Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 37
MENNING
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
12
9
2
400
60
460milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.16. á mi›vikudag
1. vinningur
Ertu me›
víkingabló›
í æ›um?
fiú flarft ekki endilega a› fara í útrás –
fla› nægir a› kaupa mi›a á næsta sölusta›.
Potturinn stefnir í 60 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 400 milljónir og bónusvinningurinn í 2 milljónir.
LEIKRITIÐ Penetreitor eftir Anth-
ony Neilson, sem sýnt var við mikl-
ar vinsældir síðasta sumar, verður
tekið aftur til sýninga 11. júlí.
Að sýningunni standa þeir sömu
og stóðu að uppfærslunni í Klink
og bank, leikararnir Stefán Hallur
Stefánsson, Vignir Rafn Valþórs-
son og Jörundur Ragnarsson. Leik-
stjóri er Kristín Eysteinsdóttir, um
hljóðmynd sér Karl Newman og
umsjónarmaður verkefnisins er
Ingvar E. Sigurðsson.
„Sú breyting hefur þó orðið á að-
standendahópi sýningarinnar að
bæst hafa nýir meðlimir við Hugar-
afl, félagasamtökin sem vinna
verkið með okkur,“ segir Stefán
Hallur, en uppsetning síðasta sum-
ars hafði þá sérstöðu að Hugarafl,
hópur fólks með geðræn vandamál
vann með leikurunum að uppsetn-
ingunni.
„Nýtt fólk kemur með ferskar
hugmyndir inn í verkið, en við leit-
umst umfram allt við að halda
verkefninu fersku og þróa það
áfram.“
Sýningar á verkinu munu að
þessu sinni fara fram í húsnæði Sjó-
minjasafns Reykjavíkur, Granda-
garði 8. Þar rúmast 80 gestir í stað
30 eins og var í Klink og Bank, en á
sýningunum síðasta sumar komust
færri gestir að en vildu.
Nánari upplýsingar um verkið
má finna á slóðinni http://
vermordingjar.blogspot.com en
þar eru jafnframt leiðbeiningar um
miðapantanir. Allur ágóði af sýn-
ingum Penetreitor rennur í styrkt-
arsjóð Hugarafls.
Leiklist | Sýningar á Penetreitor hefjast 11. júlí
Penetreitor snýr aftur
Morgunblaðið/Þorkell
Leikararnir í Penetreitor: Stefán Hallur Stefánsson, Vignir Rafn Valþórsson og Jörundur Ragnarsson.
ÁÐUR en sýningu Erics Bo-
gosians verða gerð skil er óhjá-
kvæmilegt annað en víkja nokkr-
um orðum að einleikjahátíðinni
Act alone, þessu ótrúlega einka-
framtaki Elvars Loga. Hann held-
ur nú þessa alþjóðlegu leiklist-
arhátíð í þriðja sinn á jafnmörgum
árum, með tólf sýningum, tveimur
námskeiðum og þremur erlendum
gestum. Hátíðin hefur ekki farið
sérlega hátt í menningarumræð-
unni hingað til, en núna er svo
sannarlega ástæða til að blása í
lúðra og hvetja leiklistaráhugafólk
um allt land til að sækja Ísafjörð
heim að ári, því ekkert bendir til
annars en Act alone sé komin til
að vera. Fjölbreytnin er mikil;
barnaefni, trúðleikur, söguleg
verk. Flytjendur hafa ólíkan bak-
grunn, sumir hafa leiklist-
armenntun, aðrir ekki, sumir
flytja eigin ritsmíðar, sumir túlka
verk annarra.
Opnunarsýning og skrautfjöður
hátíðarinnar að þessu sinni var
The worst of Eric Bogosian. Bo-
gosian þessi er amerískur einleik-
ari með glæstan feril að baki sem
sýningin veitir ágætis yfirlit yfir,
enda byggð upp af atriðum úr
fyrri verkum hans. Af þessum
sýnishornum að dæma er hann
mikill heimsósómahöfundur, en at-
riðin voru öll í tóntegund kald-
hæðinnar ádeilu á mannlega
breyskleika, trúarbrögð, græðgi
og heimsku. Reyndar átti sýningin
öll meira skylt við uppistand en
einleik í skilningi leikhússins, þó
svo í sumum atriðum væri það
sem kalla má persónusköpun var
algengara að Bogosian hellti ein-
faldlega úr skálum hneykslunar
sinnar á ástandi heimsins og inn-
ræti mannsins í eigin persónu. Og
að sjálfsögðu er ekkert við þá
nálgun að athuga þegar jafn flink-
ur maður er að verki og hér um
ræðir.
Eric Bogosian, sem er ein-
staklega orkuríkur flytjandi og
hefur frábært vald á efni sínu,
brunaði í gegnum prógrammið á
miklum hraða og krafti. Vera má
að meiri tilbreyting í styrk og
hraða hefði aukið áhrifamátt hvers
atriðis fyrir sig og þannig sýning-
arinnar í heild, sérstaklega síðustu
atriðanna þar sem linnulaus
flaumurinn af orðum, hug-
myndum, bröndurum og ádeilu
var óneitanlega farinn að deyfa
móttökutæki undirritaðs. Þarna
hefði líka hjálpað ef samband leik-
arans við áhorfendur hefði verið
örlítið skýrara og sterkara, nokk-
uð sem uppistandsformið eiginlega
krefst ef vel á að vera.
En þrátt fyrir þessar aðfinnslur
þá var megnið af kvöldinu bráð-
fyndið og beitt. Eftirminnileg er
óvægin afgreiðsla Bogosians á
kristinni trú, svo og á hugleiðslu-
iðnaðinum. Frá hreinræktuðu leik-
listarsjónarmiði var hápunkturinn
sennilega miðaldra dóphausinn
sem Bogosian leyfði sér að sýna
næsta hlutlaust og eftirlét áhorf-
endum það verkefni að dæma
hann. Það var líka athyglisvert
hvað þétt setinn salurinn átti auð-
velt með að grípa innihaldið þrátt
fyrir snerpuna í flutningnum og
þrátt fyrir hvað mikið af innihald-
inu var í raun sér-amerískt. Sýnir
sennilega hve menningarleg áhrif
vina okkar í vestrinu eru gríð-
arleg, þeirra raunveruleiki er okk-
ur það nálægur að við getum notið
þess að heyra honum ögrað á
þennan hátt.
The worst of Eric Bogosian var
skemmtileg sýning, kraftmikil,
fyndin og beitt, og gaf vonandi
tóninn fyrir áframhaldið á þriðju
einleikjahátíð Elvars Loga Hann-
essonar.
Einn síns liðs
LEIKLIST
Hamrar, Ísafirði
Flytjandi: Eric Bogosian, leikstjóri: Jo
Bonney. Act Alone, leiklistarhátíð á Ísa-
firði fimmtudaginn 29. júní 2006.
The Worst of Eric Bogosian
Ljósmynd/Susan Johann
Sýning Erics Bogosian, The Worst of Eric Bogosian, var opnunarsýning
einleikjahátíðarinnar Act alone sem fram fór á Ísafirði um helgina.
Þorgeir Tryggvason
GALLERÍIÐ i8 við Klapparstíg verður lokað vegna breytinga og sum-
arleyfa til 26. júlí. Mun það verða opnað aftur þann dag og þá með
sumarsýningu, sem inniheldur verk ýmissa myndlistarmanna er safn-
ið hefur á sínum snærum.
i8 lokað í bili