Morgunblaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
UPPREISNARMENN úr röðum
tamílsku Tígranna á Sri Lanka hafa
ítrekað að fulltrúar þriggja aðildar-
ríkja Evrópusambandsins (ESB) í
norrænu eftirlitssveitunum (SLMM)
verði að yfirgefa landið fyrir fyrsta
september nk. vegna þess að ekki sé
hægt að treysta á hlutleysi þeirra.
„Eftirlitssveitirnar hafa frest til
fyrsta september til að endurskipu-
leggja starfsemi sína,“ sagði S.P.
Thamilselvan, stjórnmálaleiðtogi Tí-
granna, í gær. „Spurningin um hvort
eftirlitssveitirnar geti brugðist við
fyrir þennan dag á ekki við því að við
höfum gefið þeim nægan tíma.“
Á fundi fulltrúa norrænu ríkjanna
fimm sem eiga aðild að SLMM í Ósló
í síðustu viku báðu Svíar um meiri
frest til að meta hlut landsins í eft-
irlitinu en afar líklegt má telja í ljósi
yfirlýsingar Thamilselvan að Tígr-
arnir séu ekki tilbúnir að veita þeim
þann frest. Andstöðu Tígranna við
eftirlit ESB-ríkjanna Danmerkur,
Svíþjóðar og Finnlands má hins veg-
ar rekja til þess að ESB skilgreindi
þá sem hryðjuverkasamtök í maí.
Alls koma 37 af 57 eftirlitsmönn-
um SLMM frá ESB-ríkjunum þrem-
ur sem um ræðir og má því segja að
starf eftirlitssveitanna sé nú í upp-
námi. Hinir 20 koma frá Noregi og
Íslandi og hefur komið til tals að
fjölga fulltrúum þessara ríkja, þótt
slíkt hafi ekki verið ákveðið.
Árásir í austurhlutanum
Að minnsta kosti þrír lögreglu-
menn og þrír óbreyttir borgarar
féllu þegar sprengja sprakk við eft-
irlitsstöð í bænum Trincomalee í
norðausturhluta Sri Lanka í gær.
Sprengjunni var komið fyrir í leigu-
bíl en flytja þurfti 14 óbreytta borg-
ara á sjúkrahús af hennar völdum.
Að auki slösuðust fjórir lögreglu-
menn í sprengingu í Batticaloa,
skammt frá Trincomalee, en þessi
svæði eru bæði undir yfirráðum
stjórnarinnar.
Þolinmæði
Tígranna þrotin
AP
Að minnsta kosti sex féllu og 14 slösuðust í árásinni í Trincomalee í gær.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Moskvu. AFP. | Þótt mörg mikilvæg
mál brenni á Vladímír Pútín Rúss-
landsforseta eru það ekki al-
þjóðastjórnmál
eða málefni Téts-
níu sem rúss-
neskir kjósendur
eru forvitnir um
því að þeir hafa
miklu meiri
áhuga á því hve-
nær leiðtoginn
hóf að stunda
kynlíf og hvort
hann hyggist lög-
leiða fíkniefnið marijúana.
Þetta má allavega ráða af þeim
spurningum sem rússneskir netnot-
endur hafa lagt fram á Yandex-
vefsíðunni í undirbúningi þess að
forsetinn mun á fimmtudag svara
gestum síðunnar í rauntíma. Þessi
viðburður á sér engin fordæmi úr
embættistíð Pútíns, en honum
verða einnig gerð skil á vefsíðu
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Vinsælasta spurningin á síðunni
með 8.080 atkvæði varðar atvik í
síðustu viku þegar forsetinn á ferð
sinni í Kreml lyfti upp skyrtu ungs
drengs sem var nærstaddur og
kyssti hann á magann. Gárungar
þykja hafa gert sér mat úr þessu at-
viki undanfarna daga enda þótti
það afar óvenjulegt.
Markmið netfundarins á fimmtu-
dag er hins vegar pólitískt og er að
bæta ímynd forsetans fyrir fund
leiðtoga G8-ríkjanna, helstu iðn-
ríkja heims, í St. Pétursborg dag-
ana 15. til 17. júlí nk.
Kynlíf, eiturlyf
og Pútín
Vladímír Pútín
París. AFP. | Frakkar munu í lok þessa
árs ýta úr vör sjónvarpsfréttastöðinni
F24 en henni er ætlað að fjalla um al-
þjóðamál frá „frönsku sjónarhorni“,
að sögn franska tímaritsins Satellifax
í gær. Útsendingar hefjast 1. desem-
ber nk. á ensku og frönsku og verður
fréttaefni sent út allan sólarhringinn.
Aðdragandi stofnunar F24 má
rekja til frumkvæðis Jacques Chirac
Frakklandsforseta en að hans sögn er
markmiðið meðal annars það að setja
Frakkland í „fremstu víglínu hinnar
alþjóðlegu baráttu um ímyndir“.
Þannig er stöðinni lýst sem gæluverk-
efni forsetans sem hafi það að mark-
miði að keppa við bandarísku frétta-
stöðina CNN og alþjóðlega fréttastöð
breska ríkisútvarpsins, BBC World.
Fréttafíklum mun standa til boða
enn frekara úrval slíkra stöðva á
næstunni því að Al-Jazeera-sjón-
varpsstöðin mun á næstu vikum hefja
útsendingar á ensku. Þá eru nýhafnar
útsendingar frá sjónvarpsstöðinni
Vesti-24, sem er á vegum rússnesku
stjórnarinnar og sendir út á ensku.
Í fyrstu munu útsendingar F24,
sem verða sendar út í gegnum gervi-
hnött, nást í Evrópu, Afríku og Mið-
Austurlöndum.
Stofnuð til
höfuðs BBC
og CNN
♦♦♦