Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 4
4 BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON 27. ÁGÚST 2006 stofan er rúmgóð og stílhrein með stórum svölum. Á veglegu skrifborði eru myndir í ramma af Kristínu Ólafs og Margréti systur hans sem lést af slysförum. Í bak- grunni er risastór mynd frá Jökulsárlóni. Á efri hæðinni eru lóð og boxpúði og upp eftir veggnum mikið safn ljósmynda- og listaverkabóka. „Það er þægilegt að geta flett þeim án þess að þurfa að sökkva sér ofan í þær,“ segir Björgólfur Thor, sem situr í sófanum með tebolla, nýkominn úr ferðalagi og á leið í ferðalag, – það hlýtur stundum að vera einmanalegt? „Jú, örugglega,“ segir hann og brosir. „En ég hef mikið verið einn í gegnum tíð- ina. Ég fór einn utan í háskóla rúmlega tvítugur og þekkti engan. Það var fyrsta sjokkið. Síðan bjó ég mikið einn í Rússlandi. Ég hef vanist því að vera einn á löngum ferðalögum og að eiga stuttan en góðan tíma með fjölskyldunni. Það getur verið einmanalegt, en ef það væri að plaga mig hefði ég skipt um vettvang fyrir löngu. Þetta virðist eiga ágætlega við minn karakter.“ Björgólfur Thor segist hafa verið meira og minna á ferðalögum í tíu til fimmtán ár. „Fyrir mörgum árum borðaði ég með vini mínum, atvinnuflugmanni, og þegar við bárum saman bækur okkar kom á daginn að ég flaug meira en hann. Eftir því sem landsvæðum fjölgar aukast ferðalögin. Þannig að þegar fólk spyr hvar ég eigi heima, þá vaknar önnur spurning: Ef maður er alltaf að ferðast, á maður þá heima á ferðalögum? Og í framhaldi af því: Er maður heima hjá sér þótt maður sé aldrei heima? Mér er það fullljóst að ég get ekki ferðast svona mikið til lengdar. Þetta kemur inn á að Novator verði sjálfstæðari. Ég vinn of mikið, á of mörgum stöðum og hef of lítinn tíma fyrir einkalíf.“ Hann segist hins vegar leggja mikið upp úr því að eiga ánægjulegar stundir með fjölskyldunni þegar færi gefst. „Svo skemmtilega vill til að við Kristín eigum það sameiginlega áhugamál að ferðast. Ótal sinnum höfum við nýtt viðskiptaferðir mínar til að skoða saman ókunnar slóðir. Eftir að sonur minn fæddist höfum við haldið uppteknum hætti. Okkur telst til að hann hafi komið með okkur til 14 landa áður en hann varð árs gamall.“ Því er gjarnan haldið á lofti að Björgólfur Thor hafi sótt drifkraftinn í erfiða reynslu af Hafskipsmálinu og sjálfur hefur hann látið að því liggja í viðtölum. En sumir halda því fram að metnaðurinn sé svo mikill að hann hefði aldrei látið neitt stöðva sig. „Ég held að maður fæðist þannig. Það má segja að þetta sé angi af of- virkni,“ segir Björgólfur Thor íhugull. Og snemma beygist krókurinn því hann fór að bera út dagblöð 11 ára, var sendill hjá Háskólanum 12 ára og stofnaði heimsendingarþjónustu á myndbandsspólum 13 ára. En fleira kemur til. Eftir að hafa heyrt Björgólf Thor tala um gull og brons í sambandi við viðskiptalífið og heimsmeistarakeppni læðist að manni sá grunur að hann sé fyrst og síðast keppnismaður. „Já, auðvitað er þetta keppnisskap!“ svarar hann með áherslu. „Maður finnur sér einhvern til að keppa við og fer svo að keppa við sjálfan sig – að gera betur í dag en í gær. Harðasti húsbóndinn er maður sjálfur. Ég myndi ekki kalla það vítahring en þetta er hringur og maður setur markið alltaf hærra og hærra. Það er bara til ein leið út úr því – að lækka kröfurnar á sjálfan sig. Og það er mjög erfitt.“ Björgólfur Thor segist sjaldan ná að leiða hugann alveg frá starfinu. „Það er erf- itt fyrir mig að róa hugann. Hann er alltaf í gangi. Og erfitt að sofna á kvöldin því það eru svo margar flugvélar á lofti. Ég næ helst að gleyma mér í góðra vina hópi, ekki síst þegar maður hlær að einhverju. Svo gleymi ég mér á skíðum. Þá getur maður ekki hugsað um annað því maður verður að einbeita sér,“ segir hann og hlær. „Annars dettur maður á hausinn! Það skiptir miklu að ná að gleyma sér og hvíla hugann því þá kvikna bestu hugmyndirnar. Og það er mitt starf – að fá hug- myndir.“ Eftir stutt hik segir Björgólfur Thor: „Heyrðu, ég þarf að skreppa á stjórn- arfund Actavis. Ég tek hann í síma héðan. Eigum við að taka stutt hlé?“ Svo kemur hann sér fyrir við tölvu í hliðarherbergi á meðan stjórnarmenn Actavis hringja einn af öðrum inn á símafundinn. Ef hann vantar upplýsingar eða aðstoð er Susy til staðar. Það er hennar starf – að bjarga málunum. Novator, Park Lane 25 Hollustan er í fyrirrúmi í matsalnum í hádeginu, allt þar til eftirréttur er fram- reiddur. Björgólfur Thor ræðir um nánasta vinahópinn, kjarna sem fylgst hefur að síðan í grunnskóla og Verzlunarskólanum. „Við höfum verið samferða í gegnum líf- ið og það hefur þétt böndin. Þetta var stór vinahópur og því var í lagi að grisjaðist úr honum. Ég hef ekki eignast marga nýja vini; það er frekar að vinir hafi fjarlægst sem maður kynntist upp úr tvítugu á djamminu. Ég á líka vini í öðrum löndum, s.s. Rússlandi. Þar sem tíminn er knappur er ég alltaf að reyna að forgangsraða. En sama hvar borið er niður, heimili, fjölskylda, vinir eða vinna, þá tekst mér ekki að gefa öllu mínu fólki þann tíma sem ég vildi.“ Þeim sem þekkja til Björgólfs Thors ber saman um að hann sé mikill fjöl- skyldumaður. Hann sé mjög náinn fjölskyldu sinni, systkinum og foreldrum. Þessi bönd hafa styrkst enn frekar eftir að hann varð pabbi. „Það hefur áhrif á hvernig maður ver tímanum og minna verður til skiptanna. Þetta er grundvallarbreyting og auðvitað af hinu góða.“ Þó að tíminn sé af skornum skammti skipuleggur Björgólfur Thor oft sam- verustundir erlendis fyrir fjölskyldu og vini. „Við Kristín höfum oft kúplað okkur frá öllu, enda eigum við griðastaði víða um heim. Þá hef ég reynt að eyða hluta sumarleyfis og jólum með foreldrum, tengdaforeldrum og systkinum erlendis. Við vinirnir förum síðan saman í ýmsar ferðir, t.d. fjallahjólaferðir í Afríku, og þröngur Nina deRoy þáttastjórnandi í viðtali við Björgólf Thor. Helene Barbeyron færir jörðina svo hún verði ekki fyrir neinum. Það er í nógu að snúast á skrifstofu Novators.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.