Morgunblaðið - 16.06.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 43
DAGBÓK
Námsflokkar Reykjavíkur í samstarfi viðMími-símenntun, Alþjóðahús, ÍTR ogVinnuskóla Reykjavíkur, bjóða upp ásumarskóla og sumarnámskeið sér-
sniðin fyrir Reykvíkinga af erlendum uppruna.
Börnum á aldrinum 6–12 ára er boðið upp á
leikjanámskeið og klúbbastarf ÍTR með íslensk-
um börnum í sínu hverfi og fá að auki markvissa
málörvun. Unglingum frá 13 til 16 ára býðst eins
og innfæddum jafnöldrum þeirra að starfa í
Vinnuskólanum, en þeim stendur einnig til boða
að fá sérstaka kennslu í íslensku sem tengist dag-
legum störfum þeirra. Loks geta fullorðnir sótt
námskeið hjá Námsflokkunum þar sem kennd er
íslenska og hagnýt samfélagsatriði, og barnapöss-
un er í boði á meðan á námskeiðinu stendur.
Björg Árnadóttir er forstöðumaður Náms-
flokka Reykjavíkur: „Námsflokkarnir hafa í rúm
10 ár starfrækt sumarskóla fyrir útlendinga en
með skipulagsbreytingum sem gerðar voru hafa
orðið þær breytingar að Námsflokkarnir einbeita
sér að fræðslu sem snýr að fullorðnum en Vinnu-
skólinn og ÍTR hafa umsjón með námskeiðum fyr-
ir yngri aldurshópana,“ segir Björg.
„Sumarskólinn er samstarfsverkefni nokkurra
stofnana Reykjavíkurborgar og hefur það að
markmiði að auðvelda aðlögun innflytjenda á öll-
um aldri að íslensku samfélagi. Námskeiðin eru
sérstaklega ætluð fólki sem búið hefur hér á landi
skemur en í fjögur ár og tekur Reykjavíkurborg
þátt í kostnaði verkefnisins. Námskeiðin fyrir full-
orðna niðurgreiðir borgin til hálfs, en í mörgum
tilvikum styrkja verkalýðsfélög þátttakendur líka.
Einnig niðurgreiða sum önnur sveitarfélög nám-
skeiðið fyrir sína íbúa.“
Á sumarnámskeiðum fullorðinna fara um 80%
kennslutímans í íslenskukennslu og 20% í sam-
félagsfræðslu og vettvangsferðir: „Notaðar eru
fjölbreyttar kennsluaðferðir sem höfða til mis-
munandi námsnálgunar nemenda. Námsflokk-
arnir hafa á undanförnum árum þróað námsefni í
íslensku sem notað er við kennsluna. Samfélags-
fræðsla er í höndum Alþjóðahúss sem hefur útbú-
ið námsefni til þeirrar kennslu,“ segir Björg.
„Samfélagsfræðslan felst m.a. í að fræða um
réttindi og skyldur íslenskra borgara og um stofn-
anir borgarinnar, auk þess sem frætt er um sögu
lands og þjóðar og farið í vettvangsferðir.“
Björg segir sumarskólann hafa notið mikilla
vinsælda. Hvert námskeið spannar þrjár vikur og
er kennt á hverjum degi. Einnig eru í boði kvöld-
námskeið þar sem kennt er þrjú kvöld í viku í fjór-
ar vikur. Leitast er við að hafa nemendur í hópum
eftir upprunamálsvæðum.
Fyrstu námskeiðin hefjast 26. júní en frekari
upplýsingar má finna á www.namsflokkar.is,
www.itr.is og www.vinnuskoli.is. Skráning á nám-
skeið fyrir fullorðna er hjá Mími-símenntun í síma
580 1800.
Menntun | Íslenskukennsla og samfélagsfræðsla í boði fyrir innflytjendur á öllum aldri
Sumarnámskeið fyrir innflytjendur
Björg Árnadóttir
fæddist í Reykjavík
1957. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MT 1977,
myndlistarkennara-
prófi frá MHÍ 1983 og
námi við blaðam.deild
Kalix Folkhögskola
1989. Björg starfaði við
kennslu og blaða-
mennsku á Íslandi og í
Svíþjóð. Hún hefur
starfað við fullorðinsfræðslu og símenntun
um árabil og verið forstöðumaður Námsflokk-
anna síðan 2005. Hún stundar jafnframt
meistaranám í menntunarfræðum við HÍ.
Björg er gift Bjarna Bjarnasyni framkvstj.
og eiga þau þrjú börn.
Heimsleikar í Verona.
Norður
♠Á75
♥ÁK2
♦G532
♣D72
Vestur Austur
♠G1094 ♠32
♥84 ♥G95
♦ÁK109 ♦876
♣1094 ♣G8653
Suður
♠KD86
♥D10763
♦D4
♣ÁK
Opnu heimsleikarnir fara nú fram í
áttunda sinn í Verona á Ítalíu, en um
er að ræða fjölþætta bridshátíð, þar
sem keppt er bæði í tvímenningi og
sveitakeppni í mörgum flokkum. Slíkir
leikar voru fyrst haldnir árið 1978 og
hafa farið fram á fjögurra ára fresti
síðan.
Fyrsta mót leikanna var blandaður
tvímenningur, en þá spila saman karl
og kona. Sem er vinsælt keppnisform,
eins og sést af því að 481 par hóf
keppni. Bandarísk pör einokuðu verð-
launasætin í þetta sinn: Karen
McCallum og Matt Granovetter sigr-
uðu, Jill Levin og Bobby Levin urðu í
öðru sæti, og Joanna Stansby og Lew
Stansby hlutu bronsið.
Í spilinu að ofan gafst vel fyrir NS
að spila þrjú grönd frekar en fjögur
hjörtu, því ellefu slagir eru á borðinu í
báðum samningum. En margir enduðu
skiljanlega í fjórum hjörtum. Einn úr
þeim hópi var Frakkinn Alain Levy og
hann fékk að sjálfsögðu út tígulás.
Vestur gat tryggt sér gott skor með
því að taka líka á tígulkóng, en honum
hugnaðist ekki sú byrjun þegar makk-
er vísaði frá og Levy lét drottninguna
hiklaust undir tígulásinn! Vestur
skipti því yfir í spaðagosa í öðrum
slag. Levy þakkaði fyrir sig með því að
taka öll trompin og laufin, og þvinga
vestur til að henda frá spaðanum: tólf
slagir.
Viðamesta mót heimsleikanna í
Verona er vafalítið Rosenblum-sveita-
keppnin, en þar eru fjórir íslenskir
landsliðsmenn meðal þátttakenda,
þeir Magnús E. Magnússon, Matthías
Þorvaldsson, Bjarni H. Einarsson og
Sigurbjörn Haraldsson. Sveitakeppn-
in hófst á þriðjudaginn með þátttöku
173 sveita. Í fyrsta áfanga er liðunum
skipt í 16 riðla, en fjórar efstu í hverj-
um riðli halda áfram keppni og spila
langa útsláttarleiki þar til ein sveit
stendur uppi ósigruð.
Þegar þetta er ritað, eftir tveggja
daga keppni, eru Íslendingarnir lang-
efstir í sínum riðli. Meira um það á
morgun.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. d4 Be7
5. Bg2 O-O 6. O-O dxc4 7. Re5 Rc6 8.
Rxc6 bxc6 9. Rc3 Hb8 10. Da4 Hb4
11. Dxa7 Rd5 12. Hd1 Bb7 13. e4
Dd7 14. exd5 cxd5 15. a3 Hb3 16.
Ra4 Ha8 17. Rc5 Bxc5 18. Dxc5 Hb5
19. b4 Hxc5 20. bxc5 Bc6 21. Bd2 Ba4
22. He1 Bc2 23. Bf3 Hb8 24. Bb4 Da4
25. Bd1 Bxd1 26. Hexd1 h5 27. h4 f6
28. Hac1 c6 29. He1 Kf7 30. He3 He8
31. f4 Kg6 32. Kh2 e5 33. Kh3 e4 34.
Kg2 Kf5 35. Kh3 Hb8 36. Hec3 Hxb4
37. axb4 Dxb4 38. H1c2 Db1 39. Hc1
Staðan kom upp í opnum flokki á
Ólympíuskákmótinu sem lauk fyrir
skömmu í Torínó á Ítalíu. Norski
stórmeistarinn Leif Erlend Johann-
essen (2559) hafði svart gegn Ade-
rito Pedro (2308) frá Angóla. 39...
Dd3! og hvítur gafst upp enda taflið
tapað eftir 40. Hxd3 exd3 41. Hd1
Ke4 þar eð svörtu frípeðin væru
óstöðvandi.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
„Skipta um stóla“
ALLUR hamagangurinn og stóla-
skiptin hjá ríkisstjórninni minnti
mig á gamlan samkvæmisleik sem
við krakkarnir lékum okkur í. Hann
var kallaður Skipta um stóla. Settir
voru stólar í hring og voru þeir mun
færri en þátttakendur og einn var
stjórnandi. Þegar hann hafði látið
liðið hlaupa nokkra hringi í kringum
stólana sagði hann stopp og þá var
oft ansi mikið brölt að ná sér í sæti
og sumir urðu heppnir og aðrir ekki.
Í viðtali í sjónvarpinu við Halldór
Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráð-
herra, stóð Jónína Bjartmarz fyrir
aftan hann og brosti mikið, brún og
sæt enda mikill lukkudagur hjá
henni, nýbúin að fá stól umhverfis-
ráðherra. Ég vil óska henni til ham-
ingju með stólinn og óska henni vel-
farnaðar í starfi.
En hún var ekki eins ánægð og
brosandi, einstæða fátæka móðirin
sem ég heimsótti um helgina eftir að
hún hringdi til mín. Hún hafði lent í
miklum veikindum og nú var svo
komið að hún átti ekki lengur fyrir
mat handa börnunum. Þessi saga er
ekkert einsdæmi í velferðarríkinu
Íslandi. Því miður allt of margir sem
svona erfitt eiga. Stjórnvöld spá ekki
mikið í þessi málefni enda svo upp-
teknir af sínu valdabrölti.
Fjölmiðlarnir eru stútfullir af
fréttum um þetta allt saman en það
þykir víst ekki eins fréttnæmt að
fólki eigi ekki fyrir mat handa börn-
unum sínum. Ég heyri sjaldnast
nokkuð um það í fjölmiðlum. Mér
þætti gaman að vita hvert fram-
haldið yrði í ríkisstjórninni. Hvort
nú muni komast á friður eða hvort
haldið verður áfram að skipta um
stóla fram á næsta vor. En eitt er
víst að fyrir kosningarnar næsta vor
mun verða lofað og lofað öllu fögru.
En þegar sigur er í höfn á kosn-
inganótt gleymast oft furðu fljótt
loforðin við fólkið. Þannig hefur það
alltaf verið og mun verða uns kjós-
endur stíga á bremsurnar og segja
stopp.
Sigrún Á. Reynisdóttir,
form. Samtaka gegn fátækt.
Mjög ánægð
ÉG er mjög ánægð með Ragnhildi
Steinunni í Kastljósinu, hún er frá-
bær og yndisleg stúlka. Eins er ég
ánægð með morgunleikfimina með
henni Halldóru á RÚV.
Ég var að lesa fyndna auglýsingu
um tilboð á íslenska fánanum:
Eigum til nokkra íslenska fána, full-
vaxna.
Anna.
Kettlinga vantar
gott heimili
TVÆR 9 vikna fallegar, yndislegar,
læður vantar gott heimili. Kassa-
vanar og blíðar. Upplýsingar í síma
557 3959 og 864 9477.
Lykill í óskilum
LYKILL á kippu merktur „Raf-
magn“ fannst á göngustígnum fyrir
ofan Menntaskólann í Hamrahlíð.
Upplýsingar hjá Úrsúlu í síma
692 5585.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
GULLBRÚÐKAUP | Í dag, 16. júní,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin
Rósa Sigurðardóttir og Gunnar
Jóhannesson. Heimili þeirra er í
Seattle í Bandaríkjunum. Þau eru að
heiman í dag.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
VADDÝ (Valgerður Ingólfs-
dóttir) heldur málverkasýn-
ingu dagana 15.–30. júní nk.
Á sýningunni verða akrýl-,
vatnslita-, olíu- og pastel-
myndir málaðar eingöngu
eftir íslenskum fyrirmynd-
um. Landslags-, dýra- og
götumyndir úr Reykjavík
eru efni í verkum hennar.
Þetta er önnur sýning Vaddýjar hér á landi, en hún hefur búið erlendis í
rúma þrjá áratugi og hefur tekið þátt í samsýningum í Bandaríkjunum.
Vaddý sýnir á
Byggðasafninu á
Garðskaga
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verður í Þingvallakirkju 17. júní kl. 14. Dr.
Pétur Pétursson, prófessor, predikar, sr. Kristján Valur Ingólfsson þjónar
fyrir altari. Björn Davíð Kristjánsson leikur á flautu. Sönghópur undir
stjórn Margrétar Bóasdóttur syngur. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Messa fellur niður sunnudaginn 18. júní.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Guðsþjónusta í Þingvallakirkju 17. júní
ÞESSI ungi ferðamaður gat ekki á
sér setið að smella af mynd þar sem
hann stóð undir loftskreytingu á
lestarstöð Kölnarborgar.
Fótboltaæði hefur gripið heims-
byggðina og orðið listamanni inn-
blástur til að skapa þetta verk sem
minnir óneitanlega um margt á
meistaraverk Michelangelos í
Sixtusarkapellunni í Róm.
Reuters
Fótboltamenn í skýjunum