Morgunblaðið - 04.07.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 33
DAGBÓK
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Bd3 Rbd7 8.
O-O Dc7 9. De2 b5 10. f4 b4 11. Rd1
Bb7 12. Rf2 g6 13. Bd2 Db6 14. c3 Bg7
15. e5 Rd5 16. Rf3 dxe5 17. fxe5 O-O
18. Kh1 bxc3 19. bxc3 Dc7 20. Hae1
Rxc3 21. Hc1 Bxf3 22. Dxf3 Rxe5 23.
Dg3 Dd6 24. Bxc3 Hfd8 25. Be2 Hac8
26. Dh4 f5 27. Hcd1 Db6 28. Bxe5
Bxe5 29. Bc4 Bd4 30. Bxe6+ Dxe6 31.
Hxd4 Hxd4 32. Dxd4 Dxa2 33. He1
Dc4.
Staðan kom upp á lokuðu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu í Vágur í
Færeyjum. Danski alþjóðlegi meistar-
inn Bjorn Brinck-Claussen (2359)
hafði hvítt gegn efnilegasta skák-
manni Færeyja, Helga Dam Ziska
(2306). 34. He8+! Hxe8 svartur hefði
orðið mát eftir 34 … Kf7 35. Dd7+
Kf6 36. De7#. 35. Dxc4+ og svartur
gafst upp enda drottningu undir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Árbæjarsafn býður í sumar upp á fjöl-breytt dagsnámskeið fyrir börn. HelgaVollertsen er fulltrúi fræðsludeildarsafnsins:
„Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda, en
þetta er fimmta sumarið sem við höldum nám-
skeið af þessum toga,“ segir Helga.
„Aðsókn hefur ætíð verið góð og reynum við að
bjóða upp á ný námskeið ár hvert. Þannig bættist
í fyrra við námskeið þar sem kennd er þæfing og
meðferð og vinnsla ullar, og í ár verður haldið nýtt
námskeið um diskó og pönk í tengslum við nýja
sýningu sem opnuð var í safninu 16. júní.“
Barnanámskeið Árbæjarsafnsins verða haldin
nær daglega í júlí og eru fimm mismunandi nám-
skeið í boði. „Auk námskeiðanna um meðferð ullar
og um diskó og pönk er boðið upp á námskeið í
flugdrekagerð og námskeið í tálgun, en það eru
þau námskeið sem við höfum haldið lengst og hafa
alltaf verið mjög vinsæl. Einnig eru haldin nám-
skeið þar sem kennd eru grunnatriði íslenskrar
glímu og hefur krökkunum þótt mjög gaman að
læra nokkur glímubrögð.“
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldursbilinu 7
til 12 ára. Ekki eru gerðar neinar forkröfur um
kunnáttu á námskeiðunum og börnunum eru
kennd nauðsynlegustu handtök frá grunni. Ætlast
er til að foreldri eða forráðamaður fylgi hverju
barni á námskeiðinu og er hvert námskeið þrjár
klukkustundir að lengd, frá kl. 13 til 16.
„Við höfum mjög hæfa leiðbeinendur á nám-
skeiðunum sem kenna börnunum bæði gagnlega
og skemmtilega hluti. Þau fá að eiga skemmtilega
dagstund og prófa eitthvað spennandi og nýtt sem
annars er ekki í boði að spreyta sig á dags-
daglega.“
Að vanda verður fjölbreytt dagskrá í Árbæj-
arsafni í sumar. Tvær nýjar sýningar voru opn-
aðar í safninu í síðasta mánuði, önnur tileinkuð
diskói og pönki og menningu ungs fólks í Reykja-
vík á árunum 1975 til 1985 og hin, „Húsagerð höf-
uðstaðar – Saga byggingartækninnar“, fjallar um
húsagerðarlist í Reykjavík 1840 til 1940.
„Í Árbæjarsafni er skemmtun í boði fyrir alla
fjölskylduna. Alla sunnudaga er fræðandi og
skemmtileg dagskrá í safninu. Næstu helgi verður
diskódagskrá og von er á gestum frá Götuleikhús-
inu. Harmonikkuhátíð verður 16. júlí og heyannir
23. júlí, svo nokkuð sé nefnt,“ segir Helga. „Á
hverjum degi kl. 16 eru mjaltir og gefst safngest-
um kostur á að smakka mjólkina ferska. Þá er
reglulega teymt undir börnum, ef veður leyfir.“
Nánari upplýsingar um starfsemi Minjasafns
Reykjavíkur má finna á slóðinni www.arbaej-
arsafn.is. Skráning í barnanámskeiðin er í miða-
sölu safnsins í síma 411 6320.
Árbæjarsafn er opið alla daga í sumar frá 10 til
17. Ókeypis er fyrir börn yngri en 18 ára og eldri
borgara, en fólk á aldrinum 18 til 67 ára borgar
600 krónur í aðgangseyri og gildir hver miði fyrir
tvær heimsóknir. Ókeypis er í safnið á föstudög-
um.
Börn | Læra má tálgun, flugdrekagerð, þæfingu, glímu og diskódans í Árbæjarsafni
Skemmtileg barnanámskeið
Helga Vollertsen
fæddist í Reykjavík
1983. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Birkerød
gymnasium í Danmörku
2002 og lýkur í haust
BA-námi í þýsku ann-
ars vegar og sagnfræði
hins vegar frá Háskóla
Íslands. Helga starfaði
á barnabókasafni
Birkerød í þrjú ár og
hefur starfað hjá Árbæjarsafni síðan 2002,
frá 2005 sem deildarfulltrúi fræðsludeildar.
Unnusti Helgu er Theodór Árni Hansson.
Sannleikurinn er
sagna bestur
HALLDÓR Carlsson var ekki nógu
nákvæmur í pistli sínum „Sannleik-
urinn fyrnist ekki“ í Velvakanda í
gær, 3. júlí. Herforingjabyltingin í
Chile átti sér ekki stað á árabilinu
1975–77, þegar Halldór segir
George H.W. Bush eldri hafa verið
yfirmann CIA (í reynd var hann það
1976–77), heldur var hún gerð 11.
september 1973.
Halldór segir að í innrásinni í Pan-
ama 1989 hafi milli 2.000 og 5.000
Panama-búar dáið, en það rétta er
að hún kostaði um 350 til 750 fallna,
þar af 150 hermenn. (Sem einhliða
íhlutun var hún fordæmd af sam-
tökum Ameríkuríkja, talin slæm
fyrirmynd í alþjóðarétti, þótt hún
hefði um leið ljósari hliðar fyrir Pa-
namaþjóð.)
Halldór segir George Bush eldri
hafa fyrirskipað „voldugasta her
jarðar að ráðast gegn Írak 1991,
leggja undirstöður samfélagsins í
rúst og drepa tugi þúsunda Íraka,“
en í þeim átökum hafi 148 banda-
rískir hermenn dáið, „á meðan um
hundrað þúsund Írakar lágu í valn-
um“.
Hér láðist Halldóri með öllu að
taka fram að þetta Persaflóastríð
1991 var háð af mörgum þjóðum
undir merki Sameinuðu þjóðanna og
ástæðan sú að Írak hafði valtað yfir
og innlimað eitt aðildarríki SÞ, Kúv-
eit. Erfitt er að meta fjölda fallinna,
tölur nefndar allt frá 1.900 upp í
200.000, en fræðimenn telja þær á
bilinu 25–75.000 (nál. 53.000, segir
fólksfjöldafræðingurinn B.O. Da-
ponte, en fleiri en það hafi dáið af
völdum stríðsins síðar; Bandaríkja-
stjórn heldur fram lægri tölum). Um
önnur atriði í pistli Halldórs þori ég
ekki að ábyrgjast, hversu nákvæmur
hann sé, en allt þetta var full ástæða
til að leiðrétta.
Jón Valur Jensson.
Gott Blað
MIG langar að þakka fyrir Blaðið
sem mér finnst vera að sækja mikið
á sem gott lesefni. Þar eru margar
góðar greinar ásamt áhugaverðum
viðtölum.
Harpa Karlsdóttir.
Vesturálman
í sjónvarpinu
SJÓNVARPIÐ er lunkið við að afla
sér vinsælda. Eitt af því sem vekur
sérstaka ánægju hjá mér og trúlega
fleirum er að loksins er hafin út-
sending á nýrri þáttaröð af Vestur-
álmunni, reyndar löngu á eftir öðr-
um norrænum stöðvum.
Til aukinnar ánægju er útsending-
artíminn um kl. 23 á miðviku-
dagskvöldum. Sem betur fer eru
tveir íþróttaþættir, annar um fót-
bolta og hinn um kappakstur, sýndir
á undan Vesturálmunni og þar er
svo mikið um að vera að útsending
tefst iðulega um 5 eða 10 mínútur.
Það er auðvitað alveg frábært! Af
einhverjum ástæðum mun þátturinn
vera endursýndur eftir hádegi á
sunnudögum, sem er mikil snilld,
enda stór hluti landsmanna víðs
fjarri sjónvarpstækjum sínum um
helgar yfir hásumarið.
Takk fyrir, Sjónvarp, við elskum
þig öll!
Tryggvi P. Friðriksson,
listmunasali.
Frábær kvöldsaga
MIG langar til að þakka fyrir kvöld-
söguna sem er lesin á Rás 1, Dreka
og smáfugla eftir Ólaf Jóhann Sig-
urðsson. Þetta er alveg frábær saga
sem tekur senn enda og er í frábær-
um flutningi Þorsteins Gunnars-
sonar.
Guðrún.
Kisa týndist í Kópavogi
LJÓS, yrjótt grábrún lítil læða týnd-
ist frá Digranesheiði 4 23. júní sl.
Hún er ómerkt og ólarlaus og
mannafæla. Þeir sem vita um hana
hringi í síma 554 7004 eða 690 6956.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 4. júlí, ersextugur Ísleifur Pétursson,
Ársölum 1. Hann hefur starfað hjá
Sameinuðu þjóðunum síðastliðin 25 ár.
Hann ásamt konu sinni, Auði Alberts-
dóttur, fagnar deginum með fjölskyldu
og vinum.
75 ÁRA afmæli. Í dag, 4. júlí, er 75ára Pétur Urbancic. Eiginkona
hans er Ebba Egilsdóttir Urbancic og
munu þau gleðjast með börnum sínum
og fjölskyldu í tilefni dagsins.
STROPUÐ Hrafnsegg kallast sýn-
ing sem var opnuð í Gjábakka,
Fannborg 8 í Kópavogi.
Hér er um frekar óvenjulega sýn-
ingu að ræða en hún samanstendur
af ljóðum sem Hrafn Sæmundsson,
prentari og félagsmálatröll í Kópa-
vogi, hefur ort á undanförnum ár-
um. Ljóðin setur Hrafn upp í
ramma eða á töflur sem hann heng-
ir síðan upp á veggi í hreyfisal Gjá-
bakka.
Stropuð
Hrafnsegg
70 ÁRA afmæli. Í dag, 4. júlí, ersjötugur Sigurður E. Hannes-
son múrarameistari, Strandvegi 7,
Garðabæ. Eiginkona hans er Guðrún
Böðvarsdóttir. Þau eru að heiman í
dag.