Morgunblaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
0,91% í Kauphöll Íslands í gær og
var 5.425 stig við lok viðskipta. Lít-
il velta var á hlutabréfamarkaði og
voru aðeins gerð viðskipti fyrir 845
milljónir króna. Velta á skuldabréfa-
markaði var 11,8 milljarðar króna.
Bréf Össurar hækkuð mest í við-
skiptum gærdagsins eða um
0,46%, bréf Marels hækkuðu um
0,28% en önnur bréf hækkuðu
ekki.
Hlutabréf Straums-Burðaráss fjár-
festingabanka lækkuðu um 3,43% í
gær. Bréf FL Group lækkuðu um
2,34% og bréf Dagsbrúnar lækkuðu
um 1,9%.
Hlutabréf lækka
● FL GROUP tilkynnti til Kauphallar
í gær um þátttöku félagsins í fjár-
festafélaginu Unity Investments
ehf. ásamt Baugi og Kevin Stan-
ford. Breskir miðlar höfðu greint
frá stofnun félagsins í síðustu viku
en nú hefur verið upplýst um
skiptingu hlutafjár, þar sem FL
Group og Baugur eiga hvor um sig
37,5% og Kevin Stanford, stofn-
andi Karen Millen verslananna, á
25% hlut. Er Unity, sem stjórnað
verður frá Íslandi, ætlað að taka
stöður í skráðum félögum, einkum
breskum smásölufyrirtækjum. Inn
í Unity koma eignir í breskum fé-
lögum; 20% hlutur í French Con-
nection, 28,5% í Moss Bros og
12% í Woolworths.
Unity Investment
stýrt frá Íslandi
● FRAKKINN Noel Forgeard, annar
forstjóra evrópska flugvéla- og
vopnaframleiðslurisans EADS, og
Þjóðverjinn Gustav Humbert, forstjóri
Airbus, sögðu af sér um helgina
vegna tafa á framleiðslu risaþot-
unnar Airbus A380. Louis Gallois,
forstjóri franska lestafyrirtækisins
SNFC, á að taka við af Forgeard sem
annar forstjóra EADS. Hinn forstjór-
inn, Þjóðverjinn Thomas Enders, læt-
ur ekki af störfum. Christian Streiff,
sem var einn af æðstu stjórnendum
franska iðnfyrirtækisins Saint Goba-
in, verður forstjóri Airbus. Fast hafði
verið lagt að Forgeard að hætta eftir
að skýrt var frá því að hann hefði selt
hlutabréf sín í EADS nokkru áður en
tilkynnt var um tafir á Airbus risavél-
inni.
Forstjórar EADS og
Airbus segja af sér
● LYFJAFYRIRTÆKIÐ Barr sendi frá
sér tilkynningu í gær þar sem haft er
eftir Bruce Downey, stjórnarfor-
manni og fram-
kvæmdastjóra
félagsins, að
hann sé öruggur
um að hluthafar
Pliva muni taka tilboði Barr. Segir
Downey að það sem skipti máli sé
að Barr eignist yfir 50% hlutafjár í
Pliva. Ekki skipti máli hver eigi minni-
hluta í félaginu.
Actavis hefur einnig boðið í Pliva
og hefur þegar tryggt sér 20,4%
hlutafjár í félaginu. Ef Barr nær meiri-
hluta í félaginu getur Actavis í krafti
eignarhlutar síns staðið í vegi fyrir
stjórnarskiptum og stefnubreyt-
ingum sem krefjast samþykkis auk-
ins meirihluta atkvæða hluthafa.
Í frétt Reuters kemur fram að
margir greiningaraðilar á fjár-
málamarkaði telji líklegt að Actavis
eigi eftir að hækka tilboð sitt í Pliva.
Barr öruggt
um að ná Pliva
EKKERT tilboð hafði borist í hlut Lífeyrissjóðs
verslunarmanna í Straumi – Burðarási fjárfestinga-
banka þegar tilboðsfrestur rann út á hádegi í gær.
Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrir síðustu helgi
ákvað sjóðurinn að leita tilboða í 5,04% hlut sinni í
Straumi, eða liðlega 520 milljóna króna hlut að
nafnverði, en miðað við gengi bréfanna í gær, 17,00,
er hluturinn tæplega 9 milljarða króna virði.
Í ljósi þessarar niðurstöðu segir Þorgeir Eyjólfs-
son, forstjóri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna, að nú
liggi fyrir stjórn sjóðsins að taka afstöðu á hluthafa-
fundi Straums – Burðaráss, sem boðaður hefur ver-
ið þann 19. júlí nk.
Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, segir að svo virðist sem
komið sé á samráð milli stórra hluthafahópa í
Straumi – Burðarási. Vísar hann m.a. til yfirlýs-
ingar sem Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnar-
formaður Straums, sendi fjölmiðlum fyrir helgi. Þar
kemur fram að Björgólfur líti á kaup FL Group á
stórum hlut í Straumi sem stuðning við stefnu
stjórnar Straums og framtíðarsýn félagsins um
uppbyggingu á öflugum alþjóðlegum fjárfestinga-
banka.
„Nú ætlum við að kanna hug minni hluthafa í
Straumi og athuga hvort menn verði sammála um
að bjóða fram sjálfstæðan og óháðan frambjóðanda
til stjórnarkjörs,“ segir Víglundur Þorsteinsson.
Hluthafafundurinn er eins og áður sagði boðaður
þann 19. júlí nk. Kristinn Björnsson og Magnús
Kristinsson, sem seldu FL Group 24,4% hlut sinni í
Straumi – Burðarási fyrir skömmu, munu fara með
atkvæðarétt á hluthafafundinum þar sem salan
verður ekki gerð upp fyrr 20. júlí.
Vill kanna hug minni hluthafa
um óháðan stjórnarmann
Morgunblaðið/Kristinn
Hluthafafundur framundan Hluthafafundur
Straums-Burðaráss verður haldinn 19. júlí.
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
Engin tilboð bárust í hlut Lífeyrissjóðs verslunarmanna í Straumi – Burðarási
HÆTT hefur verið við skráningu líf-
tæknifélagsins Cyntellect á iSEC-
hlutabréfamarkaðinn. iSEC er nýr
hlutabréfamarkaður í Kauphöll Ís-
lands sem var opnaður fyrir viðskipti
í gær með skráningu Hampiðjunnar.
Í frétt frá Cyntellect kemur fram
að ein helsta skýringin á því að hætt
var við skráningu sé ástand hagkerf-
is og markaða á Íslandi.
iSEC-markaðurinn er aðallega
hugsaður fyrir smá og meðalstór
fyrirtæki og er ætlað að auka mögu-
leika þeirra til vaxtar. Hingað til
hafa þessi félög hins vegar haft tak-
markaða möguleika á skráningu.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir það leiðinlegt
að Cyntellect skuli hafa hætt við
skráningu, en ákvörðunin hafi ekki
komið mönnum í opna skjöldu. „Frá
því um miðjan febrúarmánuð hefur
einhver fjöldi fyrirtækja hætt við
skráningu á markað vegna markaðs-
aðstæðna og lækkandi hlutabréfa-
verðs. Við vonum bara að Cyntellect
endurskoði þessa ákvörðun þegar úr
rætist á mörkuðum,“ segir Þórður.
Fimm skráð einkaleyfi
Cyntellect var stofnað árið 1997 af
dr. Bernhard Pálssyni og Manfred
Koller, en Bernhard er stjórnarfor-
maður fyrirtækisins og stærsti hlut-
hafi þess.
Það hefur aðsetur í San Diego í
Kaliforníu og framleiðir tæki fyrir
lyfja- og líftækniiðnaðinn. Cyntellect
er með fimm skráð einkaleyfi í
Bandaríkjunum tengd tækni sem
meðhöndlar frumur með leysi-
geislum.
Cyntellect hætt
við skráningu
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hefur skipað dr. Frederic S.
Mishkin einn af seðlabankastjórum
Bandaríkjanna. Var þetta tilkynnt í
Hvíta húsinu um helgina, um leið og
Bush skipaði í nokkrar aðrar stöður í
stjórnkerfi Bandaríkjanna.
Mishkin ætti að vera orðinn ís-
lensku fjármálalífi góðu kunnur. Ný-
verið ritaði hann skýrslu, ásamt
Tryggva Þór Herbertssyni, forstöðu-
manni Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands, um efnahagsstöðugleika á Ís-
landi, sem Viðskiptaráð Íslands gaf
út. Skýrslan hefur verið kynnt form-
lega hér á landi, í Bandaríkjunum,
London og Kaupmannahöfn, þangað
sem Mishkin hefur mætt og kynnt
efni hennar. Meðal niðurstaðna Mis-
hkins og Tryggva Þórs var sú að ekki
væri ástæða til að óttast að fjármála-
kreppa myndi skella á á Íslandi.
Seðlabankastjórar Bandaríkjanna
eru sjö talsins og eru skipaðir til 14
ára. Dr. Mishkin er nú prófessor við
Columbia-háskólann og er almennt
talinn einn af helstu sérfræðingum
heims þegar kemur að því að meta
efnahagslegan óstöðugleika, segir í
tilkynningu frá Viðskiptaráði.
Mishkin er fyrrverandi forseti Eas-
tern Economic Association og var áð-
ur prófessor við Chicago-háskólaog
Princeton-háskóla.
Mishkin skipaður
seðlabankastjóri
Auglýsing
Nefndir sem umhverfisráðherra skipaði til að endurskoða
gildandi skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hafa skilað
ráðuneytinu drögum að frumvörpum um skipulags- og bygg-
ingarmálefni. Annars vegar er um að ræða frumvarp til nýrra
laga um mannvirki og hins vegar frumvarp til nýrra skipu-
lagslaga. Tillögurnar fela í sér breytta stjórnsýslu skipulags-
og byggingarmála og leggja nefndirnar til að umræddar breyt-
ingar taki gildi 1. janúar 2008.
Frumvarpsdrögin eru aðgengileg á heimasíðu umhverfisráðu-
neytisins, www.umhverfisraduneyti.is
Hér með er öllum gefinn kostur á að koma á framfæri athuga-
semdum við frumvarpsdrögin fyrir 15. ágúst nk. Að loknum
kynningartíma verður farið yfir þær athugasemdir sem hafa
borist ráðuneytinu og unnið úr þeim. Umhverfisráðherra hefur
í hyggju að leggja frumvörpin fyrir Alþingi á komandi hausti.
Athugasemdir sendist rafrænt til umhverfisráðuneytisins á
netfangið: postur@umhverfisraduneyti.is
Umhverfisráðuneytið
3. júlí 2006
SALA Magnúsar Kristinssonar,
Kristins Björnssonar og félaga þeim
tengdum, á tæpum 24% hlut í
Straumi-Burðarási til FL Group
gengur í gegn hinn 20. júlí nk. Tölu-
verðar breytingar verða á eignar-
haldi FL Group við viðskiptin, en
skv. útreikningum Morgunblaðsins
verður eignarhlutur Magnúsar
Kristinssonar 15,44%. Hann verður
þá þriðji stærsti hluthafinn á eftir
eignarhaldsfélagi Hannesar Smára-
sonar, Oddaflugi, og Baugi.
Þá kemur Kristinn Björnsson en
hlutur hans verður um 9,47%. Sam-
anlagt verður þannig hlutur Kristins
og Magnúsar um 24,9%.
!
" #$ %
$ % &'
()
*+ %
,-%
Magnús og Kristinn
með 24,9% í FL Group
!"#$%
% #
!
" # $%&
'(
' #
& $ &
) * &# &
( &+ $ & , &+
-
- ' &
. /0 1 2 '32
$ &
4
&
'"()
&
5 &+
6 &+
783
9:' & 9/
;<## &# / 1 !1 &
= && !1 &
'*
+
,-
.2> #.1 &+
,
.
/ 6?@A
.B1
1
1
0
0
0
0
0
0
< 
< 1
1
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
C0
D
0
C0
D
C0
D
C0 D
C0D
C0
D
C0D
0
C0D
C
D
0
C0D
C
D
C0
D
0
0
0
0
0
0
0
0
5 + 1
+ # &
; $1B+ # E
) .
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
= 1 B*%
;5
F#& '3!+
1
0
0
0
0
0
0
7 + G
.H9
. .
';.@
"I
. .
??
J-I
. .
J-I)!&
7
. .
6?@I "KL&
.