Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 27 MINNINGAR Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. (Hákon Aðalsteinsson.) Elsku Valdi bróðir minn er lát- inn, langt fyrir aldur fram, hann var besti vinur minn og hægt að tala við hann um alla hluti. Hann var yngsti bróðir minn og bara eitt ár á milli okkar. Lífið og lífsbar- áttan í „gamla“ daga var allt önnur en nú til dags. Mamma og pabbi skildu þegar við vorum 6 og 7 ára og fljótlega þegar við vorum komin til vits og ára (8–9 ára) vorum við send í sveit á sumrin í 4 mánuði ár hvert. Byrjaði þá ferðin á BSÍ og endaði norður í Fljótum í Skagafirði og tók ferðalagið 12 tíma ef ekki sprakk á rútunni á leiðinni. Ferðin lá til ömmu og afa og móðurbróð- ur. Þar bjó einnig elsti bróðir okk- ar Þráinn sem alinn var upp hjá ömmu en var hann mikil fyrir- mynd Valda, sterkur og góður drengur. Margt gerist á fjórum mánuðum hjá svo litlum börnum og enginn GSM-sími engin elsku mamma – hvernig lifðum við þetta af? Þá var gott að hafa hvert ann- að að leita til í sorgum og gleði og hjálpa hvert öðru og hvetja áfram. Það má segja að þessi tími í sveit- inni hafi bundið okkur sterkum böndum æ síðan. Árin liðu og fannst mér Valdi alltaf vera þessi ljúfi góði drengur en eins og hann bæri með sér dulinn harm. Við bjuggum saman hjá móður okkar fram yfir tvítugt, en þá hafði Valdi verið að vinna verka- mannavinnu, eins og í Lýsi hf. og Ísbirninum en við 23 ára aldurinn veikist Valdi alvarlega af þung- lyndi og byrjar sína þrautagöngu í kerfinu. Framan af gekk þetta nokkuð vel og sótti hann iðjuþjálf- un og bjó á sambýlum, seinna þeg- ar klúbburinn Geysir var stofn- aður var hann virkur tölvukarl í klúbbnum og fannst hann skipta máli, en hætti svo að mæta út af ýmsum ástæðum og þá tók að halla undan fæti. Tölvan hjálpaði Valda mikið, hann þurfti ekki að fara út úr húsi, en það var oft erf- itt að hitta annað fólk. Önnur ástríða Valda var Star Trek-mynd- irnar og átti hann allt safnið, marga hillumetra af DVD og víd- eóspólum og þreyttist hann seint á VALDIMAR GUÐMUNDUR JAKOBSSON ✝ Valdimar Guð-mundur Jak- obsson fæddist í Reykjavík 2. októ- ber 1959. Hann lést á líknardeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Kópavogi, þriðju- daginn 27. júní síð- astlíðinn. Foreldr- ar hans eru Fjóla Sigurjónsdóttir frá Miklahóli í Viður- víkursveit í Skaga- firði, f. 12. júní 1921, d. 18. júlí 2003 og Jakob Valdimarsson frá Hraunsholti í Garðabæ, f. 17. september 1928. Valdimar á sex systkini, þau eru: Þráinn Kristjánsson, f. 23. febrúar 1943, Lára Krist- jánsdóttir, f. 27. október 1945, Örn Berg Guðmundsson, f. 19. desember 1949, Björk Krist- jánsdóttir, f. 29. nóvember 1953, Stefanía Kristjánsdóttir, f. 30. apríl 1956 og Sigurlaug Jakobsdóttir, f. 26. september 1958. Útför Valdimars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. að segja mér frá þessum skemmti- legu myndum og öllum þeim ævin- týrum sem meðlim- ir Star Trek lenda í. Það sem ein- kenndi Valda öðru fremur var hjálp- semin og góð- mennskan og reyndist hann mér og Braga mannin- um mínum ómetan- legur fyrir 10 árum þegar við keyptum húsið okkar tilbúið undir tréverk og ég ófrísk af mínu fyrsta barni. Þá var Valdi betri en enginn, pípu- lagnir, flísalagnir, smíðar eða hvað sem er, allt lék í höndunum á hon- um. Ekki má gleyma börnunum mín- um Fjólu og Kalla, en þau elskaði hann sem sín eigin og reyndist okkur Braga ómetanlegur við að passa þau og hjálpa okkur að koma þessum blessuðu englum til manns. Fyrir tæpum þremur árum erfði Valdi pening eftir afa sinn og gat þá í fyrsta skiptið á ævinni eignast sína eigin íbúð og nýjan bíl. En hann var mikill bílakarl. Kom ég oft til hans í íbúðina til að spjalla og spá og var unun að sjá hvað hann var smekklegur og mikill fagurkeri og naut þess að eiga sitt eigið dót. Fannst honum lífið loks- ins blasa við sér og að hann ætti einhvern séns að lifa eins og annað fólk og vildi ólmur fara að ferðast og gerði hann nokkuð af því eftir að hugrekkið jókst og er mér og fjölskyldu minni ógleymanleg ferð- in okkar til Mallorka fyrir tveimur árum. En fljótt skipast veður í lofti og fyrir þremur mánuðum greindist Valdi með illkynja heila- æxli – engin meðferð. Hann lá fyrst í tæpa tvo mánuði inni á B-6 á Borgarspítala eftir heilaupp- skurð og síðan rúman mánuð á líknardeildinni í Kópavogi. Þetta var hræðilega erfiður tími í lífi Valda og mínu og okkar allra sem önnuðust hann, og vil ég nota tækifærið og þakka Aroni Björns- syni heilaskurðlækni og hans starfsfólki fyrir hjálpina og ekki síður því yndislega starfsfólki sem er á líknardeildinni í Kópavogi fyr- ir ómetanlegan stuðning og hjálp og er ég viss um að þar er fólk ráðið eftir hjartalagi. Takk fyrir okkur Valda. Það mætir oft svo margt í lífsins stríði sem mönnum ógnar hér á lífsins braut, en gagnar nokkuð grátur eða kvíði? nei, göngum djarft á móti hverri þraut. Því englar Drottins yfir sálum vaka og eru bæði skjól og verndarhlíf, þeir kunna frá oss tárin burt að taka. Vér treystum Guði meðan endist líf. (Margrét Jónsdóttir.) Hvíl í friði, Sigurlaug systir. Hún er konan, sem kyrrlátust fer og kemur þá minnst þig varir, og les úr andvaka augum þér hvert angur, sem til þín starir. Hún kemur og hlustar, er harmasár hjörtun í einveru kalla. Hún leitar uppi hvert tregatár. Hún telur blöðin, sem falla. Og hún er þögul og ávallt ein og á ekki samleið með neinum. Því hún er sorgin, sem sefar hvert mein, Og sífellt leitar að einum. (Tómas Guðmundsson.) Hvíl í friði, Valdi minn. Þín systir, Stefanía. ÉG VAR undrandi á grein Þórs Sigfússonar hér í Morg- unblaðinu á þriðjudag. „Hvers vegna Sjóvár-brautin?“ er yf- irskrift hennar. Í fyrstu máls- greininni er nafn mitt nefnt í því samhengi að ómögulegt er að skilja öðru vísi eftir lestur greinarinnar en svo að ég vilji beita skuggagjöldum við bygg- ingu og rekstur umferðarmann- virkja. En því er öfugt farið. Ég veit að Þór Sigfússon vill ekki gera mér upp skoðanir, en þetta var ógott. Í grein minni á mánudag rakti ég ókosti þessarar leiðar, sem kennd er við skuggagjöld. Kjarni hennar er sá, að ríkið feli öðrum að taka lán fyrir sig í staðinn fyrir að taka það sjálft. Vaxtamunurinn yrði a.m.k. 2–4%, sem safnaðist fljótt upp í háar fjárhæðir á kannski 25 ár- um. Ofan á bættist síðan sú þóknun, sem fyrirtækið tæki til sín, því að kerling vill fá nokkuð fyrir snúð sinn. Ég skal ekki endurtaka grein mína hér, en hlýt að spyrja, úr því að Þór Sigfússon nefndi nafn mitt, af hverju hann svaraði henni ekki efnislega. Ég efast ekki um áhuga Sjó- vár fyrir því að bæta Suður- landsveg yfir Hellisheiði til að draga úr slysum og tjónum. Og ég leyfi mér raunar að bæta því við, að vonandi taki þessi áhugi ekki aðeins til Hellisheiðar heldur vegakerfisins í heild sinni. Ég trúi því sem sé að ég og mitt gamla félag getum sam- einast á þessum punkti. Og þá hljótum við líka að vera sam- mála um að velja þær lausnir sem eru ódýrastar, ef þær eru jafngóðar. Þá verður okkur mest úr verki. Þá fækkar slys- unum og tjónunum mest. Allar vegaframkvæmdir eru boðnar út og hönnun og veg- hald í vaxandi mæli. Þar njóta kostir einkaframtaksins sín til fulls. Í grófum dráttum hefur þeirri reglu verið fylgt, að undir vegaframkvæmdum hefur ekki verið staðið með lántökum. Lagning nýs vegar yfir Hellis- heiði kostar ekki þvílíka fjár- muni að ástæða sé til að hverfa frá þeirri reglu. Annað eins hef- ur verið gert. Skuggagjöldin eru andstæð þeirri stefnu, sem fylgt er í ríkisfjármálum. Um Hvalfjarðargöngin gegnir öðru máli. Ekki voru pólitískar forsendur fyrir því að fara út í þá framkvæmd nema með inn- heimtu vegtolla. Einsýnt er að fara þá leið á ný, nú þegar göngin verða breikkuð eða ný göng gerð. Hið sama á við um göngin undir Vaðlaheiði. Þetta hvort tveggja helst í hendur. Við skulum ekki koma óorði á einkavæðinguna. Einkavæðing er brothætt orð og hlýtur með öðru að fela í sér að fara hag- kvæmustu og ódýrustu leiðina að settu marki ef hún er jafn- góð eða betri. Halldór Blöndal Einkavæðing er brothætt orð Höfundur er alþingismaður Norðausturlands. KRISTJÁN Guðmundsson, fyrr- verandi skipstjóri, ritaði grein í mánudagsblað Morg- unblaðsins, þar sem hann beindi máli sínu til ráðuneytis, sem ekki er nánar til- greint. Það er ekki mitt að svara fyrir ráðuneytið, hvert sem það kann að vera. Ástæða þess að ég drep niður penna er önnur. Í grein sinni vitnar Kristján til máls sem ég hef kom- ið að og almenningur þekkir vel til. Málið varðar andlát Matt- hildar V. Harðardóttur og Friðriks Á. Hermannssonar og aðdraganda þess. Í grein sinni vegur Kristján að æru Matthildar og Friðriks og fer þar rangt með staðreyndir. Þar sem Matthildur og Friðrik eru ekki til svars fyrir sína hönd finn ég hjá mér hvöt til að leiðrétta misgjörðir skipstjórans fyrrverandi á þeirra hlut. Fullyrðing númer eitt Í grein Kristjáns segir orðrétt: „Á það skal bent að samkvæmt lögum um akstur bifreiðar, er sá sem fer upp í bifreið hjá ökumanni sem er undir áhrifum áfengis, og fær far með honum, jafn sekur er varðar ölvun við akstur.“ Þetta er rangt. Umferðarlög hafa ekki að geyma neitt ákvæði í þessa veru. Íslenskir dómstólar hafa í tilvikum sem þessum fært niður skaðabæt- ur, sem dæmdar hafa verið fólki sem tekið hefur sér far með ölv- uðum ökumanni, eða fellt þær nið- ur, á þeim forsendum að um áhættutöku eða eigin sök hafi verið að ræða. Aðstandendum Matt- hildar og Friðriks voru dæmdar skaðabætur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, en bæturnar voru hvorki lækkaðar né felldar niður. Sjón- armiðum um áhættu- töku eða eigin sök var m.ö.o. hafnað. Fullyrðing númer tvö Áfram segir í grein- inni: „Því verður ekki horft fram hjá því að vinafólk sakbornings- ins og sakborningur höfðu verið að skemmta sér saman og neytt áfengis áður en ákveðið var að fara í hina örlagaríku ferð og var í sam- bærilegu andlegu ástandi með til- liti til áfengisáhrifa.“ Enn fer skip- stjórinn fyrrverandi rangt með staðreyndir málsins. Í fyrsta lagi kom ekkert fram við meðferð málsins fyrir dómi, sem rennt getur stoðum undir þá fullyrðingu Kristjáns, að vinafólk sakborningsins og sakborningur hafi verið að skemmta sér saman og neytt áfengis áður en ákveðið var að fara í hina örlagaríku ferð. Þvert á móti kom fram að áfeng- isneysla hófst eftir að ferðin var hafin. Skipstjóri og stjórnandi báts ræður því hvenær bát er lagt að landi, en ekki farþegar hans, í þessu tilviki sakborningur. Matt- hildur og Friðrik höfðu enga ástæðu til að ætla að hann væri undir áhrifum áfengis þegar báts- ferðin hófst og ekkert bendir til að þau hafi nokkru getað ráðið um það hvenær endi var bundinn á ferðina. Í öðru lagi þá var Matthildur heitin allsgáð þetta kvöld. Að- dróttun Kristjáns er því til- hæfulaus og í hæsta máta ósmekk- leg. Fullyrðing númer þrjú Enn segir í grein Kristjáns: „Þar af leiðandi var ábyrgð farþeg- anna engu minni, en sakborningur var eigandi bátsins.“ Þessi fullyrð- ing er röng, eins og fyrri fullyrð- ingarnar tvær, en hún er einnig óskiljanleg og ámælisverð, ekki hvað síst þegar virt er reynsla og staða Kristjáns Guðmundssonar, sem fyrrverandi skipstjóra og starfsmanns Rannsóknarnefndar sjóslysa. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er í löngu máli fjallað um ábyrgð á því, sem gerðist um borð í nefnd- um báti hina afdrifaríku nótt. Hvergi er þar minnst á ábyrgð Matthildar og Friðriks sem far- þega, en því fleiri orð notuð til að lýsa ábyrgð ákærða, sem skip- stjóra á bátnum og stjórnanda hans. Niðurstaða héraðsdóms að því er varðar ákeyrsluna á Skarfasker er þessi: „Samkvæmt öllu fram- ansögðu og að því virtu að ákærði sigldi Hörpunni á allt að 17 sjó- mílna hraða á Skarfasker, í nátt- myrkri og slæmu skyggni, verður ekki ályktað á annan veg en að or- sök slyssins megi rekja til fífl- dirfsku ákærða, kunnáttuleysis, dómgreindarleysis og ölvunar, nema þar fari saman fleiri en einn orsakavaldur.“ Friðrik heitinn lést af völdum áverka sem hann hlaut við ákeyrsluna. Niðurstaða héraðsdóms varðandi lát Matthildar er þessi: „Með að- gerðum sínum og aðgerðarleysi innsiglaði ákærði örlög Matthildar, sem var neðan þilja hjá látnum unnusta sínum. Ber ákærði óskor- aða ábyrgð á dauða hennar …“ Matthildur var allsgáð og nánast óslösuð eftir ákeyrsluna og er það mat héraðsdóms að hún hefði lifað sjóslysið af, ef ákærði hefði brugð- ist við slysinu með eðlilegum hætti. Rannsóknarnefnd sjóslysa skil- aði skýrslu um rannsókn sína á umræddum atburði. Niðurstaða nefndarinnar er eft- irfarandi: „Orsök óhappsins er stórkostlegt gáleysi við stjórn bátsins og verulegar líkur á því að þar hafi ölvunarástand skipstjóra skipt verulegu máli.“ Hvergi er í skýrslu nefndarinnar vikið að meintri ábyrgð hinna látnu. Niðurstöður fagaðila, sem fjallað hafa um þetta mál, eru afdrátt- arlausar varðandi það hver beri ábyrgð á því sem gerðist þessa nótt. Ábyrgðin liggur ekki hjá hin- um látnu, eins og fullyrt er af hálfu Kristjáns Guðmundssonar, heldur hjá skipstjóra og stjórn- anda bátsins, sem nú hefur hlotið dóm fyrir brot sín. Ég bið Kristján Guðmundsson um að fara rétt með staðreyndir, kjósi hann að tjá sig frekar um þá atburði sem urðu tilefni að grein hans. Rangfærslur leiðréttar Jóhannes Rúnar Jóhannsson svarar grein Kristjáns Guðmundssonar ’Niðurstöður fagaðila,sem fjallað hafa um þetta mál, eru afdráttarlausar varðandi það hver beri ábyrgð á því sem gerðist þessa nótt. Ábyrgðin liggur ekki hjá hinum látnu, eins og fullyrt er af hálfu Kristjáns Guð- mundssonar, heldur hjá skipstjóra og stjórnanda bátsins...‘Jóhannes Rúnar Jóhannsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. UMRÆÐAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.