulir vera farin er mér lífsins
ómögulegt að skilja. Ég bíð enn eftir
að heyra röddina þína þegar síminn
hringir. Vitneskjan um dauða þinn er
svo óraunveruleg. Samleið okkar var
löng og við vorum eins og systur. Við
gerðum svo margt saman, kynnt-
umst lífinu með sorgum þess og gleði.
Ég man þá djúpu sorg þegar Hjörtur
bróðir þinn dó og við fundum hversu
lífið er fallvalt. Ég man gleðina þegar
Hjörtur sonur þinn leit fyrst dagsins
ljós. Ljúfsáran skírnardaginn hans
þar sem fortíð og framtíð kölluðust á
í nafninu sjálfu. Mitt í sorg minni nú
og söknuði er gott að hugsa til þess
að vel hefur verið tekið á móti þér.
Ég sé Hjört fyrir mér umfaðma þig
með ömmu Sóleyju og það linar að-
eins þann sára verk sem er í sálu
minni.
Ég man fallegan brúðkaupsdaginn
þinn, þar sem þú geislaðir af gleði og
hamingju. Þú hafðir fundið ástina í
lífi þínu og varst tilbúin að fórna
miklu til þess að njóta samvista við
elsku Lars. Þú fluttir frá landinu
okkar og lagðist í víking. Oft dáðist
ég að krafti þínum, jákvæðni og dug,
þar sem þú fluttir landa á milli, skap-
aðir ykkur fallegt heimili hvar sem
þið komuð og varst alltaf höfðingi
heim að sækja. Ég man þegar Soffía
fæddist og síðar Sóla. Þú varst orðin
þriggja barna móðir og gerðir það
með stæl. Í tæp tíu ár helgaðir þú alla
krafta þína börnum þínum, heimili og
manni. Þú umvafðir börnin þín elsku
og hlýju, gafst þeim allt það besta
sem nokkurt barn getur fengið.
Þeirra missir er sárastur og bið ég
góðan Guð að gæta þeirra allra. Miss-
ir foreldra þinna og bræðra er mikill
og enginn mannlegur skilningur sem
orkar að skilja þá þungu byrði sem
þau bera nú. Megi englar Guðs
styrkja þau öll, umvefja þau huggun
sinni og kærleika.
Við sem elskuðum þig erum öll að
missa hluta af okkur sjálfum. Þú
gafst ætíð svo mikið af sjálfri þér og
áttir þess vegna þinn djúpa stað í
hjarta okkar. Faðmlagið þitt mjúka
og hlýja, umhyggjusemi, uppörvandi
orðin þín og hressilegi andblær. Takk
fyrir það allt, elsku hjartans Sóley
mín.
Við ræddum það oft, að engu máli
skipti þótt hafið skildi okkur að. Við
værum svo nánar og góðar vinkonur
að vináttan væri hafinu og fjarlægð-
inni yfirsterkari. Vinátta okkar var
falleg og djúp og hún mun aldrei
deyja, elsku hjartans vinkona mín.
Hún mun aldrei deyja vegna þess að
kærleikurinn, það hljóða skapandi
vald Guðs, nær út yfir gröf og dauða.
Uns við hittumst næst.
Þín alltaf
Guðný.
Sumarið hefur tekið upp á því að
þrjóskast við að koma. Rigningin
sem beljar á íslenskri tilveru gæti allt
eins verið sorgin í brjósti landsins.
Eða þannig hugsaði ég daginn þegar
ég fregnaði af andláti fyrrverandi fé-
laga míns Sóleyjar Oddsdóttur. Væri
sumarið tilbúið að hafna því að koma
af því það slokknar á sál sem ber nafn
hennar skærustu blóma?
Ég svara því játandi. Vitanlega
stöðvast tilveran. Sumarið fer í upp-
reisn og þverskallast við. Birtan
dofnar og næturlangar sólarstundir
hætta við að skína. Sóleyin er fallin
og allt ætti að staldra við, mest þó af
því enginn skilur hvernig svona fal-
legt blóm fölnar allt í einu, án fyr-
irvara, og deyr.
Hún var félagi minn í Kvennaskól-
anum og í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og hún var félagi minn í
Ameríku. Ávallt var það hún sem
hafði frumkvæðið. Engu líkara en
hún hefði tveggja heima sýnina sem
aðeins næmustu sálir hafa og vissi að
frumkvæðið kæmi ekki frá mér.
Þannig var Sóley. Kom án þess að
hika og ávarpaði líf manns allt, spurði
um allt með opinn bjartan svip eins
og allar áhyggjur hefðu ákveðið að
hlífa henni. Hún var þannig: hug-
rökk, opin, hrein og bein, aðdáanleg í
heilbrigðri forvitni um líf annarra.
Í þessu örláta vinfengi bauð hún
mér heim stundum og kenndi mér að
spila billjard, hló að mér yfir klaufa-
skap mínum á sinn góðlátlega hátt. Í
menntaskóla kynnti hún mig fyrir
fallegustu mönnum sem ég hafði séð,
bræðrum sínum tveimur Hirti og
Kristjáni. Þeir voru gersemar fyrir
henni. Eins og hún voru þeir bjartir
félagar, opnir og sanngjarnir og
spjölluðu hiklaust um pólitík við unga
konu þótt hún væri miður sín af feim-
um. Svo varð mér um þegar Hjörtur
veiktist að ég átti engin orð en lang-
aði þó stöðugt að faðma hann þegar
við hittumst fyrir tilviljanir hér og
þar. Eins og ávallt létti Sóley fólki
hryggð með því að láta ekki af reisn-
inni sem hún bjó yfir við bróðurmis-
sinn sem var þó örugglega hennar
stærsti missir.
Í Ameríku tók hún mér af sömu
heilindum. Hló að mér um leið og hún
bauð mér inn í veröld sína af sama
heiðarlega hispursleysinu og ávallt
fyrr. Hún gerði mér Ameríku að
heimalandi á örskömmum tíma.
Svo var það í Edinborg, ekki alls
fyrir löngu, að ég sá hana standa í
anddyri hafnarkrár mitt í stórri há-
tíð. Hátíðin var við höfnina og á milli
hennar og mín var mikið mannhaf.
Ég gladdist óendanlega við að sjá
hana og ætlaði að arka í gegnum hóp-
inn og finna hana en ég hætti við af
því ég hélt það yrði til þess að trufla
eitthvert klukkuverk. Ég vissi um
leið að ef hún hefði séð mig hefði allt
mannhaf orðið að engu og hún hefði
fundið leið sína til mín. Þannig félagi
var hún, hrein og bein, gjöful, skýr og
björt, hógvær og kyrr í eigin einka-
heimum eins og blómið sem hún er
nefnd eftir.
Mig grunar að þó að sumarið neiti
að koma þá fjölgi sóleyjum ósjálfrátt
á brjósti þess lands sem ól hana.
Hvernig væri annað hægt? Bjartur
félagi er eilífur.
Um leið og ég votta fólkinu sem
næst Sóleyjunni stendur mína inni-
legustu samúð vil ég þakka þeim og
lífinu fyrir glóandi félaga sem minnti
stöðugt á, að fólk þarfnast þess að
vera séð og viðurkennt. Það gerði
þessi Sóley eins og aðrar sóleyjar
jarðarinnar, af náttúrlegri gáfu.
Gunnbjörg Óladóttir.
Ljós allra ljósa
bros
í björtum augum
fegurð
í friðsælli sálu
ást
í ungu hjarta.
(A.S.J.)
Okkur finnst það ótrúlegt en hún
Sóley vinkona okkar er dáin. Eftir
sitjum við með sorg og söknuð í hjarta
en eigum fallegar og ljúfar minningar
sem við leitum huggunar í.
Við kynntumst Sóleyju í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Við komum
hver úr sinni áttinni, ólíkar en fjör-
ugar stelpur sem tengdumst
tryggðaböndum í glugganum við
klukkuna. Fljótlega var stofnaður
saumaklúbbur og höfum við fylgst að
í gegnum lífið eftir að menntaskóla
lauk og gengið í gegnum súrt og sætt
í traustum félagsskap. Sú erfiða lífs-
reynsla að þurfa nú að fylgja vinkonu
okkar til grafar er eitthvað sem engin
okkar hafði nokkurn tímann leitt
hugann að. Margar minningar vakna
þegar við setjumst niður og minn-
umst Sóleyjar. Það fyrsta sem kemur
í hugann er hversu hreinskilin Sóley
var. Hún kom til dyranna eins og hún
var klædd, talaði um hin ýmsu mál-
efni af hispursleysi og var ekki feimin
við að tjá skoðanir sínar. Hún leit til-
veruna raunsæjum augum og með
vangaveltum sínum vakti hún okkur
oft til umhugsunar um staðreyndir
lífsins.
Annað sem kemur sterkt upp í
huga okkar er hversu hlý og um-
hyggjusöm Sóley var. Það sýndi sig
best í uppeldi barna hennar. Þau
voru hennar líf og yndi, hún sinnti
þeim af ást og alúð og velferð þeirra
gekk fyrir öllu öðru. Þessa hlýju
sýndi hún líka ættingjum sínum og
vinum. Þótt miklar fjarlægðir skildu
okkur að fylgdist hún vel með okkur
og fjölskyldum okkar og hafði ein-
lægan áhuga á því hvernig okkur
reiddi af í lífinu. Lífi sínu mætti hún,
hvar sem var í heiminum, með kær-
leika og jákvæðu hugarfari.
Ekki er hægt að hugsa til Sóleyjar
öðruvísi en að heyra hláturinn henn-
ar. Hún var hláturmild og gat hlegið
dátt að ólíklegustu hlutum. Það var
alltaf stutt í grínið og gleðina og hún
gerði óspart góðlátlegt grín að sjálfri
sér og öðrum.
Síðustu ár bjó Sóley erlendis með
fjölskyldu sinni en var þó alltaf hluti
af saumaklúbbnum. Hún kom heim
til Íslands nánast árlega og þá var
hist, spjallað, hlegið og kvöldið var
svo sannarlega okkar. Við héldum
tvisvar sinnum utan í heimsóknir til
hennar og voru það yndislegar og eft-
irminnilegar ferðir.
Sóley var ávallt höfðingi heim að
sækja og taldi það ekki eftir sér að
hýsa tíu saumaklúbbskellur í sínum
húsum.
Elsku Lars, Hjörtur, Soffía Jonna,
Sole Andrea, Soffía, Rúnar og aðrir
aðstandendur. Við biðjum góðan Guð
að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg.
Minningin um yndislega vinkonu lifir
í hjarta okkar.
Þúsund kossar.
Saumaklúbburinn.
Okkur langar með þessum fátæk-
legu orðum að kveðja kæra frænku.
Þú varst svo góð við okkur og faðmur
þinn ætíð svo hlýr. Alltaf þegar þú
komst til Íslands gafst þú okkur góð-
ar gjafir og við nutum þess að fá að
vera með þér og börnunum þínum.
Við eigum erfitt með að skilja að þú
komir aldrei aftur til okkar.
Elsku Sóley, hafðu þökk fyrir allt.
Við munum aldrei gleyma þér.
Ástarkveðja.
Björn, Oddur Rúnar,
Agnes og Hjörtur.
Fleiri minningargreinar um Sól-
eyju Huldu Oddsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: ÍR-
stelpurnar og Brynja Brynjars-
dóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar , tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN MARINÓ JÓNSSON
klæðskeri,
Mýrarvegi 113,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
19. júní kl. 13.30.
Hulda Jónatansdóttir,
Guðný Jónsdóttir, Ragnar Sverrisson,
Sigurbjörg Jónsdóttir, Birgir Arason,
Jón M. Jónsson, Brynja Sigurðardóttir,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og tengdasonar,
HAFÞÓRS SIGURGEIRSSONAR,
til heimilis á
Holtateigi 2, Akureyri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Sigríður Sigurðardóttir,
Soffía Margrét Hafþórsdóttir, Ólafur Hreinsson,
Sigurður Bjarni Hafþórsson, Heiðrún Þorsteinsdóttir,
Hafdís Sif Hafþórsdóttir, Ingi Torfi Sverrisson,
Helgi Freyr Hafþórsson, Eva Sandra Bentsdóttir,
Karen Ósk Ingadóttir,
Birta María Sigurðardóttir,
Sigurður Hannesson, Soffía Georgsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts
FRIÐRIKS ÁRSÆLS MAGNÚSSONAR,
Grundarvegi 2,
Ytri-Njarðvík.
Ada Elísabet Benjamínsdóttir,
Benjamín Friðriksson, Birna Magnúsdóttir,
Baldur Friðriksson, Lilja Björnsdóttir,
Magnús Friðriksson, María Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
GUÐMUNDAR FINNBOGASONAR,
Blöndubakka 5,
Reykjavík.
Valdís Jónsdóttir,
Björn Finnbogason,
Kristján Finnbogason, María Sonja Hjálmarsdóttir,
Arndís Finnbogadóttir,
Árni Þór Einarsson,
Guðrún, Þorgrímur, Dagný og Ásdís
Guðmundarbörn
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORLEIFUR JÓNSSON,
(Bói),
Vallarbarði 3,
Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild LSH Fossovogi fimmtudag-
inn 15. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Þorleifsson, Sigrún Pálsdóttir,
Gunnar Árni Þorleifsson, Theódóra Sif Pétursdóttir,
Sigurður Unnar Þorleifsson, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir,
Kolbrún Þorleifsdóttir, Harrý Samúel Herlufsen,
Símon Þorleifsson, Dorthe Møller Thorleifsson,
Harpa Þorleifsdóttir, Gestur Már Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.