Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 1
Fimmtudagur
24. ágúst 2006
LAUGAVEGI 15 • SÍMI 511 1900
www.michelsen.biz
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
RÚSSLAND | 8 SVIPMYND | 12
FJÁR-
FESTINGAR
LANGAR
Í GOLF
ÞETTA HELST…
ÍSLENSKIR
stjórnendur hafa
áhyggjur af
vinnunni þegar
þeir eru í fríi. Einn
af hverjum fjórum
stjórnendum getur
aldrei slitið sig frá
vinnunni þó að hann sé í fríi. Nær
sjö af hverjum tíu viðurkenna að
þeir hafi oft eða stundum áhyggj-
ur vegna vinnunnar þegar þeir eru
í fríi. Þetta er meðal niðurstaðna í
könnun sem VR gerði meðal nær
þrettán hundruð stjórnenda á ís-
lenskum vinnumarkaði á tíma-
bilinu frá maí til júní á þessu ári.
Fjórðungur svarenda í könn-
uninni segist alltaf sinna vinnu-
tengdum verkefnum þegar hann
er í fríi, s.s. að svara símtölum og
tölvupósti, og rúmlega þriðjungur
til viðbótar segist oft sinna
vinnunni í fríinu. Þetta eru karl-
arnir frekar en konurnar, 27%
þeirra segjast alltaf sinna ein-
hverjum vinnutengdum verkefnum
þegar þeir eru í fríi en 17%
kvenna.
Ekki er hins vegar munur á
kynjunum þegar spurt er hvort
áhyggjur vegna vinnu sæki að
fólki þegar það er í fríi, um 70% af
hvoru kyni segja að það gerist oft
eða stundum en um þriðjungur að
það gerist sjaldan eða aldrei.
Úrtakið í könnuninni var 2.750
manns; stjórnendur á almennum
vinnumarkaði og í ríkisstofnunum
og -fyrirtækjum. Svarhlutfall var
46%. Invis ehf. hafði umsjón með
framkvæmd könnunarinnar, en
markmiðið var að kanna hversu
eftirsóknarvert það sé að vera
stjórnandi á Íslandi.
Stjórnendur
með áhyggjurnar
í fríið
PÁLL GUNNAR Pálsson, forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins, telur nauðsynlegt að gripið verði til
aðgerða til þess að auka hreyfanleika viðskipta-
vina íslensku bankanna. „Lítill hreyfanleiki við-
skiptavina á milli banka dregur úr virkni sam-
keppinnar og því er nauðsynlegt að ryðja úr vegi
öllum samkeppnishindrunum á þessum markaði,“
segir Páll
Á fréttamannafundi í gær kynnti Páll Gunnar
skýrslu samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndunum
um norrænu viðskiptabankamarkaðina. Segir Páll
að tilefni skýrslunnar hafi verið sameiginlegar
áhyggjur norrænu samkeppniseftirlitanna af
litlum hreyfanleika viðskiptavina bankanna og að-
gangshindrunum á bankamörkuðum landanna. Þá
sé mikil samþjöppun á markaðinum og fáir nýir
aðilar hafi komið inn.
„Áherslur Samkeppniseftirlitsins í framhaldi
þessarar skýrslu eru þær að traust efnahagsleg
staða íslensku bankanna og góðar afkomutölur í
greininni bendi til þess að svigrúm sé til að auka
samkeppni, sem gæti leitt til betri þjónustu á
lægra verði fyrir neytendur,“ segir Páll.
Sameiginlegt eignarhald
„Samþjöppunin er mikil og það þarf að leita leiða
til að draga úr aðgangshindrunum,“ segir Páll og
bendir á þrjú atriði til þess að ná þessu markmiði.
„Í fyrsta lagi er sameiginlegt eignarhald bank-
anna á greiðslukerfum ákveðið áhyggjuefni.Viss
hætta er á að þeir sem fyrir eru á markaðinum
hindri aðgang nýrra aðila að kerfunum í krafti
eignarhalds síns. Hægt er að bregðast við þessari
hættu með skýrum reglum sem kveða á um rétt-
látan aðgang nýrra aðila á greiðslukerfunum.
Í öðru lagi þarf að draga úr sameiginlegu eign-
arhaldi bankanna og sparisjóða á báðum greiðslu-
kortafyrirtækjunum. Að okkar mati er óheppilegt
að bankarnir sitji báðum megin við borðið sem við-
skiptavinir og eigendur að fyrirtækjunum sem
hafa markaðsráðandi stöðu,“ segir Páll og bætir
við að á þessu ári hafi orðið jákvæðar breytingar á
eignarhaldi greiðslukortafyrirtækjanna.
Afnema þarf letjandi gjöld
Í þriðja lagi nefnir Páll aðgerðir sem hægt sé að
beita til að stuðla að auknum hreyfanleika við-
skiptavina bankanna.
„Það þarf að huga að afnámi stimpilgjalda því
þau letja neytendur til að skipta um banka. Það
þarf að fella niður uppgreiðslugjald af lánum sem
sömuleiðis draga úr því að neytendur leiti annað
með viðskipti sín.
Þá þarf að gæta varúðar við samtvinnun í þjón-
ustu bankanna. Þegar verið er að bjóða neytend-
um pakka á ákveðnum kjörum þar sem ólíkir þjón-
ustuþættir eru bundnir saman, hefur það þau
áhrif að erfitt getur reynst fyrir neytendur að
leysa pakkann upp og leita betri kjara annars
staðar,“ segir Páll.
Páll segir ennfremur að Samkeppniseftirlitið
muni nýta sér skýrslu norrænu samkeppnisyfir-
valdanna til að efla umræðuna um samkeppni á
þessum markaði og móta aðgerðir stofnunarinnar
til framtíðar.
„Við hyggjumst beita okkur frekar á þessum
markaði en hann er einn af áhersluatriðunum í
okkar starfsemi,“ segir Páll Gunnar að endingu.
Nauðsynlegt að auka hreyfan-
leika viðskiptavina bankanna
Morgunblaðið/Jim Smart
Samkeppni og aðgangur Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að ryðja þurfi úr
vegi samkeppnishindrunum til að efla hreyfanleika viðskiptavina bankanna.
Samkeppniseftirlitið leggur til afnám stimpilgjalds og uppgreiðslugjalds
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is