Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Svo viðkvæmt er lífið
sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim
lögum
að beygja sig undir
þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
(Friðrik Steingrímsson.)
Elsku Sesar Þór.
Til hamingju með afmælið, þú
varst búinn að ákveða grill og fjör
með vinum þínum, en af því verður
ekki, þar sem þú varst hrifinn á
brott frá okkur svo alltof fljótt.
Það líður ekki sá dagur að við
hugsum ekki til þín, alltaf koma
minningar upp í hugann sem við
brosum að, það er enn erfitt að hafa
þig ekki hjá okkur.
Þú varst alltaf svo hress og kátur,
sást broslegu hliðarnar á öllu, gerðir
létt grín að þeim sem í kringum þig
voru. Knattspyrnan var þitt líf og
yndi, allt gekk upp hjá þér í vetur
með meistaraflokki Þórs. Það verð-
ur skemmtilegur leikur í kvöld, þar
sem þú mætir örugglega og fylgist
með þínum mönnum.
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)
SESAR ÞÓR
VIÐARSSON
✝ Sesar Þór Við-arsson fæddist á
Akureyri 16. júní
1986. Hann lést af
slysförum 4. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Akureyrarkirkju
17. mars.
Við söknum þín,
Guð geymi þig elsku
drengur.
Mamma og pabbi.
Elsku Sesar.
Okkur langaði að
skrifa til þín örfáar
línur í tilefni dagsins.
Í dag hefðir þú orðið
tvítugur og ætlaðir
þér að skemmta þér
vel þennan dag ásamt
öllum félögunum, þú
varst búinn að tala um
það. Alltaf rifjast upp minningar um
þig á hverjum degi og þá getum við
alltaf brosað. Viddi, stóri frændi
þinn, er að fara að byrja að æfa fót-
bolta með Þór um leið og hann hætt-
ir á leikskólanum í byrjun júlí, eins
og þú kannski veist ætlar hann sér
að verða betri en þú. Ég held samt
að hann þurfi að halda vel á spöð-
unum til að ná því. Hann er voða
spenntur yfir því að byrja í „bolta-
leik“ eins og þið kölluðuð það alltaf.
Hann þarf nefnilega að fá Þórsbún-
ing svo hann geti æft segir hann,
það á ekki að mæta á fyrstu æf-
inguna í KA-sokkum eins og þú
gerðir. Viddi saknar þín líka voða-
lega mikið eins og ég og á hverjum
degi tölum við um þig og það sem þú
gerðir fyrir okkur. Frá þessum
stutta tíma sem þú varst með okkur
eigum við margar minningar um
þig. Ég man eftir því þegar við vor-
um einu sinni að fara að djamma og
þú ákvaðst í hvaða fötum ég ætti að
fara, sem var bara skondið; fleginn
bolur, stuttar buxur og stígvél. Þú
varst bara fyndinn. Þú fórst líka í
brúnu peysunni minni þetta kvöld
og eins og þú veist þá varstu lang-
flottastur eins og þú varst alltaf.
Viddi saknar allra æfinganna ykkar
í sveitinni, armbeygja og magaæf-
inga sem þið voruð vanir að metast
um hvor ykkar gæti gert fleiri. En
mundu, Viddi getur enn bitið í tærn-
ar á sér eins og ég en það gast þú
ekki. Við vitum að þér líður vel og
vitum það líka að þú ert með okkur
og hjálpar okkur þegar þannig
stendur á hjá okkur.
Við áttum eftir að gera svo margt
saman en þú verður bara með okkur
í því „ósýnilegur“ eins og Viddi
myndi orða það.
Hafðu það gott kæri bróðir og
frændi, við hittumst þegar okkar
tími kemur.
Við Viddi elskum þig.
Þín systir
Sigrún.
Elsku Sesar.
Í dag hefðir þú orðið tvítugur …
Skrítið hvað tíminn er fljótur að líða,
man eins og það hefði gerst í gær er
við lékum okkur saman úti í sólinni á
sumrin er við vorum lítil, í alls konar
leikjum. Mun ætíð minnast þín,
besti leikfélaginn og litli bróðir.
Sumarið er komið og einnig stóri
afmælisdagurinn þinn sem þú hlakk-
aðir svo mikið til, grill og félagarnir
heima í sveitinni, eins og þegar þú
varst 18 ára.
Samt er erfitt að sjá þig ekki, þeg-
ar sumarið er komið, þú værir að
æfa og jafnvel að fara að spila í
kvöld með Þór gegn KA á 20 ára af-
mælinu þínu, skemmtileg tilviljun að
sá leikur skuli vera á afmælisdaginn
þinn, þar sem þú spilaðir þinn síð-
asta leik gegn KA og skoraðir þá
mark … Ég ætla á leikinn, veit að
þú verður þar að hjálpa strákunum
að vinna hann.
Það er svo erfitt að geta bara ekki
hringt í þig til að heyra rödd þína,
spaugið þitt og stríðnina. Ég veit að
þú ert nálægt mér og passar mig, en
ég vildi að ég gæti faðmað þig og
sagt þér að ég elska þig, talað um
„gömlu“ dagana, þar sem við lékum
okkur saman, eða þegar við unnum
hlið við hlið við sveitastörf á sumrin,
girða eða reka kýrnar.
Manstu þegar við tvö vorum að
girða kálfahólfið saman, án þess að
rífast … við vorum svo montin af
því! Ég hugsa alltaf til þín, á hverj-
um degi, hvernig er annað hægt
þegar svona yndislegur bróðir og
vinur er hrifsaður frá manni svona
snemma á lífsleiðinni? Hvíldu í friði
elsku bróðir, við sjáumst þegar minn
tími kemur … Þín systir
Sara.
FRÉTTIR
VEGNA viðtals við Theódóru Theó-
dórsdóttur, trúnaðarmann Eflingar-
stéttarfélags á elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund, í grein Morgun-
blaðsins ,,Þekking og reynsla metin
til náms“, sunnudaginn 11. júní, vill
Félag náms- og starfsráðgjafa koma
eftirfarandi athugasemd á framfæri:
„Ástæða er til að benda á að í við-
talinu er viðmælandinn að lýsa hlut-
verki sínu sem trúnaðarmanns á
vinnustað. Gera þarf greinarmun á
starfi trúnaðarmanns sem veitir
jafningjaráðgjöf og starfi náms- og
starfsráðgjafa. Hlutverk trúnaðar-
manns er m.a. að kalla til menntaða
náms- og starfsráðgjafa til að sinna
náms- og starfsráðgjöf á vinnustað.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
tók að sér framkvæmd námskeiðs-
ins ,,Námshvatning á vinnustað“
síðastliðinn vetur en það verkefni
fjallar um þjálfun trúnaðarmanna í
jafningjaráðgjöf sem felst m.a. í
upplýsingagjöf um hvaða möguleika
náms- og starfsráðgjöf veitir og
hvernig má komast í hana. Hér er á
ferðinni gott framtak til að gera
náms- og starfsráðgjöf sýnilegri og
aðgengilega öllum, viðamikið skref
til að gera fólk meðvitað um eigin
stöðu og hvaða möguleika það hefur
á áframhaldandi menntun og/eða
störfum.
Fagmennska og færni náms- og
starfsráðgjafa byggist á sérhæfðri
menntun þeirra. Nám í náms- og
starfsráðgjöf var stofnað við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands ár-
ið 1990. Frá þeim tíma hafa um 200
náms- og starfsráðgjafar útskrifast.
Meginmarkmið með náminu hefur
verið að veita fræðilega og verklega
menntun í náms- og starfsráðgjöf
og búa nemendur undir fræðilegt
starf á þessu sviði. Haustið 2004 var
í fyrsta sinn boðið upp á meistara-
gráðu í náms- og starfsráðgjöf og er
námið tvískipt 60 eininga nám og
lýkur fyrri hluta námsins með dip-
lómaprófi. Með tilkomu meistara-
námsins má segja að náms- og
starfsráðgjafar standi frammi fyrir
nýjum áskorunum og verkefnum.
Náms- og starfsráðgjöf er þjón-
usta sem ætti að vera sjálfsögð og
aðgengileg öllum í nútímaþjóðfélagi,
þjónusta sem er samofin í heildar-
starfsemi skóla og atvinnulífs.
Efling náms- og starfsráðgjafar
skiptir sköpum og tryggir sam-
keppnishæfni íslensks þjóðfélags.
Eitt af undirstöðunum í þeirri efl-
ingu er rannsóknartengt meistara-
nám sem bæði hefur hagnýtt og
fræðilegt gildi.“
Athugasemd frá
náms- og starfsráðgjöf
Þykir miður að uppstokkun hafi leitt til fækkunar kvenna
LANDSSAMBAND sjálfstæð-
iskvenna álítur það mikil vonbrigði
að við nýja ráðherraskiptingu í rík-
isstjórn hafi Sigríður Anna Þórð-
ardóttir þurft að víkja. „Sigríður
Anna hefur leyst verk umhverf-
isráðuneytis af stakri prýði þann
tíma sem hún hefur gegnt embætti
umhverfisráðherra. Hún var fyrst
sjálfstæðismanna til að gegna emb-
ætti umhverfisráðherra og í hennar
höndum hefur ráðuneytið unnið að
mörgum mikilvægum verkefnum,
sem sárt er að láta af hendi. Mikil
eftirsjá er að henni úr ríkisstjórn,
þar sem sterk sannfæring, sanngirni
og yfirvegun einkenndu störf henn-
ar. Sigríður Anna nýtur mikils
trausts meðal sjálfstæðismanna og
hefur hún gegnt mörgum mik-
ilvægum forystustörfum á vettvangi
flokksins og Alþingis á síðustu árum.
Þannig gegndi hún formennsku í
þingflokki sjálfstæðismanna á síð-
asta kjörtímabili og var jafnframt
forseti Norðurlandaráðs. Landsam-
band sjálfstæðiskvenna væntir mik-
ils af henni í forystustörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn hér eftir sem
hingað til.
Uppstokkun ríkisstjórnarinnar
var hins vegar óumflýjanleg eftir að
Halldór Ásgrímsson tilkynnti brott-
hvarf sitt úr stjórnmálum. Það þykir
þó miður að uppstokkunin hafi leitt
til fækkunar kvenna í ráðherraliði
Sjálfstæðisflokksins. Jafnréttisbar-
áttan þolir ekki að skref fram á við
séu tekin til baka. Það er von Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna að hlut-
ur kvenna aukist á Alþingi þegar
gengið verður til kosninga vorið
2007. Aukinn hlutur kvenna á Al-
þingi mun að vonum skila sér í aukn-
um hlut kvenna í ríkisstjórn, fái
Sjálfstæðisflokkurinn áframhald-
andi brautargengi til ríkisstjórn-
arsetu,“ segir í ályktuninni.