Morgunblaðið - 06.07.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.07.2006, Blaðsíða 1
Listbíll Ólafs Elíassonar Köngulóarmaðurinn hefði verið full- sæmdur af farartækinu | Af listum Viðskipti | Alþjóðavæðing í stað útrásar  Áhuga- verð fjárfestingatækifæri í Mið-Evrópu Íþróttir | Lokasýning Zidane í Berlín  Ólafur með vallarmet Viðskipti og Íþróttir í dag HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hyggur á tónleikaferð um landið í sumar og heldur meðal annars útitónleika á Klambratúni í Reykjavík. Tónleik- arnir á Klam- bratúni verða sendir út beint í þjóð- arkvikmynda- hús Englend- inga í Lundúnum, National Film Theatre, en tónleikaferðin öll verður kvikmynduð. Tónleik- arnir á Klambratúni verða sunnu- daginn 30. júlí og hefjast kl. 20.30. Aðgangur verður ókeypis. Að sögn skipuleggjenda ferðarinnar er nán- ast búið að fastsetja tónleika utan Reykjavíkur og ljóst að það verða nokkrir tónleikar víða um land á tveggja vikna tímabili. Strengjasveitin Amiina hitar upp fyrir Sigur Rós, en stöllurnar í Ami- inu leika einnig með Sigur Rós í nokkrum lögum. Megintilgangur tónleikaferðarinnar er gerð kvik- myndar um Sigur Rós, mannlíf á Ís- landi og náttúrufar. Sigur Rós á Klambratúni ÞÆR voru fremur makindalegar og ekkert að flýta sér um of kýrnar frá Geirsstöðum í Fá- reyna að reka kýrnar af veginum og í haga til þess að þær færu ekki í veg fyrir umferðina. skrúðsfirði. Í haganum var Gestur Sigmundsson frá Kjappeyri að gæta búfénaðar bróður síns og Morgunblaðið/ÞÖK Kýr á leið í hagann undir góðri leiðsögn FRAKKAR leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu gegn Ítölum á sunnudaginn í Berlín í Þýskalandi eftir 1:0-sigur í gær gegn Portúgal í München. Zinedine Zidane skoraði eina mark leiksins úr víta- spyrnu en hann er að leika síðustu leiki sína á ferlinum á heimsmeist- aramótinu. Lokasýning Zidane verð- ur því í leiknum um gullið. Frakkar fögnuðu titlinum árið 1998 á heimvelli en Ítalir hafa ekki orðið heimsmeist- arar síðan á Spáni 1982. | B1 Reuters Frakkar leika um HM-gullið Teheran. AFP. | Íranar frestuðu mik- ilvægum samningaviðræðum sendi- nefndar þeirra við embættismann Evrópusambandsins í Brussel í gær og sögðu ástæðuna þá að þeir ótt- uðust „morðsveitir“ í borginni. „Eftir að hafa fengið fréttir frá Brussel um að morðsveitir væru þar létu embættismenn í ljós áhyggjur af öryggi sendinefndar Írans,“ sagði ír- anska fréttastofan IRNA. Sendinefndin frestaði fundi með Javier Solana, æðsta embættismanni ESB í utanríkismálum, þar til á þriðjudaginn kemur en þáði boð hans um að snæða kvöldverð með honum í dag. Solana hafði lagt fast að Írönum að svara fjölþjóðlegu tilboði um lausn á deilunni um kjarnorkuáætl- un þeirra. Önnur írönsk fréttastofa, ISNA, sagði að fundinum hefði verið frestað vegna þess að sendinefndin hefði haft spurnir af því að Maryam Raj- avi, leiðtogi íranskrar útlagahreyf- ingar, væri stödd í Brussel. Hreyfing hennar hefur verið bönnuð í Íran og víðar, m.a. í Bandaríkjunum og Evr- ópusambandinu. Rajavi, sem hefur dvalið í Frakk- landi, er ein af hörðustu andstæð- ingum klerkastjórnarinnar í Íran. Sögðust óttast morðsveitir Íranar frestuðu samn- ingaviðræðum í Brussel Washington. AFP. | Stjórnvöld í Bandaríkjunum og grannríkjum Norður-Kóreu fordæmdu í gær eld- flaugatilraunir Norður-Kóreumanna eftir að þeir skutu sjö eldflaugum í tilraunaskyni. Stjórnin í Washington og banda- menn hennar í Asíu hótuðu refsiað- gerðum gegn stjórninni í Norður- Kóreu og hvöttu hana til að hefja af- vopnunarviðræður að nýju. George W. Bush Bandaríkjafor- seti kvaðst hafa miklar áhyggjur af nýrri gerð langdrægra eldflauga, sem Norður-Kóreumenn skutu í fyrrakvöld, þótt skotið hefði mis- heppnast. Stjórn Suður-Kóreu setti her sinn í viðbragðsstöðu og fordæmdi eld- flaugatilraunirnar. Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna ræddi málið í gær- kvöldi, að beiðni Japana. Eldflaugatilraunirnar eru taldar hafa stuðlað að metverði á olíu í New York. Hráolíuverðið hækkaði þar í 75,19 dali á fatið í gær og hefur aldrei verið jafnhátt. Hörð viðbrögð við eldflaugaskotum Skorað á N-Kóreu að hefja viðræður á ný  Öryggisráðið | 14 Stateline. AP. | Bjarnarhúnn dró að sér hóp áhorfenda í Nevada í Bandaríkjunum á dögunum þegar hann settist inn í Buick-bíl og gæddi sér á pitsu í aftursætinu. Eigandi bílsins segir að húnninn hafi skolað pitsunni niður með slurk af eðalviskíi, vodka og bjór sem hann tók úr kælikassa í bílnum. Um 30 manns fylgdust með hún- inum þegar hann settist inn í bílinn. Hann kippti sér ekki upp við lát- lausan hávaða frá bílflautunni þeg- ar hann ýtti framsætinu á stýrið. Eigandi bílsins sagði að húnninn hefði ekki valdið neinum skemmd- um en sullað osti og pitsuáleggi á sætið og gólfið. Gerði sér glaðan dag í aftursætinuHÁTT eldsneytisverð ætti að verastjórnvöldum tilefni til að draga úr ofurskattlagningu á eldsneyti við nú- verandi aðstæður, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Ástæður hás eldsneytisverðs eru sagðar lágt gengi krónunnar gagn- vart bandaríkjadal og hátt heims- markaðsverð. „Þetta er komið yfir ákveðin þol- mörk að margra mati og svo hátt eldsneytisverð getur haft áhrif á gangverk samfélagsins,“ segir Run- ólfur. Ekki einangrað fyrirbrigði „Það er því ekki hægt að líta á þetta sem einangrað fyrirbrigði, að það sé eðlilegt að verð hækki hér því það hækkar á mörkuðum erlendis. Þótt á liðnum árum hafi stórum hluta skattanna verið breytt úr hlut- fallssköttum í fastar krónutölur er 24,5% virðisaukaskattur á bensíni og ríkissjóður tekur fleiri krónur af hverjum lítra nú en fyrir ári.“ Runólfur segir eðlilegt að stjórn- völd grípi til aðgerða meðan heims- markaðsverð sé óvenju hátt. Það geti verið hagstjórnartæki til að draga úr gríðarlegri hækkun verð- lags sem átt hafi sér stað undanfarið. Stjórnvöld hafi hins vegar ekki tekið vel í þá hugmynd. „Það er spurning hvort þetta muni á næstu vikum og mánuðum koma inn í samkomulag sem er búið að ná að hluta meðal að- ila vinnumarkaðarins.“ Runólfur segir að hluti svokall- aðra bensínskatta sé eyrnamerktur vegaframkvæmdum. Hluti af að- gerðum stjórnvalda til þess að stemma stigu við þenslu sé hins veg- ar fólginn í því að draga úr vega- framkvæmdum. Í því ljósi sé jafn- framt ekki óeðlilegt að dregið sé úr skattheimtunni á móti. Lækkun bensínverðs getur verið hagstjórnartæki „Þetta er komið yfir ákveðin þolmörk“                                        Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ♦♦♦ STOFNAÐ 1913 . TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.