Morgunblaðið - 16.06.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.06.2006, Qupperneq 2
100. LANDSLEIKUR KVENNA 2 D FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins ÍSLAND hefur þrisvar mætt portúgalska kvennalandsliðinu, í öll skiptin í vináttuleikjum. Farið var ytra 1995 þar sem leiknir voru tveir leikir. Þeir töpuðust 2:1 og 3:2. Ísland lék svo ytra aftur árið 1997 og lauk þeim leik með markalausu jafntefli. Portúgal hefur leik- ið fimm leiki í riðlinum og tapað þeim öllum. Liðið er í neðsta sæti 2. riðils, en Svíþjóð er efst með 13 stig og Tékkland í öðru sæti með 10. Ísland er í þriðja sæti en á leik til góða. Portúgal hefur líkt og Ísland aldrei komist á stórmót í knattspyrnu kvenna. Portúgal er númer 45 á heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins en Ísland er númer 18. Aldrei unnið Portúgal Ísland er með sjö stig í riðlinum eft-ir fjóra leiki en Portúgal hefur ekkert stig eftir fimm leiki og markatala liðsins er 2:19. „Já, það segir nú ekki alla söguna þó marka- talan sé óhagstæð hjá þeim. Það gæti hins vegar ef til vill truflað okk- ur eitthvað. Ég hef verið að skoða upptökur af leikjum þeirra og þetta er sýnd veiði en ekki gefin. Þarna eru flinkar stelpur sem þurfa kannski ekki nema einn leik til að fá sjálfstraust. Við þurfum því að vera vel undirbúin og koma gríðarlega vel stemmd til leiks. Við ætlum ekki að láta þetta verða leikinn sem lætur Portúgal fá sjálfstraust. Það verður allt gert til að koma í veg fyrir það,“ sagði Jörundur Áki. Hann viðurkenndi að staða Ís- lands í riðlinum yrði ágæt með góð- um sigri. „Já, við yrðum þá með tíu stig líkt og Tékkar sem unnu Portú- gal 6:0 í Tékklandi um daginn. Markatalan yrði þá líklega Tékkum í hag í baráttu okkar við þá. Það er stefnan hjá okkur að fagna sigri – og að ná í þau þrjú stig sem eru í boði. Þá eigum við Tékka og Svía hér heima seinna í sumar.“ Ísland og Portúgal hafa leikið þrí- vegis og alltaf í Portúgal. Fyrstu tveir leikirnir töpuðust með einu marki, 2:1 og 3:2, í júní 1995 en liðin gerðu markalaust jafntefli í mars 1997. Jörundur Áki sagði að Guðlaug Jónsdóttir og Guðbjörg Gunnars- dóttir ættu við einhver smávægileg meiðsli að stríða. „Síðan er það auð- vitað slæmt að Ásthildur [Helgadótt- ir] verður ekki með okkur og við verðum að fylla þá stöðu. Hún fékk klaufalegt spjald í leiknum við Hvít- Rússa og missir því af þessum tíma- mótaleik, sem er leiðinlegt fyrir hana enda er hún búin að leika þá marga. Ég trúi því og treysti að stelpurnar muni gera þennan dag eftirminnileg- an bæði fyrir okkur og hana og alla þá sem taka þátt í leiknum og mæta á völlinn,“ sagði Jörundur Áki Tengdafaðir Jörundar Áka, Sigur- bergur Sigsteinsson, var landsliðs- þjálfari kvenna og hann stýrði ein- mitt landsliðinu þegar það vann sinn fyrsta sigur. Það var 19. ágúst 1985 sem íslenska liðið lagði Sviss ytra, 3:2. Það var níundi landsleikur ís- lenskra kvenna og síðan hefur liðið leikið 90 leiki. Heimtar tengdapabbi ekki alltaf sigur? „Jú, jú, hann gerir það auðvitað, en hann veit hvað það er að vera landsliðsþjálfari þannig að hann er ekkert að nudda mér upp úr því ef illa gengur. Hann veit að þá borgar sig bara að þegja og leyfa mönnum að vera í friði,“ sagði Jörundur Áki. Morgunblaðið/Kristinn Landsliðsstúlkurnar voru mættar á æfingu í Laugardalnum í gærkvöldi til að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Portúgal. Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Portúgal á Laugardalsvellinum, sem er 100. landsleikur Íslands Stefnan hjá okkur er að fagna sigri „ÞETTA er tímamótaleikur og hann leggst mjög vel í okkur,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari kvenna, í sam- tali við Morgunblaðið eftir lands- liðsæfingu í gær. Íslenska kvennalandsliðið mætir Portúgal í 100. landsleik sínum á Laug- ardalsvelli á sunnudaginn, en leikurinn er í undankeppni HM. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Jörundur Áki Sveinsson stjórnar landsliðsæfingu í gærkvöldi. ÞAÐ er danskt dómaratríó sem stjórnar ferðinni í leik Íslands og Portúgals á Laugardalsvellinum kl. 16. Dómarinn heitir Marianne Svendsen. Henni til aðstoðar verða Jesper Petersen og Lars Poulsen. Fjórði dómari er svo Eyjólfur Ágúst Finnsson.  Eftirlitsmaður UEFA er Sheila Begbie frá Skotlandi. Hún er yfir- maður kvennaknattspyrnumála í Skotlandi og á að baki farsælan feril sem leikmaður og einnig þjálfari.  Hún lék sinn fyrsta landsleik aðeins 15 ára og var fyrirliði skoska landsliðsins um tíma. Hún var einmitt í skoska landsliðinu sem lék gegn Íslandi í fyrsta A-landsleik Íslands fyrir 25 árum.  Frítt er á leikinn og eru allir knattspyrnuáhugamenn hvattir til þess að hvetja stelpurnar til dáða. Danskir dómarar Markverðir: Þóra B. Helgadóttir, Breiðabliki Guðbjörg Gunnarsdóttir, Val Aðrir leikmenn: Guðlaug Jónsdóttir, Breiðabliki Kristín Jónsdóttir, Val Edda Garðarsdóttir, Breiðabliki Guðrún S. Gunnarsd., Breiðabliki Margrét Lára Viðarsdóttir, Val Dóra Stefánsdóttir, Malmö FF Hólmfríður Magnúsdóttir, KR Dóra María Lárusdóttir, Val Málfríður E. Sigurðardóttir, Val Erna B. Sigurðard., Breiðabliki Erla S. Arnardóttir, Mallbackens Ásta Árnadóttir, Val Ólína G. Viðarsdóttir, Breiðabliki Greta M. Samúelsd., Breiðabliki Harpa Þorsteinsd., Stjörnunni Guðný Björk Óðinsdóttir, Val  Þóra B. er fyrirliði.  Guðný Björk er nýliði. Landslið Íslands Svíþjóð ................................5 4 1 0 20:6 13 Tékkland ............................5 3 1 1 13:9 10 Ísland..................................4 2 1 1 7:4 7 Hvíta-Rússland..................5 1 1 3 3:12 4 Portúgal..............................5 0 0 5 2:19 0 STAÐAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.