Morgunblaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 39
Sýnd kl. 6 B.i. 14 ára
eee
S.V. MBL.
Yfir 51.000 gestir!
YFIR 48.000 GESTIR!
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 - POWERSÝNING
-bara lúxus
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG!
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta heiminum með henni ...eða gera eitthvað allt annað?
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15
www.xy.is
200 kr afsláttur
fyrir XY félaga
eee
B.J. BLAÐIÐ
eee
S.V. MBL.
eee
V.J.V.Topp5.is
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
Mögnuð endurgerð af hinni
klassísku The Omen !
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sími - 551 9000
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Just My Luck kl. 5.40, 8 og 10.20
RV kl. 5.50
The Omen kl. 10.30 B.i. 16 ára
Take The Lead kl. 8 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
NÝJASTA mynd Adams Sandlers,
Click, fer beint í toppsætið þessa
vikuna. Um helgina sóttu rúmlega
sex þúsund manns þessa æv-
intýrafantasíu sem segir frá ungum
og metnaðarfullum fjölskylduföður
sem kemst yfir yfirnáttúrulega fjar-
stýringu. Er aðsóknin því komin upp
í tæplega 9.500 manns frá því að
myndin var frumsýnd síðastliðinn
miðvikudag. Guðmundur Breiðfjörð
hjá Senu kveðst vera mjög ánægður
með viðtökurnar en að hans sögn er
um er að ræða eina bestu opnun á
Sandler-mynd síðustu árin.
Tvær nýjar myndir aðrar eru í
toppsætunum; í því þriðja og fjórða.
Tæplega 1.600 manns brugðu sér í
kvikmyndahús um helgina til að sjá
The Fast and the Furious: Tokyo
Drift og rúmlega 900 sáu The Lake
House. Sú síðarnefnda skartar
stjörnunum Keanu Reeves og
Söndru Bullock sem slógu einmitt
bæði fyrst í gegn með samleik sín-
um, í hinni vinsælu spennumynd
Speed. Í þetta skipti leiða þau saman
hesta sína í rómantískri ástarsögu
sem fjallar um fólk sem verður ásta-
fangið í gegnum bréfaskipti þó það
sé statt í mismunandi tíma.
Það er svo greinilegt að talandi
bílar eiga upp á pallborðið hjá Ís-
lendingum því á hæla Click kemur
Pixar-teiknimyndin og toppmynd
síðustu viku, Cars. Um 50.000
manns hafa nú séð Da Vinci Code
sem er sú mynd á listanum sem hef-
ur hlotið mesta aðsókn og svo virðist
sem Hoodwinked spyrjist vel út því
hún situr í áttunda sæti þrátt fyrir
að hafa verið allnokkuð lengi í um-
ferð, eða í tíu vikur.
Aðrar myndir sem ná inn á topp
tíu eru Poseidon, Just my Luck, RV
og She’s the man.
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar
Adam Sandler
klikkar ekki
! "#
$#
%#
&#
'#
(#
)#
*#
+#
",#
.-6. && &&
Adam Sandler á sér tryggan aðdáendahóp hér á landi.
HLJÓMSVEITIN Sálin hans Jóns
míns mun gera víðreist í sumar og
halda tónleika víðs vegar um landið.
Sveitin hefur verið í fríi síðan um ára-
mót og segir Stefán Hilmarsson,
söngvari sveitarinnar, að þeir félagar
hafi lengi haft þann háttinn á að taka
orlof annað slagið. „Ég held að það
hafi nú orðið til þess að við erum
orðnir svona langlífir, frekar en ann-
að. Þetta er náttúrlega lítill heima-
markaður og það þarf að hvíla fólkið,
og ekki síður að hvíla okkur sjálfa.
Maður þarf að safna orku og stíga að-
eins út úr hringleikahúsinu,“ segir
Stefán.
Fyrstu tónleikarnir verða á NASA
við Austurvöll á föstudaginn í næstu
viku og í kjölfarið fylgja tónleikar vítt
og breitt um landið. Hringnum verð-
ur svo lokað í Laugardalshöll þar sem
sveitin kemur fram ásamt Gospelkór
Reykjavíkur á stórtónleikum hinn 15.
september. „Við erum alltaf að spá í
einhverja hluti til þess að endurnýja
okkur, og til þess að takast á við eitt-
hvað nýtt og spennandi, í stað þess að
vera alltaf í því að fara inn í stúdíó til
þess að taka upp plötur,“ segir Stef-
án. „Við höfum nú gert það nokkrum
sinnum áður að taka saman við ein-
hverja utanaðkomandi aðila til þess
að fá ferska vinda í hópinn,“ bætir
Stefán við, en Sálin hefur meðal ann-
ars spilað með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og spilað í söngleiknum Sól og
Máni. „Svo má kannski segja að þetta
svipi til þess þegar við fórum í Loft-
kastalann og héldum þar órafmagn-
aða tónleika sem voru teknir upp hinn
12. ágúst árið 1999. Meiningin er sú
að taka þessa tónleika líka upp og
vonandi gefa þá út bæði á geisladisk
og á DVD.“
Tvö ný lög frumflutt
Stefán segir að á tónleikunum
verði flutt eldri lög sem talin eru
hentug til flutnings með kórnum, en
einnig verði þar frumflutt tvö ný lög
sem samin eru sérstaklega fyrir þetta
tilefni. „Mörg okkar laga í gegnum
tíðina hafa verið í rólegri kantinum og
kannski á rómantísku nótunum. Ég
geri ráð fyrir að þarna verði til dæmis
lagið Undir þínum áhrifum flutt.
Þetta verða svona sálarskotin lög,
sem henta vel í þetta, en það er nátt-
úrlega þunn lína á milli sálartónlistar
og gospeltónlistar. Okkur finnst þetta
vera skemmtileg blanda,“ segir Stef-
án sem vill ekki meina að hugmyndin
sé fengin frá hljómsveitinni Blur sem
notaðist við gospelkór á plötu sinni 13
árið 1999. „Þetta er nú bara hugmynd
sem hann Gummi [Guðmundur Jóns-
son gítarleikari] fékk eftir miklar
pælingar. Þessi hugmynd er reyndar
búin að vera að brjótast um í kollinum
á honum nokkuð lengi. Svo hitti hann
Óskar Einarsson, sem er forsprakki
kórsins, og þeir tóku tal saman. Þessi
hugmynd kom upp á yfirborðið á ör-
skotsstundu og þeir ákváðu bara að
kýla á þetta. Ég held að þetta sé kær-
komið tækifæri fyrir þá sem una okk-
ar tónlist annars vegar og gosp-
eltónlist hins vegar.“
Að sögn Stefáns er stefnt að því að
tónleikaplatan komi út fyrir næstu
jól, en lengri bið sé eftir plötu sem
einungis inniheldur nýtt efni. „Ég
held að við stefnum að því að kíkja á
plötu á næsta ári, það má allavega
segja að hún sé í farvatninu. En við
erum í miklu stuði þessa dagana og
okkur finnst stemningin í hópnum
eiginlega aldrei hafa verið betri. Það
er alltaf gaman að koma saman eftir
frí, þegar allir eru endurnærðir,“ seg-
ir Stefán að lokum.
Miðasala á tónleika Sálarinnar og
Gospelkórs Reykjavíkur hefst innan
skamms og verður auglýst þegar nær
dregur.
Tónlist | Sálin hans Jóns míns kemur saman eftir nokkurt hlé
„Við erum í miklu stuði þessa dagana og okkur finnst stemningin í hópnum aldrei hafa verið betri,“ segir Stefán.
Spila með Gospelkór
Reykjavíkur
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Tónleikar Sálarinnar
á næstu vikum:
14. júlí: NASA, Reykjavík
4. og 5. ágúst: Akureyri
6. ágúst: Norðfjörður
11. ágúst: Players, Kópavogi
12. ágúst: Stapinn, Njarðvík
18. ágúst: Bolungarvík.
19. ágúst: Reykjavík
26. ágúst: Akranes
2. sept: Hlégarður, Mos.
15. september: Laugardalshöll