Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 27

Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 27 MINNINGAR ✝ Soffía Jónsdótt-ir fæddist á Blöndudalshólum í Húnavatnssýslu 22. janúar 1910. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Skjóli 24. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Kristvins- son bóndi og Guðný Anna Jónsdóttir húsmóðir. Þau fluttu til Skaga- fjarðar 1913, og ólst Soffía þar upp. Bjuggu þau lengst af í Vatnsleysu í Skagafirði. Soffía var næstelst átta systkina, sem öll eru látin, nema tveir bræður, þeir Jens, f. 1921, og Róar, f. 1923. Soffía giftist Jóni Gunnlaugs- syni frá Bakka í Skagafirði. Þau skildu. Eignuðust þau tvo syni, Friðbjörn G. Jónsson, f. 21. mars 1936, og Hrein Jónsson, f. 8. sept- ember 1939. Friðbjörn er kvænt- ur Sólveigu Hannesdóttur og eiga þau fjögur börn. Þau eru: 1) Guð- laug Rún Margeirsdóttir, búsett í Portúgal, maður hennar er Aug- usto Neto, og eiga þau tvö börn, Vilhelm Þór, f. 1993, og Jóhönnu Dís, f. 1997. 2) Hanna Dís Mar- geirsdóttir, búsett í Ósló, maður hennar er Ola Norheim, og eiga þau eina dóttur, Selmu Ósk, f. 2004. 3) Soffía Huld Friðbjarnar- dóttir, búsett í Garðabæ, hennar maður er Friðbert Friðbertsson, og eiga þau eina dóttur, Sólveigu Önnu, f. 2004. 4) Hannes Heimir Friðbjarnarson, bú- settur í Kópavogi, kona hans er Edda Ýr Þórsdóttir, og eiga þau einn son, Baldvin Þór, f. 2003. Hreinn Jónsson er kvæntur Camillu Jónsdóttur, og eru börn þeirra þrjú. Þau eru: 1) Ásta Júl- ía, búsett í Reykja- vík, maður hennar er Ágúst M. Þórólfs- son. 2) Jón Hreinsson, ókvæntur, býr í Reykjavík. 3) Stefán Jóhann Hreinsson, kona hans er Ólöf L. Lárusdóttir, þeirra dóttir er Rak- el Sif, f. 2006, búa þau á Akranesi. Bróðir Friðbjörns og Hreins, samfeðra, er Pétur Jónsson, f. 1945, kvæntur Sigrúnu Skarp- héðinsdóttur, og eru þau búsett á Akranesi. Soffía fór ung að vinna, fyrst almenn sveitastörf. Vann á Hól- um í Hjaltadal nokkur ár, þar til hún hóf búskap á Bakka í Skaga- firði. Til sjúkrahússins á Sauðár- króki réðst hún til starfa 1944, var matráðskona þar og starfaði þar óslitið til ársins 1977, er hún fluttist til Reykjavíkur. Bjó hún fyrst á Barónsstíg 41 og síðan á Austurbrún 4, þar til hún fluttist á Skjól. Útför Soffíu verður gerð frá kapellunni í Fossvogi í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Soffía Jónsdóttir tengdamóðir mín lést hinn 24. júní í Skjóli, 96 ára göm- ul, södd lífdaga og viðbúin endalok- um. Leiðir okkar hafa nú legið sam- an í 39 ár. Öll þessi ár hefur hún verið vakin og sofin yfir velferð minni og barna minna. Það er stórt verkefni að verða gamall og því eldri sem við verðum þeim mun meiri lík- ur eru á að greinast með erfiðan sjúkdóm, en svo var um Soffíu. Soffía greindist með sjúkdóm á miðju seinasta ári sem þurfti með- ferðar við. Fannst okkur að það hlyti að vera töluvert erfitt fyrir hana og bárum við kvíðboga fyrir lyfjameð- ferð sem hófst í september sl. Hún sjálf sem ævinlega var mjög skyn- söm gekk í þetta verkefni af einstöku æðruleysi og trausti til þeirra starfs- manna sem stóðu að þessari læknis– og hjúkrunarmeðferð, enn fremur miklu trausti til okkar sem vorum við hlið hennar til að stuðla að betri líðan og kröftum þessa endaspretts lífs- leiðarinnar. Hún var bráðgreind, hafði gífur- lega gott minni fram á síðustu stundu, og þjálfaði það þó nokkuð. Áhugi hennar á þjóðfélagsmálum var mikill, var sem sagt mjög póli- tísk. Henni þótti afar vænt um landið sitt, hafði áhuga á Íslendingum er- lendis og var alltaf fegin þegar hún frétti að fólk væri að flytja aftur heim til Íslands. Kærastur var henni Skagafjörðurinn, sveitin hennar þar og stolt var hún af öllu skagfirsku. Bjó hún þar fram til ársins 1977. Eignaðist þar syni sína tvo, þá Frið- björn Gunnlaug Jónsson, f. 1936, og Hrein Jónsson, f. 1939, með þáver- andi manni sínum Jóni Gunnlaugs- syni, bifreiðarstjóra, sem bjó lengst af á Akranesi. Þau skildu, og eiga þeir einn bróður samfeðra, Pétur Jónsson, f. 1945, sem búsettur er á Akranesi. Soffía var næstelst stórs systkina- hóps. Varð hún snemma leiðtogi systkinahópsins, frá á fæti og úr- ræðagóð og afar góð skepnum. Þess- ir leiðtogahæfileikar komu henni síð- an til góða þegar stýra þurfti eldhúsi sjúkrahússins á Sauðárkróki, en það starf tók hún að sér l944. Hún varð matráðskona á sjúkrahúsinu á Sauð- árkróki, fyrst í gamla spítalanum sem kallaður er. Þar voru aðstæður bágbornar. Ekki var matarlyfta í húsinu og flytja þurfti allt á milli hæða bæði sjúklinga og gögn. Hún er áfram ráðin matráðskona að sjúkrahúsi Skagafjarðar, og tekst á við þær gífurlegu breytingar á að- stæðum við flutning í nýja og góða byggingu. Nýttust þá leiðtogahæfi- leikar hennar og útsjónarsemi við gjörbreyttar aðstæður og meiri mannaforráð. Hélst henni alltaf vel á starfsfólki. Undanfarin þrjú ár voru henni erf- ið, þó mest það seinasta, en hún var lánsöm að dvelja á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli, á 5. hæð þess heimilis, var þar út af fyrir sig. Þar er geysi- lega gott starfsfólk sem sýndi bæði henni og okkur mikinn mannkær- leika. Munum við aldrei gleyma framkomu starfsfólks þessarar deildar, og gott er að eiga hlýjar minningar um þann tíma, það er mikils virði. Soffía bar sig vel, og var þess vel gætt að henni liði ekki illa, en oft var líðan verri en hún gaf í skyn, en mið- aði samt sína líðan við aðstæður. Sjónarmið hennar virtist vera að kvarta ekki um of. Bar hún sinn sjúkdóm með æðruleysi. Milli lyfja- meðferða var hún við góða færni, og hélt hún heimili fyrir sig þar til fyrir rúmu ári. Hún hafði gífurlegan vilja- styrk og fór sínar eigin leiðir í flestu. Hafði hún ung þurft að takast á við ábyrgð sem barn á stóru heimili, jafnvel of mikla of snemma, síðar að vera mjög virkur þjóðfélagsþegn. Þessi mikla ábyrgðartilfinning fylgdi henni allan spölinn. Eftir að á dvalarheimili kom, myndaðist tími til að hugsa inn á við, þessi tími var henni kærkominn að vissu leyti, og fyrir okkur einnig við enda lífs hennar. Hún minntist ævi sinnar, hugsaði um gamlan sárs- auka, talaði um hann, vinnuna sem hún hafði stundað, bæði frá því hún var mjög ung og svo aftur síðar: Að fylgjast með þessu auðvelda upp- gjöri hennar var ekki erfitt, þar sem hún fór svo sársaukalaust í gegnum það. Soffía var létt í skapi og talaði um það skemmtilega sem gott og gaman var að minnast. Sólina í heið- inni að Vatnsleysu æskuheimili sínu, sumarblóm í bala á hlaðinu heima. Góða hestinn sinn Grána og kvöldin í baðstofunni þegar móðir hennar spann, faðir hennar að aðstoða móð- ur hennar með því að stíga rokkinn, bæði sungu þau fyrir heimilisfólkið. Jafnvel sauðskinnsskórnir voru þeir bestu skór sem hún hafði komið í. Og gaman var að snúa heyinu í flekkj- unum á Vatnsleysu í sól og þurrki, á Hólum hafði hún dansað vikivaka sem ung stúlka og kom þá glampi í augu. Seinustu vikurnar þótti henni best að fá góðar fréttir frá smáfólk- inu sínu, því alltaf var að bætast í, það létti. Okkar samband einkenndist af ábyrgð og skyldu hvorrar til annarr- ar, ég alin upp á malbiki, skildi stundum alls ekki líf baðstofukyn- slóðarinnar sem nú er að hverfa. Hún var öllum mínum börnum jafn- góð, og mætti þeim á þeirra forsend- um, hverju og einu. Ég þakka henni fyrir það. Ég þakka henni ennfrem- ur alla vinnuna sem hún lagði til heimilis míns og barna minna svo ég gæti gengið til þeirrar vinnu sem var mér hugleikin á áttunda og níunda áratugnum, þegar konur voru að brjótast fram, það voru konur sem hjálpuðu okkur við það. Hún var svo sannarlega femínisti. Um trú sína ræddi hún við Boggu systurdóttur sína, hvað tæki við, við- horf hennar við endalok, þeirri kær- leiksþjónustu sinnti Bogga frá Garði í Mývatnssveit. Það var gott að vita af þeirra sambandi og því trausti sem var á milli þeirra. Í lokin hlakk- aði hún til að mæta sínum framliðnu ættingjum og ástvinum, hún hafði þekkt marga, fólk laðaðist að henni, og átti marga vini sem farnir voru. Soffía kveið því ekki að fara, hún hafði undirbúið förina, allt var klárt til fararinnar. Hinn 30. maí var sýnt að komið væri að leiðarenda. Lést hún á Jóns- messunótt hinn 24. júní. Hún hafði alltaf verið sumarbarn og elskaði sól- skinið, það sólskin sem skein inn til hennar þann dag. Ég þakka henni samfylgdina og veit að Guð tekur á móti henni með breiða faðminn sinn. Hvíli hún í friði. Sólveig Hannesdóttir. Í dag kveð ég ömmu mína Soffíu Jónsdóttur. Í mínum huga er amma einhver sem passar upp á mann þeg- ar manni finnst maður þurfa þess, amma Soffía var einmitt sú amma. Þegar ég var yngri var það oft þannig að amma kom með strætó og passaði upp á að ég fengi eitthvað að borða þegar ég kom heim úr skól- anum og ég varð meira að segja þeirrar gæfu aðnjótandi að stundum voru þær tvær ömmurnar sem tóku á móti mér. Amma Soffía var þessi amma sem maður las um í ævintýrum, var alltaf tilbúin að hlusta á mann og gat leyst ótrúlegustu vandamál með einu glasi af kakómalti. Á mínum æskuárum gisti ég oft hjá ömmu á Barónsstíg og var það afar hentugt að eiga tvær ömmur sem bjuggu sín á hvorri hæð- inni í sama húsinu, þá var mjög auð- velt að hoppa á milli hæða og sníkja kökur og félagsskap. Mínar stundir með ömmu gengu oft á tíðum út á spil og oft sátum við heilu kvöldin og spiluðum Ólsen og Svarta Pétur. Þegar ég eltist skildi ég að amma var búin að vera að tapa spilunum viljandi í mörg ár sökum ungs aldurs míns. Þegar ég uppgötv- aði það bað ég hana vinsamlegast að hætta því. Þetta fannst henni skemmtilegt og eftir það spiluðum við lengi og vorum í mikilli keppni okkar á milli um hvort okkar myndi vinna fleiri spil. Við skemmtum okk- ur mikið við spilin og alltaf gátum við hætt jöfn og verðlaunin voru alltaf þau sömu, gott spjall fyrir svefninn með brauðsneið og mjólk, það var ekkert betra. Amma mín var mín útgáfa af hinni íslensku konu, ef hún er til. Hún kunni alltaf sögur úr sveitinni og mundi heil ósköp af atburðum og uppákomum frá fyrri tíð sem maður hafði gaman af að hlusta á og alltaf gátum við hlegið saman að sögunum. Í dag kveð ég þig, amma mín, en veit að þér líður vel og þú gengur sátt frá spilaborðinu. Ég er glaður fyrir þær stundir sem við áttum saman og þær stundir sem þú áttir með langömmudrengn- um þínum sem þér fannst svo gaman að fá í heimsókn. Ég veit að þú fylg- ist með okkur. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Ó, hún var ambáttin rjóð. Hún var ástkonan góð. Hún var amma svo fróð. Ó, athvarf umrenningsins. Inntak hjálpræðisins. Líkn frá kyni til kyns. Og loks þegar móðirin lögð er í mold, þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin hún hnígur og sólin hún rís. Og sjá þér við hlið er hamingjudís. Sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan, tákn trúar og vonar. Sem ann þér og helgar sitt líf. (Ómar Þ. Ragnarsson) Hannes Heimir. Amma Soffía er farin. Nú er hún búin að yfirgefa okkur eftir svo langa samveru hér á jörð. Það er undarlegt hversu mikið þessi frétt kemur alltaf jafn mikið á óvart þó svo að hennar hafi verið von. Amma var búin að lifa svo lengi meðal okkar, eldast með okkur og það var eins og allt okkar líf myndi hún fylgja okkur eftir. En nú þegar hún er horfin af sjónarsviðinu þá er maður minntur á að ekkert varir að eilífu en eftir sitja minning- arnar. Og þá lítur maður ósjálfrátt yfir farinn veg og finnur og sér hversu góðar stundir og minningar hún hefur skilið eftir og gefið, það er eins og fyrir manni renni myndband og augu mín sjá litla granna konu með hvítt liðað hár. Augu mín sjá ömmu í eldhúsinu á Sauðárkróki stjórnandi þar af mikilli röggsemi. Sem stúlku fannst mér þetta stór og sérstæður heimur, þar var einatt líf og fjör. Mér fannst það mikið lán að geta verið hjá ömmu á Sauðárkróki, það jafnaðist fátt á við það, ekki einu sinni utanlandsferð. Og sé að manni leið vel og hversu mikið frelsi hún veitti, það mátti máta kjólana, setja á sig perlufest- arnar og það mátti gera grín og oft tók hún þátt í þessu gríni svo mikið að maður gat farið að veltast um af hlátri. Það er gott að eiga ömmu sem hefur svona gott skopskyn. Augu mín sjá berjaferðir, heim- sóknir á sveitabæi, smákökubakstur, laufabrauðsbakstur, kleinubakstur, samverustundir, vináttu og um- hyggju konu sem var amma og ann- að sem meira er um vert, félagi. Og maður sér að frammi fyrir öllu þessu og miklu meira getur maður ekki annað en verið þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman og það samneyti sem einungis hefur gott gefið og skilur gott eftir. Við hér í Portúgal, Gústi maðurinn minn sem ætíð dáðist að krafti ömmu, börnin mín Vilhelm og Jó- hanna sem voru svo heppin að kynn- ast langömmu, og ég, Gulla, sitjum hér eftir rík að góðum minningum. Hvíl þú í friði. Guðlaug Rún Margeirsdóttir. SOFFÍA JÓNSDÓTTIR Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERNA SIGURBJÖRG RAGNARSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Löngufit 24, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ föstudaginn 30. júní. Útförin verður auglýst síðar. Jón Boði Björnsson, Gréta Boða, Gaukur Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Þröstur Gestsson, Hafdís Jónsdóttir, Björn Leifsson, Jóhanna Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON frá Köldukinn, Dalasýslu, Hraunbæ 90, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum sunnudaginn 25. júní, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 6. júlí kl. 15.00. Guðrún Hjartardóttir, Anna Jóna Sigurðardóttir, Einar H. Kristjánsson, Karl Arne Sigurðsson, Birthe Sigurðsson, Árni Sigurðsson, Selma Magnúsdóttir, Hjörtur E. Sigurðsson, Ingunn Sigurðardóttir, Jón Axel Brynleifsson, Jón Óli Sigurðsson, Kristín Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.