Morgunblaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Madríd. AFP, AP. | Að minnsta kosti 41
lét lífið þegar jarðlest fór út af sporinu
í borginni Valencia á austurströnd
Spánar í gær. Um tuttugu manns
slösuðust alvarlega. Talsmaður
slökkviliðsins sagði að tveir vagnar
hefðu farið út af sporinu í göngum
þegar lestin var að koma inn á Jesús-
lestarstöðina í miðborginni.
Meira en 150 manns voru fluttir af
svæðinu en fjöldi fólks festist í lestinni
eftir slysið. Farþegi sem festist í lest-
inni hringdi og lét vita af því. Mikið af
fólki var í lestinni enda sá tími dags
þegar fólk var á leið heim í matarhlé.
Verið var að rannsaka í gær hvað
olli slysinu, en þetta er eitt versta
lestarslys í sögu Spánar. Embættis-
menn voru fljótir að útiloka að um
hryðjuverk væri að ræða og sögðu lík-
legustu ástæðu vera að lestin hefði
verið á of mikilli ferð og hjól undir
henni hefði gefið sig.
Búa sig undir heimsókn páfa
„Svo virðist sem þetta slæma slys
hafi orðið vegna of mikils hraða og
þess að hjól undir lestinni hafi brotn-
að rétt áður en hún kom inn á lest-
arstöðina,“ sagði Luis Felipe Mart-
inez, talsmaður yfirvalda.
Benedikt páfi XVI. er væntanlegur
til borgarinnar um helgina í tilefni af
fjölskyldufundi kaþólsku kirkjunnar.
Undirbúningur fyrir hátíðina var því í
fullum gangi og hundruð þúsunda
gesta væntanleg í tilefni af henni. Yf-
irmenn neðanjarðarlestanna höfðu
dreift hálfri milljón aðgöngumiða í
lestarnar til að gefa gestum hátíðar-
innar möguleika á ferðast frítt um
miðborgina.
Í september skullu þrjár neðan-
jarðarlestir saman í Valencia með
þeim afleiðingum að 29 manns slös-
uðust. Um 800 þúsund manns búa í
Valencia en um 165 þúsund manns
notuðu lestarkerfið á hverjum degi að
meðaltali á síðasta ári.
Talið að lestinni hafi
verið ekið of hratt
Kona huggar grátandi vegfaranda framan við lestarstöðina í Valencia á Spáni eftir lestarslysið í gær.
Eitt mannskæð-
asta lestarslys í
sögu Spánar
Reuters
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
GÍFURLEG óvissa ríkti í gær um úr-
slit forsetakosninganna í Mexíkó, sem
fram fóru á sunnudag. Bæði hægri-
maðurinn Felipe Calderon og vinstri-
sinninn Manuel Lopez Obrador lýstu
sig sigurvegara kosninganna en
fulltrúar kjörstjórnar sögðu of
snemmt að kveða upp úr um úrslitin,
staðan væri hnífjöfn, og ætla þeir ekki
að tilkynna um sigurvegara fyrr en
eftir að formlegri talningu atkvæða er
lokið, en hún á ekki að hefjast fyrr en
á morgun.
Búið var að telja meira en þrjátíu
og sex milljón atkvæði, ríflega 95%
allra atkvæða, í óformlegri talningu
um miðjan dag í gær. Var staðan þá
sú að Calderon hafði 36,49% atkvæða
en Lopez Obrador, sem er fyrrver-
andi borgarstjóri í Mexíkó-borg,
35,43%. Munaði minna en 300.000 at-
kvæðum á frambjóðendunum tveim-
ur. Þriðji var annar hægrimaður, Ro-
berto Madrazo, með um 20,5%
atkvæða.
Óvissa líka á þingi
Kosningabaráttan í Mexíkó hafði
verið afar hörð og persónulegar árás-
ir settu ljótan svip á hana. Létu fylg-
ismenn tvímenninganna sér í gær fátt
um finnast þær tölur, sem fyrir lágu,
eða tilkynningar kjörstjórnarfulltrúa
að ekki yrði tilkynnt um úrslit fyrr en
búið væri að telja hvert einasta at-
kvæði. Þyrptust stuðningsmenn
Calderons og Obradors út á götur og
fögnuðu sigri; en jafnframt sökuðu
erindrekar frambjóðendanna keppi-
nautinn um kosningasvindl. Óttuðust
margir að upp úr myndi sjóða og til
átaka koma.
Sem fyrr segir hafði Calderon yf-
irhöndina þegar leið á daginn í gær en
embættismenn sögðu hugsanlegt, að
staðan breyttist. Og sjálfur sagðist
Lopez Obrador, sem bauð sig fram í
nafni lítilmagnans í Mexíkó, hafa unn-
ið með meira en hálfrar milljónar at-
kvæða mun. „Því verður ekki breytt,“
sagði hann. „Við munum sýna fram á
sigur okkar.“ En Calderon ávarpaði
líka sína stuðningsmenn í Þjóðar-
framtaksflokknum (PAN). „Við höf-
um sigrað í forsetakosningunum,“
sagði hann og vísaði til útgönguspáa
og stöðunnar eins og hún var í gær.
Dragist það á langinn að endanleg
og viðurkennd úrslit fáist í kosning-
unum er talin hætta á fjárhagslegu
öngþveiti og það hefði vafalaust líka
vond áhrif á lýðræðisþróun í Mexíkó.
Næsti forseti Mexíkó, hver svo sem
það verður, mun eiga erfitt verk fyrir
höndum að standa við gefin loforð um
að snúa vörn í sókn í baráttunni við fá-
tækt, spillingu, glæpi og ofbeldi er
tengist eiturlyfjaviðskiptum. Og það
mun líka valda næsta forseta erfið-
leikum að enginn einn flokkur náði
meirihluta í þingkosningum, sem fóru
fram á sunnudag samhliða forseta-
kosningunum; PAN fékk 34%, PRD
30% og gamli valdaflokkurinn, PRI,
fékk 26%.
Mikil óvissa ríkir í Mexíkó eftir hnífjafnar forsetakosningar
AP
Stuðningsmenn Calderons og Obradors fögnuðu frambjóðendunum mjög
er þeir lýstu hvor um sig yfir sigri seint á sunnudagskvöld.
);<=>?@);2>A
ABC>DB3=)<B=
!>AEC>
F)A<>=B;
=B3>= @)<=)DB
0$
'%
G
+%H
*
+*$
@I+/$H
#$
( %
'/
H$
!.F
**$%
)@
A*.JB'
*>
$
++
%H
5(*$
!"#$%&!#'(')&"*$+,
G G G
Calderon og
Obrador lýsa
báðir yfir sigri
La Paz. AFP. | Evo Morales, forseti
Bólivíu, lýsti því yfir í gær að flokk-
ur hans, Hreyfing í átt til sósíalism-
ans (MAS), hefði sigrað í kosningum
til sérstaks stjórnlagaþings um
helgina. Á sama tíma beið Morales
ósigur þegar íbúar fjögurra ríkustu
héraða Bólivíu greiddu atkvæði með
auknu sjálfræði.
Samkvæmt útgönguspám fékk
MAS 51% atkvæða í kosningunum til
stjórnlagaþingsins en embætt-
ismenn segja að það kunni að taka
allt að 25 daga að fá fram endanleg
úrslit. Morales var engu að síður sig-
urreifur í fyrrakvöld og sagði flokk
sinn hafa fengið 54 prósent atkvæða.
Þótt þannig sé óljóst með end-
anleg úrslit bendir flest til að útkom-
an hafi verið langt frá þeim tveimur
þriðju hlutum atkvæða sem MAS
þurfti til að hafa nauðsynlegt svig-
rúm til að breyta stjórnarskránni, í
því skyni að koma á róttækri fé-
lagslegri uppstokkun.
Annað var uppi á teningnum í hér-
uðunum Santa Cruz, Tarija, Pando
og Beni, sem eru öll rík af nátt-
úruauðlindum, en ef marka má út-
gönguspá greiddi yfirgnæfandi
meirihluti íbúa þeirra atkvæði með
auknu sjálfræði. Talið er að sömu til-
lögu hafi verið hafnað í hinum fimm
héruðum landsins. Verði það úrslitin
er um að ræða nokkurn sigur fyrir
Morales sem er afar andvígur auknu
sjálfræði héraðanna.
Morales lýsir
yfir sigri
Haag. AFP. | Lögmannsstofa í Hol-
landi undirbýr nú málsókn gegn hol-
lenska ríkinu og Sameinuðu þjóð-
unum fyrir hönd 7.930 ættingja fólks
sem dó í fjöldamorðinu í Srebrenica
í Bosníu-Herzegóvínu 1995.
Hollenskum friðargæsluliðum á
vegum SÞ hafði verið falið að verja
múslíma í Srebrenica, sem er í aust-
urhluta Bosníu, en beittu sér ekki er
serbneskar öryggissveitir tóku bæ-
inn í júlí 1995 og drápu síðan karla
og drengi í þorpinu með skipulegum
hætti.
„Við teljum að hollenska ríkið og
SÞ séu ábyrg að hluta til fyrir því
sem gerðist,“ sagði lögmaðurinn
Marco Gerritsen í gær. „Við höfum í
bígerð málsókn sem við vonumst til
að geta höfðað með formlegum
hætti fyrir árslok.“
Sagði í yfirlýsingu lögmannsstof-
unnar að viðræður við hollenska rík-
ið um bætur hefðu farið út um þúfur.
Ættingjarnir 7.930 vilja að hol-
lenska ríkið borgi þeim skaðabætur.
Fyrst verður þó dómari að úrskurða
um það hvort hægt sé að færa hol-
lenska ríkið til ábyrgðar.
Árið 2001 kom út skýrsla í Hol-
landi þar sem komist var að þeirri
niðurstöðu að hollensk stjórnvöld
hefðu sent hollenska friðargæsluliða
í „vonlaust verkefni“ í Srebrenica.
Sagði þáverandi ríkisstjórn í Hol-
landi af sér vegna skýrslunnar. Hol-
lenskir ráðamenn hafa þó alltaf sagt
að ábyrgðin á blóðbaðinu liggi hjá
Bosníu-Serbum og þeim einum.
Höfða mál gegn
hollenska ríkinu
Charlotte. AP. | Saksóknari í Banda-
ríkjunum ákærði í gær fyrrverandi
hermann fyrir að hafa nauðgað
konu í Írak og síðan myrt hana og
þrjá aðra í fjölskyldu hennar.
Alríkissaksóknarar fara með
málið vegna þess að maðurinn hafði
verið leystur frá störfum í banda-
ríska hernum vegna „persónu-
leikatruflunar“. Alríkislögreglan
handtók hann á föstudag í Norður-
Karólínu og hann verður fluttur til
Kentucky þar sem hann gegndi
herþjónustu.
Maðurinn á dauðadóm yfir höfði
sér verði hann dæmdur sekur um
morðin.
Saksóknarar sögðu að maðurinn
hefði farið inn á heimili konunnar
ásamt fleiri hermönnum og þeir
hefðu nauðgað henni áður en hann
framdi morðin.
Ákærður fyrir
nauðgun og morð