Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 35 Atvinnuauglýsingar Fyrirtækjaöryggi • Heimaöryggi • Sumarhúsaöryggi Áskrift að öryggi Öryggisverðir Keflavíkurflugvöllur Starfið: Starfsumsókn: Hæfniskröfur: Býrð þú á Suðurnesjum og viltu vinna við spennandi og ögrandi starf? Þá er Öryggismiðstöðin með rétta starfið fyrir þig. Öryggismiðstöðin leitar að öflugum liðsmönnum, konum jafnt sem körlum, í vaktavinnu á Keflavíkurflugvelli. Í boði er spennandi starf hjá öflugu og framsæknu þjónustufyrirtæki á sviði öryggismála. Starfið felst í öryggisleit og öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli við komu farþega til landsins. Skriflegar umsóknir skulu sendast merkt: Atvinna, Öryggismiðstöðin, Borgartúni 31, 105 Reykjavík eða á netfangið atvinna@oryggi.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ekki er tekið við fyrirspurnum í síma. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Öryggismiðstöðin leggur áherslu á að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem býr yfir faglegri þekkingu og reynslu á sviði öryggismála. Allir öryggisverðir gangast undir þjálfun og sækja námskeið sem miða að því að gera þá sem hæfasta í starfi. Öryggismiðstöðin er alhliða öryggisfyrirtæki sem rekur sína eigin stjórnstöð sem er starfsrækt 24 tíma sólarhrings, allt árið um kring. Hjá Öryggismiðstöðinni starfa 150 manns. Skilyrði er að umsækjendur séu orðnir 20 ára og séu vel á sig komnir líkamlega og andlega. Farið er fram á stundvísi, snyrtimennsku, heiðarleika og hreint sakavottorð. pi pa r / SÍ A KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Frá Smáraskóla Kennari óskast næsta skólaár: • Umsjónarkennari á byrjendastigi (vegna námsorlofs) Laun skv. kjarasamningi Launanefndar sveitar- félaga og KÍ. Upplýsingar gefa: Valgerður Snæland Jóns- dóttir, skólastjóri í síma 899 7999 og Baldur Pálsson, aðstoðarskólastjóri, 695 0626. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Leikskólinn Sælukot sem er einkarekinn leikskóli, óskar eftir leiðbeinanda í afleysingar, 50% stöðu, frá kl. 13.00-17.00, sem fyrst. Upplýsingar gefur Dídí í símum 552 7050 og 562 8533. Raðauglýsingar 569 1100 Atvinnuhúsnæði Við Dýrafjörð 1.000 fm atvinnuhúsnæði til leigu á Þingeyri með tölvutengingum og aðstöðu til iðnaðar-, rannsókna-, kennslu- og skrifstofurekstrar. Sanngjörn leigufjárhæð. Sími 456 8110. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Austurvegi 6, Hvolsvelli, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Brúnalda 1, Rangárþing ytra, fnr. 225-8444, þingl. eig. Gljúfurá ehf., gerðarbeiðandi Rangárþing ytra, miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Freyvangur 2, Hellu, Rangárþing ytra, lnr. 192953, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðarbeiðandi Rangárþing ytra, miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Gilsbakki 20, Rangárþing eystra, fnr. 227-0605., þingl. eig. Samverjinn ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Rangárþing eystra og Vá- tryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Gilsbakki 8a og 8b, Rangárþingi eystra, lnr. 193301, þingl. eig. Sam- verjinn ehf., gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., miðviku- daginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Hlíðarvegur 11, Rangárþing eystra, fnr. 224-2224, þingl. eig. Kiðja- berg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra, miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Hlíðarvegur 7, Rangárþing eystra, fnr. 219-4802, þingl. eig. Kiðjaberg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra, miðviku- daginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Hlíðarvegur 9, Rangárþing eystra, fnr. 219-4803, þingl. eig. Kiðjaberg ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Rangárþing eystra, miðviku- daginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Sigalda 1, Rangárþing ytra, fnr. 227-5570, þingl. eig. Samverjinn ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rangárþing ytra, miðviku- daginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Tjaldhólar, Rangárþing eystra, lnr. 219-4649, þingl. eig. Særún Stein- unn Bragadóttir og Guðjón Steinarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalán- asjóður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Vestri Garðsauki, Rangárþing eystra, lnr.164204, þingl. eig. Jón Logi Þorsteinsson, Guðrún Jónsdóttir, Sjöfn Halldóra Jónsdóttir og Einar Jónsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., miðvikudaginn 12. júlí 2006 kl. 10:30. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 5. júlí 2006. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Eystri Kirkjubær, hesthús, Rangárþingi ytra, fnr. 219-5488, talin. eig. Guðjón Sigurðsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Hvols- velli og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 11. júlí 2006 kl. 10:00. Gilsbakki 8b, Rangárþing eystra, fnr. 228-7362, þingl. eig. Samverjinn ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rangárþing eystra, þriðju- daginn 11. júlí 2006 kl. 13:00. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 5. júlí 2006. Tilkynningar Auglýsing um deiliskipu- lag í Helgafellssveit Snæfellsnessýslu Samkvæmt ákvæðum 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á gild- andi deiliskipulagi á jörðinni Innri- Kóngsbakka í Helgafellssveit. Gert er ráð fyrir heimild til byggingar sex íbúðarhúsa í stað fimm íbúðar- húsa auk húsa sem fyrir eru á jörðinni. Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmál- um liggur frammi hjá oddvita, Saurum frá 6. júlí 2006 til 3. ágúst 2006 á venjulegum skrif- stofutíma. Athugasemdum skal skila til oddvita, Saurum fyrir 17. ágúst 2006 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi. Félagslíf Lofgjörðarsamkoma í kvöld kl. 20.00. Opið hús daglega kl. 16—22. Allir velkomnir. Fréttir í tölvupósti Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn FRÉTTIR HELGINA 24.–25. júní fór fram í Limerick á Írlandi heimsmeistara- mót unglinga í samkvæmisdönsum. Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg, úr dansfélaginu Hvönn, kepptu fyrir Íslands hönd í þessari 10 dansa keppni, en þau eru margfaldir Íslandsmeistarar liðinna ára. Þau náðu að dansa inn í 13 para undanúrslit og enduðu í 11. sæti sem er besti árangur Íslendinga í flokki 14–15 ára til þessa og besti árangur allra Norðurlandabúa í þessari keppni. Samhliða heimsmeistaramóti fór fram opin 5 og 5 dansa keppni þar sem þau höfnuðu í 4. sæti í bæði Standard- og Latin-dönsum. Alex og Ragna eru 13 ára gömul og eru á sínu yngra keppnisári í þessum flokki. Þau hafa dansað saman í 2 ár og hafa þau náð inn í úrslit erlendis í hverri keppninni á fætur annarri, t.d. í Hol- landi, Írlandi, Danmörk og Bretlandi. Í undanúrslit á heimsmeistaramóti Morgunblaðið/Jón Svavarsson FIMMTUDAGINN 6. júlí, kl. 20– 22, verður sjötta gangan í röð gangna um „Græna trefilinn“ í fræðslusamstarfi skógrækt- arfélaganna og KB banka. Gengið verður öll fimmtudagskvöld í júní og júlí og hefjast göngurnar alltaf kl. 20. Upphaf göngunnar er við Sala- skóla í Kópavogi. Þaðan verður gengið í Smalaholt, skógræktar- og útivistarsvæði Kópavogsbúa og í Guðmundarlund, fallegan skóg- arlund sem kenndur er við Guð- mund Jónsson sem var stofnandi og forstjóri Byko. Hann gaf Skóg- ræktarfélagi Kópavogs lundinn til varðveislu og uppbyggingar eftir sinn dag. Bragi Michelsson og Ei- ríkur Páll Eiríksson leiða göng- una og segja m.a. frá sögu svæð- isins, ræktun, náttúru og umhverfi. Boðið verður upp á léttar veitingar og ókeypis rútu- ferð í göngulok, frá Guðmund- arlundi í Salaskóli. Þetta er létt og fræðandi ganga, sem tekur um tvo tíma og eru allir velkomnir. Gengið á Græna treflinum Í SUMAR standa menningarstofn- anir Reykjavíkurborgar fyrir vikulegum kvöldgöngum úr Kvos- inni. Fimmtudaginn 6. júlí verður kvöldganga á vegum Minjasafns Reykjavíkur. Í þeirri göngu verð- ur fjallað um landnám og forn- leifar í Kvosinni, þessum elsta hluta höfuðborgarinnar. Þá verð- ur heimsótt hin nýja og vinsæla landnámssýning, Reykjavík 871 +/- 2. Leiðsögumaður í göngunni er Guðbrandur Benediktsson, sagnfræðingur og deildarstjóri við Minjasafn Reykjavíkur. Að venju er lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17, klukkan 20. Aðgangur er ókeyp- is. Kvöldgöngur úr Kvosinni STJÓRN Skurðlæknafélags Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi álykt- un: „Þann 29. júní sl. var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Stefáns E. Matthíassonar, skurðlæknis, gegn Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. Í dómsorði sagði að áminning sú sem LSH veitti Stefáni teljist ólögmæt. Áminningin var undanfari brottvikningar Stefáns úr starfi yfirlæknis æðaskurðlækn- ingadeildar LSH og skortir brott- vikninguna því lagastoð. Stjórn Skurðlæknafélags Íslands harmar að faglegur ágreiningur innan LSH þurfi að verða viðfangs- efni dómstóla og beinir þeim til- mælum til viðkomandi aðila á LSH að standa að uppbyggingu lækn- ingastarfsemi á sjúkrahúsinu í sátt og samvinnu við faglega yfirmenn. Stjórn Skurðlæknafélags Íslands krefst jafnframt að yfirstjórn Land- spítala – háskólasjúkrahúss fari að lögum og að Stefán E. Matthíasson fái viðunandi lausn sinna mála.“ Mótmæla ákvörð- un stjórnar LSH Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.