Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 6. júlí kl. 12.00: Tómas Guðni Eggertsson, orgel. 8. júlí kl. 12.00: Guðný Einarsdóttir, orgel. 9. júlí kl. 20.00: Guðný Einarsdóttir Kaupmannahöfn, leikur verk eftir Bach, Alain, Widor og Mussorgsky. Lau. 1. júlí kl. 20 laus sæti Sun. 2. júlí kl. 20 laus sæti Fös. 7. júlí kl. 20 laus sæti Lau. 8. júlí kl. 20 laus sæti Sun. 9. júlí kl. 20 laus sæti Fös. 14. júlí kl. 20 laus sæti Lau. 15. júlí kl. 20 laus sæti Sun. 16. júlí kl. 20 laus sæti Fös. 21. júlí kl. 20 laus sæti Lau. 22. júlí kl. 20 laus sæti Sun. 23. júlí kl. 20 laus sæti Fös. 28. júlí kl. 20 laus sæti Lau. 29. júlí kl. 20 laus sæti Sun. 30. júlí kl. 20 laus sæti MIÐAPANTANIR Í SÍMA 437 1600 Sýningar í júní og júlí Á ÞAKINU 6. júlí kl. 20.00 uppselt 7. júlí kl. 20.00 uppselt 8. júlí kl. 20.00 laus sæti 13. júlí kl. 20.00 laus sæti 14. júlí kl. 20.00 laus sæti 15. júlí kl. 20.00 laus sæti Miðasalan er í síma 568 8000 www.borgarleikhus.is www.minnsirkus.is/footloose Á ÞAKINU Miðasala er í síma 568 8000 - www.borgarleikhus.is „Fótafimin hitti í mark!“ „Áhorfendur stóðu upp í lok sýningar og klöppuðu bæði leikarana og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur ítrekað upp.“ Fréttablaðið, grein 1. júlí 2006 „Vel heppnuð sýning!“ „Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Halla Vilhjálmsdóttir eru sannfærandi sem hið aðlaðandi ástfangna par enda bæði stórglæsileg með mikinn sviðsjarma.“ „Dansinn er hér greinilega í fyrirrúmi með glæsilegum árangri.“ Morgunblaðið, gagnrýni 1. júlí 2006 Þátttaka þín hefur afleiðingar[Your Engagement hasConsequences], er titill nýrr- ar bókar um Ólaf Elíasson mynd- listarmann sem nýverið kom út hjá Lars Müller-útgáfunni í Danmörku. Undirtitillinn; Um afstæði raun- veruleika þíns [On the Relativity of your Reality], hnykkir á efniviðn- um, því eins og kunnugt er vinnur Ólafur með hlutverk áhorfandans og aðkomu hans að myndlistinni í flestum verkum sínum. Kenningin sem hann setur fram í bókinni er framhald af þeirri vinnu hans og byggist á því – eins og m.a. kemur fram í samtali hans í bókinni við norska listfræðinginn Inu Bloom – að þátttaka einstaklingsins í um- hverfi sínu geti haft raunveruleg og varanleg áhrif á það. Stuttu eftir að bókin kom út – nánar tiltekið hinn 29. júní sl. – stóð Ólafur, ásamt BMW bílaframleið- andanum, að eins konar óformlegri málstofu í vinnustofu sinni í Berlín, þar sem þessi kenning var meðal umræðuefna, en þátttakendur voru þekktir fræðimenn af ýmsum svið- um auk listskríbenta víðs vegar að í heiminum. Tilefni málstofunnar var fyrst og fremst kynning á skiss- um Ólafs að bíl sem hann er að hanna fyrir BMW. Bíllinn hefur verið skilgreindur sem eins konar „list-bíll“, en fyrirtækið hefur um áratuga skeið beðið heimsfræga listamenn að hanna fyrir sig list- bíla. Meðal þeirra sem tekið hafa áskoruninni í gegnum tíðina eru Andy Warhol, Roy Lichtenstein, Frank Stella, David Hockney og Jenny Holzer. Fram að þessu hafa listamennirnir fyrst og fremst unn- ið að eins konar „endurhönnun“ á tilteknum bílum BMW – aðallega með því að útfæra verk sín utan á þá, eða „mála“ á þá – en allir bílarn- ir eru nú hluti af merkilegri safn- eign bílaframleiðandans.    Bíllinn sem Ólafi var falið aðendurhanna heitir BMW HR2. Um er að ræða byltingarkenndan kappakstursbíl sem ekki hefur ver- ið settur í framleiðslu, þótt honum hafi vissulega verið reynsluekið. Meðal þess er gerir bílinn óvenju- legan er að hann er vetnisknúinn, en hann hefur náð nærri þrjú hundruð km hraða á klukkustund. Fram að þessu hefur Ólafur ein- ungis unnið með undirvagn bílsins sem grunn, en á vinnustofu hans eru til fjölmargar skissur að yf- irbyggingu úr margvíslegum efn- um – til að mynda gleri. Sú hug- mynd sem að lokum var þó útfærð í eins konar þrívíddarskissu var þó úr enn þá nýstárlegra efni – og for- gengilegra – klaka. Í kúluhúsi í garði vinnustofunnar kom teymi Ólafs fyrir frystitækjum og hófst síðan handa við að móta yfirbygg- ingu bílsins úr mörgum lögum af netdúkum sem hjúpaðir voru ís. Af- raksturinn er óneitanlega mjög „líf- rænn“ útlits; uppbyggingin á milli laga ekki ólík viðartrefjum. Bíllinn minnir einnig töluvert á ýmis far- artæki úr vísindaskáldskap og teiknimyndasögum, eða jafnvel á skordýr; Köngulóarmaðurinn hefði t.d. verið fullsæmdur af slíku far- artæki. Fyrirmyndin að þessu útliti er þó ekki fengin af þeim vettvangi heldur er aðferðin, vinnslan með klæðum eða netum, vísun í verk Antonio Gaudí – arkitektsins fræga sem heimsbyggðin þekkir sem höf- und þeirra bygginga er ljá Barce- lona sitt sérstaka andrými með óvenjulegri mýkt og lífrænni fag- urfræði. Þrívíddarskissan í kúluhúsinu vakti að vonum gríðarlega athygli viðstaddra, ekki síst er Ólafur að morgni dags tilkynnti að hann hefði slökkt á frystitækjunum og bíllinn yrði horfinn stuttu eftir miðnæt- urbilið.    Hvað honum gekk til með þvíbragði er auðvitað alls óvíst; en segja má að honum hafi tekist að koma í veg fyrir að skissan sem slík verði að tæki til markaðssetningar stórfyrirtækis, sem auðvitað er um- deildur þáttur í listheiminum. Aug- ljósasta vísun sérstæðs efniviðarins, klakans, er auðvitað í vatnið sem knýr bílinn áfram og þá hreinu orku sem BMW hyggst nýta í aukn- um mæli sem framtíðarorkugjafa í framleiðslu sinni – en um það hverfðist málþingið að nokkru leyti. En jafnframt, sem ekki er síð- ur mikilvægt, má segja að með þessum hætti hafi Ólafi tekist að draga á táknrænan hátt fram áhrif bílaiðnaðarins á umhverfið, því framleiðsla bíla krefst óhemju mik- illar vatnsnotkunar. Hann snýr því óhagstæða dæmi hvað náttúruna varðar síðan við í þessum gjörningi sínum með því að láta umhverfið hafa þau áhrif á bílinn að hann hreinlega hverfur – og það án nokkurs tilkostnaðar hvað endur- vinnslu varðar. Þannig beindi Ólafur athygli þátttakenda málstofunnar að áhrif- um okkar allra, sem einstaklinga er tökum þátt í bæði lífi og list, á um- hverfið. Hann sýndi fram á að „þátttaka [okkar] hefur afleið- ingar“. Í umræðum málstofunnar komu í kjölfarið fram margvíslegar hugmyndir um hlutverk listar Ólafs Elíassonar í því að afhjúpa sam- hengi samfélags og listsköpunar í hugmyndafræðilegum skilningi. Þær lutu m.a. að hlutverki list- arinnar í því að hrinda framförum og breytingum í framkvæmd með því að afhjúpa gagnvirkni manns og umhverfis; ekki einungis í efnis- legum skilningi heldur einnig frum- spekilegum. Afrakstur málþingsins verður síðan birtur á bók eftir að lokaáfangi þessa samstarfs BMW og Ólafs verður afhjúpaður snemma á næsta ári. Hvort þá verð- ur um að ræða bíl í hefðbundnari skilningi en að þessu sinni liggur ekki fyrir, en óneitanlega varð þessi kynning bæði kveikja að væntingum í listrænum skilningi og íhugunarefnum hvað umgengni okkar allra við náttúruna og um- hverfið varðar. Allir sem gengu út að kvöldi dags fundu sterklega fyr- ir því að ákvarðanir þeirra, lífs- máti, áhugasvið – þátttaka þeirra í heiminum eins og Ólafur orðar það – „hefur afleiðingar“ er ná langt út fyrir það svið er við venjulega ger- um okkur í hugarlund. „Þátttaka þín hefur afleiðingar“ ’Afraksturinn er óneit-anlega mjög „lífrænn“ út- lits; uppbyggingin á milli laga ekki ólík viðartrefj- um. Bíllinn minnir [...] óneitanlega á ýmis far- artæki úr vísindaskáld- skap og teiknimyndasög- um, eða jafnvel á skordýr; Köngulóarmað- urinn hefði t.d. verið full- sæmdur af slíku far- artæki. ‘ Kúluhúsið í sólríkum og hlýjum garðinum bjó yfir andstæðum; enda líftími bílsins markaður af frostinu þar innandyra sem féll óðum er leið á daginn. fbi@mbl.is AF LISTUM Fríða Björk Ingvarsdóttir Bíllinn býr yfir „lífrænni“ fagurfræði, þar sem náttúruöflin koma aug- ljóslega við sögu, en gegnsæ uppbygging laganna minnir á viðartrefjar. Framljósin líkjast einna helst auga skordýrs, umlukt grýlukertum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.