Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 49
ÓLÖF Arnalds býður til list-
viðburðar í Tjarnarbíói í dag, föstu-
dag.
Hún byrjar dagskrá kvöldsins
með flutningi eigin laga en eftir hlé
sýnir Ólöf verkið Eins og sagt er.
„Þetta eru frekar stutt lög sem
hafa verið að mótast hjá mér í tölu-
verðan tíma, dúkka upp í kollinum.
Ég nota þetta tækifæri til að hleypa
þeim úr sekknum og koma í fastara
form,“ segir Ólöf sem mun í fram-
haldinu taka upp lögin og gefa út
með haustinu hjá 12 Tónum.
„Þetta á að vera alþýðutónlist,
eitthvað sem fólk á auðvelt með að
njóta, án þess að vera beinlínis arg-
asta popp,“ útskýrir Ólöf um það
sem tónleikagestir mega eiga von á.
Ólöf annast sjálf undirleik á gítar og
perúvískan charanga-smágítar.
Á átján tungum
Myndbands- og tónlistarverkið
Eins og sagt er hefur vakið mikla at-
hygli en verkið vann Ólöf sem út-
skriftarverk frá tónsmíða- og ný-
miðlunardeild Listaháskóla Íslands.
Í verkinu skeytir Ólöf saman níu
myndrömmum þar sem hún leikur á
fjölda hljóðfæra og syngur texta á 18
tungumálum alls: Textunum sem
sungnir eru safnaði Ólöf á ferðum
sínum um New York-borg, þar sem
hún komst í kynni við 17 manns af
ólíkum þjóðernum. Hún tók við fólk-
ið viðtöl um uppruna þeirra, mik-
ilvægi móðurmáls þeirra og tónlist-
arinnar. „Samtalið leiddist alltaf út í
að ég fékk þau til að skrifa eitthvað
um tónlist á sínu eigin tungumáli og
lesa það fyrir mig. Ég nótnasetti
textana og byggði á hrynjandi og
tíðni talaðs máls á hinum ólíku
tungumálum.“
Tónlist | Ólöf Arnalds í Tjarnarbíói
Myndbands- og tónlistarverk Ólafar hefur vakið mikla athygli.
Hugmyndunum
hleypt úr sekknum
Tónleikarnir í Tjarnarbíói hefjast
kl. 20. Aðgangseyrir er 500 kr.
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
græn tónleikaröð í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Vladimir Ashkenazy
Einleikari ::: Bryndís Halla Gylfadóttir
Í KVÖLD, FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
Þorkell Sigurbjörnsson ::: Sumartónar
Edward Elgar ::: Sellókonsert í e-moll
Pjotr Tsjajkovskíj ::: Sinfónía nr. 4
FL Group er aðalstyrktaraðili
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ashkenazy
stjórnar
Opið hús að Selfossi 5,
Sunnudaginn 18. júní frá kl. 15-17.
Upplýsingar á fasteignasölunni Bakka í síma 482 4000
Einbýlishús byggt 1981. 4 herbergi, 2
stofur. Stærð 214,1m2. Stærð bílskúrs
47,8m2. Stórt, vandað og fallegt einbýl-
ishús á tveimur hæðum ásamt stórum
bílskúr. Húsið stendur á eignarlóð á
einum albesta stað bænum og útsýnið
gerist ekki öllu betra. Neðri hæðin er
öll flísalögð. Þar er forstofuherbergi,
gestasnyrting, þvottahús, borðstofa,
eldhúsið og stofan og út úr henni er nýr mjög vandaður sólskáli. Uppi er
rúmgott sjóvarpshol, baðherbergi og svefnherbergin. Þessi eign hefur
fengið mjög góða umhirðu. Verönd nánast í kringum húsið. Húsið er í
einkasölu hjá Bakka þar sem nánari upplýsingar eru gefnar. Verð 49 millj.
Sólstöðuhátíð víkinga
í Hafnarfirði 16.- 25. júní 2006
Fjörukráin þakkar eftirtöldum aðilum fyrir stuðninginn:
Fjörukráin
Sími 565-1213
www.fjorukrain.is
Föstudaginn 16. júní kl.17.00 hefst víkingahátíð við Fjörukrána í Hafnarfirði. Bardagamenn og bogaskyttur,
glímumenn og útskurðarmenn, steinhöggvarar og járnsmiðir, sögumenn og seiðkonur, tónlistarmenn og galdramenn.
Sænski sögumaðurinn Jerker Fahlström rifjar upp ævintýri Ása og hinna fornu goða er hann segir okkur frá Ásaþór,
Loka og þeim félögum. Jerker er orðinn fastur liður og segir sögur sínar á íslensku.
Rimmugýgur, hafnfirski bardaga- og handverkshópurinn sér um bardagana ásamt Jómsvíkingunum alþjóðlegum
hópi úrvalsvíkinga. Annar íslenskur víkingahópur, Hringhorni frá Akranesi sýnir leiki fornmanna.
Fjöldi handverksmanna, íslenskra sem erlendra verða á markaðnum.
Norska víkingahljómsveitin Skvaldr og hin dansk-íslenska Kráka munu skemmta gestum alla dagana.
Dansleikir öll kvöld, Hollenska raggea hljómsveitin Five-4-vibes og hljómsveit Hilmars Sverrissonar.
Opið verður alla daga frá 16. til 18. júní og aftur 23. til 25. júní. Kynnir hátíðarinnar er Steinn Ármann Magnússon.
ATH: Dagskrá Sólstöðuhátíðarinnar er á heimasíðunni: fjorukrain.is