Morgunblaðið - 16.06.2006, Page 42
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ER ÞETTA EKKI
HUGGULEG STUND? EFLAUST!
MAÐUR OG
KÖTTURINN HANS!
EF ÞÉR
FINNST ÞAÐ
ÉG SAGÐI ALDREI AÐ
ÞÚ MÆTTIR SNERTA MIG
“ÓVÆNT„ SINFÓNÍA
HYDNS
KENNARINN MINN
SAGÐI ÞAÐ SAMA
OG PABBI
HEIMURINN ER VÍST EKKI
AÐ FARAST. ÞAÐ ER BARA
AÐ KOMA VETUR!
ÓTRÚLEGT AÐ PABBI
SKULI VITA SVONA HLUTI!
HVAÐ ER Í
MATINN, HELGA?
PENINGARNIR ERU BÚNIR
ÞANNIG AÐ ÞÚ FÆRÐ BARA
KÁSSU, BÚNA TIL ÚR
AFGÖNGUM MÁNAÐARINS
SVO ÞAÐ
SÉ
SAMRÆMI...
...ÞÁ ÆTTI ÉG AÐ KLÁRA
ALLT ÁFENGIÐ LÍKA
HÉRNA ER
ÞRÁÐLAUS
ÖRYGGIS-
HNAPPUR!
HVAÐ ÁTTU VIÐ?
ÞETTA ER BARA
HUNDAFLAUTA
JÁ, EF ÞÚ BLÆST Í HANA
ÞÁ KEMUR EINN AF OKKAR
ÞRAUTÞJÁLFUÐU
ÖRYGGISVÖRÐUM TIL
HJÁLPAR
NEMA EF
VIÐ ERUM
UPPTEKNIR
VIÐ AÐ
GRAFA
SUNDUR
GARÐINN
ÞINN!
HVENÆR ÆTLARÐU
AÐ HÆTTA ÞESSU,
ÁSTIN MÍN!?!
ÉG ER
UPPTEKIN, ÞEIR
GETA BEÐIÐ!
ÉG ER LÍKA UPPTEKINN
EN ÉG ER SAMT
EKKI SÓÐI!
ÞAÐ VARST
ÞÚ SEM HLEYP-
TIR KRÓKÓ-
DÍLUNUM ÚT,
EKKI SATT?
ÞÚ VINNUR
FYRIR
KRAVEN, ER
ÞAÐ EKKI?
ÉG ÞARF EKKI AÐ
SVARA ÞÉR!
ÞAÐ ER RÉTT
HJÁ ÞÉR
EN ÉG HELD AÐ EFTIR SMÁ STUND EIGI ÞIG
EFTIR AÐ DAUÐLANGA TIL ÞESS!
Dagbók
Í dag er föstudagur 16. júní, 167. dagur ársins 2006
Víkverji getur ekkistillt sig um að
fara nokkrum orðum
um bókabúðir í tilefni
af umræðu í Morg-
unblaðinu; Höskuldur
Ólafsson; Bókaþjóðin
sem les ekki bækur –
14. maí, Árni Matt-
híasson; Hví skyldum
við syrgja bókabúðir?
– 20. maí, og Pétur
Gunnarsson; Til varn-
ar bókabúðum – 3.
júní.
Þar sem Víkverji
varði bernsku sinni
voru tvær bókabúðir
og eins og eplin voru bækurnar boð-
berar jólanna. Það var svo spenn-
andi að sjá nýjar bækur birtast í
búðargluggunum og Víkverji treindi
sér svo lengi sem það var bærilegt
að fara inn. En svo héldu honum
engin bönd að upplifa hríslandi
gleðina, þegar hann handlék nýju
bækurnar, bar þær sem ekki voru
pakkaðar inn í plast, upp að vitum
sér og andaði að sér bókarilminum.
Þetta var svo sannarlega hátíðleg
stund, að ekki sé nú minnzt á það,
þegar sýniseintakinu var flett ofur-
varlega og kíkt í innihaldið. Það góða
við tvær bókabúðir var að þá var
hægt að valsa á milli og lesa svo
lengi sem stætt var
áður en einhver við-
skiptavinur vildi sjá
bókina eða þolinmæði
bóksalans þraut.
Reyndar held ég að
bóksalarnir á báðum
stöðum hafi vitað af
þessari áráttu Vík-
verja og séð í gegnum
fingur við hann, þegar
þeim var ljóst hversu
nærfærnum höndum
hann fór um bækurn-
ar. Víkverji einsetti
sér í upphafi hverrar
jólabókavertíðar að
láta vera þær bækur
sem hann vissi að myndu rata í jóla-
pakkann hans. En oftar en ekki
stóðst hann ekki mátið að kanna
hvaða ævintýrum Árni í Hraunkoti
lenti, fyrst aðeins til að fá sér for-
smekkinn, en áður en yfir lauk var
jólabókin til enda lesin við búðar-
borðið. Það gerði svo sem ekkert til,
því ekkert gat dregið úr þeirri nautn
að hreiðra um sig á aðfangadags-
kvöld með nammikörfuna innan seil-
ingar og lesa bókina sína.
Margt hefur elzt af Víkverja, en
bókabúðina má hann alls ekki missa.
Hann fær enn verk, ef of langur tími
líður á milli ferða þangað. Allt árið
um kring!
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tónlist | Vegleg útgáfuteiti var haldin í Þjóðleikhúskjallaranum í gær í til-
efni af nýjum tvöföldum geisladiski, Medio Tutissimus Ibis, með tónsmíðum
Ríkarðs Arnar Pálssonar. Á plötunni er að finna verk af ýmsum toga, allt frá
einleiksverkum upp í kórverk, og rösklega 140 tónlistarmenn sem hlut eiga
að útgáfunni. Við sama tækifæri var fagnað 60 ára afmæli Ríkarðs og fjöldi
ættingja og vina samgladdist honum á þessum tímamótum. Á myndinni ósk-
ar Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri Ríkarði til hamingju.
Morgunblaðið/Ómar
Fagnað með Ríkarði
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þess vegna skulum vér, meðan tími er til, gjöra öllum gott
og einkum trúbræðrum vorum. (Gal. 6, 10.)